Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Lukkan var með Valsmönnum í dag - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2008-09

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Valur - Akureyri  26-24 (11-12)
N1 deild karla
Vodafone höllin
29. mars 2009 klukkan: 16:00
Dómarar:
Umfjöllun

Hörður Flóki fór á kostum í markinu í dag



29. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Lukkan var með Valsmönnum í dag

Það má segja að lukkudísirnar hafi verið á bandi Valsmanna í dag þegar þeir tóku á móti Akureyri. Leikmenn Akureyrar komu mjög ákveðnir til leiks og með fantagóðri vörn og Hörð Flóka í fínu formi í markinu tóku leikmenn Akureyrar frumkvæðið í leiknum. Reyndar var jafnt á öllum tölum upp í 6-6 en þá náði Akureyri tveggja marka forystu 6-8.

Í þessari stöðu tók Valur leikhlé og það hafði greinilega góð áhrif á liðið því þeir skoruðu næstu fjögur mörk og staðan skyndilega orðin 10-8 og útlitið ekki gott. En þá kom að þætti Björns Óla Guðmundssonar sem fór hamförum á næstu mínútum, skoraði þrjú fín mörk og átti að auki stoðsendingu á Þorvald sem gaf mark þannig að Akureyri leiddi með einu marki, 11-12 í hálfleik.

Forystan var fyllilega verðskulduð og ef ekki hefði komið til dapur sóknarkafli frá 16-25 mínútu hefði forystan átt að vera meiri því vörn og markvarsla var til fyrirmyndar. Þannig varði Hörður Flóki 14 skot í hálfleiknum og þar af bæði vítaköstin sem Valur fékk.

Valur náði að jafna metin 12-12 í upphafi seinni hálfleiks en þá kom flottur kafli hjá Akureyri sem náði mest fjögurra marka forystu 13-17, enn var það frábær vörn og markvarsla sem skóp þessa stöðu. Í sókninni hélt Björn Óli uppteknum hætti og skoraði tvo glæsimörk til viðbótar.

En Valsmenn þéttu vörnina hjá sér og við það varð sóknarleikur Akureyrar vandræðalegur og sömuleiðis slökuðu menn á í vörninni þannig að þegar seinni hálfleikur var rúmlega hálfnaður náðu Valsmenn að jafna í 19-19. Á næstu mínútum tók Árni Sigtryggsson til sinna ráða í sókninni og sá til þess að Akureyri hélt enn frumkvæðinu en Valur fylgdi ávallt í kjölfarið og náðu stöðugt að jafna, þannig var jafnt á öllum tölum upp í 24-24 og rúmar fjórar mínútur til leiksloka.

Þessar síðustu mínútur gekk því miður ekkert í sóknarleiknum, Árni var tekinn úr umferð og það voru Valsmenn sem náðu að skora tvö mörk til viðbótar og unnu því leikinn 26-24. Þannig að enn eina ferðina tapaðist spennuleikur á lokasprettinum.

Hörður Flóki átti stórleik í markinu, sérstaklega þó í fyrri hálfleik og í upphafi þess seinni. Þannig telst okkur til að hann hafi varið samtals 20 skot, þar af tvö vítaköst. Árni Sigtryggsson kom sterkur inn í seinni hálfleik og eins og áður er getið átti Björn Óli magnaðan leik í dag.

Leikurinn var í beinni lýsingu hér á síðunni og er þar hægt að sjá hvernig leikurinn þróaðist. Mörk Akureyrar skiptust þannig:
Árni 8 (1 víti), Björn Óli 6, Hörður Fannar 3, Oddur 3, Heiðar 2 og Þorvaldur 2.

Á sama tíma sigraði Stjarnan Víkinga eins og við mátti búast og því kemur ekkert annað til greina en sigur í síðasta leik liðsins gegn Fram á sunnudaginn kemur til að gulltryggja deildarsætið á okkar eigin forsendu en þurfa ekki að treysta á að Haukar vinni Stjörnuna í lokaleik þeirra.

Staðan í deildarkeppni karla fyrir lokaumferðina er þannig:
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Haukar201514568 : 4897931:9
2. Valur201334559 : 4768329:11
3. HK20956531 : 534-323:17
4. Fram201037558 : 552623:17
5. FH208210577 : 586-918:22
6. Akureyri207211510 : 545-3516:24
7. Stjarnan206311508 : 541-3315:25
8. Víkingur202117500 : 588-885:35

Tengdar fréttir

Oddur Gretarsson verður í baráttunni í dag

29. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Valur - Akureyri í beinni textalýsingu

Í dag verður leikin næstsíðasta umferð N1-deildarinnar að þessu sinni. Leikmenn Akureyrar halda suður og mæta stórliði Vals klukkan 16:00. Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði liðin, Valsmenn eru í baráttu við Hauka um deildarmeistatitilinn en Akureyri vill tryggja eigin stöðu í deildinni.

Að sjálfsögðu verður heimasíðan með leikinn í beinni lýsingu fyrir þá sem ekki eiga kost á að mæta á leikinn. Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:00 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.


Valsarar hafa verið erfiðir heim að sækja í vetur

26. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn Val á sunnudaginn

N1 deildin byrjar að rúlla aftur um helgina en á sunnudaginn klukkan 16:00 verður leikin næstsíðasta umferðin og fara allir leikirnir fram á sama tíma. Akureyri fær verðugt verkefni en liðið fer í Vodafone höllina og leikur gegn heimamönnum í Val. Heimavöllurinn hefur reynst Val dýrmætur en þeir hafa sigrað í öllum heimaleikjum tímabilsins enda með frábært lið.

Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, fyrri leikinn vann Akureyri hér í Íþróttahöllinni en Valur náði fram hefndum á heimavelli. Það er því verðugt markmið fyrir Akureyrarliðið að verða fyrsta liðið til að leggja Val í Vodafone höllinni og ekki spillir að í boði eru dýrmæt stig til að gulltryggja sig í deildinni.

Það eru nokkrir góðkunningjar okkar Akureyringa í Valsliðinu og skal þar fyrstan telja Heimi Örn Árnason sem var valinn leikmaður deildarinnar tímabilið 2007-2008. Þar eru einnig kapparnir Baldvin Þorsteinsson og Arnór Þór Gunnarsson sem allir eru burðarásar í Valsliðinu sem enn eiga von um deildarmeistaratitilinn.

Í síðasta leik var Rúnar Sigtryggsson í banni en hann verður klár í leikinn á sunnudaginn eins og allt liðið, í liði Vals mun Elfar Friðriksson hins vegar sitja í áhorfendastúkunni en fékk eins leiks bann í síðustu umferð.


Hreinn tekur hraustlega á Heimi Árnasyni í síðasta leik liðanna.

Eins og áður segir er þetta næstsíðasta umferð deildarinnar sem lýkur með heimaleik gegn Fram í Íþróttahöllinni sunnudaginn 5. apríl klukkan 16:00.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson