Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Við bjóðum Kópavogsliðið velkomið norður27. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri fékk heimaleik gegn HK í Coca Cola-bikarnum Nú rétt í þessu var dregið um hvaða lið mætast í sextán liða úrslitum Coca Cola-bikar karla. Akureyri og HK drógust saman og þar sem bæði lið eru í sömu deild fær Akureyri heimaleikinn þar sem liðið var dregið á undan. Þetta er eina innbyrðisviðureign úrvalsdeildarliða að þessu sinni. Leikirnir eiga að fara fram 8. eða 9. desember og verður það annar leikur liðanna hér í Íþróttahöllinni á Akureyri á nokkrum dögum því þau mætast einmitt líka í Olís-deildinni þann 5. desember.Hér má sjá allar viðureignirnar í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins: Akureyri - HK Grótta - Selfoss ÍH - FH Víkingur - Haukar Valur 2 - Valur Haukar 2 - ÍBV Afturelding - Fram Völsungur - ÍR. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook