Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2010-11

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
Eimskipsbikarinn - Íþróttahöllin 14. febrúar 2011 kl. 19:00
Akureyri
 
FH
0
-
0
00:00
Velkomin til leiks liðin eru ekki komin inn á völlinn


Tími   Staða   Skýring
Velkomin til leiks liðin eru ekki komin inn á völlinn
Mikill fjöldi áhorfenda er mættur, stúkan er full og fjöldi manns er niðri á gólfi
Dómarar í dag eru Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Eftirlitsdómari er Kjartan Steinbach
Verið er að kynna leikmenn, liðin eru skipuð sömu leikmönnum og í leikjum þeirra í síðustu viku
Sveinbjörn Pétursson er í stuttbuxunum eins og í síðustu tveim leikjum
0:00 það er FH sem byrjar leikinn... einmitt núna
0:47 Guðmundur Hólmar kemst inn í sendingu en boltinn útaf
1:04 Sveinbjörn Pétursson grípur skot frá Ása og Akureyri í sókn
1:50 0-1 Ólafur skorar úr hraðaupphlaupi fyrir FH
2:39 1-1 Heimir Örn Árnason skorar fyrir utan
2:58  FH með skot yfir en fá aukakast og Daníel Einarsson fær gult spjald
3:37 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
4:08  Guðlaugur Arnarsson fékk gult spjald
4:31  Halldór Guðjónsson fékk gult spjald hjá FH
4:57 2-1 Guðmundur Hólmar skorar fyrir utan
5:18 3-1 Bjarni Fritzson skorar út hraðaupphlaupi
6:02 Sveinbjörn Pétursson ver en boltinn fer í innkast
6:10 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
6:26 Heimir Örn Árnason með skot framhjá
6:39 3-2 Ásbjörn Friðriksson skorar fyrir FH
7:11 Bjarni Fritzson með skot sem er varið
7:21 FH með langa sendingu fram en boltinn fer útaf
7:21 Hjörtur Hinriksson virðist hafa orðið fyrir hnjaski við að ná sendingunni og er studdur á bekkinn
7:51 4-2 Oddur Gretarsson kemur úr horninu, lyftir sér upp og skorar
8:38 FH ingar henda boltanum útaf
8:58 Bjarni Fritzson fær aukakast
9:22 5-2 Guðmundur Hólmar með flott mark fyrir utan
10:13 5-3 Ólafur Guðmundsson skorar
10:39  Ólafur Guðmundsson hjá FH fær gult spjald
11:05 Guðmundur Hólmar með skot sem er varið og FH í sókn
11:25 FH fær hornkast
11:49 Ólafur Guðmundsson með skot hátt yfir Akureyrarmarkið
12:07  Guðlaugur Arnarsson rekinn útaf, sá ekki fyrir hvað
12:33 FH komst í hraðaupphlaup en missti boltann
13:11 Guðmundur Hólmar fær aukakast
13:16 6-3 Guðmundur Hólmar með glæsilegt mark langt fyrir utan
13:42 7-3 Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi
13:52 FH tekur leikhlé
13:52 Akureyri er að spila alveg glimrandi handbolta þrátt fyrir að vera manni færri
13:52 FH hefur leikinn á ný
13:55 7-4 Atli Rúnar skorar af línunni fyrir FH
14:11 Akureyri með fullskipað lið
14:45 Hörður Fannar vinnur vítakast
15:09 8-4 Bjarni Fritzson skorar úr vítinu
16:03 Oddur Gretarsson vinnur frákast eftir stangarskot FH inga
16:34 Guðmundur Hólmar með skot sem er varið og FH í sókn
16:52 Sveinbjörn Pétursson með snilldarvörslu frá Baldvin Þorsteinssyni
17:09 9-4 Bjarni Fritzson stekkur upp og skorar
17:44 Sveinbjörn Pétursson ver en FH fær vítakast
17:51 9-4 Sveinbjörn Pétursson ver vítakastið frá Ásbirni og Akureyri í sókn
18:20  Heimir Örn Árnason fékk gult spjald í vítabrotinu
18:38 Akureyri missir boltann
19:23 10-4 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Gulli vann boltann í vörninni
20:17 10-5 Ólafur Guðmundsson skorar fyrir utan
21:00 Dæmd ólögleg blokk á Akureyri
21:22 10-6 Ólafur Gústafsson skorar fyrir FH
21:33 Atli Hilmarsson tekur leikhlé
21:33 Akureyri byrjar leikinn á ný
21:58 Guðmundur Hólmar óheppinn, kominn í gegn en skotið í stöng
22:18 10-7 Baldvin Þorsteinsson skorar, hefði reyndar átt að fá dæmdan á sig ruðning
22:52 Sveinbjörn Pétursson ver meistaralega hraðaupphlaup frá Baldvin
23:35 11-7 Heimir Örn Árnason skorar
23:53 12-7 Flott vörn og Oddur Gretarsson fyrstur upp og skorar
24:13 12-8 Örn Ingi skorar
24:18  Ólafur Guðmundsson rekinn út af
24:50 Bjarni Fritzson hendir boltanum útaf
25:20 FH í sókn en höndin er uppi
25:49 Og höndin er enn uppi
25:58 12-8 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
26:38 Guðmundur Hólmar með skot framhjá
26:56 FH sömuleiðis með skot framhjá
27:25 Hörður Fannar fær aukakast
27:38 13-8 Heimir Örn Árnason með týpískt Heimismark
28:07 Sveinbjörn Pétursson grípur skot
28:28 FH kemst inn í sendingu
29:06  Heimir Örn Árnason rekinn útaf
29:15 13-9 Halldór Guðnónsson skorar úr horninu fyrir FH
30:00 Fyrri hálfleikur rennur út, þetta er búinn að vera flottur leikur
30:00 Hjörtur Hinriksson hefur greinilega meiðst illa því hann var borinn á sjúkrabörum út í sjúkrabíl
30:00 Akureyri byrjar seinni hálfleikinn
30:20 Bjarni Fritzson fær dæmda á sig línu
30:42 Bjarni Fritzson bætir fyrir sig og vinnur boltann, Akureyri í sókn
31:14 Heimir Örn Árnason kemur aftur inná, Akureyri með fullskipað lið
31:37 Bjarni Fritzson með skot yfir
32:04 13-10 Ólafur Guðmundsson með gott mark
32:24 FH vinnur boltann
32:45 Sveinbjörn Pétursson ver frá Baldvin og Akureyri í sókn
33:12 14-10 Guðmundur Hólmar með skot fyrir utan og það liggur í netinu
33:38 Ólafur Guðmundsson með skot hátt yfir markið
34:04 Guðmundur Hólmar með skot sem er varið
34:14 Baldvin skýtur yfir Akureyrarmarkið í upplögðu færi
34:47 Boltinn dæmdur af Akureyri
35:25 Ólafur Guðmundsson fær aukakast
35:45 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri í sókn
36:11 Heimir Örn Árnason fær aukakast
36:26 Bjarni Fritzson fær dæmdan á sig ruðning
36:56 14-11 Atli Rúnar skorar af línunni
37:35 15-11 Hörður Fannar vippar snyrtilega í netið af línunni
38:21 Sveinbjörn Pétursson ver frá Ása og Akureyri með boltann
38:54 16-11 Oddur Gretarsson vinnur boltann og geysist upp og skorar
39:41  FH fær vítakast og Guðmundur Hólmar rekinn útaf
39:45 16-12 Ásbjörn skorar úr vítinu
40:20 17-12 Heimir Örn Árnason með sannkallað snilldarmark
40:53 Oddur Gretarsson vinnur boltann og fær vítakast
40:59 18-12 Bjarni Fritzson skorar úr vítinu
41:07  Ólafur Guðmundsson var rekinn útaf fyrir brotið á Oddi
41:33 Akureyri vinnur boltann
41:51 Akureyri með fullskipað lið
42:04 19-12 Bjarni Fritzson brýst í gegn og skorar
42:58 FH með skot langt framhjá
43:38 Oddur Gretarsson inn úr horninu en það er varið og FH í sókn
44:01 FH er með fullskipað lið
44:13 19-13 Ási skorar fyrir FH
44:48 Heimir Örn Árnason fær aukakast
45:03 20-13 Heimir Örn Árnason kominn í gegn og skorar
45:18 FH er nóg boðið og Kristján Arason tekur leikhlé
45:18 Stemmingin og hávaðinn er alveg meiriháttar í Höllinni
45:18 FH byrjar leikinn á ný
45:52 20-14 Ólafur Guðmundsson skorar stöngin inn
47:03 20-15 Halldór Guðjónsson skorar úr horninu hjá FH
47:45 21-15 Oddur Gretarsson brýst í gegn og skorar sláin inn
48:15 21-16 Halldór Guðjónsson skorar aftur úr hægra horninu fyrir FH
49:12 FH vinnur boltann
49:36 Ási með skot sem er varið í horn
49:51 Ólafur Guðmundsson með skot langt framhjá
50:22 Daníel Einarsson missir boltann og FH í sókn
50:42 21-17 Ási heppinn, nær boltanum eftir að vörnin hafði varið skot frá honum og hann skorar
50:50 Atli Hilmarsson tekur leikhlé
50:50 Akureyri byrjar leikinn aftur
50:54 Halldór Logi Árnason er kominn á línuna
51:14 Guðmundur Hólmar með skot í stöng og útaf
52:04 Heimir Örn Árnason vinnur boltann í vörninni
52:21 Halldór Árnason frír á línunni en það er varið frá honum
52:37 21-18 Ási skorar fyrir FH
53:01 Daníel Einarsson inn úr horninu en það er varið
53:19 FH fær hornkast
53:31 Sveinbjörn Pétursson ver frá Ólafi Guðmundssyni og Akureyri heldur í sókn
53:44 Bjarni Fritzson fær dæmda á sig línu
54:33  Hörður Fannar rekinn útaf fyrir litlar sakir
54:46 21-19 Baldvin Þorsteinsson skorar og minnkar muninn í tvö mörk
55:32 Bjarni Fritzson fær á sig ruðning, fáránlegur dómur
56:00 Sveinbjörn Pétursson ver með tilþrifum frá Ólafi Guðmundssyni og Akureyri í sókn
56:36 Heimir Örn Árnason fær á sig ruðning
57:03 Oddur Gretarsson vinnur boltann
57:48 Mikill darraðardans stiginn á gólfinu en FH fær boltann
58:08 FH fær aukakast en það þarf að þurrka gólfið
58:08 Leikurinn hefst á ný
58:26 21-20 Örn Ingi skorar fyrir FH
58:58 22-20 Bjarni Fritzson í gegn og skorar
59:15 Sveinbjörn Pétursson ver
59:26 23-20 Bjarni Fritzson skorar
59:37 Sveinbjörn Pétursson ver og Akureyri með boltann
60:00 Leiknum er lokið og áhorfendur tryllast af gleði
60:00 Leikmenn hafa brotið blað í sögu félagsins, velkomin á úrslitaleik Eimskipsbikarsins!
60:00 Við minnum á að liðin mætast aftur næstkomandi fimmtudag hér í Höllinni og þá í N1 deildinni!
60:00 Við þökkum fyrir okkur í dag!

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson