Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er kominn tími til að spila alvöru handbolta í Garðabænum!



16. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur á fimtudaginn gegn Stjörnunni

Á fimmtudaginn heldur meistaraflokkur Akureyrar í Garðabæinn og mætir þar heimamönnum úr Stjörnunni. Þegar liðin mættust hér í nóvember leit allt út fyrir öruggan sigur heimamanna en með kæruleysi og klaufaskap missti liðið niður örugga forystu og úr varð taugastrekkjandi leikur þar sem minnstu mátti muna að Stjarnan stæli stigi á lokasekúndum leiksins.

Það tókst þeim sem betur fer ekki en næsta víst að Garðbæingar hyggja á hefndir á fimmtudaginn og klárt mál að Akureyri þarf að mæta í leikinn af fullum krafti. Síðasti útileikur fór hörmulega en að sama skapi lék liðið frábærlega í síðasta heimaleik og treystum við því að strákarnir mæti í leikinn með sama hugarfari og gegn Gróttu hér heima.

Kominn tími á sigur í Garðabænum
Stjörnumenn hafa reynst Akureyri verulega erfiðir á heimavelli sínum og unnu til dæmis báða leikina þar á síðustu leiktíð og sömuleiðis sigraði Stjarnan báða heimaleikina á leiktíðinni 2007-2008 en þá var það einmitt Heimir nokkur Árnason sem reyndist Akureyringum erfiður. Það er sem sé kominn tími á að sækja tvö stig í Garðabæinn en það hefur ekki gerst síðan 12. nóvember 2006 með ævintýralegum endaspretti þar sem Goran Cusic tryggði Akureyri sigur úr vítakasti eftir að leiktíma var lokið, en það var raunar í eina skiptið sem Akureyri var yfir í leiknum.

Hér má lesa umfjöllun fréttaritara okkar um þennan sögufræga leik.


Það er orðið langt síðan Akureyri tók sigurhringinn í Garðabænum

Samkvæmt upplýsingum á SportTV.is ætla þeir að sýna leikinn beint á netinu og eru það að sjálfsögðu góðar fréttir fyrir stuðningsmenn hér norðanlands. Vonandi tekst betur til hjá þeim félögum en síðast en útsending þeirra frá leik FH og Akureyrar misheppnaðist gjörsamlega eins og menn muna. En við vonum bara það besta og minnum á að leikurinn hefst klukkan 18:30 í Mýrinni.

Næsti heimaleikur verður síðan mánudaginn 22. febrúar þegar Fram kemur í Höllina. Þar eru gamalkunnir Akureyringar innanborðs, menn eins og Halldór Jóhann Sigfússon, Hákon Stefánsson og Magnús Stefánsson sem hefur reyndar glímt við slæm meiðsli síðan í byrjun desember. Nánar um Fram leikinn síðar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson