Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Enn einn spennuleikurinn gegn Stjörnunni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfrćđi  -  Höllin  -  Lagiđ  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilabođ - Vefur KA - Vefur Ţór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabiliđ 2007-08

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla
Deild kvenna
Leikmenn meistarafl. kvenna




Tölfrćđi leiksins 
    Stjarnan - Akureyri  31-30 (16-17)
N1 deild karla
Mýrin
27. apríl 2008 klukkan: 16:00
Dómarar:
Umfjöllun

Andri fann sig vel á móti Roland í leiknum í dag



28. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Enn einn spennuleikurinn gegn Stjörnunni

Ţađ var dálítiđ skrýtin stemming í Garđabćnum á sunnudaginn ţegar Stjarnan tók á móti Akureyri Handboltafélagi og ţýđingarleysi leiksins varđandi Íslandsmótiđ býsna augljóst. Um ţađ bil fimmtán áhorfendur mćttu og ţar af helmingurinn norđanfólk.

Leikmenn Akureyrar voru miklu mun sprćkari en heimamenn í fyrri hálfleik og leiddu allan hálfleikinn, náđu mest fjögurra marka forystu 10-14 eftir rúmlega tuttugu mínútna leik. Menn voru greinilega mćttir til ađ hafa gaman ađ hlutunum og léku vörn Stjörnunnar oft grátt, skoruđu t.d. ein ţrjú sirkusmörk auk ţess sem hornin og línan nýttist vel. Arnar Sveinbjörnsson stóđ í markinu og átti prýđilegan leik, tíu skot varin í fyrri hálfleiknum. Stjörnumenn náđu ađ minnka muninn niđur í eitt mark 16-17 fyrir lok hálfleiksins en síđasta skot hálfleiksins var ţó vítakast sem Jónatan setti í stöng og út.

Stjörnumenn hófu seinni hálfleikinn af krafti og komust yfir í fyrsta sinn í leiknum 18-17 en eftir ţađ var jafnt á flestum tölum upp í stöđuna 22-22. Roland Valur, markvörđur Stjörnunnar datt ţá í sinn besta ham og náđi ađ loka algjörlega á skyttur Akureyrar međ frábćrri markvörslu og smám saman seig Stjarnan fram úr og var útlitiđ orđiđ heldur dökkt hjá okkar mönnum, fimm mörkum undir 31-26 og einungis sjö mínútur eftir af leiktímanum.

En liđiđ beit vel frá sér á lokakaflanum, vörnin small saman og Elmar Kristjánsson sem var kominn í markiđ tók ţau skot sem sluppu í gegn ţannig ađ Stjarnan skorađi ekki mark en Akureyri minnkađi muninn í eitt mark 31-30 og síđasta sóknin var Akureyrar. Brotiđ var harkalega á Einari Loga og hefđi mađur viljađ fá viđkomandi Stjörnumann út af fyrir tiltćkiđ en svo varđ ekki, í lokin var brotiđ á Herđi Fannari á línunni og í stađ ţess ađ stoppa tímann létu dómararnir leiktímann renna út ţannig ađ einungs fékkst aukakast sem ekkert varđ úr.

Ţađ var í rauninni fúlt ađ fá ekki stig út úr ţessum leik ţví eins og áđur segir spilađi Akureyri mun skemmtilegri bolta í ţessum leik. Eins og áđur segir reyndist Ronald Valur skyttunum okkar erfiđur og sömuleiđis gekk vörninni ekki nógu vel ađ stöđva Björgvin Hólmgeirsson sem var atkvćđamestur Stjörnumanna međ átta mörk. Í sóknarleik Akureyrar gekk línu- og hornaspiliđ vel ađ ţessu sinni sem skilađi flestum markanna svo og einum sex vítaköstum.

Mörk Akureyrar: Jónatan 10 (5 víti), Andri Snćr 5, Hörđur Fannar og Magnús 4 hvor, Nikolaj 3, Goran 2, Einar Logi og Ţorvaldur 1 mark hvor.

Markverđirnir Arnar og Elmar stóđu vel fyrir sínu, Arnar međ 14 skot varin og Elmar međ 3.

Í ţessum leik má segja ađ "gömlu mennirnir" hafi fengiđ ađ sýna sig ţví ađ ţeir leikmenn 2. flokks sem ađ öllu jöfnu eru í hópnum fengu frí (nema markverđirnir) en 2. flokkur á leik í 8-liđa úrslitum Íslandsmótsins í dag, mánudag.

Tengdar fréttir

Rúnar var magnađur síđast í Mýrinni. Ţá fá Jonni og Heimir ađ kljást í dag



27. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Útileikur gegn Stjörnunni

Í dag fer karlaliđiđ í sinn síđasta útileik á tímabilinu og er förinni heitiđ í Garđabćinn. Ţar verđur leikiđ viđ heimamenn í Stjörnunni og fer leikurinn fram í Mýrinni og hefst klukkan 16:00.

Síđast ţegar liđin mćttust sigrađi Akureyri 34-32 í mögnuđum leik. Ţađ er óskandi ađ strákarnir sýni sömu baráttu og kraft og ţeir gerđu í ţeim leik og klári mótiđ međ sćmd.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson