Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri magalenti gegn Haukum - nýjar myndir - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2008-09

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Haukar  22-34 (10-15)
N1 deild karla
Íþróttahöllin
19. nóvember 2008 klukkan: 19:30
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson
Umfjöllun

Anton Rúnarsson skorar úr víti í fyrsta heimaleik sínum með Akureyri










19. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri magalenti gegn Haukum - nýjar myndir

Akureyri Handboltafélag átti lítið í sterka Haukamenn í stórleik N1-deildarinnar í handbolta sem fram fór í Höllinni í kvöld fyrir framan rúmlega 1000 manns. Áhorfendur héldu uppi stemmningu allan leikinn þrátt fyrir að snemma í seinni hálfleik væri ljóst að heimamenn yrðu undir í baráttunni. Haukar sigruðu leikinn 34-22 en mest munaði 14 mörkum á liðunum í síðari hálfleik.

Hér er á ferðinni umfjöllun Jóns Stefáns Jónssonar blaðamanns Vikudags um leikinn.

„Þetta var þung magalending í kvöld hjá okkur, við fundum aldrei taktinn í leiknum og því fór sem fór. Í vetur hafa alltaf einhverjir stigið upp þegar á hefur þurft að halda en það gekk ekki upp í kvöld. Ég held að taugarnar hjá strákunum hafi verið of þandar og menn orðið yfirspenntir. Það er frábært að spila fyrir framan svona marga áhorfendur en ég held að því miður hafi strákarnir ekki notið þess í kvöld. Vonandi fá þeir annað tækifæri til þess í næsta heimaleik, þá munu þeir læra að njóta þess og nýta stuðninginn til fullnustu,“ sagði Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar eftir leik, langt frá því að vera mjög áhyggjufullur yfir tapinu enda ýmsa fjöruna sopið í handboltanum í gegnum tíðina.

Leikurinn byrjaði ágætlega hjá Akureyri og höfðu þeir eins marks forystu 6-5 þegar um tíu mínútur voru liðnar. Næstu mínútur fór hins vegar að halla verulega undan fæti og skoruðu Haukar 10 mörk gegn einungis þremur frá Akureyri fyrir hálfleik en þá var staðan 15-10 gestunum í vil.

Í síðari hálfleik virtist framan af sem Akureyringar ætluðu að berjast á hæl og hnakka og ekki gefast upp baráttulaust. Fljótlega varð hins vegar ljóst að þeir áttu ekki mikið í ógnarsterkt lið Hauka að þessu sinni. Gestirnir léku við hvern sinn fingur og áttu án efa sinn besta leik í vetur og virtust hafa ráð við öllu sem Akureyri reyndi, hvort sem það var í vörn eða sókn.

Vonir Akureyringa slokknuðu endanlega þegar þeir fengu tvær brottvísanir með stuttu millibili eftir að vera nýbúnir að minnka muninn í fjögur mörk, Haukarnir gengu á lagið og náðu sjö marka forystu tveimur fleiri, þegar ekki voru nema um 15 mínútur eftir leiks. Við þetta var eins og heimamenn hreinlega legðu árar í bát en Haukarnir röðuðu inn mörkum. Mestur varð munurinn 14 mörk en Akureyri náði að laga stöðuna aðeins í lokin og varð lokaniðurstaðan sú að Haukar sigruðu með 12 marka mun, 34-22.

„Við komum ágætlega stemmdir til leiks í byrjun en svo fjaraði fljótt undan þessu. Við klúðruðum aragrúa dauðafæra og seinni hálfleikur hjá okkur var hrein hörmung. Það var mjög leiðinlegt að geta ekki sýnt almennilegan leik fyrir framan þessa fjölmörgu og stórkostlegu áhorfendur. Við sýndum bara okkur sjálfum það í kvöld að ef við erum ekki á fullu og ekki rétt stemmdir þá erum við bara ekki góðir. Við vorum alltof fljótir að brotna en við ætlum svo sannarlega að rétta úr kútnum og það strax,“ sagði Andri Snær Stefánsson, sem líkt og margir félagar hans hjá Akureyri náði sér ekki á strik í leiknum.

Einar Örn Jónsson, hornamaðurinn öflugi í Haukum var mun glaðari í leikslok: „Við áttum klárlega okkar besta leik í deildinni í vetur. Það gekk allt upp hjá okkur bæði varnarlega og sóknarlega og við sýndum allar okkar sparihliðar í þessum leik. Það má kannski segja að við höfum gert allt rétt í kvöld sem við höfum verið að gera vitlaust það sem af er tímabili." Hann bætti svo við; „Áhorfendur Akureyrarliðsins voru frábærir í kvöld og studdu vel við bakið á þeim, mér fannst merkilegt að sjá að þeir studdu þá og fögnuðu mörkum þrátt fyrir að þeir væru 12 mörkum undir, umgjörðin var algjörlega til fyrirmyndar."

Óhætt er að taka undir þau orð Einars, umgjörðin um leikinn var frábær og vonandi verður áframhald á. Akureyri er áfram á toppi deildarinnar þrátt fyrir tapið í kvöld en Haukar eru áfram í 6. sæti.

Árni Þór Sigtryggsson skoraði 7 mörk (1 víti) fyrir Akureyri, Hörður Fannar Sigþórsson 4, Jónatan Magnússon, Oddur Gretarsson og Anton Rúnarsson 3 hver (Anton 1 víti) og Heiðar Þór Aðalsteinsson 2.

Í markinu varði Hafþór Einarsson 11 skot og Hörður Flóki Ólafsson 5.

Hér er hægt að sjá gang leiksins.

Staðan í deildarkeppni karla
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Valur9531252 : 2143813:5
2. Akureyri9603247 : 247012:6
3. HK9423239 : 245-610:8
4. Fram8422225 : 219610:6
5. FH9423268 : 265310:8
6. Haukar8404230 : 210208:8
7. Stjarnan8125198 : 217-194:12
8. Víkingur8017207 : 249-421:15


Andri Snær stöðvar Frey Brynjarsson leikmann Hauka


Tengdar fréttir

Enn og aftur - frábærustu áhorfendur landsins

24. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Áhorfendur og fánaberar á Haukaleiknum - myndasyrpa

Þrátt fyrir að úrslit Haukaleiksins á miðvikudaginn hafi ekki verið þau sem við óskuðum okkur þá er sérstök ástæða til að óska stuðningsmönnum liðsins til hamingju með sína frammistöðu. Aðsókn áhorfenda sló nefnilega öll met að þessu sinni og getum við stolt sagt að fjöldi áhorfenda hafi verið vel á annað þúsund!

Enda var stúkan orðin full hálftíma fyrir leik og fjöldi áhorfenda var niður á gólfi Íþróttahallarinnar. Nú er verið að ræða það til hvaða ráðstafana þurfi að grípa til fyrir næsta leik sem verður í janúar.

Þórir Tryggvason var að senda okkur myndir frá leiknum þar sem áhorfendur og fánaberar eru á aðalhlutverkum.


Smelltu hér til að skoða myndirnar



Flottir kórfélagar í Höllinni

21. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Karlakór Akureyrar - Geysir hitar upp: myndasyrpa

Það var mögnuð upplifun fyrir leik Akureyrar og Hauka á miðvikudaginn þegar 40 manna karlakór stillti sér upp í Íþróttahöllinni og gerði sitt til að koma metfjölda áhorfenda í gírinn.

Þórir Tryggvason smellti nokkrum myndum af kórfélögum sem er hægt að skoða hér. Spurning hvort eitthvert annað lið leiki þetta eftir.

Við þökkum kórfélögum kærlega fyrir frábæran stuðning!


Smelltu hér til að skoða myndirnar
.



Rúnar skilur ekki hvað Aron á við frekar en aðrir!

19. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtal við Rúnar fyrir Haukaleikinn

Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar Handboltafélags er í stuttu viðtali við www.handbolti.is um leikinn í kvöld. Við birtum viðtalið hér að neðan.

Höfum aldrei stjórnað veðrinu

Við höfum fengið Rúnar Sigtryggsson, þjálfara Akureyrar, í stutt spjall í tilefni stórleiks Akureyrar og Hauka í kvöld í N1 deild karla.

Hvernig leggst það í ykkur bræður að mæta ykkar gömlu félögum í Haukum í kvöld?
Bara vel, Haukar eru ávísun á hörkuleik. Hefðum að vísu frekar viljað fá þá annaðkvöld eins og upphaflega var áætlað, áður en þeir breyttu leiktímanum í fyrsta skiptið.

Hefurðu trú á að það verði góð stemming á pöllunum í kvöld?
Já, það verður væntanlega fjölmennt. Það komu 850 áhorfendur á síðasta heimaleik við Val þann 23. október og fólk búið að spyrja mikið um næsta heimaleik síðan þá. Og þar sem næsti heimaleikur er ekki fyrr en 22. janúar 2009 þá er þetta eina tækifærið að sjá okkur á löngu tímabili sem er næstum jafn langt og knattspyrnutímabilið hérna heima.

Er þessi leikur prófsteinn á ykkur, hvort þið séuð komnir til að vera í toppbaráttunni í vetur eður ei?
Nei, þeir leikir eru að baki. Þessi leikur snýst um það hvort að við viljum vera í efsta sæti í deildinni áfram eða ekki.

Nú sakar Aron ykkur Norðanmenn og Eyjamenn fyrir að vera oft á tíðum ólöglega, skildir þú hvað hann átti við og telurðu svo vera?
Ég veit ekki hvað hann á við, en eins og þetta birtist mér á prenti þá er þetta barnalegt. Ef leikjum Akureyrar og ÍBV er frestað, er það vegna veðurs og ég vissi ekki að það væru til handboltalög um veðrið sem við værum að brjóta. Enda höfum við aldrei stjórnað veðrinu og sjáum ekki fram á að gera það á næstunni.

Eitthvað að lokum?
Takk fyrir góða síðu, www.handbolti.is


Jónatan er klár í leikinn í dag

19. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Haukar í beinni textalýsingu

Þá er komið að leikdegi hjá Akureyri Handboltafélagi. Það verður mikið um dýrðir í Íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Hauka. Karlakór Akureyrar - Geysir hitar upp á kaffiteríunni, kakó og ýmsar veitingar verða í boði fyrir leik og það sem mestu máli skiptir, hörkuleikur tveggja frábærra liða sem bæði munu leggja allt í sölurnar.

Leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu ætlum við að bjóða stuðningsmönnum sem ekki eiga heimangegnt á leikinn upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni og hefst hún rétt fyrir leik.

Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.


Það er óneitanlega þægilegra að kaupa miðann í forsölu

19. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Forsala í Nettó

Forsala á Haukaleikinn verður í Nettó á Glerártorgi í dag. Það er ljóst að gríðarlegur áhugi er fyrir leiknum og verður hægt að kaupa aðgöngumiða í forsölu við Þjónustuborðið í Nettó.

Við hvetjum fólk til að nýta tækifærið til að forðast troðning við innganginn þegar leikurinn hefst í kvöld. Mikilvægt er að mæta snemma, húsið opnar klukkan 18:45 en leikurinn sjálfur klukkan 19:30.

Miðaverð er eins og vanalega 1.000 krónur fyrir fullorðna en 300 krónur fyrir börn og unglinga 6-16 ára.


Hvað er magnaðra en kröftugur karlakór?

18. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Karlakór Akureyrar-Geysir hitar upp fyrir Haukaleikinn

Það verður föngulegur hópur sem sér um tónlistarflutning fyrir leik Akureyrar og Hauka á miðvikudaginn. Það eru engir aðrir en félagar í Karlakór Akureyrar – Geysi sem hefja upp raust sína og blása liðsmönnum og áhorfendum baráttuþrek í brjóst með söng sínum. Karlakór Akureyrar – Geysir varð til árið 1990 þegar Karlakórinn Geysir (stofnaður 1922) og Karlakór Akureyrar (stofnaður 1929) sameinuðust.

Snorri Guðvarðsson er formaður KAG. Aðrir í stjórn eru: Aðalbjörn Pálsson, Hallgrímur Ingólfsson, Hólmkell Hreinsson og Kolbeinn Sigurbjörnsson.

Valmar Väljaots tók við sem stjórnandi haustið 2007 og stýrir söngnum af mikilli list. Valmar (Hvanndal) Väljaots er fæddur í Tallinn í Eistlandi árið 1967. Hann hóf sitt tónlistarnám í tónlistarskóla Músik-akademíunnar árið 1974 og lauk námi 1985. Þá fór hann í einleikara- og kennaranám í lágfiðluleik til 1994.

Það sama ár flutti hann svo til Íslands ásamt fjölskyldu sinni og hefur kennt hér síðan. Fyrst á Húsavík, en síðan sem tónlistarskólastjóri á Laugum og í Mývatnssveit. Nú er hann fluttur til Akureyrar og starfar við Glerárkirkju auk þess er Valmar líka einn af hinum óborganlegu Hvanndalsbræðrum!

Æfingar kórsins eru á mánudögum og miðvikudögum frá 20:00 til 22:00. Byrjað er að æfa um miðjan september og stendur vertíðin yfir fram í maí. Félagsheimili kórsins heitir Lón og stendur við Hrísalund 1a.

Það verður virkilega spennandi að fylgjast með KAG í upphituninni en kórinn byrjar að syngja um klukkan 19:00 og heldur áfram þar til leikurinn hefst. Góða skemmtun!


Það hafa alltaf verið háspennuleikir þegar Haukarnir koma norður

17. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Loksins heimaleikur – Haukarnir á miðvikudaginn

Það er orðið ótrúlega langt síðan að Akureyringar áttu þess kost að sjá handboltaliðið í leik en nú er komið að því en Íslandsmeistarar Hauka koma í heimsókn á miðvikudaginn. Upphaflega átti leikurinn reyndar að vera á fimmtudegi en vegna þátttöku Hauka í Evrópukeppninni var leikurinn færður yfir á miðvikudag og mikilvægt að þær upplýsingar berist til allra stuðningsmanna.

Liðin mættust í Hafnarfirði í annarri umferð N1-deildarinnar og þar unnu Haukarnir stórsigur, 37-28. Þann leik byrjaði Akureyrarliðið skelfilega illa og náðu Haukarnir yfirburðastöðu 10-3 í upphafi leiks og í raun komst Akureyrarliðið aldrei í takt við þann leik. Það verður því verðugt verkefni fyrir strákana að kvitta fyrir þann leik og láta Haukana finna til tevatnsins.

Haukarnir eru með virkilega öflugt lið og með gríðarlega sterka einstaklinga sem hafa oft á tíðum farið illa með okkar menn. Þar skal sérstaklega nefna skyttuna Sigurberg Sveinsson sem virðist alltaf blómstra sérstaklega gegn Akureyri, hann skoraði t.d. átta mörk í tapleiknum í haust. Einnig reyndist fyrrum landsliðskappinn og hornamaðurinn Einar Örn Jónsson drjúgur í þeim leik en hann skoraði þá sex mörk úr hægra horninu.

Þá má ekki gleyma mönnum eins og Andra Stefan Guðrúnarsyni sem oft hefur tekið af skarið og hreinlega unnið leiki fyrir Haukana, hinn eldfljóti Freyr Brynjarsson sem skorar iðulega fjölmörg mörk úr hraðaupphlaupum og línumaðurinn eitilharði Kári Kristján Kristjánsson sem er sagður vera á leið til Þýskalands. Þannig má lengi telja, Gísli Jón, Gunnar Berg, Arnar Pétursson og Arnar Jón eru allt jaxlar sem aldrei má líta af og því ljóst að Haukaliðið er ekki árennilegt.

Í markinu eru síðan engir aukvisar, þeir Birkir Ívar Guðmundsson og Gísli Guðmundsson sem eru svo sannarlega eitt besta markvarðapar landsins.

Þjálfari Haukanna er svo hörkutólið Aron Kristjánsson.

Þetta er síðasti heimaleikur Akureyrarliðsins á þessu ári þannig að bæði leikmenn og áhorfendur ætla svo sannarlega að nota tækifærið og skemmta sér á miðvikudaginn enda er þetta tvímælalaust einn af hápunktum handboltatímabilsins og rétt að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti. Á síðasta heimaleik var hvert sæti upptekið og bætt við sætum á gólfinu og líklegt að nú þurfi að fjölga þeim enn frekar.

Munið að leikurinn hefst klukkan 19:30 á miðvikudaginn og látið það berast um bæinn – góða skemmtun.



Það er vissara að tryggja sér miða strax

14. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Forsala á Haukaleikinn hefst á Glerártorgi á laugardag

Það verður stórviðburður í handboltavertíðinni á miðvikudaginn þegar Íslandsmeistarar Hauka koma norður og leika við topplið Akureyrar. Þar sem ljóst er að gríðarlegur áhugi er fyrir leiknum hefur verið ákveðið að gera fólki kleift að kaupa aðgöngumiða í forsölu.

Miðasalan verður á Glerártorgi á laugardaginn frá klukkan 14:00 – 16:00 og viljum við hvetja fólk til að nýta tækifærið til að forðast troðning við innganginn þegar leikurinn hefst á miðvikudaginn.

Miðaverð er eins og vanalega 1.000 krónur fyrir fullorðna en 300 krónur fyrir börn og unglinga 6-16 ára.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson