Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er nóg að gera hjá 2. flokki um helgina

20. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Leikur gegn HK á laugardag klukkan 15:30

Á morgun laugardag spila strákarnir í 2. flokki gegn HK og er leikurinn liður í Íslandsmótinu. Spilað verður í íþróttahúsi Síðuskóla og hefst leikurinn klukkan 15:30. Leikurinn er að sjálfsögðu afar mikilvægur, og gæti gefið forsmekkinn fyrir bikarúrslitaleikinn sem verður 1. mars en þessi sömu lið mætast einmitt þar aftur.

Liðin mættust í Kópavogi 15. nóvember og þar fór Akureyri með nauman sigur 30-31 og því algjörlega ljóst að þetta eru hörkulið bæði tvö.

Reyndar hefur gengi HK ekki verið neitt sérstakt í deildinni í vetur þar sem þeir sitja í 7. sæti með 15 stig eftir 15 leiki á meðan Akureyri er í 1. sæti með 24 stig eftir 13 leiki. Reyndar er rétt að hafa í huga að HK hefur ekki alltaf mætt með sitt sterkasta lið í deildina það sem af er en nokkrir leikmenn þeirra eru jú burðarásar í meistaraflokki liðsins. Þar skal fyrst nefna góðkunningja okkar Sveinbjörn Pétursson markvörð og einnig er skyttan Ólafur Bjarki Ragnarsson enn í 2. flokki.

Liðin mættust tvívegis í úrslitaleikjum í fyrravor, bæði í bikar og í deildinni og þá fór HK með sigur í báðum leikjum og er því brýnt að Akureyrarstrákar sýni úr hverju þeir eru gerðir á morgun. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja strákana klukkan 15:30 á laugardaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson