Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2006-07

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Bein lýsing
DHL deild karla - Safamýri 1. apríl kl: 16:00
Fram
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Íslandsmeistara Fram og Akureyrar í 18. umferð DHL-Deildar karla, leikurinn hefst klukkan 16:00. Með sigri kemur Akureyri sér í baráttuna um sæti í Deildarbikarnum en með tapi eru möguleikarnir á því litlir.


Tími   Staða   Skýring
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Íslandsmeistara Fram og Akureyrar í 18. umferð DHL-Deildar karla, leikurinn hefst klukkan 16:00. Með sigri kemur Akureyri sér í baráttuna um sæti í Deildarbikarnum en með tapi eru möguleikarnir á því litlir.
Frétt af leikmannahópi Akureyrar
Þorvaldur Þorvaldsson mun ekki leika í dag vegna meiðsla. Ekki er víst hvaða leikmaður kemur inn í hóp fyrir hann.
Þá er einnig Friðrik Sæmundur Sigfússon liðsstjóri Akureyrar fjarri góðu gamni og kemur í hans stað Stefán Rúnar Árnason á bekkinn.
Það er farið að styttast gríðarlega í leikinn
Lýsingin verður með aðeins öðrum hætti í dag heldur en venjulega vegna þess að Stefán Árnason er á bekknum sem liðsstjóri
Búið er að kynna liðin
01:00 0-1 Ásbjörn skorar og kemur Akureyri yfir
01:25 1-1 Stefán skorar fyrir Fram
02:30 1-2 Magnús skorar frábært mark
Byrjunarlið Akureyrar: Andri vinstra horn, Magnús vinstri skytta, Ásbjörn leikstjórnandi, Einar Logi hægri skytta, Jankovic hægra horn og Hörður Fannar á línu
03:26 2-2 Þorri Gunnarsson skorar fyrir Fram og jafnar
04:30 Fram á víti
04:32 Hreiðar Levý ver vítið!
04:32 Jóhann Gunnar tók vítið fyrir Framara en Hreiðar varði eins og fyrr kom fram
05:00 2-3 Einar Logi skorar fyrir Akureyri
05:12 Akureyri er að spila 3-2-1 vörn með Andra Snæ fyrir framan
05:55 3-3 Einar Ingi Hrafnsson skorar fyrir Fram
06:50 3-4 Hörður Fannar skorar fyrir Akureyri, flott byrjun
07:01 Vörn Akureyrar er fín en hefur þó opnast nokkrum sinnum
08:00 4-4 Andri Berg Haraldsson jafnar enn fyrir Framara
09:00 4-5 Hörður Fannar skorar gott mark
Hörður Fannar fær 2 mínútna brottvísun eftir brot á Jóhanni
10:02 Brotið var mjög furðulegt og í raun mjög gróft. Leikurinn er stopp, áhorfendur í Safamýri heimta rautt spjald en Hörður sleppur með 2 mínútur
10:03 Leikurinn er hafinn að nýju
10:20 5-5 Einar Ingi Hrafnsson skorar fyrir Fram
11:00 Björgvin ver frá Jankovic
11:10 6-5 Andri Berg kemur Fram yfir í fyrsta skiptið í leiknum
12:00 7-5 Stefán skorar fyrir Framara
Aigars situr á varamannabekknum og borar í nefið!
13:22 Framarar í sókn, bæði lið með fullskipað lið
14:20 Framarar fá vítakast
14:30 8-5 Einar Ingi Hrafnsson skorar úr vítinu
Verulega slæmur kafli hér hjá Akureyri, þeir hafa ekki skorað núna í rúmlega 5 mínútur og hafa fengið á sig 4 mörk á sama tíma
15:15 8-6 Hörður Fannar skorar með laglegu skoti fyrir utan
15:35 9-6 Stefán skorar hinsvegar strax fyrir Framara
15:55 Goran Gusic skýtur yfir
16:45 9-7 Jankovic skorar úr horninu
17:48 Tíminn er stopp
Atli Ævar kemur inn á og einnig er Rúnar kominn inn
18:00 9-8 Goran Gusic minnkar muninn
18:35 Sveinbjörn kemur í mark Akureyrar og lína dæmd á Fram
18:50 9-9 Jankovic jafnar leikinn með flottu marki
19:10 10-9 Hjörtur Hinriksson skorar fyrir Fram
Andri Snær klikkar fínu færi og Fram með boltann
20:00 10-10 Atli Ævar skorar og jafnar leikinn
20:35 Jankovic klikkar dauðafæri, Akureyri er alltaf í sókn!
21:00 Leikurinn er í járnum
21:50 11-10 Andri Berg skorar fyrir Fram
22:00 Rúnar fiskar víti sem Goran mun taka
22:10 Goran Gusic hinsvegar klikkar
22:40 12-10 Andri Berg skorar fyrir Framara
23:35 12-11 Jankovic skorar gott mark
24:00 13-11 Einar Ingi Hrafnsson skorar fyrir Framara
25:00 Andri Berg fær 2 mínútna brottvísun en Andri Snær klikkar dauðafæri
25:21 Hörður Fannar stelur boltanum
25:40 13-12 Jankovic skorar
26:30 14-12 Hjörtur Hinriksson skorar „skelfilegt“ mark
26:41 Andri Berg kemur aftur inn en fær strax 2 mínútur aftur
26:42 Leikurinn hefst að nýju eftir hlé
27:00 14-13 Magnús skorar gott mark
27:52 Hörður Fannar fær 2 mínútna brottvísun, ritara heimasíðunnar fannst leikmaður Fram kasta sér niður og fiska Hörð útaf
28:07 Fram tekur leikhlé
28:08 Leikurinn hefst að nýju
28:16 Sveinbjörn ver frá Siffa og Akureyri með boltann
Aigars hinsvegar fær dæmdan á sig ruðning
28:44 Tíminn er stopp, verið að þurrka á gólfinu
28:45 Leikurinn hefst að nýju
Skref dæmd á Serenko leikmann Fram
29:25 Akureyri tekur leikhlé
29:26 Leikurinn hafinn að nýju
29:30 14-14 Jankovic jafnar
Akureyri nær boltanum
30:00 15-14 En Hjörtur Hinriksson nær að koma boltanum í net Akureyrar og Framarar leiða 15-14 í hálfleik
Mörk Akureyrar:
Jankovic 5, Hörður Fannar 3, Magnús 2, Ásbjörn 1, Atli Ævar 1, Einar Logi 1 og Goran Gusic 1
Seinni hálfleikur er að hefjast
30:01 Síðari hálfleikur er hafinn
30:30 16-14 Jóhann Gunnar Einarsson skorar fyrir Fram
31:20 16-15 Goran Gusic skorar og minnkar muninn
31:42 Rúnar fær 2 mínútna brottvísun
32:10 17-15 Stefán skorar og Sveinbjörn fer útaf fyrir Hreiðar Levý. Sveinbjörn átti ekki sinn besta leik á þessum kafla þar sem hann var inná
33:10 Akureyri missir boltann
33:15 18-15 Einar Ingi skorar fyrir Fram
34:00 Akureyri með fullskipað lið en missir boltann
34:05 Hreiðar Levý ver og Akureyri fær boltann á ný
34:24 Tíminn er stopp, Framaralagið er í spilun
34:45 Framarar fá víti, það var af ódýrari gerðinni
34:55 19-15 Einar Ingi Hrafnsson skorar
Vörnin hjá Akureyri heldur engan veginn og sóknarleikur Akureyrar er þunglamalegur
35:40 Brjánn leikmaður Fram fær 2 mínútur en Framarar eru með boltann, Jankovic klikkaði
36:24 Akureyri fær víti, Goran Gusic náði í það
36:25 Goran Gusic klikkar aftur á víti, Magnús Ellertsson varði
Magnús Ellertsson ver vel frá Akureyringum sem eru einum fleiri
37:20 Magnús fær dæmdan á sig ruðning, leikur Akureyrar er skelfilegur
38:00 19-16 Goran Gusic skorar eftir mikla markaþurrð
38:30 Hreiðar Levý ver frá Stefáni og Akureyri með boltann
39:00 Goran Gusic skýtur boltanum í stöngina
39:20 Einar Logi kemur aftur inn á og tekur Siffa úr umferð
39:40 20-16 Andri Berg Haraldsson skorar fyrir Framara
40:20 21-16 Andri Berg skorar enn eitt mark fyrir Fram
41:00 21-17 Jankovic skorar
Er eitthvað lífsmark í Akureyrar liðinu?
41:20 Hreiðar Levý ver og Akureyri með boltann
41:35 Jankovic skýtur yfir í dauðafæri
42:00 Hreiðar Levý ver loksins frá Andra Berg
42:25 Þessi sókn Akureyrar gæti reynst mikilvæg
42:30 22-17 Goran Gusic klikkar dauðafæri og Hjörtur Hinriksson skorar
43:10 22-18 Einar Logi skorar mikilvægt mark
43:25 Hjörtur Hinriksson skýtur í stöng, Akureyri með boltann
43:40 Aigars missti boltann, Jóhann Gunnar fékk boltann en klikkaði í upplögðu færi og Akureyri með boltann
44:00 23-18 Rúnar missti boltann og það kostaði mark í bakið
44:35 Akureyri fær vítakast
Rúnar mun taka það
44:40 23-19 Rúnar skorar af miklu öryggi
45:10 Andri Berg með skot í stöng fyrir Framara
45:23 Hörður Fannar missir boltann á línunni
45:30 Tíminn er stopp, Brjánn leikmaður Fram liggur meiddur eftir
Akureyri hinsvegar á boltann
Sjúkraþjálfari Fram nuddar hnésbót Brjáns á meðan hann heldur um Höfuð sitt
Akureyri er með stöðugar skiptingar, nú er Heiðar Þór kominn inn
45:31 Leikurinn hefst að nýju
45:40 Heiðar Þór missir boltann
45:45 Framarar fá vítakast
45:50 24-19 Einar Ingi skorar úr vítakastinu
45:52 Akureyri tekur leikhlé og Sævar Árnason messar svo sannarlega yfir sínum mönnum
45:53 Leikurinn hefst að nýju
46:05 Akureyri missir boltann en Hreiðar Levý ver frá Hirti Hinrikssyni
46:50 Akureyri er með boltann
46:57 Magnús með skelfilegt skot en þeir ná boltanum á ný
47:43 Tíminn er stopp, sóknarleikur Akureyrar er mjög slakur
47:55 Magnús skýtur í varnarvegg Fram og Framarar ná boltanum
48:05 Goran Gusic fær 2 mínútna brottvísun
Hreiðar Levý ver enn og aftur en því miður eru aðrir leikmenn í liðinu ekki að standa sig eins vel og hann
49:00 Magnús með skot framhjá
49:30 25-19 Stefán skorar fyrir Framara
Sóknarleikur Akureyrar er skelfilegur, enginn þorir að taka af skarið, menn eru ragir í sóknartilburðum sínum
50:00 Akureyri með fullskipað lið
50:10 Hörður Fannar með skot fyrir utan sem er varið
50:50 Akureyri stelur boltanum
50:55 25-20 Heiðar Þór skorar úr hraðaupphlaupi
51:30 25-21 Magnús skorar gott mark Er líf eftir dauðann?
52:10 26-21 Andri Berg skorar enn og aftur fyrir Fram, alltaf finnst manni að það eigi að koma í veg fyrir þessi mörk frá Andra
52:50 Akureyri er með boltann
53:26 Magnús með skot sem er auðveldlega varið
54:00 26-22 Hreiðar varði frá Andra Berg og Andri Snær skorar frábært mark, hann er kominn inná fyrir Heiðar
54:25 Hjörtur Hinriksson með skot í stöng, Akureyri með boltann
55:00 26-23 Magnús skorar sirkusmark
Rúnar senti sirkussendinguna á Magnús
Fimm mínútur eftir, þriggja marka munur, hvað gerist?
Stefán Rúnar Árnason fær gult spjald á bekk Akureyrar
55:30 27-23 Andri Berg skorar
55:40 27-24 Hörður Fannar skorar strax
56:00 Ruðningur dæmdur á Framara, Akureyri því með boltann
56:30 Magnús reynir en nafni hans Ellertsson ver
57:00 27-25 Andri Snær stelur boltanum og minnkar muninn, það er ennþá möguleiki
57:20 Framarar taka leikhlé
Hvað gerist á næstu mínútum?
57:21 Leikurinn er hafinn að nýju
57:30 Einar Logi brýtur á Siffa
58:00 Höndin er komin upp
58:10 Akureyri með boltann
58:20 27-26 Magnús skorar mjög mikilvægt mark
Akureyri er að spila frábæra vörn
58:50 Tíminn er stopp, verið að þurrka, ekkert að gerast hjá Fram í sókn
58:51 Höndin kemur væntanlega upp fljótlega
59:00 Fram fær aukakast
59:10 Fram enn með boltann
59:20 28-26 Siffi skorar fyrir Fram
59:30 Akureyringar missa boltann, nú er þetta búið
59:30 Tíminn er stopp, Framarar með boltann, verið að þurrka gólfið
59:31 Framarar hefja sóknina
59:50 29-26 Andri Berg skorar
60:00 29-27 Hörður Fannar skorar
Sóknarleikur Akureyrar varð liðinu að falli í dag
Íslandsmeistarar Fram vinna því afar mikilvægan sigur á Akureyri 29-27, möguleikarnir á sæti í Deildabikarnum fara allir eftir því hvernig fer hjá Stjörnunni og ÍR
Mörk Akureyrar:
Jankovic 6, Magnús 5, Hörður Fannar 5, Goran 3, Einar Logi 2, Andri Snær 2, Atli Ævar 1, Ásbjörn 1, Heiðar Þór 1 og Rúnar 1
Bein Lýsing þakkar fyrir sig og bendir á næsta leik Akureyrar sem er 11. apríl í KA-Heimilinu gegn Fylki.
Heimasíðan þakkar Kristjáni Aðalsteinssyni fyrir hjálpina í Beinu Lýsingunni.

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson