Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Beina lýsingin verður bætt svo um munar í boði Símans

28. september 2006 - ÁS skrifar 

2 dagar í leik: Leikurinn í beinni lýsingu

Nú eru aðeins tveir dagar í leik Vals og Akureyrar í 1. umferð DHL-Deildar karla. Leikurinn fer fram fyrir sunnan og verður hægt að fylgjast vel með gangi mála í leiknum á síðunni en leikurinn verður í beinni textalýsingu. Leikurinn hefst klukkan 16:00 eins og komið hefur fram á síðunni.

Bein lýsing var einnig á síðasta tímabili og sló í gegn hjá notendum síðunnar. Í ár verður hinsvegar gert enn betur og mun uppfærslan í beinu lýsingunni mun meiri. Við hvetjum fólk því eindregið til að fylgjast með gangi mála í leiknum. Síminn hefur ákveðið að styðja við bakið á síðunni í tengslum við beinu lýsinguna og er það ástæðan fyrir því að hægt er að bæta beinu lýsinguna.

Í kvöld er svo kynningarkvöld á Vélsmiðjunni klukkan 20:30 þar sem lið Akureyrar Handboltafélag verður kynnt fyrir bæjarbúum. Allir eru hvattir til að mæta og fræðast um liðið en einnig verður opnuð ný heimasíða um hið nýja lið á fundinum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson