Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það verður allt undir hjá þessum um helgina



27. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bikarhelgin og síðan heimaleikur á miðvikudaginn

Þessi helgi gæti orðið söguleg fyrir Akureyri Handboltafélag þar sem möguleiki er á að félagið vinni sinn fyrsta titil. Það eru strákarnir í 2. flokki sem leika til úrslita gegn HK í bikarkeppninni á sunnudaginn. Það er sem sé bikarhelgi framundan þar sem meistaraflokkar kvenna og karla spila á laugardaginn, FH og Stjarnan í kvennaflokki en Grótta og Valur í karlaflokki.

Á sunnudaginn eru síðan úrslitaleikir yngri flokkanna og hefst leikur Akureyrar og HK klukkan 17:00. Að vanda fara allir bikarúrslitaleikirnir fram í Laugardalshöllinni. Strákarnir hafa átt frábært tímabil í vetur, hafa unnið 16 leiki af 17, nú síðast unnu þeir væntanlega andstæðinga úr HK með átta marka mun í deildinni. Þau úrslit skipta þó engu máli, þá hefst nýr leikur og strákarnir þurfa að yfirvinna þá staðreynd að HK vann þá í tveimur úrslitaleikjum á síðasta ári, bæði í bikar og um Íslandsmeistaratitilinn.

Við erum að vonast til að geta lýst leiknum hér á síðunni á sunnudaginn en það á eftir að koma í ljós hvort það tekst.

Þá er rétt að benda á að 3. flokkur Þórs leikur sömuleiðis til úrslita og hefst þeirra leikur klukkan 15:00.

Heimaleikur meistaraflokks á miðvikudaginn
Annars eru þau tíðindi að meistaraflokkur Akureyrar á heimaleik í næstu viku en þá kemur HK liðið norður. Það er rétt að ítreka að sá leikur verður á óvenjulegum tíma en leikið verður á miðvikudegi og leikurinn hefst hálftíma fyrr en venjulega eða klukkan 19:00.

Þessi leikur er einn af úrslitaleikjunum um að verða í hópi fjögurra efstu liða í deildinni og er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði liðin og ljóst að allt verður lagt í sölurnar.

Tónlistaratriðið fyrir leik annast trúbadorinn Einar Höllu og væntanlega verður fleira sér til gamans gert.

Við kynnum leikinn betur eftir helgina en bendum öllum á að taka miðvikudaginn frá.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson