Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2006-07

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Bein lýsing
DHL deild karla - KA-Heimilið 10. desember kl: 16:00
Akureyri
 
Haukar
0
-
0
00:00
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Akureyrar og Hauka í 10. umferð DHL deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 16:00.


Tími   Staða   Skýring
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Akureyrar og Hauka í 10. umferð DHL deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Upphitun er í fullu gangi hjá liðunum
Hópur Akureyrar
Markmenn: Sveinbjörn Pétursson og Hreiðar Levý Guðmundsson
Útileikmenn: Andri Snær Stefánsson, Magnús Stefánsson, Ásbjörn Friðriksson, Þorvaldur Þorvaldsson, Nikolaj Jankovic, Rúnar Sigtryggsson, Goran Gusic, Bjarni Gunnar Bjarnason, Aigars Lazdins, Heiðar Þór Aðalsteinsson, Alexey Kuzmins og Hörður Fannar Sigþórsson
Hópur Hauka
Markmenn: Magnús Sigmundsson, Björn Viðar Björnsson og Björn Ingi Friðþjófsson
Útileikmenn: Kári Kristjánsson, Freyr Brynjarsson, Andri Stefan, Samúel Ívar Árnason, Jón Karl Björnsson, Sigurbergur Sveinsson, Gísli Jón Þórisson, Guðmundur Pedersen, Arnar Pétursson, Árni Þór Sigtryggsson og Þröstur Þráinsson
Dómarar eru Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson
Leikurinn hefst eftir rétt rúmar 5 mínútur
Liðin eru að koma inn á völlinn
Búið er að kynna liðin, stutt er í að leikurinn hefjist
Haukar munu byrja með boltann
Sveinbjörn mun byrja í marki Akureyrar og Magnús í marki Hauka
00:01 Haukar hafa hafið leikinn
00:22 Árni með skot í vörn Akureyrar og Haukar eiga hornkast
00:42 Andri Stefan fiskar vítakast
01:04 0-1 Guðmundur skorar úr vítinu, hann gaf sér góðan tíma í þetta
01:32 Akureyri missir boltann
01:40 0-2 Samúel skorar úr hraðaupphlaupi fyrir Hauka
01:59 Goran fiskar vítakast, hann er í skyttunni
02:19 1-2 Goran skorar af miklu öryggi
02:43 Brotið á Haukum
02:54 Haukar fá hornkast
03:09 Sveinbjörn ver og Akureyri með boltann
03:22 Goran skýtur framhjá fyrir utan
03:33 Haukar að byggja upp sókn
03:50 Brotið á Samúel
04:02 Sveinbjörn ver frá Árna, Akureyri með boltann
04:15 2-2 Goran Gusic skorar eftir fína stimplun
04:39 Árni fer í gegn og fær víti fyrir Hauka, Magnús fær gult spjald
04:59 2-3 Guðmundur skorar úr vítinu
05:25 Brotið á Goran
05:59 3-3 Hörður Fannar skorar af línunni eftir sendingu frá Kuzmins
06:12 3-4 Arnar skorar fyrir Hauka
06:34 Brotið á Herði Fannari
06:46 4-4 Kuzmins skorar fyrir utan og Arnar fær gult spjald
07:08 Magnús brýtur á Árna
07:20 4-5 Samúel skorar í horninu
07:46 Andri Snær klikkar fyrir utan
07:51 Samúel klikkar hraðaupphlaupi
08:01 Boltinn dæmdur af Akureyri
08:36 Sveinbjörn ver og Hörður Fannar nær boltanum
08:45 5-5 Rúnar Sigtryggsson fer upp og skorar gott mark
09:11 Brotið á Arnari
09:24 Brotið á Kára á línunni
09:37 Sveinbjörn ver en Haukar með boltann
09:50 Goran stal boltanum en dómararnir gáfu Haukum aukakast
10:05 Sveinbjörn ver en Haukar eiga innkast
10:19 Samúel skýtur fyrir utan en klikkar
10:31 Hörður Fannar fiskar vítakast, Magnús senti á hann
10:54 6-5 Goran skorar úr vítinu
11:23 Árni kastar boltanum útaf, Akureyri með boltann
11:38 Brotið á Herði Fannari á línunni og Arnar fær 2 mínútur, aðeins aukakast dæmt þó
Leikurinn er stopp, ljósin í húsinu eru smá að klikka, þetta ætti að lagast eftir smá stund
11:39 Akureyri hefur leikinn að nýju
11:51 Magnús fer í gegn en klikkar illa í dauðafæri, Haukar með boltann
12:24 Brotið á Andra Stefan
12:32 Tíminn er stopp, Samúel Ívar reyndi að fiska tvær mínútur og það gekk, Þorvaldur fer útaf
12:33 Haukar hefja leikinn að nýju, fólk er ekki sátt með leikaraskap
12:45 6-6 Andri Stefan skorar fyrir utan
13:00 Akureyri byggir upp sókn
13:11 7-6 Kuzmins brýst í gegn og skorar
13:36 Sveinbjörn ver frá Andra Stefan en brotið er á honum
13:54 Sveinbjörn ver frá Sigurbergi en brotið var á honum og Rúnar fær gult spjald
14:05 Haukar halda boltanum eftir að fótur var dæmdur á Akureyri
14:16 Vörn Akureyrar er hörkugóð
14:28 Akureyri vinnur boltann
14:34 Bæði lið komin með fullskipað lið
14:53 Magnús með misheppnaða línusendingu og Haukar með boltann
15:07 Ruðningur dæmdur á Árna, Akureyri með boltann
15:34 Magnús skýtur framhjá
15:56 Sveinbjörn ver enn og aftur og Akureyri með boltann
16:06 Haukar eru að spila 6-0 vörn en Akureyri 5-1
16:25 Andri Snær klikkar í horninu
16:34 7-7 Kári jafnar af línunni
16:48 Guðmundur næstum því búinn að stela boltanum, Akureyri með boltann
17:06 Akureyri tekur skot fyrir utan en það klikkar
17:27 Brotið á Árna
17:39 7-8 Kári skorar af línunni
17:59 Brotið á Kuzmins
18:11 Brotið á Magnúsi þegar hann fór upp fyrir utan
18:32 Magnús klikkar fyrir utan, Haukar með boltann
19:02 7-9 Andri Stefan skorar fyrir utan
19:13 Heiðar Þór kemur inn í vinstra horn Akureyrar
19:35 Brotið á Goran en ekkert dæmt, Magnús nær boltanum þó aftur fyrir Akureyri
19:45 Magnús ver frá Herði Fannari í dauðafæri og Haukar með boltann
20:02 Haukar að byggja upp sókn
20:11 Brotið á Gísla
20:27 Guðmundur fær víti fyrir Hauka eftir að Sveinbjörn hafði varið
20:28 Hreiðar Levý fer í mark Akureyrar fyrir vítið
20:30 Jón Karl skýtur yfir markið
20:45 Akureyri með boltann
21:14 Brotið á Goran
21:22 8-9 Magnús fer í gegn og skorar
21:52 Sveinbjörn ver en Haukar fá ansi ódýrt vítakast, þetta jaðraði við ruðning
21:59 Hreiðar fer aftur í markið, nú gegn Guðmundi
22:01 8-10 Guðmundur skorar
22:30 Hörður Fannar fær aðeins aukakast þegar honum var haldið inn í teig
22:48 9-10 Hörður Fannar nær frákasti og skorar
23:12 Brotið á Andra Stefan
23:29 Brotið á Andra Stefan
23:42 9-11 Sigurbergur skorar fyrir utan
24:01 Akureyri byggir upp sókn
24:05 Ásbjörn kominn á miðjuna
24:17 Brotið á Goran
24:29 10-11 Magnús skorar fyrir utan
24:57 Akureyri fær boltann
25:03 11-11 Heiðar Þór skorar úr hraðaupphlaupi
25:28 Brotið á Sigurbergi
25:40 11-12 Guðmundur skorar í horninu
26:05 12-12 Magnús fer í gegn og skorar eftir sendingu frá Ásbirni
26:32 Sigurbergur kastar boltanum útaf, Akureyri með boltann
26:43 Skot framhjá hjá Akureyri, Haukar með boltann og Hreiðar Levý kominn í mark Akureyrar
27:03 Borið á Gísla
27:28 Kári fiskar vítakast
27:50 12-13 Guðmundur vippar yfir Hreiðar
28:15 Magnús skýtur í stöng og útaf
28:27 12-14 Kári skorar af línunni
28:49 Brotið á Herði Fannari
29:03 Brotið á Þorvaldi á línunni
29:19 13-14 Heiðar skorar í horninu, eftir sendingu frá Magnúsi
29:42 Brotið á Andra Stefan
29:55 Akureyri tekur leikhlé eftir að lína var dæmd á Hauka
Tekst Akureyri að jafna leikinn fyrir leikhlé?
29:56 Hreiðar hefur leikinn aftur eftir leikhléið
30:00 Brotið á Goran fyrir utan og Guðmundur fær 2 mínútur, það er aukakast og búið
30:00 Rúnar tekur aukakastið
30:00 Rúnar með flott skot en Magnús ver skotið vel
Staðan er því 13-14 fyrir Hauka í hálfleik
Tölfræði er á leiðinni
Mörk/skot
Goran 3/4 (2/2 víti), Magnús 3/8, Heiðar 2/2, Kuzmins 2/3, Hörður Fannar 2/3, Rúnar 1/3 og Andri Snær 0/2
Varin skot/mörk fengin á sig
Sveinbjörn 11/11 og Hreiðar Levý 0/3
Mörk Hauka
Guðmundur 5, Kári 3, Samúel 2, Andri Stefan 2 og Sigurbergur 1
Skrýtin ákvörðun hjá þjálfarateymi Akureyrar að taka Sveinbjörn útaf og setja Hreiðar Levý inn á, en Sveinbjörn hefur verið að verja mjög vel
Liðin eru að koma inn á völlinn að nýju
Akureyri mun hefja seinni hálfleikinn, Hreiðar heldur áfram í marki Akureyrar
30:01 Akureyri hefur hafið síðari hálfleikinn
30:12 Tíminn er stopp, eitthvað rusl á vellinum
30:13 Akureyri hefur leikinn að nýju
30:28 14-14 Jankovic skorar í þröngu færi í horninu
31:09 Hreiðar ver frá Andra Stefan
31:20 Lína dæmd á Akureyri eftir að liðið náði frákasti
31:50 Heiðar nær að brjóta á Samúel sem var við það að sleppa í gegn
32:04 Hreiðar ver og Akureyri með boltann
32:45 Brotið á Goran
32:53 Kuzmins fer í gegn en klikkar
33:07 Hörður Fannar fær 2 mínútur fyrir lítið brot
33:08 Haukar hefja leikinn á ný eftir smá hlé
33:24 14-15 Jón Karl skorar í horninu fyrir Hauka
34:01 Magnús missir boltann
34:22 14-16 Samúel skorar í horninu fyrir Hauka
34:52 Magnús markvörður Hauka ver frá Goran
35:04 Samúel skýtur framhjá í dauðafæri
35:32 Brotið á Magnúsi sem lyfti sér upp fyrir utan
35:58 Jankovic klikkar í afar þröngu færi, Aigars kominn inn fyrir Goran
36:23 Gísli fær aukakast, hann var að sleppa í gegn
36:44 Brotið á Árna
36:56 Lína dæmd á Jón Karl
37:04 15-16 Jankovic skorar í horninu, hann klobbaði Magnús!
37:36 Árni með skot í stöng og útaf
37:50 16-16 Hörður Fannar skorar af línunni og Arnar fær 2 mínútur öðru sinni
38:11 Brotið á Samúel
38:32 Hreiðar ver en Haukar halda boltanum
38:49 Brotið á Gísla
39:09 17-16 Jankovic skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Akureyri náði boltanum
39:34 Brotið á Gísla, flott stemmning í húsinu
39:50 Haukar með skot í slá og Rúnar nær boltanum
40:01 18-16 Heiðar skorar í horninu
40:26 Fótur dæmdur á Þorvald
40:37 Brotið á Sigurberg
40:51 18-17 Sigurbergur fer í gegn og skorar
41:21 Magnús lætur verja frá sér fyrir utan, Haukar með boltann
41:50 Brotið á Kára, tíminn er stopp, verið að þurrka
41:51 Haukar hefja leikinn að nýju
42:02 Árni skýtur langt yfir en dómararnir dæma hornkast
42:22 Hreiðar Levý ver og Akureyri með boltann
42:34 19-17 Magnús skorar flott mark og kemur Akureyri aftur tveim mörkum yfir
43:12 Hreiðar Levý ver frábærlega en Haukar fá aukakast, lína dæmd
43:28 Andri Stefan með skot framhjá
43:38 Magnús í marki Hauka ver og Haukar með boltann
43:59 Brotið á Sigurbergi
44:14 Hreiðar ver frá Andra Stefan og Akureyri með boltann
44:25 Magnús ver og Haukar fá aftur boltann
44:38 Hreiðar ver ótrúlega frá Kára á línunni, Akureyri með boltann
44:55 Akureyri að byggja upp sókn
45:11 Akureyri missir boltann útaf
45:26 19-18 Kári snýr boltann inn af línunni
46:00 Misheppnuð sending frá Kuzmins og Haukar með boltann
46:30 19-19 Sigurbergur skorar fyrir utan
46:58 Magnús ver frá Ásbirni
47:08 19-20 Jón Karl skorar
47:34 Brotið á Kuzmins
47:47 Kuzmins kastar boltanum útaf
47:58 Akureyri vinnur boltann
48:04 20-20 Jankovic klobbar Magnús úr hraðaupphlaupi
48:10 Bekkur Hauka fær gult spjald
48:34 20-21 Sigurbergur fintar Hörð Fannar í drasl og skorar
48:54 21-21 Kuzmins fer í gegn og skorar
49:25 Brotið á Andra Stefan sem leysir inn
49:40 Hreiðar ver en Haukar fá innkast
49:53 Hreiðar ver frá Kára og Akureyri með boltann
50:04 Haukar með boltann eftir að sending á Hörð Fannar misheppnaðist
50:27 21-22 Sigurbergur skorar enn fyrir utan
50:58 Brotið á Magnúsi
51:16 Brotið á Magnúsi
51:28 22-22 Hörður Fannar skorar af línunni eftir sendingu frá Kuzmins
51:59 22-23 Andri Stefan fer í gegn og skorar
52:22 Brotið á Rúnari sem er kominn í sóknina fyrir Magnús
52:45 Brotið á Aigars
52:59 Heiðar skýtur framhjá eftir að honum var stuggað, ekkert dæmt
53:28 22-24 Sigurbergur skorar
53:40 23-24 Hörður Fannar skorar af línunni eftir sendingu frá Aigars
54:10 Brotið á Sigurberg
54:23 23-25 Kári skorar af línunni
54:44 Brotið á Þorvaldi á línunni
55:03 24-25 Goran skorar í horninu
55:12 Akureyri verður að stöðva þessa sókn
55:31 24-26 Sigurbergur heldur áfram að skora
55:41 25-26 Magnús er fljótur að fara í gegn og skora
56:04 Goran tekur Sigurberg úr umferð
56:20 Hreiðar ver frá Árna
56:30 Magnús skýtur strax fyrir utan en nafni hans ver, Haukar með boltann
56:58 25-27 Andri Stefan skorar fyrir utan
57:02 Akureyri tekur leikhlé
Er nægur tími eftir fyrir Akureyri til að fá eitthvað úr þessum leik?
57:03 Akureyri hefur leikinn að nýju eftir leikhlé
57:22 Brotið á Þorvaldi
57:40 Aigars komst í gegn og skoraði en dómararnir dæmdu aukakast
57:50 26-27 Rúnar skorar fyrir utan
58:17 Hreiðar ver frá Kára í dauðafæri og Akureyri með boltann
58:31 Goran fór í gegn í horninu en brotið var illa á honum og hann fékk vítakast, tíminn er stopp
58:33 Goran skýtur framhjá
58:50 Haukar í sókn
59:05 Árni skýtur framhjá
59:22 Rúnar brýst í gegn og fiskar vítakast
59:24 27-27 Goran skorar núna
59:30 Haukar taka miðjuna
59:38 Haukar taka leikhlé
Tekst Akureyri að stela boltanum og ná sigri?
59:39 Haukar hefja leikinn á ný
60:00 Akureyri stal boltanum en lína var dæmd á Goran sem var kominn einn í gegn
Leikurinn endar því 27-27
Línan var ansi tæp á Goran en hann skoraði
Fólk er alls ekki sátt með þessa línu sem kostaði Akureyri eitt stig
Hreiðar Levý átti mjög góðan seinni hálfleik og sýndi svo sannarlega af hverju hann fékk að byrja síðari hálfleikinn
Skelfilegt að Akureyri hafi ekki náð að stöðva Sigurberg sem skoraði 6 mörk í síðari hálfleik
Mörk/skot
Hörður Fannar 5/6, Goran 5/8 (3/4 víti), Magnús 5/13, Jankovic 4/5, Heiðar 3/4, Kuzmins 3/5, Rúnar 2/5, Ásbjörn 0/1 og Andri Snær 0/2
Varin skot/mörk fengin á sig
Hreiðar Levý 11/16 og Sveinbjörn 11/11
Heimasíðan hefur farið yfir atvikið hjá Goran undir lok leiks á myndbandi og hefur komist að þeirri niðurstöðu að það var rétt að dæma línu. Jafntefli er því hárrétt niðurstaða.

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson