Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2006-07

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Bein lýsing
SS-Bikar Karla - Selfoss 18. október kl: 19:00
Selfoss
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Selfoss og Akureyrar í 32-liða úrslitum SS-Bikars karla. Leikurinn hefst klukkan 19:00.


Tími   Staða   Skýring
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Selfoss og Akureyrar í 32-liða úrslitum SS-Bikars karla. Leikurinn hefst klukkan 19:00.
Leikurinn fer að hefjast
Leikurinn er hafinn, tengiliður síðunnar þurfti að vinna í miðasölunni og því misstum við af byrjuninni.
Það styttist í fyrstu fréttir af leiknum
16:00 7-11 Tengiliður okkar var að komast í salinn og staðan er 11-7 fyrir Akureyri.
18:00 Selfoss nær boltanum eftir góða vörn
18:36 8-11 Andri Snær fiskar boltann en missir hann svo og Selfoss minnkar muninn
19:20 8-12 Alex með glæsilega línusendingu á Hörð Fannar sem setur hann í gólfið og vinkilinn inn
19:56 9-12 Selfoss minnkar muninn með marki úr hægri skyttunni
Magnús Stefánsson klikkar á skoti og Selfoss nær boltanum
20:42 9-13 Selfoss klikkar á skoti og Andri Snær skorar úr hraðaupphlaupi
21:02 10-13 Selfoss skorar af miðjunni - skot af gólfi
Magnús tekinn föstum tökum - Akureyri er ekki að leika hraðann bolta
21:40 10-14 Aigars með gríðarlega góða fintu og skorar
Selfoss skýtur yfir úr dauðafæri
22:22 10-15 Akureyri keyrir upp og Nikolaj klikkar í góðu færi - Hörður Fannar stekkur inn í teiginn og blakar boltanum inn
23:01 10-16 Andri Snær nær boltanum - geysist fram og skorar sjálfur úr hraðaupphlaupinu
23:30 11-16 Selfoss minnkar muninn
23:51 12-16 Nikolaj klikkar og Selfoss með langa sendingu fram - mark
24:08 12-17 Nikolaj skorar með sirkusmarki eftir sendingu frá Kuzmins
24:52 13-17 Selfoss skorar
26:05 13-18 Jankovic skorar úr horninu
26:48 14-18 Selfoss skorar af línunni eftir gott spil
27:17 15-18 Alex missir boltann og Selfoss skorar úr hraðaupphlaupi - Alex er svo rekinn útaf í 2 mínútur
28:00 Andri Snær fer inn úr horninu en markmaður Selfoss ver - Selfoss fær boltann
28:30 16-18 Selfoss manni fleiri og minnka muninn í 2 mörk
28:49 Magnús missir boltann en Selfoss brennir af úr hraðaupphlaupi
29:30 16-19 Ásbjörn skorar fyrir Akureyri
30:00 Sveinbjörn ver síðasta skot hálfleiksins og staðan í hálfleik 16-19 fyrir Akureyri
Rúnar Sigtryggsson og Sævar Árnason eru afar brúnaþungir þegar þeir ganga til búningsherbergja - þeir eru allt annað en sáttir með leik liðsins
Mörk Akureyrar: Nikolaj 7, Andri Snær 5, Hörður Fannar 3, Kuzmins 1, Magnús 1, Aigars 1, Ásbjörn 1.
30:01 Seinni hálfleikur er hafinn
Rúnar Sigtryggs er kominn inn í vörn Akureyrar
30:45 Góð vörn hjá Herði. Akureyri vinnur boltann og Nikolaj skýtur í slánna.
31:15 17-19 Selfoss minnkar muninn í 2 mörk
31:25 Arnar Sveinbjörnsson kominn inn fyrir Sveinbjörn í markið
32:20 Ásbjörn fer í gegn en dæmd er á hann lína - Selfoss fær boltann
32:30 Selfyssingar skjóta framhjá
32:58 17-20 Hörður skorar af línunni eftir sendingu frá Ásbirni
33:40 17-21 Rúnar fiskar boltann - sendir á Nikolaj sem skorar
34:00 Hörður Fannar fær tveggja mínútna brottvísun
34:10 18-21 Selfoss stimplar út í hægra horn og skora
34:28 18-22 Goran með gott mark úr hægri skyttunni
Selfoss fiskar vítakast
35:07 19-22 Þeir skora svo úr vítakastinu
35:48 19-23 Goran með annað mark í hægri skyttunni
Arnar Sveinbjörns í marki Akureyrar ver vel úr horninu - Akureyri fær boltann
36:39 19-24 Goran skýtur - markmaður Selfoss ver en Hörður Fannar skorar úr frákastinu
37:49 20-24 Selfyssingar með flott spil, galopna vörn Akureyrar og enda það svo með góðu marki
38:05 Hörður Fannar fiskar vítakast
38:09 20-25 Goran skorar úr vítinu
38:55 21-25 Selfoss með undirskot sem Arnar ver og inn
Ásbjörn með sendingu á Nikolaj sem klikkar en það er dæmt aukakast
40:17 22-25 Nikolaj brennir af og Selfoss skorar eftir hraða sókn
40:40 Tveggja mínútna brottvísun dæmd á leikmann Selfoss
40:55 Andri fer inn úr horninu og markmaður Selfoss með undraverða markvörslu
Selfoss missir boltann
41:37 22-26 Nikolaj fer inn og skorar
42:27 Tvígrip dæmt á Selfoss - Akureyri keyrir upp en Hörður klikkar á línunni. Selfoss fær boltann
Selfoss galopnar vörn Akureyri - Arnar ver en vítakast dæmt
43:10 23-26 Selfoss skorar úr vítinu
43:52 23-27 Akureyri skorar - Asbjörn með markið
Selfoss brennir strax af og Akureyri fær boltann
44:46 23-28 Magnús með mark úr gegnumbroti
45:00 Arnar ver. Akureyri nær boltanum og keyrir og Andri skýtur í stöng. Selfoss fær boltann en leikmaður þeirra fær 2 mínútur
46:01 Vörn Akureyrar ver 2 skot í röð - Selfoss enn með boltann
Hönd dómarans er uppi
46:26 Selfoss klikkar og Akureyri fær boltann
46:53 23-29 Maggi skorar eftir hraða sókn
24-29 Ramulas skorar fyrir Selfoss eftir gegnumbrot
Aigars með skot sem er varið af vörninni og heldur Akureyri boltanum
47:53 24-30 Ásbjörn með undirhandarskot og skorar - stórglæsilegt mark
48:00 Selfoss missir boltann
48:33 24-31 Heiðar, sem er kominn í hornið, fer inn og skorar
48:34 Selfoss tekur leikhlé
48:49 24-32 Aigars fiskar boltann - sendir á Hörð Fannar sem að skorar
49:40 25-32 Ramulas með góða fintu og skorar
Nikolaj með skot sem er varið af vörninni - höndin er uppi
50:20 25-33 Goran skorar eftir undirbúning Ásbjörns
51:17 25-34 Rúnar fiskar boltann og Ásbjörn skorar úr hraðaupphlaupi
52:02 26-34 Selfoss með mark af miðjunni
52:31 26-35 Goran með mark úr skyttunni
53:30 27-35 Selfoss með mark
54:00 Heiðar missir boltann - Selfoss keyrir upp og 2 mínútur dæmdar á Atla Ævar í liði Akureyrar
54:15 Selfoss missir boltann
27-36 Selfoss vinnur boltann - en glata honum og Heiðar skorar úr hraðaupphlaupi
55:20 27-37 Akureyri vinnur boltann og Þorvaldur skorar
55:43 28-37 Selfoss minnkar muninn eftir barning
56:20 28-38 Heiðar fer inn og brennir af. Selfoss fær boltann og keyra upp. Aigars hins vegar vinnur boltann og skorar sjálfur
29-38 Selfoss skorar
57:00 29-39 Heiðar skorar
57:35 30-39 Arnar ver en víti dæmt - Selfoss skorar
30-40 Ásbjörn skorar með uppstökki af miðjunni
58:35 Selfoss með skot í slá og Akureyri fær boltann. Keyra upp og 2 mínútur dæmdar á leikmann Selfoss
Heiðar stígur á línu og lét verja frá sér - Heiðar vinnur svo boltann og gefur á Aigars sem missir boltann
59:32 Lína dæmd á Selfoss og Akureyri með boltann
59:50 30-41 Goran skorar
59:57 2 mínútur á Aigars
60:00 Arnar ver seinasta skot leiksins og lokatölur 30-41.
Tölfræði:
Markmenn: Sveinbjörn 7 varin skot, 17 mörk á sig og Arnar með 12 varin og 13 mörk á sig
Mörk: Nikolaj 9, Hörður Fannar 6, Goran 6, Andri Snær 5, Ásbjörn 5, Heiðar 3, Magnús 3, Þorvaldur 2 og Aigars 2.

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson