Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Lokaleikurinn fyrir jólafrí á fimmtudaginn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Leikir Akureyrar og ÍBV eru hörkuleikir

14. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Lokaleikurinn fyrir jólafrí á fimmtudaginn

Akureyri tekur á móti ÍBV í síðasta leiknum fyrir jóla og EM frí. Akureyrarliðið hefur verið á mikilli siglingu eftir erfiða byrjun og mun með sigri á fimmtudaginn tryggja sér sæti í efri hluta deildarinnar þegar aðeins lokaumferðin er eftir.

Það sem enn mikilvægara er, sæti í efri hlutanum fyrir tryggir 5 heimaleiki í stað 4 í lokaumferðinni. Það er því gríðarlega mikið undir í þessum síðasta leik í bili.

Það sem meira er, þá á liðið meira að segja enn möguleika á að enda í 4. sæti fyrir jól en það gæfi sæti í Deildarbikarnum og það er eitthvað sem enginn spekingur sá fyrir þegar liðið var á botninum eftir 5 leiki.

Gott fólk, nú þurfum við að fylla KA-Heimilið og fá upp alvöru stemningu. Strákarnir hafa sýnt magnaðan karakter að snúa genginu við og koma sér í þá stöðu sem liðið er í dag. Við sjáumst í svakalegri stemningu á fimmtudaginn, áfram Akureyri!

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson