Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það mun mikið mæða á Páli í markinu

10. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Úrslitaleikur Akureyrar og Hauka klukkan 14:00 á sunnudag

Svo virðist sem FH hafi fallið frá kæru á framkvæmd leiks þeirra gegn Hauka í dag og því standi úrslitin,þ.e.a.s. 26-25 fyrir Hauka. Úrslitaleikurinn fer þá fram klukkan 14:00 á morgun (sunnudag) í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar mætast sem sé Akureyri og Haukar og verður sigurvegarinn krýndur Íslandsmeistari.

Reikna má með fjölda áhorfenda en vegna staðsetningarinnar er ekki ósennilegt að þeir verði flestir á bandi Haukanna þannig að við hvetjum alla stuðningsmenn Akureyrar sem eiga þess kost að fjölmenna í Strandgötuna og bakka Akureyrarstrákana upp.

Undanfarin ár hefur annað sætið iðulega verið hlutskipti strákanna, bæði í bikar og Íslandsmótum þannig að nú er kærkomið tækifæri til að brjótast út úr þeirri hefð og landa fyrsta Íslansmeistaratitlinum í sögu félagsins.

Athugið að nú er komið í ljós að FH lagði fram kæru og því engir leikir í dag!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson