Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Ísinn brotinn á Selfossi og tvö stig í hús - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Myndband frá leiknum      Tölfræði leiksins 
    Selfoss - Akureyri  29-32 (13-15)
Olís deild karla
Selfoss
Lau. 1. okt. 2016 klukkan: 15:00
Dómarar: Bjarni Viggósson og Jón Karl Björnsson
Umfjöllun

Klassaleikur hjá Andra Snæ í dag

1. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ísinn brotinn á Selfossi og tvö stig í hús

Akureyri gerði heldur betur góða ferð á Selfoss og sóttu langþráð fyrstu stig tímabilsins í mögnuðum leik. Það var greinilegt að liðið kom afar vel stemmt í leikinn og leikgleðin skein af liðinu. Selfyssingar komust í 4-2 en Akureyri jafnaði og komst yfir í 5-6. Nú voru það Selfyssingar sem jöfnuðu í 6-6 en í kjölfarið komu þrjú norðlensk mörk í röð og staðan orðin 6-9.
Sá markamunur hélst upp í 9-12 en Selfyssingar voru ekki af baki dottnir og jöfnuðu leikinn í 12-12. Akureyringar gáfu þá í á nýjan leik og áttu næstu þrjú mörk en Selfyssingar skoruðu síðasta mark hálfleiksins þannig að staðan í hálfleik var 13-15 Akureyri í vil.

Áfram var leikurinn í járnum í seinni hálfleiknum en Akureyri með frumkvæðið. Um miðbik hálfleiksins kom frábær 5 – 1 kafli hjá Akureyringum sem virtust vera að ganga frá heimamönnum, staðan orðin 20 – 25. En Selfyssingar voru ekki á því að gefast upp og svöruðu með fjórum mörkum í röð, enn átta mínútur eftir og spennan í hámarki

Karolis Stropus hjó á þennan hnút og skömmu síðar voru Akureyringar komnir þrem mörkum yfir 26 - 29. Þegar fjórar sekúndur voru eftir af leiknum tóku Sverre og Ingimundur leikhlé sem heimamönnum þótti greinilega sérkennilegt enda leikurinn unninn. En það var aldeilis ekki til ónýtis því þessar sekúndur nýttust í frábært sirkusmark hjá Friðrik Svavarssyni sem innsiglaði þriggja marka sigur Akureyrar 29 – 32.


Sverre og Ingimundur undirbjuggu liðið frábærlega fyrir leikinn

Arnar Þór Fylkisson stóð vaktina í markinu í forföllum Tomasar og Bernharðs. Arnar stóð svo sannarlega fyrir sínu, og átti sinn þátt í sigrinum með þrettán skot varin.


Arnar Þór stóðst frumraunina sem aðalmarkvörður með prýði

Það var þó fyrirliðinn, Andri Snær Stefánsson sem fór fyrir sínum mönnum, skoraði 11 mörk þar af 6 úr vítum, fiskaði jafnframt tvö þeirra sjálfur.


Andri Snær var frábær í dag og dreif sína menn áfram af krafti

Varnarleikurinn var flottur og höfðu menn góð tök á Selfyssingum, Stropus og Mindaugas voru drjúgir í sóknarleiknum, maður hefði kannski viljað sjá Kristján Orra fá meira úr að moða í hægra horninu en Kristján minnti vel á sig með þrem góðum mörkum undir lok leiksins. Brynar Hólm kom sterkur inn barðist vel í vörninni og skoraði þrjú glæsimörk. Patrekur Stefánsson átti sömuleiðis fína innkomu og gott að sjá að ungir leikmenn fengu að spreyta sig í leiknum.

Mörk Akureyrar: Andri Snær Stefánsson 11 (6 úr vítum), Karolis Stropus 5, Mindaugas Dumcius 5, Brynjar Hólm Grétarsson 3, Kristján Orri Jóhannsson 3, Friðrik Svavarsson 2, Patrekur Stefánsson, Róbert Sigurðarson og Sigþór Árni Heimisson 1 mark hver.
Arnar Þór Fylkisson stóð í markinu allan leikinn og varði 13 skot.

Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 7, Andri Már Sveinsson 6, Teitur Örn Einarsson 4, Einar Sverrisson 3, Eyvindur Hrannar Gunnarsson 3, Hergeir Grímsson 3, Árni Guðmundsson, Guðjón Ágústsson og Magnús Öder Einarsson 1 mark hver.
Í marki Selfyssinga vörðu Grétar Ari Guðjónsson 10 skot og Helgi Hlynsson 1 skot.

Leikur Selfoss og Akureyrar var sýndur beint á Selfoss TV og geta þeir sem misstu af leiknum horft á hann með því að smella hér.

Nú er bara að halda áfram á þessari braut, heldur betur magnaður leikur framundan en Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Hauka í KA heimilinu næstkomandi miðvikudag.

Jafnframt minnum við á að Ungmennalið Akureyrar leikur sinn annan heimaleik í 1. deild karla klukkan 15:00 á morgun, sunnudag í KA heimilinu. Andstæðingar þeirra eru Þróttarar og hvetjum við alla til að mæta og styðja strákana, það er frítt á leikinn!

Tengdar fréttir

Ingimundur lagði liðinu til gistingu á Laugarvatni fyrir leik

4. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir sigurinn á Selfossi

Það var nokkuð ljóst að það var ekki fjölmenn sveit fjölmiðlamanna á leik Selfoss og Akureyrar á laugardaginn. Mbl var með ágæta textalýsingu og SelfossTV sýndi leikinn. Einu viðtölin eftir leikinn birtust á fimmeinn.is sem tóku vídeóviðtöl við Ingimund Ingimundarson svo og stórskyttu Selfyssinga, Einar Sverrisson.

Ingimundur: Sveitaloftið á greinilega vel við okkur



Ingimundur Ingimundarson, leikmaður Akureyrar, og aðstoðarþjálfari sagði mikinn létti að vera loks búinn að ná inn fyrsta sigri vetrarins.
Hann sagði að ákveðin pressa væri búin að vera eftir fyrstu leikina þar sem ekkert stig var að koma í hús og það hefði verið virkilega gaman að fá fyrstu stigin gegn erfiðu liði á erfiðum útivelli.
Liðið væri, eins og hefur komið alls staðar fram, með þunnan hóp og raunin væri bara að leikmenn væru að koma inn og stíga upp og það væru leikmenn sem fyrirfram var ætlað minni hlutverk í fyrstu og þeir hefðu allir staðið sig vel.
Hann sjálfur er einn af þeim sem hafa verið á sjúkralistanum en segir að það styttist í sig með hverjum degi og hann verði fljótlega kominn á gólfið.
Akureyringar brutu ferðalagið aðeins upp fyrir þennan leik og komu suður í gærkvöldi og gistu á Laugarvatni í nótt og sagði hann sveitaloftið greinilega eiga við þá, hvort sem það væri sunnlenskt eða að norðan.


Þórir ljósmyndari rammaði Ingimund rækilega inn á þessari mynd

Einar Sverris: Er gríðarlega svekktur með þessa útkomu í dag



Einar Sverrisson, leikmaður Selfoss, sagðist gríðarlega svekktur með útkomuna í dag eftir tap fyrir Akureyri. Þeir hefðu komið vel inn í leikinn en fljótlega hefði þó farið að halla undan fæti.
Hann sagði að enginn skjálfti væri kominn í liðið þrátt fyrir þrjú töp í röð og sagði að sigurleikirnir í byrjun gæfu þeim ekkert í dag eða í framtíðinni en þrátt fyrir tap hefði liðið verið að spila ágætlega eins og á móti Haukum en leikurinn gegn Fram hefði verið algert afhroð.
Hann sagðist ekkert kvíða framhaldinu hjá liðinu og væri þess fullviss um að liðið færi að taka inn stig fljótlega.


Einar lék síðustu tvö ár með ÍBV



Selfyssingar eru erfiðir heim að sækja

1. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Útileikur á Selfossi

Akureyrarliðið mætir á Selfoss í dag í fimmta leikinn í Olís deildinni. Andstæðingarnir eru heimamenn sem unnu sig upp í Olís deildina í vor eftir hörkueinvígi gegn Fjölni. Þjálfari Selfyssinga er norðanmaðurinn Stefán Árnason en hann þjálfaði liðið einnig síðasta tímabil.

Selfyssingar styrktu lið sitt töluvert í sumar, endurheimtu skyttuna Einar Sverrisson sem hefur leikið með ÍBV síðustu tvö tímabil. Þá fengu þeir línumanninn Guðna Ingvarsson sem kom frá Gróttu eftir að hafa verið í liði ÍBV þar áður. Markvörðurinn Grétar Ari Guðjónsson kom frá Haukum þannig að Selfoss liðið er býsna vel mannað.

Selfyssingar byrjuðu deildina frábærlega, unnu örugga sigra á Aftureldingu og Val í fyrstu umferðunum, töpuðu naumlega fyrir Haukum á heimavelli en máttu sætta sig við óvænt fjögurra marka tap gegn Fram í síðustu umferð.

Þetta er annar heimaleikur Selfoss á tímabilinu og við væntum þess að leikurinn verði sýndur beint á Selfoss TV líkt og þeir sýndu Haukaleikinn.

Hér er hægt að fylgjast með útsendingunni frá leiknum.

Við uppfærum þessa tengingu þegar við vitum meira en leikurinn hefst klukkan 15:00 í dag.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson