Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2011-12

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
N1 deildin - Ásvöllum 13. október 2011 kl. 18:30
Haukar
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Velkomin í Beina Lýsingu frá leiknum, Haukar eru yfir 1-0, Malovic skoraði markið


Tími   Staða   Skýring
1:51 1-0 Velkomin í Beina Lýsingu frá leiknum, Haukar eru yfir 1-0, Malovic skoraði markið
2:24 Haukar fá aukakast
2:42 Akureyri nær boltanum
2:53 Guðmundur Hólmar fær aukakast
3:20 Bjarni Fritzson með skot sem Birkir Ívar ver
3:29 Sveinbjörn Pétursson ver glæsilega
3:41 1-1 Geir Guðmundsson skorar úr seinni bylgju og jafnar leikinn
4:07 Haukar fá aukakast
4:24 2-1 Stefán Rafn skorar fyrir Hauka
4:36 Guðmundur Hólmar með skot í slá
4:44 3-1 Þórður Rafn skorar fyrir Hauka
5:13 Akureyri fær aukakast
5:39 3-2 Guðmundur Hólmar skorar gott mark af gólfinu
6:08 4-2 Þórður Rafn skorar fyrir utan
6:22 Oddur Gretarsson fær dæmdan á sig ruðning
6:32 Haukar missa boltann
7:02 Geir Guðmundsson með misheppnaða línusendingu, Haukar með boltann
7:38 5-2 Glæsileg línusending hjá Haukum sem gefur mark
8:18 Geir Guðmundsson aftur með slaka línusendingu...
8:29 ...og Freyr Brynjarsson fer í hraðaupphlaup fyrir Hauka en Sveinbjörn Pétursson ver glæsilega!
08:33 Haukar með boltann eftir að Guðmundur Hólmar átti skot í slá
8:56 Skref dæmd á Hauka
9:13 Guðmundur Hólmar fær aukakast, tíminn stopp á meðan verið er að þurrka gólfið
9:29 5-3 Geir Guðmundsson með gott mark fyrir utan
10:00 Sveinbjörn Pétursson með góða vörslu
10:08 5-4 Oddur Gretarsson skorar úr hraðaupphlaupi
10:38 6-4 Heimir línumaður Hauka skorar af miklu harðfylgi
11:08 Oddur Gretarsson fær aukakast
11:14 Halldór Örn Tryggvason er kominn inn á línuna hjá Akureyri
11:37 Guðmundur Hólmar sækir vítakast
11:50 Oddur Gretarsson mun taka það
11:58 Oddur Gretarsson hinsvegar skýtur beint í Birki Ívar og Haukar með boltann
12:25 Sveinbjörn Pétursson ver vel í markinu
12:32 en Akureyri missir boltann strax
12:56 Hreinn Hauksson hefur engu gleymt og stöðvar Heimi línumann auðveldlega, hrikalega hraustur!
13:17   Guðlaugur Arnarsson fær 2 mínútur
13:26 Sveinbjörn Pétursson ver
13:31 6-5 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi
13:50 7-5 Stefán Rafn skorar fyrir Hauka fyrir utan
14:36 Bjarni Fritzson fær ódýrt aukakast
14:49 Geir Guðmundsson fær dæmd á sig skref
15:03 Bjarni Fritzson klúðrar í hraðaupphlaupi eftir að Bergvin hafði stolið boltanum
15:20 8-5 Heimir skorar enn fyrir Hauka og kemur þeim þrem mörkum yfir
15:56 Oddur Gretarsson fær aukakast, lítið að gerast hjá okkar mönnum
16:16 Guðmundur Hólmar með misheppnaða línusendingu
16:24 9-5 Stefán Rafn skorar fyrir Hauka
16:30 Atli Hilmarsson tekur leikhlé fyrir Akureyri
16:30 Haukarnir með ágætis tak á leiknum og nokkuð ljóst að Akureyri þarf að taka sig á. Sveinbjörn Pétursson hefur þó varið mjög vel í upphafi
16:32 Akureyri með boltann
16:48 9-6 Oddur Gretarsson skorar af línunni
17:22 Haukar fá aukakast
17:53 Sveinbjörn Pétursson ver vel
18:01 9-7 Bjarni Fritzson skorar úr horninu
18:40 Hreinn Hauksson frábær í vörninni, Haukar fá aukakast
18:52 10-7 Tjörvi skorar fyrir Hauka
19:06 10-8 Bergvin Gíslason skorar hinsvegar strax úr horninu og minnkar muninn aftur
19:34 11-8 Sveinbjörn Pétursson ver boltann inn frá Tjörva
20:11 11-9 Oddur Gretarsson skorar eftir að varið hafði verið frá Bergvini
20:30 Bergvin Gíslason að sýna fína takta
20:46 12-9 Stefán Rafn skorar úr horninu fyrir Hauka
21:01 Hlynur Matthíasson fær aukakast
21:24 Geir Guðmundsson fær aukakast
21:41 Bjarni Fritzson fær aukakast, skoraði en búið að dæma
22:05 Bjarni Fritzson með slaka sendingu
22:11 Oddur Gretarsson hinsvegar stöðvar hraðaupphlaup Hauka glæsilega
22:24 Haukar eiga aukakast
22:38  Hlynur Matthíasson fær gult spjald
23:00 Stefán Rafn með skot í slá og framhjá, Akureyri með boltann
23:40 Hlynur Matthíasson með skot framhjá
23:51 13-9 Heimir skorar af línunni fyrir Hauka
24:10 Lítið um færi hjá Akureyri í sókninni þessa stundina
24:30 13-10 Geir Guðmundsson vippar sér þá bara upp og hamrar hann inn!
25:01 Sveinbjörn Pétursson með góða vörslu
25:04  Bjarni Fritzson fær hinsvegar 2 mínútur og Haukar halda boltanum
25:09 Ruðningur dæmdur á Hauka
25:19 Tíminn er stopp, verið að þurrka. Mjög góð vörn hjá Bergvini Gíslasyni sem fiskaði ruðninginn
25:38 Bergvin Gíslason fiskar vítakast, frábær sending frá Geir
25:45 13-11 Oddur Gretarsson skorar núna úr vítinu!
26:06 Haukar með skot yfir
26:14 Akureyri leggur af stað í sókn
26:27 13-12 Bergvin Gíslason snýr boltann framhjá Birki Ívari í markinu, frábær leikur hjá Bergvin
26:53 Haukar fá aukakast
27:05 14-12 Haukar skora, Sveinbjörn Pétursson varði hann næstum því
27:40 Akureyri fær aukakast
27:46 Tíminn er stopp, verið að þurrka
27:47 Akureyri hefur hafið leikinn að nýju
28:01  Geir Guðmundsson brýst í gegn og fær vítakast, 2 mínútur á Stefán Rafn hjá Haukum
28:05 Oddur Gretarsson skýtur í slánna, en Akureyri heldur boltanum
28:26 Bjarni Fritzson fær aukakast
28:44 Bjarni Fritzson með skot sem er varið
29:14 Sveinbjörn Pétursson grípur boltann!
29:23 Bergvin Gíslason fær aukakast í miklu klafsi um boltann. Mikilvægt að fá boltann þegar svona lítið er eftir af fyrri hálfleik
29:36 14-13 Bjarni Fritzson skorar úr horninu og minnkar muninn
29:49 Haukar taka leikhlé
29:49 Akureyri er að komast betur og betur inn í leikinn, nú er bara mikilvægt að fá ekki á sig mark á þessum síðustu sekúndum fyrri hálfleiks
29:49 11 sekúndur eftir af fyrri hálfleik
30:00 Haukar eiga bara aukakast eftir
30:00 Þórður skýtur hinsvegar beint í varnarvegginn
30:00 Staðan er því 14-13 fyrir Haukum í hálfleik og Akureyri byrjar með boltann í síðari hálfleik
30:00 Hópur Akureyrar í dag:
Markmenn: Sveinbjörn Pétursson og Stefán Guðnason
Útileikmenn: Geir Guðmundsson, Bjarni Fritzson, Hreinn Þór Hauksson, Ásgeir Jóhann Kristinsson, Guðmundur Hólmar Helgason, Guðlaugur Arnarsson, Jón Heiðar Sigurðsson, Halldór Örn Tryggvason, Oddur Gretarsson, Hlynur Elmar Matthíasson, Bergvin Þór Gíslason og Jóhann Gunnarsson
30:00 Styttist í að síðari hálfleikur hefjist
30:02 Akureyri hefur hafið síðari hálfleikinn
30:29 Geir Guðmundsson með skot framhjá
30:41 15-13 Heimir skorar af línunni fyrir Hauka
31:16 Bjarni Fritzson fær aukakast
31:40 16-13 Tjörvi skorar fyrir Hauka
32:29  Guðmundur Hólmar fær aukakast og 2 mínútur á einn leikmann Hauka
32:47 Geir Guðmundsson með skot í slánna og Haukar með boltann
33:09 Haukar fá aukakast
33:38 Guðlaugur Arnarsson fær dæmda á sig línu í sókninni eftir góða vörn hjá Akureyri
33:54 Haukar því með boltann
34:06 Haukar fá aukakast
34:21 Akureyri fær boltann
34:32 Bjarni Fritzson fær aukakast, Haukarnir vildu fá dæmd skref
34:53  Bjarni Fritzson nær í vítakast og Freyr Brynjarsson fær 2 mínútur í liði Hauka
34:54 Bjarni Fritzson mun taka það sjálfur
34:56 Bjarni Fritzson skýtur hinsvegar beint í lappirnar á Birki Ívari
35:11 Þessi vítaklúður ætla að verða okkur dýr hér í kvöld
35:28 Haukar fá aukakast
35:48 16-14 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi
35:57  Aron Kristjánsson þjálfari Hauka fær gult spjald fyrir mótmæli
35:58  Haukarnir missa mann útaf í 2 mínútur, fyrir að ýta á Bjarna í hraðaupphlaupinu
36:22 Haukar missa boltann útaf, Akureyri með boltann
36:41  Bjarni Fritzson sækir vítakast og Haukar missa enn einn manninn útaf í 2 mínútur
36:41 Haukarnir eru með 3 útileikmenn inn á
36:44 Oddur Gretarsson hinsvegar lætur Birki Ívar verja frá sér í vítinu
37:02 17-14 Gylfi skorar svo fyrir Hauka
37:12 Haukarnir voru 3 inn á og skoruðu, eru hinsvegar 4 núna
37:32 18-14 Akureyri missir boltann 6 á móti 4 og Freyr Brynjarsson skorar fyrir Hauka
37:49 18-15 Geir Guðmundsson klórar í bakkann fyrir okkar menn, en skelfilegur kafli hjá Akureyri
38:19 Sveinbjörn Pétursson grípur boltann
38:28 Bergvin Gíslason klúðrar í dauðafæri í horninu
38:40 Haukar því í sókn
38:47 Haukar komnir með fullskipað lið
39:06 Skot yfir og Akureyri með boltann
39:18 18-16 Guðmundur Hólmar skorar eftir gott gegnumbrot
39:55 18-17 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Sveinbjörn hafði varið vel
40:29 Haukarnir missa boltann útaf
40:39 Akureyri leggur af stað í sókn
40:58 Bjarni Fritzson með skot sem Birkir Ívar ver
41:10 en Akureyri nær boltanum strax aftur
41:37 Bergvin Gíslason fer í gegn en það er varið frá honum
41:49 Haukar fá aukakast
42:06 Sveinbjörn Pétursson ver glæsilega og Akureyri með boltann
42:30 Bjarni Fritzson fær vítakast
42:37 Bergvin Gíslason fær að spreyta sig
42:50 Birkir Ívar heldur hinsvegar áfram að verja
43:03 Haukar með boltann
43:20 Haukar fá aukakast
43:33 19-17 Freyr Brynjarsson skorar fyrir Hauka
43:43 Oddur Gretarsson fær aukakast
44:14 Höndin er komin upp
44:25 Guðmundur Hólmar með skot sem Birkir Ívar ver
44:59 Haukar fá aukakast
45:19 Haukar fá vítakast
45:23 Gylfi hinsvegar skýtur í slánna! Akureyri með boltann
45:48 Bjarni Fritzson fær aukakast
46:09 19-18 Halldór Örn Tryggvason skorar af línunni fyrir Akureyri
46:40 Haukar fá aukakast
47:00 Sveinbjörn Pétursson ver glæsilega úr dauðafæri
47:09 Hreinn Hauksson fær dæmdan á sig ruðning
47:21 Haukar því með boltann
47:41 Haukar fá aukakast, Hreinn Hauksson var búinn að ná boltanum
47:58  Guðlaugur Arnarsson fær 2 mínútur, Haukar eiga hinsvegar bara aukakast
48:07 20-18 Malovic skorar fyrir Hauka
48:34 Geir Guðmundsson fær aukakast
48:57 Bjarni Fritzson fær aukakast
49:08 Bjarni Fritzson með skot úr þröngri stöðu sem er varið
49:18 Haukar hinsvegar missa boltann strax aftur
49:28 Væri mjög mikilvægt að fá mark núna
49:46 Geir Guðmundsson fær aukakast, heppinn með að fá ekki á sig ruðning
50:00 20-19 Oddur Gretarsson skorar eftir að Haukarnir gleymdu sér í vörninni
50:20 Stefnir allt í hörkuleik síðustu 10 mínúturnar
50:45 Haukar með skot framhjá
50:52 20-20 Bjarni Fritzson skorar úr hraðaupphlaupi og jafnar leikinn!
51:23 Sveinbjörn Pétursson ver en búið að dæma aukakast, Haukar með boltann
51:48 21-20 Freyr Brynjarsson læðir sér á línuna og skorar
52:14 Oddur Gretarsson fær aukakast
52:42 Guðmundur Hólmar fær aukakast, munaði mjög litlu á að þetta yrði víti
53:01 Guðlaugur Arnarsson sækir vítakast af línunni, spurning hvort við getum nýtt það?
53:01 Bjarni Fritzson fær tækifærið á að skora úr vítinu
53:04 21-21 Bjarni Fritzson skorar af línunni!
53:43 Haukar fá aukakast
53:53 Aftur fá Haukar aukakast
54:04 Sveinbjörn Pétursson ver!
54:13 Akureyri fer af stað í sóknina
54:33 Bjarni Fritzson með skot sem er varið, Haukar með boltann
55:09 Haukar fá aukakast, Geir Guðmundsson var alveg að missa sinn mann þarna en slapp með skrekkinn
55:30 22-21 Heimir skorar enn og aftur fyrir Hauka, hans 6 mark
55:52 Oddur Gretarsson fær aukakast, náði reyndar að losa boltann á Bergvin sem var í dauðafæri en búið að flauta
56:17  Akureyri missti boltann og Haukar fóru af stað í hraðaupphlaup. Geir Guðmundsson fær 2 mínútur og einn leikmaður Hauka einnig. Bæði lið því með 5 útileikmenn. Akureyri hinsvegar með boltann
56:18 Leikurinn hafinn að nýju, Akureyri með boltann
56:48 22-22 Bjarni Fritzson skorar frábært mark, Oddur var í erfiðri stöðu og sendi boltann þá yfir völlinn og Bjarni vippaði glæsilega
57:36 Haukar fá aukakast
57:48 Haukar með skot í stöngina og framhjá!
57:57 Ótrúleg spenna í þessum leik!
58:19 Bæði lið fullskipuð að nýju
58:30 Boltinn dæmdur af Akureyri
59:04 Haukar taka leikhlé
59:04 Mjög ólíklegt að Haukarnir nái að spila út leiktímann og Akureyri á ennþá sitt leikhlé í síðari hálfleik. Akureyri mun því líklegast eiga séns annaðhvort á að jafna eða vinna leikinn undir lokin
59:05 Haukar byrja leikinn aftur
59:14 23-22 Heimir skorar fyrir Hauka af línunni
59:43 Bjarni Fritzson klikkar í horninu
60:00 Leiktíminn rennur út, Haukar vinna 23-22
60:00 Þetta var hrikalega erfitt færi sem Bjarni ákvað að taka undir lokin, en það þýðir ekki að hugsa um það. Haukarnir vinna sigur í frábærum leik og þeir áttu sigurinn líklega meira skilið en okkar menn
60:00 Sveinbjörn Pétursson var maður leiksins hjá Akureyri í dag
60:00 Bein Lýsing þakkar fyrir sig og minnir á næsta leik sem er heimaleikur gegn Val næstkomandi fimmtudag

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson