Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2008-09

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
N1 deildin 13. nóvember kl.19:30 Kaplakrika
FH
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Verið er að kynna liðin


Tími   Staða   Skýring
Verið er að kynna liðin
FH mun byrja með boltann
0:00 Leikurinn er byrjaður
0:16 1-0 Aron skorar fyrir FH
0:42 Anton með skot í stöng og FH með boltann
0:59 2-0 Ólafur skorar fyrir FH
1:19 Hörður Fannar fær dæmda á sig línu
1:33 3-0 Ásbjörn skorar úr hraðaupphlaupi fyrir FH
1:47 Jónatan með skot sem er varið
1:58 4-0 FH skora strax - afleit byrjun
2:31 Árni með skot sem er varið, Akureyri með boltann
3:16 Hörður Fannar fær á sig ólöglega blokk, FH með boltann
3:44 5-0 Ólafur eykur muninn fyrir FH
4:14 5-1 Jónatan brýtur ísinn og skorar
4:27 FH með skot framhjá
4:36 Hörður Fannar fær vítakast
4:54 5-2 Árni skorar úr vítinu
5:16 6-2 Sigurður skorar af línunni fyrir FH
5:44 Heiðar Þór lætur verja frá sér og FH-ingar komnir í sókn
6:02 7-2 Aron skorar fyrir FH
6:27 Árni með skot sem vörnin tekur en Akureyri með boltann
6:51 Akureyri tekur leikhlé
6:52 Ekki byrjunin sem við vonuðumst eftir
7:07 Jónatan með skot sem er varið
7:28 Oddur nær frákasti en það er líka varið
7:51 Hafþór ver vel frá Aroni og Akureyri í sókn
8:22 Hörður Fannar fær aukakast
8:37 Anton með skot en við fáum hornkast
8:51 Jónatan í gegn og fær vítakast
9:09 7-3 Árni skorar af öryggi úr vítinu
9:55   Hörður Fannar fær brottvísun
10:17 Ólafur með skot framhjá þannig að Akureyri er komið í sókn
10:48 Árni og Jonni teknir úr umferð enda við einum færrri
11:00  Bekkurinn hjá Akureyri fær spjald
11:28 Höndin er komin upp
11:54 Jónatan með skot í stöng FH nær boltanum
12:11 8-3 Aron skorar fyrir FH
12:32 Andri Snær kemur inn á og fer í vinstra hornið
12:44 Hörður kemur inná þannig að nú er jafnt í liðunum
12:56 Andri Snær með skot sem er varið en Akureyri heldur boltanum
13:12 8-4 Hörður Fannar brýst í gegn og skorar glæsilegt mark
13:36   Árni fær spjald
13:46 Akureyri nær boltanum
14:04 Andri Snær kominn í skyttuna og Heiðar er í vinstra hornið
14:18 8-5 Hörður Fannar skorar eftir að hafa náð frákasti
14:50 9-5 FH skorar úr horninu
15:00 9-6 Oddur skorar úr hraðri sókn
15:17 10-6 Guðmundur Pedersen skorar úr vinstra horninu
15:46 10-7 Árni með langskot sem syngur í markinu
16:02 Nú þarf bara að loka vörninni, sóknin er að koma
16:34 11-7 Ási skorar með góðu skoti fyrir utan
16:45 Tíminn er stopp, það er verið er að þurrka gólfið
16:46 Leikurinn byrjar aftur
17:02 11-8 Hörður Fannar skorar af harðfylgi af línunni
17:32 12-8 Aron skorar með langskoti fyrir FH
17:58 Anton kemur í vinstri skyttu og Andri fer yfir í þá hægri, Árni hvílir
18:21 Andri Snær með skot sem er varið, FH í sókn
18:52 FH fær aukakast
19:04 Ási með skot framhjá
19:19 Akureyri fær aukakast
19:40 12-9 Oddur skorar eftir að hafa náð frákasti, glæsilegt mark
20:09 13-9 Aron skorar enn og aftur fyrir FH
20:25 Hörður Flóki kemur í markið í stað Hafþórs
20:45 Gústaf kemur inná
21:09 Jónatan með skot sem Magnús ver, FH í sókn
21:21 FH-ingar komast inn í sendingu fram eftir að vörnin hafði unnið boltann
21:54 Hörður Flóki ver og Akureyri í sókn
22:07 13-10 Hreinn hamrar boltann í þverslá og inn – Magnað mark!
22:28 Fín vörn en FH heldur boltanum
22:45 14-10 Aron er erfiður og skorar utan af velli
23:16 14-11 Gústaf fer í gegn og skorar
23:55 Ólafur með skot sem vörnin ver í horn
24:13 Hörður Flóki ver og Akureyri í sókn
24:32 Vörnin er öll að koma til
24:42   Gústaf fiskar Ásbjörn útaf
25:03 Árni með skot í stöng og framhjá
25:20 Aron er tekinn úr umferð
25:43 15-11 Guðmundur Pedersen skorar úr horninu, algjör óþarfi einum fleiri
26:06 15-12 Andri Snær skorar eftir að Gústaf galopnaði vörn FH
26:35 Hörður Flóki ver frá Ólafi og Akureyri í sókn
26:57 FH ná boltanum
27:23 Hörður Flóki ver glæsilega frá Aroni - Akureyri í sókn
27:49 Andri Snær fær aukakast
27:59 15-13 Árni skorar með langskoti
28:00  Ólafur FH-ingur rekinn út af í leiðinni
28:23 Það er allt annað að sjá til liðsins núna
28:41 Aron er tekinn úr umferð
28:55 16-13 Ási skorar mark af ódýrari gerðinni
29:20 Gústaf fær á sig skref, afar strangur dómur
29:43 FH tekur leikhlé
29:43 Leikurinn hefst á ný
29:55 17-13 Aron skorar þrátt fyrir gæslu
30:00 17-14 Rúnar skorar á lokasekúndu hálfleiksins eftir sendingu frá Árna
30:00 Árni er kominn með 4, Hörður 3, Oddur 2 og Andri, Gústaf, Jónatan, Hreinn og Rúnar með 1 mark hver.
30:00 Byrjun leiksins var alveg skelfileg en liðið er allt að koma til þannig að leikurinn er hvergi nærri búinn!
30:00 Akureyri mun byrja með boltann í seinni hálfleik
30:00 Okkar maður á staðnum er Árni Stefánsson og lýsir gegnum síma til okkar
30:07 Árni með skot sem er varið og FH kemur í sókn
30:23 18-14 FH nær frákasti og skorar
30:40  Ólafur rekinn af velli hjá FH öðru sinni
31:05 Árni í gegn og fær vítakast
31:34 18-15 Jónatan skorar úr vítinu
31:51 Aron er tekinn úr umferð hjá FH
32:27 Vörnin hjá Akureyri ver skot en FH nær boltann
32:58 Aron með skot framhjá Akureyri fær boltann
33:15 Hreinn fær vítakast
33:15 18-16 Árni skorar af öryggi
33:15  Ásbjörn var rekinn útaf fyrir brotið sem gaf vítakastið
33:21 Akureyri í sókn
33:44 Árni með misheppnaða sendingu og boltinn útaf
34:13 18-17 Árni með glæsimark
34:32 Okkar menn í stúkunni láta vel í sér heyra
34:51 FH fær sinn mann inná
35:00 19-17 FH skora og ná tveggja marka forystu
35:22 19-18 Árni stekkur upp og þrumar boltanum í netið
35:43 Þetta er hreinlega allt annað lið sem er að spila í seinni hálfleik
36:01 20-18 Ólafur með skot sem lekur í markið – frekar billegt
36:35 Árni með skot sem er varið og FH fær boltann
36:55 FH fær aukakast
37:18 Fín barátta í vörninni
37:32 21-18 Aron brýst í gegn og skorar fyrir FH
37:56 21-19 Árni brýst einnig í gegn og skorar að sjálfsögðu
38:27 FH fær aukakast
38:46 Hafþór ver en FH með boltann
39:04 22-19 Aron skorar, þetta er sennilega 10 markið hans í leiknum
39:43 Árni fær dæmdan á sig ruðning
39:52 Akureyri nær boltanum
40:05 Andri Snær með skot í stöng og FH fær boltann
40:17 Tíminn er stopp verið að þurrka gólfið
40:17 Leikurinn hefst á ný
40:34   Hörður Fannar rekinn útaf
40:51 Hafþór ver og Akureyri með boltann
41:17 Leikurinn stopp FH-liðið fær tiltal frá dómurum leiksins
41:24 23-19 FH kemst í hraðaupphlaup og Ási skorar
41:45 Jonni og Árni teknir úr umferð
42:02 Jónatan fer inn úr horninu en það er varið og FH brunar í sókn
42:15 Akureyri nær boltanum
42:28   Oddur fær gult fyrir að skjóta eftir að búið var að flauta aukakast en Akureyri heldur boltanum
42:55 Oddur fær högg á andlitið og leikurinn er stöðvaður
42:58 Hörður Fannar kemur inná, jafnt í liðum
43:02 Hörður Flóki kemur í markið
43:04 23-20 Andri Snær skorar langþráð mark úr horninu
43:20 24-20 FH skora úr hægra horninu
43:47 24-21 Hörður Fannar skorar glæsilega af línunni
44:02 Hörður Flóki ver frá Aroni og Akureyri í sókn
44:20 25-21 FH kemst í hraðaupphlaup og skora
44:42 25-22 Andri Snær skorar eftir glæsilegt leikkerfi
45:07 Hörður Flóki ver og Akureyri í sókn
45:31 Oddur með skot sem er varið en Akureyri heldur boltanum
46:06 25-23 Anton skorar eftir gott gegnumbrot
46:34 26-23 Aron skorar með þrumuskoti - frábær leikmaður það verður að viðurkennast
47:15 26-24 Jónatan með uppstökk og glæsimark
47:28 Hörður Flóki ver og Akureyri í sókn
47:56 27-24 FH kemst í hraðaupphlaup og skora
48:28 Anton með skot sem er varið en Jónatan nær boltanum
48:55 27-25 Árni skorar eftir uppstökk
49:10 Hreinn tekur Aron úr umferð
49:25 Akureyri vinnur boltann
49:36 Anton fær vítakast
49:49 27-26 Vítið er varið en Árni nær frákastinu og skorar!
49:54 Andri Snær vinnur boltann
50:22 Akureyri getur jafnað í fyrsta sinn í leiknum!
50:34 27-27 Og Anton jafnar með skoti utan af velli
50:52 Hörður Flóki ver meistaralega og Akureyri með boltann
51:53 Árni með skot í varnarvegginn en við fáum horn
52:19 Andri Snær með sirkustilraun eftir að höndin var komin upp en skorið er varið og FH í sókn
52:47 Ási stoppaður í vörninni
52:57 FH með skot í stöng og Akureyri í sókn
53:26 Árni í gegn og fær vítakast
53:38 27-28 Jónatan skorar af öryggi úr vítinu – Akureyri loksins komið yfir í leiknum!
53:53 Fjölmennur stuðningshópur í stúkunni lætur vel í sér heyra – frábær stemming!
54:11 28-28 Ólafur jafnar fyrir FH
54:36 28-29 Hörður Fannar skorar eftir glæsisendingu frá Jonna
55:05 29-29 Ólafur jafnar aftur fyrir FH
55:35 29-30 Árni skorar eftir flott leikkerfi
55:52 Hörður Flóki ver
56:02 Hreinn í hraðaupphlaupi en með skot í þverslá og FH fær boltann
56:15 30-30 FH-ingar jafna enn og aftur
56:32 30-31 Andri Snær skorar glæsimark úr þröngu færi
56:58 31-31 FH jafna úr horninu
57:30 Anton fær aukakast
57:50 31-32 Andri Snær með ótrúlegt mark úr horninu
58:27 FH með skot í þverslá og Akureyri í sókn
58:59 31-33 Oddur skorar úr þröngu færi – ótrúlegur viðsnúningur hjá liðinu
59:14 Tíminn er stopp
59:17 Leikurinn hefst á ný
59:24   Hreinn rekinn útaf
59:35 Ólafur með skot langt yfir
59:48 Akureyri tekur leikhlé
59:35 Leikurinn hefst á ný
59:41 31-34 Anton í gegn og skorar - og gulltryggir frábæran sigur
60:00 32-34 FH skora síðasta mark leiksins en það skiptir engu því leikurinn er búinn
60:00 Ævintýraleg frammistaða Akureyrarliðsins í seinni hálfleik skilar frábærum sigri!
60:00 Skorum á alla Akureyringa að fjölmenna á flugvöllinn og taka á móti strákunum þegar þeir lenda klukkan ca. 22:10
60:00 Mörk Akureyrar: Árni 11, Andri Snær og Hörður Fannar 5 hvor, Jónatan 4, Anton og Oddur með 3 hvor, Gústaf, Hreinn og Rúnar með 1 mark hver.
60:00 Við þökkum fyrir okkur í dag og minnum á að næsti leikur er á miðvikudaginn 19. nóvember klukkan 19:30 og það er heimaleikur gegn Haukum og nú mæta allir í höllina!

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson