Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Magnús og Sveinbjörn verða áfram á Akureyri



6. maí 2007 - ÁS skrifar 

Magnús og Sveinbjörn semja til þriggja ára

Magnús Stefánsson og Sveinbjörn Pétursson skrifuðu í gær undir þriggja ára samning við Akureyri Handboltafélag. Samningarnir ná því til vorsins 2010, en eru uppsegjanlegir af beggja hálfu vorið 2009. Það er ljóst að þetta eru gríðarlega góðar fréttir fyrir Akureyri Handboltafélag en Magnús og Sveinbjörn eru mjög öflugir leikmenn og gott að halda þeim í herbúðum liðsins.

Í Fréttablaðinu í morgun var greint frá því að Magnús hefði gert tveggja ára samning sem væri uppsegjanlegur eftir eitt ár en það er rangt og leiðréttist hér með.

Magnús er öflug vinstri skytta og er 201 cm á hæð. Magnús er 23 ára gamall og skoraði 109 mörk í 23 leikjum með Akureyri í vetur.

Sveinbjörn Pétursson er ungur og efnilegur markvörður en Sveinbjörn er á 19 aldursári. Sveinbjörn varði 149 skot í 24 leikjum í vetur með Akureyri.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson