Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Frábær sigur á Val (umfjöllun) - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2006-07

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Valur  25-22 (14-11)
DHL deild karla
KA-Heimilið
26. nóvember 2006 klukkan: 16:00
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Valgeir Egill Ómarsson
Umfjöllun

Rúnar var frábær í dag










26. nóvember 2006 - SÁ skrifar

Frábær sigur á Val (umfjöllun)

Það var boðið upp á ótrúlega skemmtun þegar topplið Vals mætti í KA-Heimilið í dag. Fjöldi fólks mætti á leikinn og studdi frábærlega við bakið á Akureyrarliðinu sem hreinlega skein af í dag. Akureyri mætti gríðarlega vel stemmt til leiks og leiddi 14-11 í hálfleik. Valsmenn komu til baka í seinni hálfleik og komust yfir 19-21 þegar um 9 mínútur voru eftir. Það voru hins vegar Akureyringar sem voru mun sterkari á lokamínútunum og unnu afar mikilvægan og góðan sigur 25-22.

Valsmenn komust í 0-2 en Akureyri kom strax til baka og skoraði næstu fjögur mörk. Valur kemur þá með góðan kafla og kemst 5-7 yfir, þeir fara svo í 6-8 stuttu síðar. Kemur Sveinbjörn þá inn í markið fyrir Hreiðar sem hafði ekki verið að verja nægilega vel. Segja má með sanni að með innkomu Sveinbjörns í markið hafi leikur liðsins farið nokkuð upp á við. Þá fór vörn Akureyrar úr því að vera mjög góð í það að vera frábær seinni hluta fyrri hálfleiks. Akureyri setti fimm mörk í röð og leiddu allt í einu 11-8. Liðin skiptust svo á að skora það sem eftir er og staðan 14-11 í hálfleik.

Akureyri skorar fyrsta markið í seinni hálfleik. Í stöðunni 15-11 vinna þeir svo boltann og gátu bætt enn meira við muninn. Þeim tekst það ekki og refsaði Valur vel fyrir það. Næstu fjögur mörk voru þeirra og staðan jöfn 15-15, þetta var orðinn hörkuspenna aftur. Næstu mínútur skiptust liðin á að skora upp í 19-19 en þá voru 11 mínútur eftir. Við þetta leyti var stemmningin orðinn gríðarleg og áhorfendur í KA-Heimilinu farnir að láta heyrast ótrúlega vel í sér.
Valur skorar næsta mark og staðan 19-20 en þá kom Hreiðar Levý inn í mark heimamanna og átti eftir að reynast gríðarlega þýðingarmikill. Fær þá Akureyri vítakast sem Goran klikkaði ótrúlegt en satt. Hinum megin skorar svo Baldvin úr vítakasti og var Nikolaj rekinn útaf í 2 mínútur. Fór þá um fólk í salnum sem gaf þó bara enn meira í og stemmningin orðin mun meiri en áður. Hreint ótrúlegt var að heyra lætin og taka þátt í þeim en það var nákvæmlega það sem kveikti í frábærri endurkomu Akureyrar í afar erfiðri stöðu manni fleiri. Valsmenn hreinlega fóru á taugum þegar kviknaði svo um munaði á bestu stuðningsmönnum landsins.

Magnús kemur Akureyri einu marki nær Valsmönnum með afar mikilvægu marki eftir gegnumbrot. Þá næst var ruðningur dæmdur á Valsmenn og Akureyri gat svo jafnað. Eftir að hafa reynt mikið fær Þorvaldur svo boltann á línunni og fiskar vítakast og tvær mínútur á einn Valsmanninn. Að þessu sinni brást Goran alls ekki og staðan jöfn 21-21 þegar 7 mínútur voru eftir af leiknum. Hinum megin ver Hreiðar og fiskar Goran svo víti þegar Akureyri hafði farið í sóknina. Goran skoraði svo af öryggi úr kastinu og Akureyringar komnir yfir.

Í þessari stöðu ærðist hreinlega allt í KA-Heimilinu og stemmningin orðin ótrúleg. Fannar jafnar þó fyrir Val í 22-22 og fimm mínútur eftir. Akureyri hafði hins vegar miklu stærra hjarta á lokamínútum leiksins. Eftir að heimamenn höfðu reynt mikið í sókninni kastar Aigars boltanum inn í teiginn á Jankovic sem svífur ótrúlega í loftinu og skorar svo glæsilegt sirkusmark. Akureyri fiskar svo ruðning þegar Valsmenn voru að hefja sína sókn og á hinum endanum kom Magnús með annað mikilvægt mark og staðan orðin 24-22. Valsmenn klikka svo enn og aftur í sókninni og skorar Aigars seinasta mark leiksins og vann Akureyri afar góðan sigur 25-22.

Enn og aftur sýni Akureyri ótrúlegan karakter og var það sá karakter sem vann leikinn fyrir liðið í dag. Liðið er manni færri og tveimur mörkum undir gegn toppliði deildarinanr þegar 9 mínútur en nær samt að vinna frábæran sigur. Frábær vörn er náttúrulega undirstaðan að þessum sigri en það að halda Val í 22 mörkum heilan leik segir alla söguna.

Hreiðar Levý var frábær eftir að hann kom aftur inná og á þeim 10 mínútum sem hann lék undir lok leiksins varði hann 7 af 9 skotum Valsmanna. Hann var hreinlega óstöðvandi. Á hinum endanum var það gríðarleg seigla sem stýrði liðinu framúr Val og til sigurs. Magnús klikkaði mikið í dag en þau tvö mörk sem hann skoraði í restina eru með þeim stærri og betri á hans ferli. Magnús átti mjög jákvæðan leik að mínu mati og þrátt fyrir að hann hafi klikkað 10 skotum var ég afar sáttur með hann. Maggi var á fullum krafti og var virkilega að reyna, þannig verður hann að vera en hann einfaldlega tók þau skot sem hann verður að taka. Í vörninni var hann svo góður
Enn og aftur var Aigars afar stór í restina en hann virðist leika best seinustu 10-15 mínútur leiksins. Seigla og útsjónarsemi þessa manns hafði ansi mikið að segja í endurkomunni miklu. Þjálfarinn Rúnar Sigtryggs fór mikinn í leiknum og stýrði vörn okkar manna frábærlega. Í sókninni var hann afar drjúgur og átti meðal annars 6 línusendingar. Þessir tveir reynslukallar voru afar mikilvægir í dag og í vörninni voru þeir frábærir. Hörður og Þorvaldur áttu góðan dag á línunni og í vörninni voru þeir griðar sterkir, sérstaklega Þorvaldur.
Andri átti öflugan fyrri hálfleik en hann virðist varla klikka utan af velli og er kominn aftur þessi kraftur í strákinn. Í hinu horninu gerði Nikolaj tvo frábær og afar mikilvæg sirkusmörk. Goran átti svo, líkt og Nikalaj, fínan leik og skoraði mikilvæg mörk en klikkaði þó tveimur vítaköstum sem er afar sjaldséð hjá honum þessa dagana. Goran skoraði þó 7 mörk úr vítum. Þá hafa Ásbjörn og Alex leikið betur en voru samt ekki slakir í dag.

Í heildina bara frábær sigur þar sem allir leikmenn liðsins stigu upp í restina og höfði þor og áræðni. Þannig verður þetta að vera. Leikmenn voru keyrðir áfram af áhorfendum sem voru klárlega áttundi leikmaðurinn inni á vellinum hjá Akureyri í dag. Skemmtunin sem þeim var boðin upp á var frábær en fátt er skemmtilegra en að sjá liðið sitt vinna topplið deildarinnar. Með spilamennsku sinni í dag sýndi Akureyri hvers það er megnugt og hvað það getur þegar liðið spilar á fullum krafti. Vissulega þarf að bæta nokkuð en liðið vann besta lið landsins í dag og vonandi að menn haldi áfram á sömu braut.

Maður leiksins: Rúnar Sigtryggsson. Stjórnar vörninni eins vel og hægt er og reyndist gríðarlega mikilvægur í sókninni.
Þrjú viðtöl og tölfræði er svo á leiðinni inn á síðuna eftir örskamma stund.

Tengdar fréttir

Goran er ótrúlegur á vítalínunni

26. nóvember 2006 - SÁ skrifar

Goran: Verðum að halda svona áfram

Að leik loknum tókum við viðtal við Goran Gusic. Goran er markahæsti maður DHL-Deildarinnar en ótrúleg vítanýting hans hefur sett ansi mörg mörk fyrir hann á töfluna. Goran nýtti 7 af 9 vítum sínum í dag en við spurðum hann meðal annrars hver "galdurinn" væri.

SÁ: Hvað getur þú sagt okkur um leikinn í dag?
Goran: Þetta var mjög erfiðir leikur, sérstaklega vegna þess að þetta var gegn toppliði Vals og svona eru leikirnir alltaf á móti Val. Þegar maður horfir á allan leikinn þá vinnum við hann á spilamennskunni seinustu 5-6 mínúturnar. Við spilum mjög góða vörn. Við erum 18-20 mínútur einum leikmanni færri en samt spilum við mjög góða vörn og það er ástæðan fyrir því að við unnum þennan leik.

SÁ: Það er ansi stórt að vinna toppliðið í deildinni?
Goran: Já, sérstaklega þegar við höfum tapað tveimur leikjum í röð. Gegn Fram úti og síðan spiluðum við á móti HK hér heima rosalega illa. Það var örugglega versti leikurinn okkar en við töpuðum samt bara með tveimur mörkum. Við verðum að spila í 60 mínútur. Á móti Fram vorum við 7 undir í hálfleik og við verðum að halda áfram að spila eins og við gerðum í dag.

SÁ: Þið hljótið að vera ansi sáttir þessa stundina?
Goran: Já, eftir svona leiki þá fer mórallinn upp. Við töpuðum tveimur leikjum og unnum svo í dag og það eru allir að hugsa jákvætt. Þetta verður afar áhugavert ef við höldum svona áfram.

SÁ: Hvað fannst þér um stuðningsmenn Akureyrar í dag?
Goran: Mjög góðir. Þeir voru okkar aukamaður inn á vellinum, okkar áttundi leikmaður. Ég vona að þeir haldi áfram að hvetja okkur því við þurfum það. Sérstaklega í svona erfiðum leik eins og í dag.

SÁ: Þú ert sjálfur markahæstur í deildinni. Hver er galdurinn við að skora úr öllum þessum vítum?
Goran: Allir spyrja mig að þessu. Ég bara horfi á markmanninn.


Aigars Lazdins

26. nóvember 2006 - SÁ skrifar

Aigars: Unnum útaf áhorfendum

Aigars Lazdins spilaði afar stórt hlutverk í sigri Akureyarar á toppliði Vals, þá sérstaklega í lokinn. Aigars virðist alltaf vera bestur á "peningamínútunum" en þegar mest á reynir virðist seiglan einungis verða meiri.

SÁ: Aigars, hvernig var þessi leikur?
Aigars: Leikurinn var mjög erfiður. Ég held að við vinnum leikinn á vörninni. Við spilum mjög góða vörn. Á móti HK skoruðu þeir 22 en unnu og í dag skorar Valur 22 og við náum að vinna. Við berjumst í vörninni og erum að hjálpa hvorum öðrum.

SÁ: Þú sjálfur virðist alltaf vera bestur seinustu 10 mínúturnar, er úthaldið þitt svona gott?
Aigars: Nei, þetta er bara heppni.

SÁ: Áhorfendurnir, skiptu þeir miklu í dag?
Aigars: Ég held að við höfum unnið þennan leik út af áhorfendunum í dag. Í dag voru liðin mjög jöfn og við vinnum útaf fólkinu sem hjálpar okkur.

SÁ: Ertu sáttur við spilamennsku liðsins til þessa?
Aigars: Já mjög ánægður. Við berjumst og þú getur alltaf trúað á manninn sem er næst þér. Við getum líka skipt mikið inná ef einhver er þreyttur og það þurfa ekki allir að spila alltaf 60 mínútur,

SÁ: Heldur þú að Akureyrarliðið geti orðið mun betra en það er nú?
Aigars: Já, það er alltaf eitthvað hægt að bæta. Við þurfum að bæta okkur í sókninni og kannski þegar Goran er orðinn 100% aftur er hægt að nota hann fyrir utan en það er erfitt að hafa rétthentan mann í hægri skyttunni.


Menn Óskars náðu ekki í stig á erfiðaðsta útivelli landsins í dag
Mynd: Valur.is

26. nóvember 2006 - SÁ skrifar

Óskar Bjarni: Vorum ekki nógu góðir

Eftir hinn magnaða sigur Akureyri á Val tók heimasíðan viðtal við Óskar Bjarna Óskarsson þjálfara Vals sem var uppi í stúku í dag vegna leikbanns. Óskar var ekkert alltof sáttur með spilamennsku sinna manna. Hér kemur viðtalið.

SÁ: Þú varst ekki á bekknum í dag, en hvernig fannst þér leikurinn?
Óskar: Þetta var kaflaskipt. Mér fannst við ekki nógu góðir í dag og það vantaði eitthvað upp á. Við vorum að gera mikið af tæknimistökum, vorum lélegir einum fleiri og fengum ekki hraðaupphlaup og hraðamiðju eins mikið og ég hafði vonað á móti Akureyri sem verður að vera. Að því leyti er erfitt að stilla upp á móti þeim en ég var ekki alveg sáttur og fannst vanta pínu neista hjá okkur.

SÁ: Hvað fannst þér muna mest á liðunum?
Óskar: Lykilatriði er náttúrulega að Hreiðar kemur með mjög góða innkomu inn í lokinn. Þegar það er spenna í lokinn er það oft markvarslan sem skiptir mjög miklu. Síðan fannst mér skipta miklu máli að þeir voru að spila vel einum færri og voru alltaf að enda með því að ná að skora þó að höndin væri kominn upp. Svo voru þeir einnig að nýta betur þá kafla sem þeir voru einum fleiri. Í deild sem er svona jöfn og spennandi skipta svona kaflar rosalega miklu máli; þá markvarsla og hraðaupphlaup, svo kaflarnir 5 á 6 og 6 á 5.

SÁ: Þið fáið tvö mörk á ykkur í restina eftir sirkus, hvað finnst þér um það?
Óskar: Við fengum svona mark á móti þeim líka seinast. Í fyrra skiptið voru Markús og Fannar reyndar að biðja dómarann um að stoppa tímann en það er engin afsökun. Svo í seinna skiptið, einu sinni er meira en nóg og það var mjög mikið rothögg.

SÁ: Fannst þér áhorfendurnir skipta máli í dag?
Óskar: Ég hefði viljað sjá aðeins fleiri og troðfullt hús. Leiðinlegt að vera með þetta þegar United-Chelsea er og það munaði um einhverja áhorfendur. Þetta er hin besta skemmtun og ég held að Akureyrarliðið sé það skemmtilegt núna í ár. Auðvitað hjálpar stemmningin en ég vil bara fleiri og þetta á að vera skemmtilegasti útivöllurinn að fara á. Ég á von á að það fari ekki mörg lið með tvö stig héðan.



Akureyri þarf á sigri að halda, tekst þeim að leggja Val?

26. nóvember 2006 - ÁS skrifar

Bein Lýsing: Akureyri - Valur

Leikur Akureyrar og Vals í 8. umferð DHL-Deildar karla fer fram í dag í KA-Heimilinu klukkan 16:00. Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir Akureyri að sigra og komast þar með aftur í slaginn á toppnum eftir töpin gegn HK og Fram. Heimasíðan býður upp á beina textalýsingu frá leiknum í kvöld og hvetur hún alla til að fylgjast vel með gangi mála ef það kemst ekki á leikinn. Mjög auðvelt er að fylgjast með í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 16:00 en við hvetjum alla til að fylgjast vel með.


Það verður hart barist á morgun, fylgist spennt með

25. nóvember 2006 - ÁS skrifar

1 dagur í leik: Akureyri - Valur í Beinni Lýsingu

Leikur morgundagsins milli Akureyrar og Vals sem fer fram í KA-Heimilinu klukkan 16:00 verður að sjálfsögðu í Beinni Lýsingu hér á heimasíðunni. Leikurinn skiptir miklu máli fyrir Akureyri en eftir tvo dapra leiki í röð þarf liðið á sigri að halda til að komst aftur í gang. Lið Vals sem er á toppi deildarinnar mun væntanlega gefa allt sitt í leikinn til að missa ekki toppsætið yfir til HK.

Heimasíðan hvetur alla til að mæta í KA-Heimilið og hvetja Akureyri til sigurs en þið hin sem komist ómögulega á leikinn þið getið fylgst með Beinu Lýsingunni.

Akureyri - Valur, KA-Heimilið 26. nóvember klukkan 16:00


Allir að mæta og hvetja Akureyri gegn Val á sunnudaginn klukkan 16:00 í KA-Heimilinu

24. nóvember 2006 - Pétur Már Guðjónsson skrifar

Pistill: "Svo einfalt er það"

Lið Akureyrar tók á móti HK síðasta sunnudag. Við töpuðum, ekki gott. Þegar við fáum 600 manns í húsið, verðum við að vinna, svo einfalt er það. Verðum við....segi ég. Já, við verðum. Hér kemur lítil saga af því "að verða":

Árið er 2002.
Þetta ár komst lið K.A. alla leið í úrslitin og átti úrslitaviðureign við Val.

Valur vann fyrstu tvo leikina. Þriðji leikurinn var í Vals-heimilinu og ef Valur næði að sigra þann leik yrðu þeir Íslandsmeistarar. Það þýddi að Atli Hilmarsson þjálfari, sem var að hætta, stýrði liðinu aldrei aftur á heimavelli.

Þegar ég áttaði mig á þessu varð ég mjög ósáttur. Strákarnir í liðinu voru að fara að leika síðasta leik sinn með þjálfara sínum og áhorfendur á Akureyri gátu aldrei staðið upp og klappað fyrir Atla.

Ef hins vegar KA sigraði, þá færi fram fjórði leikurinn fyrir norðan.

Í öllum þessum þankagangi, kvöldi fyrir leik, hringdi ég í Jonna Magg og sagði honum frá áhyggjum mínum.

Ég sagði: "Jonni, mér finnst ömurlegt að hafa ekki náð að kveðja Atla. Ef þið vinnið á morgun í Valsheimilinu, þá fæ ég að minnsta kosti oddaleik hér heima og þá næ ég að kveðja Atla".

Þessu svaraði Jonni mjög fljótt: "Pétur, þetta er ekkert mál. Við bara vinnum á morgun í Vals-heimilinu og fáum oddaleik, ég lofa því"

"Ég lofa því"!!!

Þetta voru stór orð. En ég trúði þessu.

Allir vita hvernig fór, norðanliðið okkar náði að sigra leik nr. 3, 4 & 5 og varð Íslandsmeistari.

Við getum allt sem við viljum.

Ég held að nú sé viljinn fyrir hendi. Við höfum frábæra þjálfara fyrir Akureyrarliðið og mjög marga góða leikmenn. Við getum þetta, já, þrátt fyrir tapið á sunnudaginn.

Sýnum að Akureyri er handboltabær, mætum á leikina og höfum besta heimavöll á Íslandi.

Áhorfendur hafa þegar sýnt að þeir eru bestu áhorfendur landsins. Mér fannst frábært að sjá áhorfendur á leiknum á sunnudag. Höldum svona áfram.

Koma svo!!!

Að lokum.
Pétur Már Guðjónsson

Akureyri - Valur, KA-Heimilið 26. nóvember klukkan 16:00


Valsmenn eru í fínum málum í deildinni en eru dottnir útúr Bikarnum

24. nóvember 2006 - ÁS skrifar

2 dagar í leik: Hvernig stendur Valsliðið?

Á sunnudaginn mæta Valsmenn í KA-Heimilið og spila gegn liði Akureyrar. Eftir frábæra byrjun á mótinu hefur Akureyri tapað tveim leikjum í röð og leikurinn gegn Val er tilvalinn til að hefja endurkomu liðsins í toppbaráttuna. Valsmenn eru efstir í deildinni, hafa unnið sex leiki og tapað einum. Akureyri hefur hinsvegar unnið þrjá, gert eitt jafntefli og tapað þrem leikjum.

Leikurinn í fyrstu umferðinni
Liðin mættust í Laugardalshöll í fyrstu umferð deildarinnar og þar fóru Valsmenn með sigur. Valsmenn leiddu mestallan tímann en Akureyringar voru aldrei langt undan. Staðan var 13-12 fyrir Val í hálfleik eftir að Akureyri hafði verið 7-4 yfir á tímabili. Lokatölur voru 26-22 fyrir Val og eitt er víst að lið Akureyrar mun hefna fyrir tapið.

Deildarleikirnir til þessa
Valur
Dags.MótherjarStaðsetningÚrslit
30. septAkureyriLaugardalshöll26-22 (sigur)
7. oktFylkirFylkishöll28-26 (tap)
14. oktStjarnanLaugardalshöll30-29 (sigur)
21. oktHKDigranes25-27 (sigur)
5. nóvFramLaugardalshöll30-25 (sigur)
11. nóvÍRLaugardalshöll31-25 (sigur)
18. nóvHaukarÁsvellir29-30 (sigur)

Akureyri
Dags.MótherjarStaðsetningÚrslit
30. septAkureyriLaugardalshöll26-22 (tap)
8. oktÍRKA-Heimilið33-24 (sigur)
15. oktHaukarÁsvellir34-34
6. nóvFylkirKA-Heimilið30-27 (sigur)
12. nóvStjarnanÁsgarður22-23 (sigur)
19. nóvHKKA-Heimilið20-22 (tap)
22. nóvFramSafamýri32-29 (tap)

Markús Máni Michaelsson er markahæsti leikmaður Vals til þessa í deildinni og hefur skorað 48 mörk í 7 leikjum (6,8 mörk að meðaltali í leik). Hinn ungi Ernir Hrafn Arnarson hefur skorað 30 mörk í 7 leikjum (4,2 að meðaltali). Fannar Þór Friðgeirsson hefur gert 20 í 7 leikjum (2,8 að meðaltali) en þá hefur Arnór Þór Gunnarsson gert 19 mörk í aðeins 5 leikjum (3,8 að meðaltali).

Ólafur Haukur Gíslason núverandi landsliðsmarkvörður og Pálmar Pétursson eru markverðir Vals og hafa þeir verið að skipta spilmínútum jafnt á milli sín. Báðir eru mjög góðir og er það mikill styrkur fyrir Val að eiga tvo eins sterka markmenn.

Heimasíðan hvetur alla til að mæta í KA-Heimilið á sunnudaginn klukkan 16:00 og sjá lið Akureyrar rífa sig upp úr þessum tveim tapleikjum í röð. Til að leggja topplið Vals þarf húsfylli og það er ekkert skemmtilegra en að vera á leik í KA-Heimilinu þegar fólk mætir vel og stemmningin er góð.

Akureyri - Valur, KA-Heimilið 26. nóvember klukkan 16:00

Tengd frétt:
27. sept. Allt um Valsliðið


Smelltu á auglýsinguna til að sjá hana stærri

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson