Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Dramatískur sigur Akureyrar á Fram - umfjöllun - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2010-11

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Myndband frá leiknum      Tölfræði leiksins 
    Fram - Akureyri  31-32 (17-13)
N1 deild karla
Framhús
Lau 16. október 2010 klukkan: 15:45
Dómarar: Hlynur Leifsson og Hafsteinn Ingibergsson
Umfjöllun

Guðmundur Hólmar, Heimir og Stefán Guðnason fóru heldur betur á kostum í dag





16. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Dramatískur sigur Akureyrar á Fram - umfjöllun

Það vantaði ekki dramatíkina og spennuna í leik Fram og Akureyrar sem sýndur var beint í sjónvarpinu í dag. Líkt og í fyrstu tveim leikjunum hikstaði Akureyrarliðið á upphafsmínútunum og lentu 4-1 undir en þá fóru menn að sýna sitt rétta andlit. Guðmundur Hólmar jafnaði í 6-6 eftir sextán mínútna leik og í kjölfarið komst Akureyri yfir í 6-7 og síðan 7-8.

Fram jafnaði og náði frumkvæðinu í leiknum og náði tveggja marka forystu 12-10 meðan lítið gekk hjá Akureyri og Fram sigldi framúr með fjögurra marka forystu 7-13 í hálfleik.

Eftir góðan sprett um miðbik hálfleiksins voru lokamínúturnar frekar slakar. Vörnin náði sér ekki almennilega á strik en Sveinbjörn átti þrátt fyrir það þokkalegan leik í markinu. Heimir Örn Árnason var gríðarlega öflugur í sókninni og skoraði fjögur mikilvæg mörk.

Akureyrarliðið byrjaði seinni hálfleikinn af krafti, skoraði fyrstu tvö mörkin og Guðmundur Hólmar Helgason minnkaði muninn í eitt mark, 18-17 með tveim dúndurskotum. Fram liðið lagði þó ekki árar í bát og náði aftur fjögurra marka forystu 21-17. Lengst af hálfleiksins hafði Fram 2 – 4 marka forystu og virtust alltaf ná að svara fyrir sig við hverja atlögu Akureyrar.

En Akureyrarliðið gafst aldrei upp og greinilegt að gríðarleg einbeiting býr í mannskapnum. Sem dæmi um það má nefna að þegar Sveinbjörn fékk á sig ódýrt mark frá Halldóri Jóhanni Sigfússyni þótti honum það ekki boðlegt, skipti sjálfum sér útaf og Stefán Guðnason kom í markið í stöðunni 27-23.

Þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka var staðan 28-24 fyrir Fram og flestir trúlega farnir að bóka öruggan sigur þeirra í leiknum, ekki síst í stöðunni 31-28. En þessar lokamínútur verða lengi í minnum hafðar. Grimmdin kom upp í vörninni og innkoma Stefáns Guðnasonar var hreint út sagt mögnuð, á þessum tíma varði hann sjö skot og þar af tvö vítaköst með tilþrifum. Heimir Örn Árnason var yfirvegaður í lokin, skoraði tvö mörk og jafnaði í 31-31 áður en Guðmundur Hólmar Helgason kórónaði stórkostlegan leik sinn þegar hann skoraði tólfta mark sitt í leiknum sem jafnframt reyndist sigurmarkið 31-32.

Fram fékk reyndar dauðafæri til að jafna leikinn en Stefán Guðnason setti punktinn yfir i-ið með glæsilegri vörslu.

Fram fékk boltann á lokasekúndum leiksins en Hörður Fannar tók enga áhættu og hindraði að Fram kæmist í sókn og fékk rautt spjald að launum.

Það var því stiginn trylltur norðlenskur sigurdans í Safamýrinni en Framarar að sama skapi svekktir að fara tómhentir eftir að hafa haft þægilega forystu lengst af í leiknum.

Guðmundur Hólmar Helgason átti stórbrotinn seinni hálfleik þar sem hann skoraði níu mörk með þrumuskotum og tólf mörk alls í leiknum. Heimir Örn Árnason lék að sama skapi einn sinn besta leik fyrir Akureyrarliðið, níu mörk og stjórnaði sóknarleiknum eins og hershöfðingi.

Þrátt fyrir þennan góða sigur þá er ljóst að það býr miklu meira í liðinu, Oddur Gretarsson, Bjarni Fritzson, Hörður Fannar Sigþórsson og Geir Guðmundusson eiga t.d. mikið inni. Liðið fékk aðeins tvö vítaköst í leiknum og vakti athygli að þau fóru bæði forgörðum sem er mjög óvanalegt.

Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 12, Heimir Örn Árnason 9, Bjarni Fritzson 4, Oddur Gretarsson 4, Guðlaugur Arnarsson 2 og Hörður Fannar Sigþórsson 1 mark.

Sveinbjörn Pétursson varði 13 skot og Stefán Guðnason 7 og þar af tvö vítaköst eins og áður segir.

Hjá Fram voru Jóhann Gunnar Einarsson og Róbert Aron Hostert langatkvæðamestir í markaskorun og Magnús Gunnar Erlendsson öflugur í markinu.

Sannarlega mikilvægur sigur sem þýðir að Akureyri og FH eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.
Staðan í deildinni eftir þrjár umferðir
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. FH330093 : 69246:0
2. Akureyri3300101 : 83186:0
3. HK320195 : 98-34:2
4. Haukar320172 : 76-44:2
5. Fram310293 : 9212:4
6. Selfoss310284 : 94-102:4
7. Valur300384 : 95-110:6
8. Afturelding300370 : 85-150:6

Myndir frá leiknum og umfjöllun er komin á sport.is

Þeir sem misstu af leiknum geta horft á hann á vef RÚV allavega næstu tvær vikurnar. Smelltu hér til að horfa á leikinn.

Næsta verkefni liðsins er bikarleikur á þriðjudaginn gegn HK í Kópavogi og síðan heimaleikur gegn Haukum en sá leikur verður föstudaginn 22. október klukkan 19:00 í Íþróttahöllinni.

Tengdar fréttir

Stefán Guðnason er stór

23. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Furðuvarsla Stebba Guðna gegn Fram

Akureyri mætir Fram í Safamýri á fimmtudaginn og má búast við hörkuleik enda bæði lið verið að spila vel að undanförnu. Framarar eru í toppbaráttu á meðan Akureyri hefur verið að þokast upp töfluna eftir erfiða byrjun. Bæði lið hafa þó nýverið tapað fyrir toppliði Hauka.

Akureyri sótti einmitt Fram heim í Safamýrina þann 16. október 2010 í N1-deild karla. Framarar leiddu allan leikinn og þegar langt var liðið á síðari hálfleikinn var staðan 27-23 og allt útlit fyrir sigur heimamanna. En þá kom Stefán Guðnason (Uxinn) í mark Akureyrar og hann lokaði hreinlega markinu (64% markvarsla), þetta nýtti Akureyrarliðið sér vel og vann á endanum 31-32.

Hér má sjá þegar Stefán ver vítakast sem Einar Rafn Eiðsson tók en varslan er vægast sagt furðuleg en reyndist gríðarlega dýrmæt þegar upp var staðið.



Atli hrósaði sigri í baráttuleik

17. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir Fram leikinn á laugardaginn?

Stefán Stefánsson blaðamaður mbl.is tók Atla Hilmarsson, þjálfara Akureyrar og Einar Jónsson, aðstoðarþjálfara Fram, tali eftir leikinn. Eins og gefur að skilja voru þeir miskátir í leikslok:

Atli: Nánast með tapaðan leik

„Ég er ótrúlega stoltur af mínu liði, við vorum nánast með tapaðan leik og ég hélt að þetta væri endanlega farið hjá okkur þegar vítið klikkaði í lokin en við héldum áfram og svo bættist við frábær innkoma Stefáns í markinu í lokin,“ sagði Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar eftir 31:32 sigur á Fram í Safamýrinni í dag.

„Mér fannst lið mitt einhvern veginn geta haldið áfram endalaust. Það var líka gott að setja Bjarna Fritzson fyrir utan með tvö góð mörk, það hjálpaði mikið og svo var Guðmundur Hólmar með frábæran leik. Fyrst og fremst held ég að trúin á að við gætum unnið hafi alltaf verið til staðar og svo er líka auðvitað reynsla í liðinu, til dæmis hvernig Heimir Örn stjórnaði spilinu“.

Með sigrinum komust Akureyringar upp að hlið FH en bæði lið hafa unnið alla þrjá leiki sína. „Við höldum bara áfram en eigum HK í bikarnum á þriðjudaginn og svo Hauka á föstudaginn svo það eru þrír leikir á sex dögum. Maður spilar ekki svo vikum skiptir en svo koma þrír leikir í einu. Við tökum því og söfnum nú kröftum fyrir næsta leik.“

Einar: Grátlegt að tapa því menn lögðu sig fram

„Það var grátlegt að tapa þessu því leikmenn lögðu sig mikið fram enda var himinn og haf á milli þessa leiks og síðasta gegn HK. Það er því margt jákvætt en samt engin stig og það stendur upp úr,“ sagði Einar Jónsson aðstoðarþjálfari Fram eftir 31:32 tap fyrir Akureyri í Safamýrinni í dag þegar þriðju umferð N1-deildar karla lauk.

„Ég held að reynslan hafi skipti einhverju máli í lokin. Heimir hjá þeim er mjög öflugur svo kom ungi strákurinn Guðmundur hrikalega sterkur en ég held að vendipunkturinn í leiknum hafi að mörgu leiti verið þegar við missum Magnús Stefánsson út úr vörninni vegna meiðsla. Það gerði okkur enn erfiðarar fyrir auk þess að okkur tekst ekki að skora úr tveimur vítum á síðustu mínútunum. Það reyndist dýrt þegar upp er staðið“.

Þrátt fyrir að hafa aðeins tvö stig eftir þrjár umferðir ætlar Einar sér meira. „Akureyri er talið eitt öflugasta liðið í deildinni og við viljum auðvitað vera í efri hlutanum líka en heilt yfir er ég nokkuð ánægður með strákana og sigurinn hefði getað farið á hvorn veginn sem var“.


Stefán Stefánsson blaðamaður mbl ræddi einnig við Guðmund Hólmar Helgason og Stefán Guðnason eftir leikinn:

Guðmundur Hólmar: Við gáfumst ekki upp

„Boltinn datt inn hjá mér í dag og það er frábært, sérstaklega ef liðið vinnur og það skiptir mestu máli,“ sagði Guðmundur Hólmar Helgason sem gerði 12 mörk í dramatískum sigri Akureyringa á Fram í Safamýrinni á laugardaginn þegar norðanmenn skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins og unnu 32:31. Þar með hafa þeir unnið alla þrjá leiki sína og deila efsta sæti N1-deildarinnar með FH.

„Við vorum í basli þegar vörnin náði ekki að smella saman, við hleyptum þeim alltof nálægt þegar þeir fengu að fara rétt innfyrir punktalínu til að skjóta yfir okkur svo að Sveinbjörn í markinu sá ekki neitt en smám saman komst vörnin í lag og þá um leið sóknin og markvarslan. Við sýndum þá góðan karakter og unnum. Okkar markmið er að vera eins ofarlega og við getum en viljum auðvitað komast eins hátt og við getum og vinna titla. Leikreynslan skiptir miklu máli, við erum með menn eins og Guðlaug, Heimi Örn, Hörð Fannar og Bjarna Fritzson en þeir hafa kennt okkur þessum ungu mikið. Mikilvægast er að liðsheildin er sterk, við gáfumst ekki upp þrátt fyrir að vera undir næstum allan leikinn.“

Guðmundur Hólmar er 18 ára og byrjaði að æfa með meistaraflokki fyrir þremur árum. „Ég fékk nokkrar mínútur í fyrra en þá vorum við með góðan mann í minni stöðu, nú er ég meira kominn með fast sæti í liðinu. Ég er svona ungi leikmaðurinn og á að skjóta, það er auðvitað pressa á mér með að skora en maður guggnar ekki á því. Ég þarf að axla mikla ábyrgð og maður verður bara að stíga fram og taka því. Ég er að fá frábært tækifæri og Atli þjálfari og Heimir hafa leiðbeint mér mikið af mikilli visku. Frá því maður byrjaði að æfa var stefnan sett á að spila erlendis en maður verður að vera raunsær, gera sitt besta og vona að það skili mér sem lengst. Við finnum mikinn stuðning við liðið á Akureyri og það var líka í fyrra þegar margir mæta á leiki og skapa góða stemmingu. Maður finnur líka þegar maður fer til dæmis í sund að þá er verið að ræða síðasta leik og þann næsta. Það er bara gaman. Svo standa allir með manni, öll fjölskyldan eins og hún leggur sig“.

Stefán Guðnason: Nýta tækifærið þegar kallið kemur

Það var ekki bara Guðmundur Hólmar sem lét til sín taka, undir lokin kom Stefán Guðnason í markið og varði án afláts, m.a. tvö vítaköst sem ekki bara kveikti í hans mönnum heldur slökkti líka á Frömurum. Ég er að koma til baka eftir að hafa verið meiddur í tvö og hálft ár svo ég bjóst ekki við mörgum mínútum í byrjun móts en mér tókst að nýta tækifærið, maður verður að vera klár þegar kallið kemur,“ sagði Stefán eftir leikinn.


Rúv býður okkur upp á að fylgjast með leiknum beint

16. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Fram - Akureyri í beinni á RÚV

Nú styttist í að leikur Fram og Akureyrar í N1 deild karla hefjist. Leikurinn er í beinni útsendingu í sjónvarpinu á RÚV. Einnig er hægt að horfa á leikinn á vef RÚV og er hægt að smella hér til að horfa á leikinn.


Bjarni á von á hörkuleik gegn Fram

14. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Baráttuleikur gegn Fram á laugardaginn - í beinni á RÚV

Akureyri sækir Fram heim nú á laugardaginn í lokaleik 3. umferðar N1 deildarinnar. Fyrir leikinn er Akureyri með fjögur stig og Fram með tvö stig en þeir töpuðu illa fyrir HK í síðustu umferð. Fram liðið er vel mannað eins og við röktum í grein hér um daginn og fullvíst að þeir mæta dýrvitlausir til leiks og ætla að bæta fyrir síðasta tap.

Vikudagur tók Bjarna Fritzson tali varðandi Framleikinn: „Þetta verður hörkuleikur. Við mætum Framliðinu eflaust þokkalega grimmu eftir tapið gegn HK í síðasta leik. Þeir eru með fínt lið Framarar og þetta verður eflaust jafn og spennandi leikur,“ segir Bjarni.

Leiknum verður sjónvarpað beint á RÚV og hefst útsendingin klukkan 15:30 en leikurinn sjálfur 15:45. „Það er rosalega gaman að fá sjónvarpsleik og allir ungu strákarnir í liðinu eru búnir að liggja í ljósabekkjunum og strípa á sér hárið“ segir Bjarni í léttum tón.

Bjarni hefur farið á kostum í þessum tveim leikjum sem búnir eru og kominn með 23 mörk í þeim, hann vill þó ekki hæla sjálfum sér of mikið en segir liðsheildina einfaldlega vera sterka. „Við erum að ná ágætlega saman allir í liðinu og ég nýt bara góðs af því. Það er bara fínt að byrja svona vel, við erum búnir að æfa vel og erum í fínu standi.“


Bjarni skorar gegn Gróttu á Opna Norðlenska mótinu í haust

Við sendum baráttukveðjur til Bjarna og félaga um leið og við hvetjum alla stuðningsmenn sem verða á Höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn til að mæta í Framheimilið og styðja strákana til sigur.

Það er svo stutt í næstu verkefni, bikarleikur gegn HK í Kópavoginum á þriðjudagskvöldið og síðan stórleikur í Höllinni á föstudaginn þegar Íslands- og bikarmeistarar Hauka koma í heimsókn.


Fram lék okkur grátt í síðasta leik í fyrravetur

13. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Sjónvarpsleikur gegn Fram á laugardaginn

Næsti leikur Akureyrar Handboltafélags er næstkomandi laugardag þegar strákarnir heimsækja Fram í N1 deildinni. Leikurinn hefst klukkan 15:45 verður í Framhúsinu við Safamýri en jafnframt í beinni útsendingu á ríkissjónvarpinu. Við skulum lítillega kynna andstæðingana.

Fram liðið olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili þrátt fyrir að vera með öflugan leikmannahóp gekk ekkert upp hjá liðinu þar til í lok mótsins að þeir björguðu sér frá falli úr N1 deildinni.

Fram ætlar greinilega ekki að lenda í sömu hremmingum í vetur og hefur verið gripið til ýmissa ráða, góðkunningi okkar hér að norðan, Reynir Stefánsson er kominn í stjórn og búið að stokka heilmikið upp í kringum félagið.

Nýr þjálfari er kominn til starfa, markvörðurinn Reynir Þór Reynisson sem hefur áður þjálfað karlalið Víkings og kvennalið Fylkis.
Tveir fyrrum leikmenn Fram sneru til baka, leikstjórnandinn Sigfús „Siffi“ Sigfússon sem hefur leikið með Val undanfarin ár og stórskyttan Jóhann Gunnar Einarsson sneri heim frá Þýskalandi þar sem hann lék hluta úr síðasta vetri með 3. deildarliðinu Kassel.
Fleiri leikmenn hafa bæst í liðið, t.d. markverðirnir Björn Viðar Björnsson úr Víkingi og Ástgeir Rúnar Sigmarsson frá Selfossi. Svo og hornamaðurinn Kristján Svan Kristjánsson frá Stjörnunni.

Fram missti hinsvegar baráttumanninn Guðjón Finn Drengsson sem fór til Selfoss, markvörðurinn Sigurður Örn Arnarsson sneri á ný í til FH og Hafsteinn Ingason skipti yfir til ÍR. Síðast en ekki síst þá fór leikstjórnandinn Daníel Berg Grétarsson til HK.
Hornamaðurinn Stefán Stefánsson glímir við erfið meiðsli og er úr leik sem stendur.

Framarar fóru vel af stað í fyrsta leik N1-deildarinnar og unnu Selfoss tiltölulega þægilega en misstigu sig illa á móti HK í síðasta leik og er viðbúið að þeir ætli að sýna sjálfum sér og stuðningsmönnum að það gerist ekki aftur.

Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 9 mörk á móti Selfoss en hafði hægar um sig gegn HK þar sem hann skoraði 2 mörk. Önnur skytta, Róbert Aron Hostert átti góða leiki og skoraði samtals 11 mörk í þessum leikjum.Hornamaðurinn Einar Rafn Eiðsson var mjög drjúgur með samtals 10 mörk og Halldór Jóhann Sigfússon var með 9 mörk. Sterkasti leikmaður Fram í þessum leikjum var þó án efa markvörðurinn Magnús Gunnar Erlendsson sem hefur verið einn jafnbesti maður liðsins undanfarin ár.

Í kynningu Morgunblaðsins fyrir mót var rætt við Halldór Jóhann Sigfússon um stöðu liðsins og við skulum kíkja á það hér:
„Við ætlum okkur ekki að lenda í sömu erfiðleikunum aftur. Nú teljum við okkur vera með mjög sterkan leikmannahóp og ætlum okkur stóra hluti á keppnistímabilinu. Það er mikill hugur í okkur.
Reynir hefur komið inn með breyttar áherslur. Síðan höfum við fengið nokkra leikmenn til okkar svo sem Sigfús Pál, Jóhann Gunnar og Björn Viðar markvörð. Þetta eru allt strákar sem fallið hafa mjög vel inn í hópinn, ekki síst Sigfús og Jóhann sem þekkja vel umhverfið hjá Fram enda uppaldir hjá félaginu. Það er gott að fá uppalda leikmenn heim aftur. Reynir er mjög skipulagður þjálfari. Hann hefur sett undirbúningstímabilið upp á afar skipulagðan hátt og ég held að allir séu sáttir við hans störf. Við í liðinu hlökkum til að vinna með Reyni Þór í vetur og ná árangri undir hans stjórn. Ég tel okkur hafa ástæðu til þess að fara inn í mótið með bjartsýni í huga,“
segir Halldór Jóhann sem auk þess að leika handknattleik með Fram vinnur sem lögreglumaður.

Auk Halldórs Jóhanns leika Fagraskógarbræðurnir Magnús og Hákon Stefánssynir með Fram þannig að við þekkjum aðeins til manna þar á bæ.


Róbert Aron Hostert, Einar Rafn Eiðsson og Magnús Gunnar Erlendsson


Bræðurnir Magnús og Hákon

Það er ljóst að Akureyrar bíður erfitt verkefni á laugardaginn að fylgja eftir góðri byrjun á mótinu en það er næsta víst að allir stuðningsmenn liðsins á höfuðborgarsvæðinu ættu að taka sig til og fjölmenna á leikinn og styðja sína menn. Aðrir sitja örugglega spenntir við sjónvarpið á laugardaginn.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson