Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvað gera stelpurnar á föstudaginn?

3. janúar 2007 - SMS skrifar 

Kvennaboltinn: Uppsagnir og upphitun

Þann 21. Desember lögðu Einvarður Jóhannesson og Haddur Stefánsson inn uppsögna sína. Þeir sögðu ákvarðaninar fyrir uppsögninni vera nokkrar, margt smátt gerir eitt stórt. Þeir sögðu frá smá ósætti við stjórnina og lítið fjármagn til leikmannakaupa. Þannig það varð tafarlaust að finna nýja þjálfara fyrir fyrsta leikinn sem er á föstudaginn í Hafnarfirði. Stjórnin gekk beint í málið og virðist vera búin að finna nýjan þjálfara, sem verður kynntur síðar.

Fyrsta æfing eftir Jólafríið var mjög góð hjá stelpunum og virkuðu þær mjög sprækar, enda ekki eftir neinu að bíða, leikur á föstudaginn kl 18:00 í Kaplakrika gegn FH. Þennan leik mundi ég flokka sem skyldu sigur hjá Akureyri enda eru FH næst neðstar á undan okkar liði sem rekur lestina. FH er með 3 stig, þær unnu okkur á heimavelli í fyrsta heimaleik Akureyrar í vetur. Lokatölur voru 18-21 eftir að Akureyri hefði verið 10-7 yfir í hálfleik og allt lofaði góðu. Jarmila er byrjuð að æfa aftur og vonandi verður hún með á föstudaginn, annars verður liðið nokkuð hefbundið og vonum bara að stelpur sem voru að koma sterkar inn fyrir jólafrí haldi því áfram, stelpur eins og Emma og Lilja.

Í lið FH eru nokkrir einstaklingar sem þarf að stoppa. Markvörður FH er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liðinu og ver hún oft á tímum eins og berserkur, einnig hefur Ásta Agnarsdóttir skorað að meðaltali 5,5 mörk í leik í vetur og er hún markahæst í liði FH. Þær koma fleiri sterkar inn hjá FH en það væri of langur listi til að telja upp hverja ég tel ógnun við vörn Akureyrar.

Eins og venjulega hvet ég alla Akureyringa í Reykjavík og nágrenni að skella sér á leikinn og hjálpa stelpunum að vinna sér inn sína fyrstu punkta í vetur! Áfram Akureyri.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson