Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Bein lýsing
N1-deildin 25. febrúar kl. 19:00 í Íþróttahöllinni
Akureyri
 
FH
0
-
0
00:00
Velkomin á leik Akureyrar og FH


Tími   Staða   Skýring
Velkomin á leik Akureyrar og FH
Lið heimamanna er þannig skipað í dag:
1 Jovan Kukobat
18 Stefán Guðnason
2 Andri Snær Stefánsson
3 Geir Guðmundsson
5 Hreinn Þór Hauksson
7 Snorri Björn Atlason
8 Guðmundur Hólmar Helgason
10 Valþór Guðrúnarson
11 Jón Heiðar Sigurðsson
13 Heimir Örn Árnason
16 Halldór Tryggvason
17 Bergvin Þór Gíslason
22 Sigþór Árni Heimisson
23 Heiðar Þór Aðalsteinsson
Lið FH er þannig skipað:
1 Sigurður Örn Arnarson
12 Daníel Freyr Andrésson
2 Sigurður Ágústsson
5 Ásbjörn Friðriksson
6 Andri Berg Haraldsson
13 Einar Rafn Eiðsson
18 Þorkell Magnússon
19 Ari Magnús Þorgeirsson
20 Ísak Rafnsson
22 Ragnar Jóhannsson
24 Magnús Óli Magnússon
66 Atli Rúnar Steinþórsson
71 Bjarki Jónsson
93 Arnar Birkir Hálfdánsson
Dómarar í dag eru Hafsteinn Ingibergsson og Hlynur Leifsson. Enginn eftirlitsdómari er að þessu sinni.
0:00 FH byrjar leikinn núna
0:52 Jovan Kukobat ver fyrsta skotið og Akureyri í sókn
1:18  Spjald á Magnús Óla Magnússon leikmann FH
1:36 Akureyri fær aukakast
2:03 1-0 Heiðar Þór fer inn úr vinstra horninu og skorar
2:40 Jovan Kukobat ver en FH fær frákastið
2:55 1-1 Þorkell Magnússon skorar fyrir FH
3:55 2-1 Bergvin Gíslason skorar með góðu skoti fyrir utan
4:18 FH með skot framhjá
4:40 Guðmundur Hólmar vinnur vítakast
4:40  Magnús Óli var rekinn útaf fyrir brotið á Guðmundi
5:20 3-1 Heimir Örn Árnason skorar úr vítinu
5:45 FH fær aukakast höndin er uppi
6:12 Jovan Kukobat varði og Akureyri í sókn
6:33 Geir Guðmundsson með skot sem er varið en Heiddi nær frákastinu
7:10 Geir Guðmundsson með skot sem var varið
7:41 3-2 Ísak Rafnsson skorar fyrir utan
8:17 4-2 Heimir Örn Árnason skorar af línunni
8:49 Jovan Kukobat ver en FH fær aukakast
9:02  Snorri Björn Atlason gefur ekkert eftir í vörninni en fær spjald
9:11 4-3 Ísak Rafnsson skorar aftur fyrir utan
9:46 5-3 Geir Guðmundsson með neglu í samskeytin og inn
10:23 6-3 Geir Guðmundsson skorar úr hraðaupphlaupi
10:29 FH tekur leikhlé
10:29 FH hefur leikinn á ný
11:12 FH fær aukakast
11:22 FH missir boltann
11:33 Hreinn Hauksson klikkar á línunni
11:52  Snorri Björn Atlason rekinn útaf fyrir að taka vel á Ragnari Jóhannssyni
12:10 Jovan Kukobat ver frá Einar í horninu en boltinn fer í innkast
12:32 6-4 Ragnar skorar fyrir FH
13:05 Mikil rekistefna um hvort Bergvin hafi skorað, boltinn virtist fara yfir línuna en að lokum ákveða dómararnir að dæma ekki mark
13:07 6-5 Einar Rafn skorar úr horninu fyrir FH
14:03 7-5 Guðmundur Hólmar með gott mark af gólfinu
14:44 Jovan Kukobat ver tvívegis en FH fær boltann
15:00  Hreinn Þór Hauksson aðgangsharður í vörninni og fær spjald
15:22 Jovan Kukobat ver frá Ragnari og Akureyri í sókn
15:57 Bergvin Gíslason fær aukakast
16:16 Guðmundur Hólmar vinnur vítakast
16:31 8-5 Heimir Örn Árnason skorar úr vítinu
17:04 Jovan Kukobat ver af línunni og Akureyri brunar í sókn
17:20 9-5 Guðmundur Hólmar hikar ekkert og dúndrar boltanum í netið
17:48 9-6 Ásbjörn fer í gegn og skorar fyrir FH
18:36 FH vinnur boltann en þeir henda honum beint útaf
19:09 Geir Guðmundsson fær aukakast
19:19 Sævar Árnason tekur leikhlé
19:19 Akureyri byrjar sóknina á nýjan leik
19:27 Geir Guðmundsson með skot sem er varið og FH komið í sókn
19:58 FH fær aukakast
20:18 Jovan Kukobat ver en boltinn fer í innkast
20:34 Jovan Kukobat ver frá Ragnari en FH fær aukakast
21:18  Heimir Örn Árnason var rekinn útaf
21:31 9-7 Andri Berg skorar eftir gríðarlega langa sókn FH inga
21:54 10-7 Heiðar Þór fer inn úr horninu og skorar
22:20 Ási með skot framhjá Akureyrarmarkinu
22:51  Allt í fári á gólfinu, Andri Berg fær spjald og leikurinn hefst á ný
23:09 Valþór Guðrúnarson fær aukakast
23:32 Bergvin Gíslason fer í gegn en fær bara aukakast
23:48 Geir Guðmundsson með skot sem Daníel ver í markinu
24:25 Akureyri vinnur boltann
24:39 Guðmundur Hólmar með skot sem er varið í horn
25:21 FH vinnur boltann
25:29 10-8 Atli Rúnar frír á línunni og skorar fyrir FH
26:00 11-8 Bergvin Gíslason með glæsilegt mark fyrir utan
26:42 Jovan Kukobat ver frá Andra Berg og Akureyri með boltann
27:25 Bergvin Gíslason fær aukakast
27:52 12-8 Bergvin Gíslason heldur áfram og skorar flott mark í gófið og inn
29:02 12-9 Magnús Óli skorar fyrir FH
29:48  Ási rekinn útaf
29:48  Einar þjálfari FH fær spjald fyrir mótmæli
29:58 13-9 Valþór Guðrúnarson með magnað mark úr síðasta skoti hálfleiksins
30:00 Jovan Kukobat er búinn að verja frábærlega, kominn með 12 skot
30:00 Heimir og Beggi eru með 3 mörk hvor, Heiðar, Guðmundur og Geir með 2 mörk hver og Valþór með 1.
30:00 Akureyri byrjar seinni hálfleikinn
30:45 FH vörnin vinnur boltann
31:26 Jovan Kukobat heldur áfram og ver glæsilega af línunni
31:46 Guðmundur Hólmar með skot yfir
31:56 FH komið með fullskipað lið
32:20 FH fær aukakast
32:43 13-10 Ragnar skorar eftir að höndin hafði verið uppi
33:13 14-10 Halldór Örn Tryggvason frír á línunni og skorar
33:50 14-11 Magnús Óli kemst í gegn og skorar fyrir FH
34:22 Geir Guðmundsson fær aukakast
34:42 Guðmundur Hólmar með skot sem Daníel ver, FH fer í sókn
34:55 FH fær hornkast
35:17 Jovan Kukobat ver af línunni frá Ása
36:06 14-12 Einar Rafn Eiðsson skorar úr hraðaupphlaupi
36:47 Bergvin Gíslason með skot sem er varið
37:01 14-13 Atli Rúnar skorar af línunni
37:09 Þetta gengur ekki alveg nógu vel hér á upphafsmínútunum
37:37 Bergvin Gíslason kominn í gegn en fær bara aukakast
37:58 15-13 Bergvin Gíslason kemur boltanum framhjá Daníel og í netið
38:30 Atli Rúnar vinnur víti fyrir FH
38:40 15-14 Jovan Kukobat ver vítið frá Ása en Ási nær frákastinu og skorar
39:18 Geir Guðmundsson fær aukakast
39:37 16-14 Heiðar Þór með ótrúlegt mark, snúningur alveg innst úr horninu
39:53 16-15 Ási svarar strax með marki
40:13 Andri Snær kemur í hægra hornið
40:29 17-15 Bergvin Gíslason með snyrtilegt mark
40:44 Boltinn dæmdur af FH
41:14 Guðmundur Hólmar með skot sem FH-vörnin tekur
41:31 17-16 Andri Berg með mark, stöngin inn, heppnisstimpill á þessu marki
42:04 Geir Guðmundsson fær aukakast
42:21 18-16 Bergvin Gíslason með stórbrotið mark klesst í vinkilinn
42:51 18-17 Ragnar svarar fyrir FH
43:10 Bjarni Fritzson tekur leikhlé
43:10 Akureyri byrjar leikinn á ný
43:45 19-17 Geir Guðmundsson skorar, Daníel markvörður sópar boltanum út fyrir línuna
43:56  FH ingar alveg dýrvitlausir vilja meina að boltinn hafi aldrei farið inn. Daníel markvörður rekinn útaf
44:19   Bergvin Gíslason ver með fætinum og er rekinn útaf
44:30 19-18 Ragnar Jóhannsson skorar af harðfylgi fyrir FH
45:12 Guðmundur Hólmar fer í gegn en skotið fer í gólfið og yfir
45:30 19-19 Ragnar jafnar fyrir FH
45:34 Stefán Guðnason er kominn í markið
46:05 Guðmundur Hólmar fær dæmd á sig skref
46:19 19-20 Ragnar skorar fyrir FH og kemur þeim yfir
47:07 20-20 Guðmundur Hólmar lyftir sér upp og jafnar
47:37 Daníel er kominn í markið hjá FH eftir brottreksturinn
47:56 20-21 Magnús Óli snýr sig af krafti í gegnum Akureyrarvörnina og skorar
48:23 21-21 Bergvin Gíslason kann þetta líka og brýst sömuleiðis í gegn og skorar
48:52 FH fær aukakast
49:03 Stefán Guðnason ver frá Ragnari og Akureyri komið í sóknina
49:39 Bergvin Gíslason fær aukakast
49:58 22-21 Bergvin Gíslason getur ekki hætt og skorar, frábær leikur hjá Begga
50:36 FH fær aukakast
50:47 22-22 Ási skorar af gólfinu
51:09 Jovan Kukobat kemur aftur í markið
51:42 Guðmundur Hólmar með skot sem er varið í innkast
52:02 Geir Guðmundsson með skot í stöng og FH fær boltann
52:19 FH fær aukakast
52:37 FH tekur leikhlé
52:37 Þetta er sannkallaður háspennuleikur eins og alltaf þegar þessi lið mætast
52:37 FH byrjar aftur
52:50 FH fær aukakast
53:06 Jovan Kukobat ver af línunni en vítakast dæmt
53:24 22-23 Einar Rafn skorar úr vítinu
54:04 23-23 Geir Guðmundsson stekkur upp og skorar með góðri sleggju
54:38 FH fær aukakast
55:01 Jovan Kukobat ver frá Ása og Akureyri með boltann
55:28 Nú væri mikilvægt að fá mark
55:48 Akureyri fær innkast
55:57 24-23 Bergvin Gíslason svaraði kallinu og skoraði
56:16 FH missir boltann, tíminn er stopp verið að huga að Begga sem fékk höfuðhögg að því er mér sýnist
56:17 Leikurinn hefst á ný og Beggi heldur áfram
56:44 25-23 Halldór Örn Tryggvason vippar af öryggi yfir Daníel í FH markinu
57:01 Jovan Kukobat ver frá Ása og Akureyri með boltann
57:24 Guðmundur Hólmar vinnur vítakast
57:27 Heimir Örn Árnason fer á punktinn
57:29 26-23 Heimir Örn Árnason skorar úr vítinu
57:54 FH setja aukamann í sóknina, Magnús Óli er í vesti og Daníel tekinn útaf
58:01 FH vinnur vítakast
58:11 26-24 Einar Rafn Eiðsson skorar úr vítakastinu
58:33 Andri Snær fær dæmd á sig skref
58:48 Jovan Kukobat ver með tilþrifum frá Ragnari
59:04 27-24 Guðmundur Hólmar fer í gegn og skorar – þetta ætti að vera komið
59:24 Ási með skot yfir markið og þar með fór síðasta von FH-inga
59:32 Andri Snær fær aukakast
59:36 Heiðar Þór inn úr horninu en skýtur framhjá
59:42 28-24 Akureyri vinnur boltann og Heiðar Þór skorar úr hraðaupphlaupi
59:53 Jovan Kukobat með tvær stórbrotnar markvörslur úr dauðafærum og Akureyri vinnur boltann
60:00 29-24 Hreint magnaðar lokasekúndur á leiknum. Geir æðir upp völlinn og hamrar boltann í netið áður en flautað er til leiksloka.
60:00 Brjálæðislega flottur sigur á FH
60:00 Ragnar Jóhannsson er valinn maður FH liðsins
60:00 Bergvin Gíslason er besti maður Akureyrarliðsins og fá báðir körfu frá Norðlenska að launum
60:00 Frábær úrslit og nú verður fólk bara að ná sér í miða á undanúrslitaleikinn í bikarnum gegn Stjörnunni. Bendum á forsölu á veitingastaðnum Bryggjan á Akureyri og einnig í BK-kjúklingi á Grensásveginum í Reykjavík
60:00 Við þökkum fyrir okkur í kvöld.

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson