Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Bein lýsing
N1 deildin 19. nóvember kl. 19:30 Íþróttahöllin Akureyri
Akureyri
 
Haukar
0
-
0
00:00
Velkomin(n) í Beina Lýsingu frá leik Akureyrar og Íslandsmeistara Hauka


Tími   Staða   Skýring
Velkomin(n) í Beina Lýsingu frá leik Akureyrar og Íslandsmeistara Hauka
Liðin eru farin að hita upp, það verður mjög áhugavert að fylgjast með þessum leik. Akureyri er efst í deildinni á meðan Haukar eru í 6. sæti. Hinsvegar hafa Haukarnir verið að standa sig einkar vel í Meistaradeild Evrópu
Í þessum töluðu orðum er Karlakór Akureyrar-Geysir að syngja fyrir áhorfendur. Virkilega góð mæting er í Höllina nú þegar þó það séu um 25 mínútur í leik
Hópur Akureyrar:
Markmenn: Hafþór Einarsson og Hörður Flóki Ólafsson
Útileikmenn: Andri Snær Stefánsson, Anton Rúnarsson, Heiðar Þór Aðalsteinsson, Gústaf Línberg Kristjánsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Oddur Gretarsson, Hreinn Þór Hauksson, Atli Ingólfsson, Rúnar Sigtryggson, Árni Þór Sigtryggson, Jónatan Þór Magnússon og Hörður Fannar Sigþórsson
Hópur Hauka:
Markmenn: Birkir Ívar Guðmundsson og Gísli Rúnar Guðmundsson
Útileikmenn: Pétur Pálsson, Freyr Brynjarsson, Andri Stefan Guðrúnarson, Arnar Pétursson, Elías Már Halldórsson, Sigurbergur Sveinsson, Arnar Jón Agnarsson, Gísli Jón Þórisson, Gunnar Berg Viktorsson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Einar Örn Jónsson og Kári Kristján Kristjánsson
Dómarar í dag eru Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson
Nú er verið að skrifa undir nýja styrktarsamninga milli Greifans, EJS og Akureyrar Handboltafélags
Örfá sæti eru eftir í stúkunni, og þá er komin ansi stór hópur í stólana á neðri hæðinni. Það er því útlit fyrir bestu mætingu vetrarins enda eru enn nokkrar mínútur í leik
Verið er að kynna liðin, leikmenn Akureyrar nýta tækifærið og kasta nammi til áhorfenda
Höllin er vægast sagt troðfull. Ekki er laust sæti í stúkunni og fólk þarf að standa fyrir aftan stólana á gólfinu. Enn er fólk þó að streyma að
Haukar eru að fara að hefja leikinn
0:17 Oddur stöðvar Frey, Haukar eiga aukakast
0:02 Haukar hafa hafið leikinn
0:32 Hafþór ver og Akureyri með boltann
0:41 Andri Snær lætur verja frá sér
0:51 0-1 Andri Stefan skorar fyrsta mark leiksins fyrir Hauka
2:00 0-2 Andri Stefan skorar öðru sinni fyrir Hauka.
2:19 Akureyri í sókn
2:32 1-2 Jónatan með þrumuskot fyrir utan og mark!
2:59 1-3 Kári skorar af línunni fyrir Hauka
3:26 Árni með skot sem Birkir Ívar varði
3:42 Birkir Ívar hljóp útúr teignum með boltann en dómarar leiksins dæmdu ekkert
4:03 2-3 Árni skorar eftir að Andri Stefan skaut í þverslá
4:15 2-4 Elías Már skorar fyrir Hauka úr horninu
4:54 Oddur með skot úr horninu sem Birkir Ívar ver, Haukar í sókn
5:22 Heiðar Þór nær boltanum...
5:31 3-4 ... og Oddur skorar
5:44 3-5 En Freyr Brynjarsson skorar strax fyrir Hauka
6:09 Hörður Fannar fær vítakast á línunni eftir sendingu frá Árna
6:31 4-5 Árni skorar úr vítinu
7:02 Haukar fá aukakast, vörn Akureyrar er öll að koma til
7:18 Hafþór ver og Akureyri í sókn
7:25 Dæmdur fótur á Hauka og Akureyri því enn í sókn
7:44 5-5 Heiðar Þór skorar fyrir utan, Birkir Ívar vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið
8:14 Hafþór hreinlega étur Frey úr horninu
8:30 Árni með skot sem er varið en Andri Snær nær frákastinu
8:59 6-5 Árni með fínt skot fyrir utan og Akureyri er komið yfir!
9:35 Kári með skot yfir Akureyrarmarkið
9:46 Oddur klikkar hinsvegar í dauðafæri og Haukar fá boltann
10:00 Andri Snær brýtur af sér og Haukar fá aukakast
10:14 Aftur fá Haukar aukakast, nú var það Hreinn sem braut af sér
10:42 6-6 Sigurbergur jafnar metin fyrir Hauka með mjög góðu skoti fyrir utan
11:16 Árni með skot sem Birkir Ívar ver
11:27 6-7 Sigurbergur brýst í gegn og kemur Haukum yfir
11:53 Anton reynir en brotið er á honum
12:10 Hörður Fannar fær dæmdan á sig fót
12:20 Hafþór ver frá Elíasi
12:27 Akureyri er því í sókn
12:58 Anton fær dæmd á sig skref
13:05 6-8 Elías skorar fyrir Hauka úr hraðaupphlaupi
13:28 Jónatan með skot sem Birkir Ívar ver, Haukar með boltann
13:39 Lína dæmd á Hauka
13:48 7-8 Heiðar Þór skorar úr hraðaupphlaupi
14:16  Hörður Fannar fær 2 mínútur, Akureyri leikur því einum færri
15:01 Akureyri í sókn eftir fína vörn
15:22 Oddur með skot í stöng og útaf, Haukar með boltann
16:01 7-9 Sigurbergur skorar fyrir Hauka
16:22 Akureyri með fullskipað lið
16:33 Árni með skot sem er varið en Oddur nær frákastinu
16:48 Jónatan með óvænt skot en það er yfir
17:17 Vörn Akureyrar ver skot...
17:27 ...Hafþór skýtur yfir allan völlinn en skotið fer yfir Haukamarkið
17:49  Anton brýtur af sér og fær gult spjald, Haukar í sókn
18:07 Lína dæmd á Kára, Akureyri í sókn
18:18 Anton með skot sem Birkir Ívar ver, Haukar með boltann
18:48 Hafþór ver vel og Akureyri með boltann
19:20 Oddur fær dæmda á sig línu
19:50 7-10 Andri Stefan skorar fyrir Hauka
19:56 Akureyri heldur af stað í sókn, Andri Snær er kominn aftur inn á í stað Antons
20:38 Akureyri tekur leikhlé
20:38 Sóknarleikur Akureyrar hefur ekki verið nægilega beittur síðustu mínútur og hefur liðið ekki skorað í 7 mínútur
20:39 Leikurinn er hafinn að nýju
20:51 Andri Snær fær aukakast
21:05 Birkir Ívar tekur enn eitt skotið og Haukar í sókn
21:36 7-11 Kári skorar fyrir Hauka
22:15  Viktor Berg fær hinsvegar 2 mínútur og Akureyri leikur því einum fleiri núna
22:25 7-12 Freyr skorar fyrir Hauka eftir að hann komst inn í sendingu.
22:55 8-12 Hörður Fannar skorar fyrir Akureyri
23:20 8-13 Andri Stefan skorar fyrir Hauka
24:00 9-13 Árni Þór minnkar muninn fyrir Akureyri
24:30  Árni fær 2 mínútur
24:36 9-14 Einar Örn skorar úr vítakasti. Haukar með yfirburðaforystu
25:20 Andri Snær skorar en fær dæmda á sig línu.
25:27 9-15 Haukar refsa strax með marki
26:02 Aron þjálfari Hauka eitthvað að tuða
26:12 10-15 Jónatan skorar fyrir utan
26:44 Haukar fá aukakast
26:50 Haukar taka leikhlé
26:50 Sóknarleikur Akureyrar er langt í frá nógu góður og eru það sóknarmistök sem skilja liðin að
26:51 Leikurinn er hafinn að nýju
27:03 Hafþór ver
27:35  2 mínútur á Hauka, Akureyri einum fleiri
27:50 Jónatan með skot sem Birkir Ívar ver, Haukar í sókn
28:24 Hafþór ver
28:33  Andri Snær fær vítakast og 2 mínútur á Hauka
28:40 Árni skýtur langt yfir úr vítinu
29:10 Haukar fá aukakast
29:27 Oddur skýtur í stöng úr hraðaupphlaupi
29:57 Haukar fá aukakast
30:00 Leiktíminn rennur út, Haukar eiga aukakast
30:00 Gunnar Berg skýtur í varnarvegg Akureyrar
Síðari hálfleikur fer að hefjast, Akureyri verður að gera betur sóknarlega séð
Akureyri mun byrja með boltann í síðari hálfleik
30:01 Akureyri hefur hafið síðari hálfleik
30:22 Andri Snær með skot sem Birkir Ívar ver, Akureyri þó enn í sókn
30:37 Árni með skot sem Birkir Ívar ver, Haukar með boltann
31:12 Hafþór ver, Akureyri í sókn
31:34 Anton með skot í vörnina, Akureyri á hornkast
31:55 Árni fær aukakast
32:06 11-15 Árni með skot í vörnina og inn, vonandi að þetta kveiki aðeins líf í Akureyringunum
32:37 11-16 Kári skorar fyrir Hauka af línunni
32:47 Árni fær aukakast
33:00 Boltinn er dæmdur af Akureyri
33:13 Hafþór stelur hinsvegar boltanum
33:14 12-16 Hörður Fannar skorar fyrir Akureyri
33:36 Haukar fá aukakast
33:51 12-17 Einar skorar fyrir Hauka
34:15 13-17 Árni skorar eftir laglega stimplun
34:40 13-18 Andri Stefan skorar fyrir Hauka
34:47 Akureyri er að leika mjög framliggjandi vörn og er hún að opnast ansi illa þessa stundina
35:06 14-18 Jónatan svífur og kemur með eina neglu, óverjandi fyrir Birki Ívar
35:39 Andri Snær stöðvar Einar Örn, Haukar með boltann
35:51 14-19 Andri Stefan skorar fyrir utan fyrir Hauka
36:18 15-19 Anton skorar fyrir Akureyri eftir góða stimplun
36:52 15-20 Sigurbergur skorar fyrir Hauka
37:20 Jónatan fær aukakast
37:34 Heiðar Þór missir boltann
38:04 Hreinn stöðvar Andra Stefan, Haukar í sókn
38:21 15-21 Kári skorar fyrir Hauka
38:50 Árni fær aukakast
39:03 Anton með skot í slá og yfir, Haukar með boltann
39:27 Hreinn stelur boltanum en dæmt er aukakast, Haukar í sókn
39:43 15-22 Freyr skorar fyrir utan, Hafþór er ekki búinn að verja í langan tíma
40:10 16-22 Hörður Fannar skorar eftir sendingu frá Árna
40:35 Hörður Fannar stöðvar Sigurberg, Haukar í sókn
40:54 Haukar fá aukakast
41:11 Sigurbergur með skot framhjá
41:22 17-22 Hörður Fannar skorar af línunni
41:53 Hafþór ver og Akureyri með boltann
42:07 Akureyri byggir upp sókn
42:29 Anton með skot í stöng og Haukar fá boltann
43:00  Heiðar Þór fær 2 mínútur fyrir fót. Áhorfendur vilja meina að hann hafi ekki sett fótinn fyrir boltann
43:14  Haukar fá vítakast og aðrar 2 mínútur á Akureyri. Þetta var alltof strangur dómur og þjálfarar Akureyrar eru brjálaðir
43:14  Gult spjald á bekk Akureyrar fyrir mótmælin og dómarar uppskera mikla andstöðu áhorfenda
43:16 17-23 Sigurbergur skorar
43:30 Akureyri er tveimur færri
43:43 Andri Snær með skot í stöng
43:53 Haukar byggja rólega upp sókn
44:11 Anton stelur boltanum, Akureyri í sókn
44:37 17-24 Einar Örn skorar fyrir Hauka eftir að dómararnir ákváðu að dæma ekki á augljóst brot í sókn Akureyrar. Áhorfendur láta vel í sér heyra
45:07 Leiktöf dæmd á Akureyri
45:42 Haukar fá hrikalega ódýrt vítakast
45:45 17-25 Einar skorar úr vítinu
46:10 Haukar fá boltann
46:41 17-26 Einar Örn skorar fyrir Hauka
47:06 Árni fær aukakast
47:20  Jónatan fær dæmdan á sig ruðning og 2 mínútur. Ég get svo sem skilið ruðninginn en ekki 2 mínútur
47:22 Haukar fara af stað í sókn
47:40 17-27 Kári skorar fyrir Hauka, Hörður Flóki er kominn í mark Akureyrar
48:07 Anton með skot í vörnina
48:11 Akureyri tekur leikhlé
48:11 Sóknarleikur Akureyrar hefur fellt liðið í dag, hinsvegar er nú kominn langur kafli af furðulegum dómum hjá dómarapari leiksins
48:23 Gústaf missir boltann
48:32 Hörður Flóki ver og Akureyri í sókn
48:41 Akureyri heldur boltanum eftir slæm mistök
49:07 Árni með skot í vörnina, Akureyri á innkast
49:30 Anton fær aukakast
49:37 Árni með skot sem Birkir Ívar ver, Haukar með boltann
50:11 18-27 Oddur skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Hreinn hafði stolið boltanum
50:39 Haukar fá aukakast
50:52 Hörður Flóki ver
50:59 19-27 Árni skorar ævintýralegt mark úr hægra horninu
51:24 Skref dæmd á Hauka
51:37  2 mínútur á Elías Haukamann, en Haukar fá boltann þrátt fyrir að Hörður Fannar hafi verið hindraður í leið hans að boltanum
51:52 Haukar fá aukakast
52:01 19-28 Andri Stefan skorar fyrir Hauka
52:13 Anton klikkar í horninu eftir að hann náði frákasti
52:34 19-29 Einar Örn skorar fyrir Hauka
53:00 Árni klikkar í dauðafæri
53:28 Haukar fá aukakast
53:55 Leiktöf dæmd á Hauka
53:55 Tíminn er stopp
54:04 Akureyri í sókn
54:17 Hörður Fannar missir af boltanum
54:24 19-30 Stefán skorar fyrir Hauka
54:35 20-30 Oddur skorar fyrir Akureyri
54:38  2 mínútur dæmdar á einn Haukamann
54:48 20-31 Sigurbergur skorar
55:22 Týpískt fyrir leik Akureyrar í dag, Árni með skot sem er varið og svo er Heiðar Þór með skot í slá
56:00 Einar Örn fiskar vítakast fyrir Hauka
56:03 Sigurbergur mun taka það
56:06 20-32 Sigurbergur skorar
56:31 Anton fær dæmda á sig línu
56:53 20-33 Stefán skorar fyrir Hauka
57:06 Atli Ævar klikkar á línunni
57:17 Brotið á Arnari Jóni, Haukar eiga aukakast
57:32 20-34 Arnar Pétursson skorar
57:50 Anton fær aukakast
58:00 Árni með mislukkaða sendingu
58:15 21-34 Anton skorar með laglegu skoti
58:42 Hörður Flóki ver
58:53 Árni með skot sem er varið
59:00 Haukar stíga útaf, Akureyri fá aftur boltann
59:12 Hörður Flóki ver frá Einari Erni úr hraðaupphlaupi
59:26  Atli Ævar fær vítakast og Einar Örn fær 2 mínútur
59:31 22-34 Anton skorar úr vítinu
60:00 Leiktíminn rennur út, Haukar vinna sannfærandi sigur á Akureyri
60:00 Haukar eiga vissulega skilið þau 2 stig sem í boði voru í dag. Þeir spiluðu einfaldlega mikið betur en Akureyri að þessu sinni
60:00 Bein Lýsing þakkar fyrir sig í dag.

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson