Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Bein lýsing
DHL deild karla - KA-Heimilið 18. mars kl: 16:00
Akureyri
 
ÍR
0
-
0
00:00
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Akureyrar og ÍR í 16. umferð DHL-Deildar karla, leikurinn hefst klukkan 16:00 og þurfa bæði lið á sigri að halda.


Tími   Staða   Skýring
Velkomin í Beina Lýsingu frá leik Akureyrar og ÍR í 16. umferð DHL-Deildar karla, leikurinn hefst klukkan 16:00 og þurfa bæði lið á sigri að halda.
Það er frítt inn á leikinn og hvetur heimasíðan alla til að mæta.
00:20 0-1 Ólafur Sigurjónsson skorar fyrsta mark leiksins og kemur ÍR yfir
01:15 1-1 Magnús Stefánsson skorar með góðu skoti
02:30 1-2 Ólafur Sigurjónsson skorar annað mark ÍR-inga
03:54 1-2 Vegna tæknilegra örðugleika gat lýsingin ekki hafist strax, en er þó komin í gang nú
04:05 ÍR er í sókn
04:28 1-3 ÍR-ingar skora fyrir utan
04:58 Brotið illa á Einari Loga og gult spjald fer á loft
05:04 Leikurinn fer aftur í gang eftir smá hlé
05:16 Magnús reynir en brotið er á honum
05:31 Hörður Fannar reynir en brotið er á honum
05:42 2-3 Andri Snær brýst í gegn og skorar
05:54 Akureyri leikur 6-0 vörn
06:06 Hreiðar Levý ver vel en ÍR fær vítakast
06:22 Hreiðar Levý ver vel frá Davíð
06:36 Brotið er á Akureyri, sóknin að fara í gang
06:52 Brotið á Magnúsi
07:13 Brotið var á Andra en ekkert var dæmt, Hreiðar Levý varði hinsvegar frá Ólafi en ÍR heldur boltanum
07:44 2-4 Ólafur skorar fyrir ÍR
08:14 Rúnar klikkar dauðafæri eftir að hafa leyst inn
08:29 ÍR hinsvegar skýtur framhjá
08:35 3-4 Magnús skorar frábært mark fyrir utan
09:00 Hreiðar Levý ver vel og Akureyri með boltann
09:13 Magnús með skot í varnarvegginn og ÍR með boltann
09:39 ÍR fær aukakast
09:55 3-5 Ólafur skorar fyrir utan fyrir ÍR
10:10 ÍR er að leika mjög framarlega 3-2-1 vörn sem er að gefast vel
10:38 Einar Logi reynir en brotið er á honum
10:53 Andri Snær reynir en aukakast dæmt
11:06 Jankovic klikkar en Akureyri nær boltanum
11:20 Rúnar skýtur í jörð og yfir
11:52 ÍR fær aukakast
12:17 Ólafur með skot framhjá
12:31 Andri Snær fiskar vítakast
12:41 Goran Gusic mun taka það
12:50 4-5 Goran Gusic skorar af öryggi
13:12 4-6 Davíð Georgsson skorar fyrir ÍR fyrir utan
13:28 Ásbjörn kemur á miðjuna hjá Akureyri
13:43 Andri Snær reynir en aukakast dæmt
13:59 Andri reyndi að lauma boltanum inn á Hörð Fannar en brotið á honum
14:20 Aftur aukakast
14:27 Andri Snær fiskar vítakast
14:36 Goran Gusic mun taka það
14:50 5-6 Goran Gusic skorar!
15:13 5-7 Erlendur skorar fyrir ÍR fyrir utan
15:23 Sævar Árnason tekur leikhlé fyrir Akureyri
3-2-1 vörn ÍR er mjög framarlega og lokar algjörlega á sóknarleik Akureyrar. Mörk Akureyrar hafa komið eftir einstaklingsframtök
15:24 Akureyri hefur leikinn að nýju eftir leikhlé
15:44 Misheppnuð línusending og ÍR með boltann
16:00 ÍR stillir upp
16:06 Hörður Fannar fær gult spjald fyrir harkalegt brot á Davíð Georgssyni
16:19 Leikurinn hefst aftur
16:30 Magnús brýtur sókn ÍR niður og uppsker gult spjald
16:45 ÍR-ingar fá enn aukakast
17:07 Akureyri farið í 3-2-1 vörn
17:19 Hreiðar Levý ver og Akureyri með boltann
17:39 6-7 Ásbjörn skorar mjög gott mark
17:55 ÍR í sókn
18:04 Hreiðar Levý ver en aukakast dæmt
18:32 7-7 Andri Snær skorar hraðaupphlaupsmark eftir að Hörður Fannar kastaði sér á bolta sem ÍR-ingar hefðu átt að ná!
18:40 ÍR tekur leikhlé
Frábært að sjá síðasta mark Akureyrar, Hörður Fannar kastaði sér á bolta sem var á milli markmanns ÍR og útileikmanns og náði boltanum senti á Andra sem skoraði
18:41 ÍR hefur leikinn að nýju
19:07 8-7 Ásbjörn kemur Akureyri yfir með marki úr hraðaupphlaupi
19:27 3-2-1 vörn Akureyrar er frábær
19:40 Aukakast hjá ÍR, frábær barátta hjá heimamönnum
20:01 Enn og aftur aukakast
20:12 Hreiðar Levý ver en vítakast dæmt
20:31 Hreiðar Levý ver örugglega frá Ólafi Sigurjónssyni
20:45 Akureyri í sókn
21:04 Magnús skorar en ólögleg blokkering dæmd
21:20 ÍR fær aukakast
21:35 Jankovic nær boltanum en aukakast dæmt, ÍR í sókn
21:53 Hreiðar Levý ver úr dauðafæri af línunni, víti hinsvegar dæmt og gult spjald á loft
21:55 Davíð Georgsson mun taka það
Tíminn er stopp, verið að þurrka
21:57 8-8 Davíð vippar yfir Hreiðar Levý
22:38 Magnús reynir en brotið er á honum, ekkert að gerast í sókn Akureyrar
23:02 Einar Logi klikkar og ÍR í sókn, Akureyri hafði 4 menn á línunni á tímabili sem er ekki eðlilegt
23:30 ÍR fær aukakast
23:50 Andri Snær brýtur á Ólafi Sigurjónssyni
24:05 8-9 Brynjar skorar fyrir ÍR
24:32 Brotið á Ásbirni
24:52 Aftur brotið á Ásbirni
25:10 Rúnar reynir en aukakast dæmt
25:20 Aukakast, ekkert að gerast
25:35 Aukakast, ekkert að gerast enn
25:46 Misheppnað skot og ÍR í sókn
26:05 Hreiðar Levý ver úr dauðafæri en ÍR uppsker ódýrt vítakast
26:11 Davíð mun taka það fyrir ÍR
26:13 Davíð skýtur í stöng og Akureyri í sókn
26:42 Einar Logi reynir en brotið er á honum
27:05 9-9 Magnús skorar afar mikilvægt mark
27:20 ÍR að leggja af stað í sókn
27:36 Brotið á Ólafi Sigurjónssyni
27:46 Tíminn er stopp, verið að þurrka
Leikurinn einkennist af gríðarlegri baráttu en ekki fallegri spilamennsku
27:59 9-10 Ólafur Sigurgeirsson skorar fyrir ÍR úr horninu
28:30 Ásbjörn reynir en brotið er á honum
28:44 Aftur brotið á Ásbirni
28:59 Akureyri fær aukakast
29:13 Aftur aukakast
29:26 Leiktöf dæmd
29:35 ÍR í sókn
29:59 Andri Snær fékk boltann og braust af stað og Ragnar fékk 2 mínútur, aukakast
Rúnar mun taka skotið
30:00 Rúnar skýtur í vegginn
Hálfleikstölur eru því 9-10 fyrir ÍR
Hvorugt liðið er að leika áferðarfallegan bolta en baráttan er mikil. Sóknarleikur beggja liða gengur ákaflega illa
Mörk Akureyrar:
Magnús 3/4, Goran 2/2, Ásbjörn 2, Andri 2/3, Einar Logi 0/3, Rúnar 0/2, Hörður Fannar 0/1

Hreiðar hefur varið 11 skot í markinu, þar af 2 víti
Fram er að vinna Hauka 13-12, HK að vinna Stjörnuna 10-14 og Valur er að vinna Fylki 13-16.
Í hóp Akureyrar er ungur leikmaður sem ekki hefur komið við sögu fyrr í vetur. Þetta er Valdimar Þengilsson skytta í 2. flokk félagsins
Það er ágætis mæting í KA-Heimilið í dag ef mið er tekið af gengi liðsins að undanförnu
Leikurinn í dag ber þess merki að það er mikið undir og bæði lið þurfa að vinna.
Leikmenn liðanna eru að koma aftur inn á völlinn
Seinni hálfleikur fer senn að hefjast
30:01 Akureyri hefur hafið síðari hálfleik
30:21 Ásbjörn kemst í gegn en skýtur í jörð og yfir
30:53 ÍR uppsker aukakast, þeir eru enn einum færri
31:12 Jankovic brýtur vel á Ólafi
31:26 9-11 Ólafur Sigurjónsson skorar fyrir ÍR
31:54 Andri Snær klikkar en Akureyri heldur boltanum, Aigars er kominn inn á
32:09 10-11 Ásbjörn skorar eftir gegnumbrot
32:40 ÍR fær hornkast, varnarveggur Akureyrar varði skot Ólafs Sigurjónssonar
32:43 Tíminn er stopp
32:49 ÍR í sókn
32:55 10-12 Ragnar skorar í horninu
33:18 Goran Gusic sækir á en brotið er á honum
33:36 Andri Snær alveg við það að komast í gegn en aukakast dæmt
33:52 Brotið á Magnúsi
34:10 Aigars reynir en brotið er á honum
34:22 Þorvaldur nær ekki boltanum og ÍR með boltann
34:38 Brotið á Ólafi Sigurjónssyni
34:55 Hreiðar Levý ver vel og Akureyri í sókn
35:12 11-12 Ásbjörn skorar
35:26 Hreiðar Levý ver en aukakast dæmt
35:40 ÍR fær aukakast, vörnin er fín
36:05 Andri Snær brýtur á Ragnari
36:14 11-13 Flott mark fyrir utan hjá ÍR-ingum
36:41 Ásbjörn skorar en búið að flauta aukakast
36:48 Tíminn er stopp, verið að þurrka
36:49 Akureyri hefur leikinn að nýju
37:10 Magnús með afar slæma línusendingu sem klikkar
37:24 ÍR-ingar heppnir að halda boltanum
37:44 11-14 Ólafur Sigurjónsson skorar fyrir utan
38:15 12-14 Magnús skorar eftir laglegt spil hjá Aigars
38:32 Hreiðar Levý ver og Akureyri í sókn
38:59 Andri Snær reynir línusendingu en aukakast dæmt
39:18 Ásbjörn reynir en aukakast dæmt
39:21 Tíminn er stopp, verið að þurrka
39:22 Akureyri hefur leikinn að nýju
39:37 Ásbjörn með skot en í varnarvegginn og auðveld markvarsla hjá markverði ÍR
40:14 ÍR-ingar kasta boltanum útaf en fá mjög ódýrt aukakast
40:27 Hreiðar Levý ver og Akureyri fer í sókn
40:31 Þorvaldur klikkar dauðafæri inn á línunni
40:56 ÍR í sókn
41:07 12-15 Brynjar skorar fyrir utan fyrir ÍR
41:33 Ásbjörn reynir en brotið á honum
41:47 Brotið á Andra Snæ á línunni
42:05 13-15 Aigars skorar flott mark úr erfiðri stöðu
42:12 Tíminn er stopp, verið að athuga Aigars sem liggur eftir
42:18 ÍR með boltann
42:37 Boltinn dæmdur af ÍR
42:47 Aigars klikkar dauðafæri
42:53 Rúnar fær 2 mínútur fyrir að stöðva hraðaupphlaup ÍR, frekar strangur dómur
42:54 ÍR-ingar hefja leikinn að nýju, einum fleiri
43:10 13-16 Ragnar skorar í horninu fyrir ÍR
43:31 Brotið á Akureyri
43:43 Ásbjörn skýtur í horninu en það er varið, Akureyri heldur boltanum
44:00 Akureyri enn í sókn
44:13 Höndin komin upp
44:20 14-16 Magnús skorar langt fyrir utan
44:32 ÍR-ingar skjóta í stöng og útaf í dauðafæri, Akureyri með boltann
44:54 Akureyri komið með fullskipað lið
45:08 15-16 Ásbjörn skorar eftir laglegt spil með Aigars
45:34 Brotið á Björgvin
45:56 Ólafur Sigurjónsson með skelfilegt skot og Akureyri með boltann
46:09 Akureyri klikkar dauðafæri á línunni, ÍR í sókn
46:48 Brotið á Davíð Georgssyni
46:58 ÍR fær enn eitt aukakastið
47:16 Skot framhjá og Akureyri í sókn
47:30 16-16 Goran Gusic skorar í hægra horninu og jafnar leikinn!
47:54 Frábær vörn hjá Akureyri, brotið á Björgvin
47:55 Tíminn er stopp, Hörður Fannar liggur meiddur eftir
Friðrik Sæmundur Sigfússon athugar hann og Hörður mun halda áfram
47:56 Leikurinn hafinn að nýju
48:16 Frábær vörn! Aukakast
48:27 Davíð með skot yfir, Akureyri með boltann, vörnin var frábær!
49:01 Andri Snær með sendingu á Goran sem var brotið á en dómararnir dæmdu ekki neitt
49:11 Hreiðar Levý bjargar Akureyri með því að verja hraðaupphlaup frá ÍR-ingum, ÍR fær þó innkast
49:12 Tíminn er stopp en einn ÍR-ingurinn liggur meiddur eftir
49:13 Leikurinn hefst að nýju
49:25 Hörður Fannar stelur boltanum
49:38 17-16 Andri Snær skorar í horninu og kemur Akureyri yfir
49:55 Aigars brýtur á Brynjari, frábær stemmning hjá Akureyri
50:18 Þorvaldur klikkar í hraðaupphlaupi eftir að ÍR kastaði boltanum útaf
50:31 Brotið illa á Ólafi Sigurjónssyni sem hegðar sér eins og asni og sparkar í Andra Snæ, Ólafur fær 2 mínútur
50:31 Tíminn er stopp og Andri Snær fer meiddur útaf
50:32 ÍR með boltann
50:52 Akureyri fær boltann eftir skelfilegt skot hjá Ólafi Sigurgeirssyni
51:10 Heiðar Þór er í vinstra horninu hjá Akureyri
52:20 18-16 Goran Gusic vippar og skorar
51:46 ÍR fær aukakast
51:57 ÍR-ingar fá ódýrt aukakast, frábær vörn
52:11 Akureyri vinnur boltann
52:21 19-16 Hörður Fannar brýst í gegn og skorar, Brynjar leikmaður ÍR fær 2 mínútur
52:35 ÍR fær leikmann inn, eru nú einum færri
52:50 Aukakast ÍR
52:57 Magnús brýtur á Ólafi Sigurjónssyni
52:58 ÍR-ingar hefja leikinn að nýju
53:04 19-17 Ólafur Sigurgeirsson skorar fyrir ÍR
53:27 20-17 Magnús skorar fyrir utan
53:45 Aigars brýtur af sér, aukakast
53:56 20-18 ÍR-ingar skora og minnka muninn
54:22 21-18 Magnús skorar, ÍR með fullskipað lið
54:37 Brotið á Ragnari ÍR-ing
54:58 Ragnar fer í gegn í horninu, Heiðar Þór brýtur á honum og víti dæmt
55:04 21-19 Björgvin skorar úr vítinu
55:41 Höndin er komin upp, brotið var á Aigars
55:47 Magnús reynir en brotið
55:57 Magnús skýtur í varnarvegginn, hornkast
56:15 Heiðar Þór tók skot sem varð að taka en það var varið
56:45 Hörður Fannar brýtur á Björgvin
56:57 Brotið á Ólafi Sigurjónssyni
57:01 Tíminn er stopp, verið að þurrka
57:11 Hreiðar Levý ver og Akureyri með boltann
57:20 22-19 Goran Gusic skorar í horninu
57:31 ÍR-ingar skjóta strax og það er framhjá, Akureyri með boltann
57:49 23-19 Magnús brýst í gegn og skorar
58:06 24-19 Andri Snær skorar en skref voru dæmd á ÍR-inga
58:22 ÍR í sókn
58:37 Hreiðar Levý ver stórkostlega en víti dæmt
58:40 Sveinbjörn kemur inn í mark Akureyrar
58:42 24-20 Björgvin skorar framhjá Sveinbirni
59:05 Boltinn dæmdur af Akureyri
59:12 ÍR-ingar kasta boltanum frá sér
59:27 Mikið kæruleysi í gangi, Akureyri missir boltann
59:40 24-21 ÍR-ingar skora
59:52 Valdimar Þengilsson kemur inn og fiskar vítakast
60:00 Hann fær að taka það sjálfur
60:00 Valdimar þrumar boltanum í stöng
Lokatölur eru því Akureyri 24 ÍR 21
Frábær sigur hjá Akureyri, mjög mikilvægt, Fylkir tapaði á heimavelli fyrir Val og Akureyri er því komið 4 stigum fram fyrir Fylki í fallbaráttunni

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson