Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Akureyri U: Tap gegn KR á föstudagskvöldið - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Arnór Þorri og Sigþór Gunnar markahæstir gegn KR



27. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri U: Tap gegn KR á föstudagskvöldið

Ungmennalið Akureyrar mætti suður á föstudaginn og lék gegn KR í 1. deild karla. Hópurinn var fremur þunnskipaður, aðeins átta útileikmenn á skýrslu. Lukkan var ekki alveg á bandi strákanna í fyrri hálfleiknum, tvisvar voru þeir tveim mönnum færri og gengu KR ingar á lagið og leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 17-10.

Strákarnir mættu galvaskir í seinni hálfleikinn og unnu sig inn í leikinn. Þeir minnkuðu muninn niður í tvö mörk og fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt mark undir lokin. Það gekk þó ekki og KR landaði fjögurra marka sigri, 28-24.

Mörk Akureyrar: Arnór Þorri Þorsteinsson 6, Sigþór Gunnar Jónsson 5, Birkir Guðlaugsson 4, Heimir Pálsson 4, Garðar Már Jónsson 3, Arnþór Gylfi Finnsson og Aron Tjörvi Gunnlaugsson 1 mark hvor.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson