Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2008-09

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
N1 deildin - Framhúsið 6. nóvember kl. 19:30
Fram
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Nú eru tuttugu mínútur í leikinn og liðin eru að hita upp


Tími   Staða   Skýring
Nú eru tuttugu mínútur í leikinn og liðin eru að hita upp
Tveir nýir leikmenn eru í hópnum í dag, Anton Rúnarsson sem gekk til liðs við okkur um síðustu helgi...
Einnig er gamla brýnið Hörður Flóki kominn í markmannsgallann á ný en hann er sem sé byrjaður að æfa aftur.
Annars er hópurinn þannig í dag: Andri Snær, Anton Rúnarsson, Árni, Atli Ævar, Brynjar, Heiðar Þór, Hreinn, Hörður Fannar, Jónatan, Oddur, Rúnar og Þorvaldur. Í markinu eru Hafþór og Hörður Flóki
Verið er að kynna liðin
0:01 Fram byrjar með boltann
0:39 Hafþór ver en Fram fær boltann
0:56 1-0 Andri Berg skorar fyrir Fram
2:08 1-1 Árni skorar með góðu skoti
2:34 Fram missa boltann
2:48 1-2 Anton skorar sitt fyrsta mark fyrir Akureyri með bylmingsskoti
3:12 1-3 Oddur skorar úr hraðaupphlaupi
3:29 2-3 Rúnar Kárason minnkar muninn fyrir Fram
3:57 Oddur með skot sem er varið, Fram í sókn
4:41 Fram fær vítakast
4:58 3-3 Rúnar Kárason skorar úr vítinu
5:20 Árni með skot yfir
5:29 4-3 Andri Berg kemur Fram yfir
5:57  Andri Berg fær spjald
6:29 Jónatan með skot sem er varið, Fram í sókn
6:52 Hafþór ver en Fram nær boltanum
7:07 5-3 Fram skora og ná tveggja marka forystu
8:07 Anton með skot framhjá
8:25 5-4 Hreinn skorar úr hraðaupphlaupi
8:54   Hörður Fannar fær gult
9:15 6-4 Andri Berg skorar fyrir Fram
9:54 6-5 Anton skorar gott mark fyrir utan
10:16 7-5 Rúnar Kárason svarar fyrir Fram
10:38 7-6 Jónatan með flott mark fyrir utan
11:27 Hafþór ver meistaralega tvívegis og Akureyri leggur upp í sókn
11:48 Rúnar með skot sem er varið en Akureyri nær boltanum
12:28  Misheppnuð sending og Fram fær boltann þrátt fyrir að fá spjald
13:11 Rúnar Kárason með skot yfir
13:30  Andri Berg rekinn útaf
13:56 Jónatan með skot í stöng og Fram í sókn
14:19 7-7 Oddur skorar úr hraðaupphlaupi
14:52 Hafþór ver frá okkar gamla félaga Magnúsi Stefánssyni, Fram með boltann
15:11 Fram með skot framhjá
15:52 7-8 Andri Snær skorar úr vinstra horninu
16:40 Halldór Sigfússon með skot í stöng og útaf
17:22 8-8 Andri Berg jafnar fyrir Fram
17:46 8-9 Andri Snær skorar fyrir utan
18:19  Rúnar fær gult
18:40 8-10 Oddur skorar úr hraðaupphlaupi
18:59 Leiktíminn er stopp verið að hlúa að leikmanni Fram
18:59 Það er Halldór Sigfússon sem varð fyrir hnjaski
18:59 Halldór er studdur af leikvelli
18:59 Leikurinn hefst á ný
19:01 9-10 Magnús Einarsson minnkar muninn fyrir Fram
19:50 9-11 Jónatan skorar með lúmsku skoti fyrir utan
20:13   Þorvaldur fær gult
20:36 Magnús Stefánsson með skot yfir Akureyrarmarkið
21:05 Heiðar Þór með skot sem er varið en Akureyri heldur boltanum
21:39  Fram missir mann útaf
22:01 Heiðar Þór fær dæmda á sig línu
22:33 Hafþór ver og Akureyri geysist í sókn
22:46 9-12 Þorvaldur skorar af línunni
23:29 Fram missir boltann
23:57 Árni með skot í þverslá en Akureyri heldur boltanum
24:34 10-12 Stefán Stefánsson skorar fyrir Fram
24:52   Oddur rekinn útaf
25:15  Viggó fær gult fyrir mótmæli eitthvað ekki sáttur við dómgæsluna
25:21 Anton með skot framhjá
25:35 11-12 Rúnar Kárason minnkar muninn fyrir Fram
25:56 11-13 Anton skorar af harðfylgi
26:22 Hafþór ver en Fram fær boltann
26:39 12-13 Stefán Stefánsson minnkar muninn
27:00 12-14 Þorvaldur með flotta vippu af línunni, öruggt mark
27:29 13-14 Andri Berg skorar með bylmingsskoti
27:56 Andri Snær með skot sem er varið en Akureyri með boltann
28:14 13-15 Oddur með ævintýralegt mark úr hægra horninu
28:42 Hafþór ver Akureyri með boltann
29:27 Þorvaldur fær vítakast
29:40 13-16 Árni skorar úr vítinu
30:00 Fyrri hálfleik er lokið
30:00 Mörk Akureyrar: Oddur 4, Anton 3, Andri, Valdi, Árni og Jónatan 2 hver, Hreinn 1
30:00 Akureyri byrjar seinni hálfleikinn
30:19 13-17 Jónatan gefur tóninn og skorar fyrir utan
30:57 Hafþór ver og Akureyri leggur upp í hraða sókn
31:07 13-18 Oddur skorar eftir flotta sendingu Antons
31:43 Hafþór ver meistaralega, Akureyri með boltann
32:41 13-19 Árni með frábært mark fyrir utan
33:09 Hafþór ver og Akureyri með boltann
33:49 Þorvaldur fær vítakast
34:07 13-20 Árni skorar af öryggi úr vítinu
34:35 14-20 Rúnar Kárason minnkar muninn fyrir Fram
35:06 Fram tekur Árna úr umferð
35:39 14-21 Jónatan skorar eftir að höndin var komin upp
36:11 Boltinn dæmdur af Fram
36:50 Jónatan með skot yfir
37:06 Vörnin ver frá Fram og Akureyri í sókn
38:00 14-22 Anton með draumamark hörkuskot í þverslá, gólfið og inn
38:20 15-22 Rúnar Kárason skorar fyrir Fram
38:46  Hörður Fannar fær vítakast og Frammara útaf
39:09 Árni lætur verja vítið, Fram í sókn
39:09 Hafþór ver en Fram fær boltann
40:24 Hafþór ver enn og aftur en Fram heldur þó boltanum
40:50 16-22 Rúnar Kárason skorar
41:11 Jónatan með skot sem er varið
41:27 17-22 Rúnar Kárason dregur vagninn fyrir Fram og skorar enn og aftur
42:07 Anton með skot í stöng og útaf
42:25   Árni rekinn af leikvelli
42:32 18-22 Haraldur Þorvarðarson skorar af línunni fyrir Fram
43:08 18-23 Andri Snær með neglu fyrir utan, syngur í netinu
43:33 19-23 Guðjón Drengsson skorar fyrir Fram
44:04 19-24 Anton með neglu fyrir utan sem þenur netmöskvana
44:53 20-24 Rúnar Kárason með dúndurskot og gott mark fyrir Fram
45:27 20-25 Andri Snær lyftir sér upp fyrir Fram vörnina og skorar
46:06 Hafþór í banastuði ver og Akureyri með boltann
47:06 20-26 Oddur með frábært mark úr þröngu færi úr hægra horninu
47:59  Andri Snær rekinn útaf
48:25 Fram skjóta framhjá af úr dauðafæri af línunni
49:12 Árni með skot í stöng en Fram klúðra sendingu og Akureyri aftur í sókn
49:37 Oddur með skot sem er varið og síðan dæmd skref á Fram
50:21 21-26 Guðjón Drengsson minnkar muninn úr hraðaupphlaupi
50:55 21-27 Hörður Fannar algjörlega frír á línunni og skorar af öryggi
51:07  Fram missir jafnframt mann útaf
51:30 Verið að þurrka gólfið
51:47 Hafþór ver og Akureyri komið í sókn
52:17 21-28 Hörður Fannar skorar enn og aftur af línunni
52:29 Þrumustemming meðal Akureyringa á pöllunum yfirburðir jafnt innan sem utan vallar!
52:57 Hafþór ver, hvað annað? og Akureyri komið í sókn
53:33 22-28 Fram skora úr hraðaupphlaupi
53:53 Fram tekur bæði Árna og Anton úr umferð
54:20 Andri Snær lætur verja frá sér úr dauðafæri
54:37 Hafþór heldur áfram að loka markinu, Akureyri í sókn
55:15 Andri Snær í dauðafæri en skot hans er varið
55:37 23-28 Framarar skora og minnka muninn
56:08 24-28 Enn skora Framarar, eru þeir eitthvað að klóra í bakkann?
56:30 24-29 Andri Snær skorar úr vinstra horninu, klúðrar ekki þremur í röð!
57:10 24-30 Hreinn skorar úr hraðaupphlaupi
57:26  Hörður Fannar rekinn útaf
57:44 25-30 Fram reyna allt hvað af tekur og tekst að minnka muninn
58:06 25-31 Oddur skorar úr hægra horninu
58:20   Rúnar rekinn útaf
58:35 Hafþór ver, Fram með boltann
58:51 26-31 Fram minnkar muninn í fimm mörk
59:08 26-32 Jónatan skorar
59:24 27-32 Fram svarar með marki
59:44 28-32 Fram kemst inn i sendingu og skora úr hraðaupphlaupi
60:00 28-33 Andri Snær skorar á síðustu sekúndu leiksins
Stórkostlegur leikur Akureyrar og fögnuðurinn frábær. Við eigum greinilega magnaðan stuðningsmannahóp á höfuðborgarsvæðinu!
Mörk Akureyrar: Oddur 7, Andri Snær 6, Anton og Jónatan 5 mörk hvor, Árni 4 (2 úr vítum), Hreinn, Hörður og Valdi 2 hver. Hafþór stóð í markinu allan tímann og varði a.m.k. 18 bolta.
Við þökkum fyrir okkur í dag, hópurinn þarf að drífa sig út á flugvöll.

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson