Til hamingju Jovan, Bjarni og Þrándur
| | 10. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarJovan, Bjarni og Þrándur í liði umferðarinnar hjá MblMorgunblaðið hefur valið leikmenn 16. umferðar Olís-deildar karla sem fór fram á fimmtudaginn. Framganga Akureyrarliðsins gegn ÍR fór ekki fram hjá Morgunblaðsmönnum því þrír leikmanna liðsins eru valdir í úrvalsliðið. Jovan Kukobat er besti markvörðurinn, Bjarni Fritzson í hægra horninu og Þrándur Gíslason besti varnarmaðurinn.
Úrvalsliðið er þannig skipað að áliti Morgunblaðsmanna (tölurnar innan sviga segja til um hve oft viðkomandi hefur verið valinn í lið umferðarinnar. Vinstri hornamaður: Elías Már Halldórsson, Haukum (4) Vinstri skytta: Adam Haukur Baumruk, Haukum (2) Leikstjórnandi: Róbert Aron Hostert, ÍBV (7) Hægri skytta: Guðmundur Hólmar Helgason, Val (4) Hægri hornamaður: Bjarni Fritzson, Akureyri (2) Markvörður, Jovan Kukobat, Akureyri (2) Varnarmaður: Þrándur Gíslason, Akureyri
Við óskum öllum þessum leikmönnum til hamingju með viðurkenninguna en þess má einnig geta að samkvæmt samantekt Mbl þá hefur Jovan Kukobat varið flest skot allra markvarða í deildinni og Bjarni Fritzson er í öðru sæti yfir markahæstu menn deildarinnar. |