Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 45

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 45
- Akureyri Handboltafélag
Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 61

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 61

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 67

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 67

Warning: Undefined array key -1 in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 68

Warning: Trying to access array offset on value of type null in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 68
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2006-07

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Stjarnan - Akureyri  35-31 (19-12)
DHL deild karla
Ásgarður
15. apríl 2007 klukkan: 16:00
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Valgeir Egill Ómarsson
Tengdar fréttir

Risaleikur í dag, fylgist með

15. apríl 2007 - ÁS skrifar

Bein Lýsing: Stjarnan - Akureyri

Akureyri Handboltafélag leikur í dag hreinan úrslitaleik við Stjörnuna um hvort liðið fer í Deildarbikarinn. Það verður virkilega gaman að sjá hvernig liðin koma til leiks en liðið sem fer með sigur af hólmi tryggir sér sæti í Deildarbikarnum, leikurinn hefst klukkan 16:00. Heimasíðan býður upp á Beina Textalýsingu frá leiknum en hvetur þá sem geta að fara í Ásgarð og hvetja liðið til sigurs. Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 16:00 en við hvetjum alla til að fylgjast vel með.


Úrslitaleikur gegn Stjörnunni á morgun um hvort liðið fer í Deildarbikarinn!









14. apríl 2007 - ÁS skrifar

1 dagur í leik: Fer Akureyri í Deildarbikarinn?

Á morgun taka Bikarmeistarar Stjörnunnar á móti Akureyri Handboltafélagi. Viðureign liðanna mun væntanlega skera úr um hvort liðið nær Deildarbikarsæti. Ef annað liðið fer með sigur af hólmi hefur það betur í innbyrðisviðureignum og hefur 2 stiga forskot á hitt liðið fyrir síðustu umferðina. Ef jafntefli verður raunin hefur Stjarnan betur í innbyrðisviðureignum en þarf þó að bíða og sjá fram í síðustu umferð deildarinnar hvort liðið fær síðasta Deildarbikarsætið.

Fyrri leikir vetrarins
Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, Akureyri vann glæstan útisigur í fyrri leiknum en þá var leikið í Ásgarði. Eftir að hafa verið undir allan leikinn tókst Akureyringum að stela sigrinum. Liðið var aðeins einu sinni yfir í leiknum og það var þegar leiktíma var lokið, Goran Gusic skoraði úr vítakasti eftir lok venjulegs leiktíma.
Stjarnan hinsvegar skellti okkar mönnum í KA-Heimilinu síðar í vetur. Stjarnan sigraði 24-31 og var mikið mun betri aðilinn í leiknum. Spilamennska Akureyrar í þessum leik var mjög döpur og ljóst að ef Akureyri sigrar í leik morgundagsins er hægt að gleyma þessum dapra leik.

Tímabilið til þessa hjá Stjörnunni
Meistarar Meistaranna
Stjarnan varð Bikarmeistari í fyrra og keppti gegn Fram í leik um hvort liðið væri Meistari Meistaranna. Leikið var í Safamýri en Stjarnan lék afar vel og það var í raun aldrei spurning hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi. Lokatölur voru 25-29 fyrir Stjörnunni sem varð þar með Meistari Meistaranna.
DHL-Deildin
Stjarnan hefur leikið afar misjafnlega í deildinni á tímabilinu. Liðið tapaði fyrstu þrem leikjum tímabilsins og skipti um þjálfara. Eftir það fór liðið í gang, Stjarnan vann alla leikina sem eftir voru fram að áramótum fyrir utan tvo leiki, gegn Fram og Akureyri. Liðið vann svo fyrstu þrjá leiki eftir áramót og var komið ískyggilega nærri toppliðunum tveim. Liðið hinsvegar tapaði svo gegn Fram og eftir það hefur liðið tapað öllum deildarleikjum sínum sem eru 4 talsins. Liðið er því í baráttu við Akureyri um að komast í Deildarbikarinn.
SS-Bikarinn
Stjarnan átti í ár eins og í fyrra mjög góðu gengi að fagna í SS-Bikarnum. Liðið hóf keppni gegn HK og vann glæstan útisigur 25-26. Næst sigraði liðið Þrótt örugglega 12-44. Í 8-liða úrslitum slátraði Stjarnan liði ÍBV í Vestmannaeyjum, 17-40. Í undanúrslitum sigraði liðið ÍR í miklum baráttuleik 27-24. Í úrslitaleiknum lék liðið klárlega sinn besta leik í vetur gegn Íslandsmeisturum Fram og sigraði 17-27 sem er ótrúlegt í úrslitum.
Evrópukeppni Bikarhafa
Stjarnan tók þátt í Evrópukeppni Bikarhafa og mætti þar liði RK Agram Medvescak Zagreb frá Króatíu. Liðið tapaði stórt 36-29 í Króatíu en sýndi svo sínar bestu hliðar á löngum köflum í fyrri leiknum og vannst leikurinn 28-22. Liðið féll þar með úr leik en það var aðeins vegna þeirra eigin klaufaskap að liðið komst ekki áfram.

Helstu leikmenn Stjörnunnar
Patrekur Jóhannesson er allt í öllu í liði Stjörnunnar. Þessi fyrrum leikmaður KA er maðurinn sem bindur saman varnarleik liðsins og þá gengur allur sóknarleikur liðsins í gegnum hann. Til að sigur náist gegn Stjörnunni þarf að stöðva Patrek.

Tite Kalandadze er hrikalega öflugur í vinstri skyttunni hjá Stjörnunni. Tite getur skorað að vild þegar hann er kominn í gírinn og getur hann raðað inn mörkunum. Erfitt getur verið að stöðva hann þar sem hann skýtur mikið fyrir utan en hann á góðar fintur einnig.

Elías Már Halldórsson leikur í hægra horni Stjörnunnar og hefur verið iðinn það sem af er tímabilinu að skora. Elías er snöggur upp í hraðaupphlaup og þá klárar hann færin sín afar vel í horninu. Elías græðir vel á því hversu öflug stimplun Stjörnumanna er en hún byrjar í vinstra horninu og endar yfirleitt alltaf á því að gott færi fæst í því hægra.

David Kekelia hefur verið að leika í hægri skyttu fyrir Stjörnuna en hann er einnig frábær hornamaður. Kekelia er baneitraður leikmaður, sterkur og mjög seigur leikmaður. Hann klikkar ekki oft þegar hann kemst í færi og vinnur vel fyrir liðið.

Roland Valur Eradze er markvörður Stjörnunnar. Hann hefur verið að stríða við meiðsli en það hefur ekki komið í veg fyrir að hann sýni frábæra spilamennsku. Roland nýtur góðs af því hversu góða vörn Stjörnuliðið er að spila og það er víst að sóknarleikur Akureyrar gæti lent í vandræðum gegn Stjörnunni.

Ljóst er að Akureyri þarf að leika af sama krafti og liðið gerði gegn Fylki á dögunum til að leggja Stjörnuna að velli. Gengi Stjörnumanna hefur ekki verið gott upp á síðkastið en liðið er með leikmenn sem spila ákaflega vel í úrslitaleikjum og ljóst er að leikur morgundagsins er úrslitaleikur. Heimasíðan hvetur alla til að mæta og styðja Akureyri til sigurs.

Stjarnan - Akureyri, Ásgarður 15. apríl klukkan 16:00

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson