Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Næstu daga er ljóst að lífið snýst fyrst og fremst um handbolta



18. janúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Nóg að gera þessa vikuna, EM og æfingaleikur gegn Val

Það er svo sannarlega handboltaveisla í gangi þessa vikuna. Landsliðið okkar byrjar slaginn á EM á morgun, þriðjudag með leik gegn Serbum og hefst leikurinn klukkan 19:00.

Að sjálfsögðu er leikurinn í beinni útsendingu í sjónvarpinu en við höfum spurnir af því að leikurinn verði sýndur á stóru tjaldi í KA heimilinu. Þar mun Jónatan Magnússon, fyrirliði Akureyrar fjalla um mótið, landsliðið og fleira fyrir leikinn, Jonni byrjar hálftíma fyrir leikinn eða ca. 18:30. Léttar veitingar verða í boði þannig að þarna gæti orðið fínasta stemming.


Jónatan verður í hlutverki fræðimannsins fyrir Serbaleikinn

Fimmtudaginn 21. janúar mætir landsliðið heimamönnum í Austurríki og hefst sá leikur klukkan 17:00.

Að loknum landsleiknum verður síðan hörkuleikur í Íþróttahöllinni þar sem Akureyri Handboltafélag tekur á móti Valsmönnum í æfingaleik. Samkvæmt nákvæmum upplýsingum frá Rúnari Sigtryggssyni hefst leikurinn klukkan 19:27 og er hann kærkominn fyrir leikmenn og áhugamenn um handboltann sem ekki hafa séð liðið spila hér síðan 10. desember.

Á föstudaginn halda Akureyrarstrákarnir síðan suður til að taka þátt í Eiðsmótinu í Hafnarfirði eins og við höfum greint frá.

Íslenska landsliðið leikur svo gegn Dönum á laugardaginn klukkan 19:00 og eftir þann leik liggur fyrir hvernig framhaldið verður hjá liðinu. Það er því hægt að láta sig hlakka til komandi daga.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson