Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2010-11

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
Eimskipsbikarinn - Digranesi 19. október 2010 kl. 18:30
HK
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Velkomin á leik HK og Akureyrar í 32-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikið er í Digranesi.


Tími   Staða   Skýring
Velkomin á leik HK og Akureyrar í 32-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikið er í Digranesi.
Liðin mættust á dögunum í N1 Deildinni hér í Digranesi þar sem Akureyri fór með glæstan sigur af hólmi 29-41. Við vonumst að sjálfsögðu eftir öðrum eins leik hér í kvöld
Verið er að kynna liðin, styttist í að leikurinn hefjist
0:01 HK hefur hafið leikinn
0:29 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri með boltann
0:40 0-1 Heimir Örn Árnason skorar strax og Akureyri komið yfir
1:12 Akureyri komið með boltann
1:42 Guðmundur Hólmar með skot framhjá
1:52 1-1 Ólafur Bjarki skorar fyrir HK með laglegu skoti fyrir utan
2:26 1-2 Oddur Gretarsson skorar úr horninu
2:54 Sveinbjörn Pétursson ver frá Ólafi Bjarka og Akureyri er með boltann
2:54 Tíminn er stopp en verið er að huga að meiðslum hjá Ólafi Bjarka, væntanlega ekkert alvarlegt
3:20 1-3 Geir Guðmundsson lyftir sér upp og skorar fyrir utan
3:55 HK fær aukakast, brotið á Atla Ævari
4:22 Sveinbjörn Pétursson tekur boltann eftir misheppnað skot hjá Ólafi Bjarka
4:39 HK nær hinsvegar boltanum þar sem Bjarni Fritzson klúðraði hraðaupphlaupi
5:02  HK fær aukakast og Hörður Fannar fær gult spjald fyrir brot á Atla Ævari
5:29 1-4 Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi, frábær byrjun hjá okkar mönnum!
5:58 2-4 Vilhelm Gauti minnkar muninn fyrir HK
6:21 Heimir Örn Árnason fær dæmdan á sig ruðning
6:38 HK í sókn
6:51 3-4 Vilhelm Gauti skorar aftur
7:21 3-5 Bjarni Fritzson skorar glæsilegt mark úr horninu eftir að varið hafði verið frá Geira
8:03 3-6  Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi og Vilhelm Gauti fær gult spjald fyrir að brjóta á honum
8:38 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri með boltann
9:09 Heimir Örn Árnason með tvö góð skot en fær aukakast á endanum
9:24 Akureyri enn í sókn
9:50 Lína dæmd á Hörð Fannar
10:01 HK fær aukakast
10:25 Sveinbjörn Pétursson ver frá Ólafi Bjarka
10:34 Guðmundur Hólmar með skot framhjá, HK fær boltann
11:00 HK fær aukakast, brotið á Atla Ævari
11:17 4-6 Ólafur Bjarki skorar fyrir HK
11:43 HK átti möguleika á hraðaupphlaupi en Geir Guðmundsson komst inn í sendinguna. HK þó enn með boltann
12:26 Ólögleg blokkering dæmd á Atla Ævar, Akureyri í sókn
12:56 Oddur Gretarsson reynir að brjótast í gegn en það klikkar og HK nær boltanum
13:08 5-6 HK minnkar muninn...
13:13 5-7 ... en Oddur Gretarsson refsar þeim strax með góðu marki
13:44 6-7 Hörður Másson skorar fyrir HK með góðu skoti fyrir utan
14:32 6-8 Geir Guðmundsson skorar gott mark fyrir utan
14:55 HK fær aukakast, enn er verið að brjóta á Atla Ævari. Enn þarf að skúra enda Atli greinilega vel sveittur
15:14 7-8 HK skorar og minnkar muninn enn í eitt mark
15:39 Heimir Örn Árnason fær aukakast
15:52 Geir Guðmundsson brýst í gegn og skorar en búið er að dæma aukakast
16:12 Lína dæmd á Akureyri og HK með boltann
16:25 7-9 Bjarni Fritzson skorar glæsilegt hraðaupphlaupsmark
16:28 Tíminn er stopp, enn er verið að þurrka eftir HK menn
16:46 Heimir Örn Árnason ver skot í vörninni og HK fær hornkast
17:18 Sveinbjörn Pétursson ver í tvígang og Akureyri í sókn
17:30 Oddur Gretarsson klúðar fínu færi í horninu og HK nær boltanum
18:04 8-9 Hörður Másson minnkar muninn fyrir HK
18:20 Akureyri kastar boltanum útaf, HK með boltann
18:42 9-9  Hörður Másson heldur áfram að skora og Heimir Örn Árnason fær gult spjald
19:09 Geir Guðmundsson reynir að brjótast í gegn en uppsker aukakast
19:27  Geir Guðmundsson fær aftur aukakast og Ólafur Bjarki fær gult spjald
19:51 Bjarni Fritzson með skot fyrir utan sem var varið og HK með boltann
20:02 Sveinbjörn Pétursson hinsvegar ver og Akureyri með boltann aftur
20:32 Heimir Örn Árnason fær aukakast, lítið að gerast í sókninni hjá okkar mönnum núna
20:45 9-10 Bjarni Fritzson með glæsilegt mark úr horninu
21:46 10-10 Atli Ævar jafnar af línunni fyrir HK
22:18 HK fær boltann
22:40 Akureyri fær boltann og leggur upp í sókn
22:53  Geir Guðmundsson fiskar vítakast og Hörður Másson fær tveggja mínútna brottvísun
22:57 Bjarni Fritzson skýtur hinsvegar hátt yfir markið úr vítinu
23:33  Guðlaugur Arnarsson fær 2 mínútur fyrir klaufalegt brot á Atla Ævari. HK á aukakast
23:44 11-10 Sigurjón skorar fyrir HK og kemur þeim yfir
24:15 Bjarni Fritzson með skot í stöng og HK fær boltann
24:40 12-10 Daníel Berg skorar fyrir HK eftir að hafa fintað Guðmundur Hólmar
24:53 Atli Hilmarsson tekur leikhlé
24:53 Tekst Akureyringum að finna taktinn aftur fyrir lok fyrri hálfleiks?
24:54 Leikurinn er hafinn á ný
25:07 12-11 Heimir Örn Árnason skorar mark úr horninu
25:31  Guðmundur Hólmar fær 2 mínútur fyrir að hanga aftan í Ólafi Bjarka, vítakast dæmt
25:32 13-11 Bjarki skorar fyrir HK úr vítakastinu
26:07 Akureyri fær aukakast, lítið að gerast
26:33 Sveinbjörn Pétursson ver glæsilega og Akureyri fær boltann aftur
26:47 Geir Guðmundsson klikkar hraðaupphlaupi og HK með boltann
27:05 HK fær aukakast
27:22 Akureyri nær boltanum
27:30 Akureyri komið með fullskipað lið
27:50 Heimir Örn Árnason fær aukakast
28:14 Guðmundur Hólmar með mislukkað skot og HK fær boltann
28:58 14-11 Daníel Berg skorar fyrir HK fyrir utan
29:24 14-12 Geir Guðmundsson skorar gott mark
29:45 HK tekur leikhlé
29:46 Leikurinn hefst á ný
30:00 Hálfleikur, HK missti boltann undir lokin og ekkert gerðist
30:00 Eftir flotta byrjun á leiknum hefur spilamennska okkar manna hrakað mikið og síðasta kortérið af fyrri hálfleik hefur lítið gerst sóknarlega. Varnarleikurinn hefur þó verið ágætur
30:00 Oddur Gretarsson er markahæstur okkar manna með 4 mörk, Bjarni Fritzson og Geir Guðmunds eru með 3 mörk hvor og Heimir Örn er með 2 mörk
30:01 Akureyri byrjar síðari hálfleikinn
30:26 Geir Guðmundsson með skot sem er varið og HK með boltann
30:37 Sveinbjörn Pétursson hinsvegar ver vel og Akureyri með boltann
30:51 14-13 Guðmundur Hólmar skorar gott mark og kemur sér á blað
31:22 Sveinbjörn Pétursson ver en HK fær innkast
31:33 15-13 Ólafur Bjarki skorar fyrir HK
32:23 15-14 Geir Guðmundsson brýst í gegn og skorar frábært mark
32:37 HK fær aukakast, voru heppnir að fá ekki dæmdan á sig fót
32:55 Oddur Gretarsson klúðrar hraðaupphlaupi
33:08 Á einhvern ótrúlegan hátt þá dæmir dómarinn að HK eigi innkast en greinilega sást að Björn markvörður HK varði boltann útaf
33:22 Leikmenn Akureyrar ekki sáttir
33:28 Hörður Fannar brýtur á Daníel Berg, HK á aukakast
33:47 15-15 Oddur Gretarsson jafnar eftir sendingu frá Bjarna Fritz
34:13 HK fær gríðarlega ódýrt aukakast
34:37  HK fær vítakast og Oddur Gretarsson fær 2 mínútur
34:38 16-15 Bjarni Már skorar fyrir HK úr vítinu
35:46 16-16 Guðmundur Hólmar skorar fyrir utan
35:58 17-16 Atli Ævar skorar af línunni fyrir HK eftir að Sveinbjörn Pétursson hafði varið
36:28 Geir Guðmundsson með skot í stöngina og útaf, HK því með boltann
36:41 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
36:53 17-17 Guðlaugur Arnarsson skorar úr hraðaupphlaupi eftir glæsilega bakhandarsendingu frá Bjarna Fritz
37:25 HK fær aukakast, leit út fyrir að Akureyri hefði náð að stela boltanum
37:35 Enn þarf að þurrka eftir leikmenn HK
37:46 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri með boltann
38:05 Oddur Gretarsson nær í vítakast
38:26 17-18 Oddur Gretarsson skorar úr vítinu og kemur okkar mönnum aftur yfir
39:05 17-19 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi, spilamennska okkar manna er flott þessar mínúturnar
39:55 18-19 Daníel Berg með flott mark fyrir HK
40:24 Geir Guðmundsson fær dæmdan á sig ruðning
40:34 19-19 Ólafur Bjarki jafnar fyrir HK
41:09 Akureyri fær aukakast, frekar ódýrt að þessu sinni
41:26 19-20 Heimir Örn Árnason skorar úr skrefinu
41:38 HK fær aukakast
41:50 Oddur Gretarsson stelur boltanum en liggur eftir þar sem hann var sleginn í andlitið
41:50 Oddur Gretarsson liggur eftir en leikmanni HK er ekkert refsað fyrir þetta
41:51 Oddur Gretarsson er staðinn upp og heldur áfram. Akureyri í sókn
42:16 Heimir Örn Árnason fær aukakast
42:36 Ólögleg blokkering dæmd á Hörð Fannar
42:55 19-21 Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Sveinbjörn hafði varið
43:03 Enn þarf að þurrka eftir Atla Ævar línumann HK
43:04 HK leggur af stað í sókn
43:25 20-21 Ólafur Bjarki skorar fyrir utan
43:44 20-22 Guðmundur Hólmar skorar laglegt mark fyrir utan, sá er að komast í gang
44:05 21-22 Sveinbjörn Pétursson óheppinn að ná ekki að verja skot Harðar Mássonar, en boltinn fer inn
44:31 Guðmundur Hólmar fær aukakast
44:48 Geir Guðmundsson með slakt skot sem er varið, HK í sókn
44:59 Akureyri nær boltanum
45:06 21-23 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi
45:07 Atli Ævar línumaður HK liggur eftir. Akureyringar voru heppnir að ekki var dæmt á þá og náði Bjarni Fritz að refsa með marki
45:08 HK hefur leikinn að nýju
45:34 Sveinbjörn Pétursson ver en HK fær aukakast
45:57 22-23 Sigurjón minnkar muninn fyrir HK úr horninu
46:23 Geir Guðmundsson með skot sem er varið
46:34  HK fær aukakast og Heimir Örn Árnason fær tveggja mínútna brottvísun
46:42 23-23 Ólafur Bjarki brýst í gegn og jafnar metin
47:11 Oddur Gretarsson fær aukakast
47:25 Oddur Gretarsson fær annað aukakast
47:36 23-24 Bjarni Fritzson með mikilvægt mark fyrir utan eftir að höndin var komin upp
47:58 Sveinbjörn Pétursson ver úr horninu og Akureyri í sókn
48:27 23-25 Bjarni Fritzson skorar gott mark úr horninu eftir góða sendingu frá Oddi
48:55 23-26 Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi, eru menn loksins að detta í gírinn?
49:04 HK tekur leikhlé
49:04 Akureyri er búið að skora síðustu 3 mörk leiksins og er komið í fína stöðu fyrir síðustu 10 mínúturnar. Vonandi ná okkar menn að klára þetta
49:22 Sveinbjörn Pétursson ver úr horninu og Akureyri fær boltann
49:54 Oddur Gretarsson fær aukakast, en hann er að spila á miðjunni
50:12 Bergvin Gíslason klúðrar úr horninu og HK fær boltann
50:22  Guðmundur Hólmar fær tvær mínútur
50:23 HK í sókn
50:30 HK fær aukakast, enn þarf að skúra því Atli Ævar lagðist í gólfið
50:36 Leikurinn hefst að nýju
50:43 Ruðningur dæmdur á HK
51:27 Hörður Fannar klúðrar vippu af línunni
51:39 24-26 Ólafur Bjarki refsar með marki og minnkar muninn niður í tvö mörk
52:09 Heimir Örn Árnason fær aukakast
52:21 Akureyri missir boltann
52:31 HK í sókn, Akureyri með fullskipað lið
52:46 Hörður Fannar heppinn að fá ekki tvær mínútur fyrir að brjóta á Ólafi Bjarka. HK fær aðeins aukakast
53:01 Enn fær HK aukakast
53:14 HK fær vítakast, menn voru langt inn í teig
53:27 25-26 Bjarki skorar úr vítinu
53:51 Heimir Örn Árnason fær aukakast
54:04 25-27 Oddur Gretarsson með gott mark fyrir utan
54:42 HK fær aukakast
54:54 26-27 Enn er Ólafur Bjarki að skora fyrir HK
55:40 Lítið að gerast í sókninni
55:49 Akureyri á aukakast, mjög vandræðaleg sókn hjá okkar mönnum
55:54 Guðmundur Hólmar með skot framhjá
56:23 HK fær aukakast, tíminn er stopp
56:44 HK fær hornkast
56:46 Nei, Akureyri á boltann. Vilhelm Gauti liggur hinsvegar eftir
56:46 Akureyri kemur í sókn
57:18 26-28 Hörður Fannar skorar hrikalega mikilvægt mark
57:32 27-28 HK skorar hrikalega tæpt mark úr horninu, en dómarinn er viss í sinni sök og segir að boltinn hafi farið inn
58:04 Hörður Fannar fær vítakast!
58:23 27-29 Oddur Gretarsson skorar af miklu öryggi
58:43 28-29 Ólafur Bjarki skorar enn og aftur fyrir HK, hann er hreinlega að halda þeim inn í leiknum
59:11 Bergvin Gíslason fær dæmdan á sig ruðning, hrikalega klaufalegt
59:41 HK fær aukakast
59:56  Guðmundur Hólmar fær 2 mínútur, HK fær eitt skot
59:56 Guðmundur Hólmar hrikalega heppinn að fá ekki rautt spjald
59:56  Eða jú hann fær rautt spjald á endanum!
60:00 HK skýtur yfir og leiktíminn rennur út
60:00 Akureyri vinnur því gríðarlega sætan sigur. Guðmundur Hólmar fékk rautt þar sem hann hafði fengið þrisvar sinnum 2 mínútna brottvísun
60:00 Þetta var erfið fæðing hjá okkar mönnum í dag en sigur er sigur og frábært að vera komnir áfram í bikarkeppninni
60:00 Bein lýsing þakkar fyrir sig í dag og minnir á næsta leik sem er á móti Haukum í Íþróttahöllinni á Akureyri á föstudaginn

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson