Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Kristján skoraði 9 mörk í seinni leiknum22. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Tap en síðan stórsigur gegn Stjörnunni Það er óhætt að segja að það hafi skipst á skin og skúrir í leikjum Akureyrar og Stjörnunnar í 2. flokki í síðustu viku. Liðin mættust fyrst í bikarkeppninni á fimmtudaginn. Óhætt er að segja að Akureyrarliðið hafi hreinlega ekki mætt til leiks því það var sem Stjörnuliðið væri eitt á vellinum enda staðan í hálfleik 11-18 fyrir Stjörnuna. Akureyrarliði mætti af krafti í seinni hálfleikinn og náði að minnka muninn niður í fjögur mörk en komust ekki lengra. Stjarnan bætti í aftur og vann að lokum sannfærandi sjö marka sigur, 25-32 og þar með er þátttöku strákanna lokið í bikarkeppninni þetta árið. Í lið Akureyrar vantaði reyndar mikilvæga pósta, Arnór Þorri Þorsteinsson, Brynjar Grétarsson eru meiddir og Bjarki Símonarsson markvörður sömuleiðis. Liðin mættust aftur á föstudaginn og var sá leikur í deildarkeppninni. Það var ljóst frá fyrstu mínútu að Akureyrarliðið ætlaði að kvitta fyrir afhroðið daginn áður. Strákarnir gáfu tóninn með fyrstu fjórum mörkunum og litu aldrei til baka eftir það. Í hálfleik var forysta Akureyrar tíu mörk, staðan 21-11. Eins og tölurnar bera með sér var hreinlega allt annar bragur á Akureyrarliðinu frá því deginum áður. Stjarnan átti engin svör við stórleik strákanna og mestur varð munurinn 20 mörk í seinni hálfleiknum en heimamenn slökuðu aðeins á undir lokin en fóru að lokum með glæsilegan sextán marka sigur, 41-25. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook