Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvað gerir kvennalið Akureyrar í fyrsta leik tímabilsins?

26. september 2006 - SMS skrifar 

Haukar - Akureyri, upphitun

Annaðkvöld fer fram fyrsti "alvöru" leikur kvennaliðs Akureyrar. Það verður líka enginn smáleikur, en stelpurnar leggja upp í ferðalag til Hafnarfjarðar í fyrramálið um 10 leytið. Leikurinn hefst annaðkvöld kl 18 að staðartíma. Stelpurnar þurfa að eiga hörku góðan leik til þess að vinna, enda Haukar með mjög sterkt lið og er þeim spáð öðru sætinu í vetur, og voru aðeins nokkrum stigum á eftir Stjörnunni í spánni í dag. Haukastúlkur enduðu í öðru sæti í fyrra í deildinni og voru aðeins einu stigi á eftir Íslandsmeisturum ÍBV. Haukar urðu einnig bikarmeistarar á síðasta tímabili, en þær unnu ÍBV 29-25 í skemmtilegum leik.

Á síðasta tímabili mættust KA/Þór (Akureyri) og Haukar tvisvar. Fyrri leikurinn í KA heimilinu endaði með 8 marka Hafnfirskum sigri og ekki riðu KA/Þór feitum hesti í seinni leiknum að Ásvöllum, en sá leikur fór 31-18, enda var allt undir hjá Haukum í þeim leik. Akureyri spilaði gegn Haukum á Sjallamótinu í byrjun september og töpuðu þeim leik frekar stórt en lokatölur voru 24-12, Haukum í vil. Eins og hér kemur fram er tölfræðin ekki okkur í hag, en ég hef alltaf hugsað það þannig að ef tölfræðin er á móti manni, þá rífur maður sig upp og vinnur leikinn og ég hef fulla trú á því að Akureyri eigi eftir að byrja með krafti og vinna reynslumikið lið Hauka á morgun.

Smávægileg meiðsli eru að hrjá nokkra lykilleikmenn liðsins, en Inga Dís, "Capteinninn", er ennþá ekki nógu góð af meiðslum sem hrjáðu hana á Sjallamótinu, Jóhanna Tryggvadóttir er slæm í hnéinu sem og Lilja Sif Þórisdóttir, en hafa þær báðar slitið krossbönd. En að sjálfsögðu vonum við að þær geti spilað á morgun.
Enn og aftur vil ég minna á það að leikurinn hefst klukkan 18:00 að Ásvöllum og eru Akureyringar í stórborginni hvattir til að mæta á leikinn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson