Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Dýrmætt stig gegn Fram og Akureyri í úrslitakeppnina - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Jón Karl Björnsson og Júlíus Sigurjónsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Heimir hakkar til lokaleiksins gegn Val
24. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað sögðu menn eftir Fram leikinn?
Það voru mikil læti og stemming í Framhúsinu á föstudagskvöldið þegar Fram og Akureyri áttust við í slagnum um sæti í úrslitakeppninni. Við höfum safnað saman nokkrum viðtölum við leikmenn og þjálfara sem öll eru tekin strax eftir leikinn. Byrjum á viðtölum Sindra Sverrissonar á Morgunblaðinu, fyrst er það hetja Akureyringa, Sveinbjörn Pétursson.
Sveinbjörn Pétursson: bardagi til síðasta blóðdropa
Það mátti heyra saumnál detta á lokasekúndunum þegar Stefán Baldvin Stefánsson sveif inn úr vinstra horninu, og hann var nánast fyrir miðju marki þegar skotið reið af. Sigur Fram í sjónmáli, en þá kom Sveinbjörn Pétursson til bjargar með góðri markvörslu sem tryggði Akureyri endanlega sæti í fjögurra liða úrslitakeppni N1-deildar karla í ár. „Fyrst við vorum búnir að ná að jafna metin þá kom ekkert annað til greina en að ná að landa þessu stigi. Það mun reynast mikilvægt. Hægri vængurinn hjá okkur var svolítið opinn og hann komst í gott færi en ég varði,“ sagði Sveinbjörn eftir leik. „Það vantaði upp á að slíta þá alveg frá okkur, munurinn varð aldrei meiri en þrjú mörk, en svo náðu þeir góðum spretti og komust í 25:22, og þetta var farið að líta ansi illa út. Þetta var bara bardagi til síðasta blóðdropa og það skilaði þessu stigi í dag,“ sagði Sveinbjörn sem var ánægður með áhorfendur í gær. „Það var frábært að sjá menn búna að ferðast frá Akureyri til að styðja okkur í þessum leik og þeir voru frábærir alveg eins og stuðningsmenn Fram. Það er langt síðan maður hefur komið í svona stemningu hérna í Safamýrinni,“ og eru það orð að sönnu.
Heimir Örn Árnason: Héldum rónni síðustu fimm
Heimir Örn Árnason fyrirliði Akureyrar var ánægður með eitt stig í Safamýrinni í kvöld í ljósi þess að liðið var þremur mörkum undir þegar skammt var eftir. Hann kvaðst hlakka til að mæta Óskari Bjarna Óskarssyni og félögum í Val í lokaumferðinni en hér fer á eftir vídeóviðtal mbl.is við Heimi.
Einar Jónsson: Beið eftir sjúkrabílnum
„Þetta var boxbardagi þar sem annað liðið lá í valnum en hitt liðið spilaði eins og dómararnir leyfðu. Maður beið bara eftir því að einhver færi héðan með sjúkrabíl. Við reyndum svo að svara með sama hætti í seinni hálfleik og fengum þá fyrstu brottvísun leiksins. En ég var ánægður með mitt lið í dag og við vorum klaufar að klára ekki dæmið. Ég hefði átt að taka leikhléið fyrr, þegar við vorum þremur yfir, en ef við hefðum skorað úr dauðafærinu í lokin hefði náttúrlega verið frábært að taka leikhléið þá,“ sagði Einar Jónsson þjálfari Fram.
Jóhann Gunnar Einarsson: Kaos í leikhléinu í lokin
Jóhann Gunnar Einarsson, tíu marka maður í jafntefli Fram og Akureyrar í kvöld, segir að mikið hafi gengið á í leikhléi Framara fyrir lokasóknina í kvöld en þá voru 15 sekúndur til leiksloka. Jóhann var í viðtali við mbl.is.
Stefán Hirst Friðriksson tíðindamaður vísir.is ræddi við Heimi Örn fyrirliða Akureyrar og þjálfarana Atla Hilmarsson og Einar Jónsson. Atli sendir Einari einmitt smáskot en Einar virðist vera fastur í því að kenna dómurum leikja um þegar lið hans fara ekki með sigur af hólmi.
Heimir: Frábært stig í lokin
„Mér finnst við rosalega snöggir að klúðra þessari þriggja marka forystu í seinni hálfleiknum en þetta var frábært stig í lokin. Við áttum í erfiðleikum að hemja Fram-strákana í sókninni á þessum tímapunkti en það var allt inni hjá þeim,“ sagði Heimir.
„Við þurfum að vinna okkar síðasta leik held ég og við ætlum bara að klára hann. Þessi úrslitakeppni verður frábær þar sem fjögur mjög jöfn lið eru að mætast. Öll liðin eru mjög öflug en þó að Haukarnir hafi verið sterkastir í deildarkeppninni þá finnst mér þetta bara 50-50 hjá öllum liðum,“ sagði Heimir Örn Árnason, leikmaður Akureyri í leikslok
Einar: Dómgæslan gjörsamlega útúr kortinu
„Við áttum að vinna þennan leik. Við vorum komnir þremur mörkum yfir hérna en erum klaufar að klára þetta ekki. Dómgæslan var náttúrulega skelfileg hérna og ég ætla að fullyrða það að hún var 80/20 þeim í hag í þessum leik. Að við höfum ekki verið meira undir hérna á köflum sökum dómgæslunnar er náttúrulega alveg ótrúlegt,“ sagði Einar.
„Við sýndum hrikalegan karakter og er ég mjög stoltur af mínu liði. Við erum samt auðvitað að gera mikið af mistökum sjálfir og þurfum við að hugsa fyrst og fremst um það. En ég er ánægður með karakterinn hérna. Við vorum miklu fastari fyrir hérna í seinni hálfleik en það er lýsandi fyrir dómgæsluna að við fáum fyrstu tvær mínúturnar í þessum leik þrátt fyrir að hafa verið lamdir niður hérna í þrjátíu mínútur. „Ég er stoltur af liðinu. Við erum ennþá inní þessu og það er frábært,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram að lokum.
Atli: Sáttir með jafnteflið úr því sem komið var
„Úr því sem komið var erum við mjög sáttir með jafnteflið. Við vorum samt komnir í fína forystu þarna um miðjan hálfleikinn og vorum með boltann en fórum ekki nægilega vel með þann séns. Varnarleikurinn í seinni hálfleikur var alls ekki nógu góður. Við vorum að fá alltof mörg mörk á okkur. Þetta var samt flottur leikur þar sem tvö virkilega góð lið voru að mætast,“ sagði Atli.
„Ég vísa þessum ummælum Einars um dómgæsluna til föðurhúsanna. Þeir hefðu oft átt að fá dæmt á sig tvær mínútur þegar hangið var aftan í okkar mönnum ásamt vítaköstum sem þeir fengu en við fengum ekki. Mér finnst þessi túlkun Einars frekar gróf,“ bætti Atli við.
„Við ætlum okkur að fara alla leið í ár. Við fórum í úrslitaleikinn í fyrra og töpuðum þar þannig að það er ekkert minna sem við ætlum að gera í ár. Ég veit samt ekki alveg hvort að við séum öruggir inn í úrslitakeppnina en við ætlum bara að klára okkar,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyri í leikslok.
Vídeóviðtöl af Sport.is
Að endingu eru einnig viðtöl við þjálfarana Atla og Einar sem birtust á sport.is.
Það er býsna mikið undir í þessum leik
23. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Fram – Akureyri í beinni á SportTV.is
Í dag fer fram næstsíðasta umferð N1 deildar karla og ekki laust við að það séu mikilvægir leikir á dagskrá. Spennan felst sem sé í því hvaða þrjú lið fylgja Haukum í úrslitakeppnina. Akureyri, FH, HK, Fram og Valur eiga öll möguleika á að komast þangað og því má búast við að liðin leggi allt í leiki dagsins. Vikudagur ræddi í gær við þá Guðlaug Arnarsson og Atla Hilmarsson um leikinn og fara svör þeirra hér á eftir:
„Við verðum að halda áfram þar sem frá var horfið í síðasta leik og ná upp sömu stemmingu,“ segir Guðlaugur um leikinn gegn Fram. „Við þurfum að vinna þessa leiki ef við ætlum okkur áfram. Við sýndum hvað í okkur bjó gegn FH og verðum að halda því áfram í Safamýrinni,“ segir Gulli.
Atli Hilmarsson tekur í sama streng. „Það er mikill hugur í okkur að fara í úrslitakeppnina og með sömu frammistöðu og gegn FH þá förum við langt í þessari keppni. Við getum hins vegar farið á ansi lágt plan og við verðum að mæta Fram í sama ham og í síðasta leik. Þetta verður enn einn úrslitaleikurinn, Fram er eitt af þeim liðum sem við erum að berjast við,“ sagði Atli.
Gulli og Atli með spurnarsvip
Leikurinn verður í beinni útsendingu á SportTV.is og hefst útsendingin rétt fyrir klukkan 19:30 en allir leikir tveggja síðustu umferða N1 deildarinnar eru leiknir samtímis. Hér að neðan ætti útsending SportTV.is að birtast.Einnig er hægt að smella hér til að fara á síðu SportTV.is.
Það verður örugglega barist til síðasta blóðdropa gegn Fram
22. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Fram - Akureyri í beinni á SportTV.is
Eftir frábæran leik gegn FH síðastliðinn mánudag heldur baráttan áfram á föstudaginn. Það eru tvær umferðir eftir af sjálfri deildarkeppninni og óhætt að segja að sannkölluð úrslitastemming ríki í öllum leikjunum, slík er spennan um að komast í úrslitakeppnina.
Akureyri sækir Fram heim á föstudaginn og verður leikið í Safamýrinni klukkan 19:30 en allir leikir umferðarinnar fara fram á sama tíma. Með sigri í leiknum tryggir Akureyri sér sæti í úrslitakeppninni og því er ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að leggja leið sína í Fram húsið og skapa sömu stemmingu og strákarnir eru vanir hér á heimavelli.
SportTV.is mun sýna leikinn í beinni á vefnum og munum við setja upp tengingu við útsendinguna hér á heimasíðunni.