Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Hádramatískt jafntefli á Selfossi - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Eftirlitsdómari: Kristján Halldórsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Þetta stig getur reynst dýrmætt
17. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað sögðu menn eftir leikinn á Selfossi?
Við byrjum að tína saman viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna til að fá þeirra sjónarhorn á leikinn. Guðmundur Karl, blaðamaður mbl.is náði tali af Bjarna Fritzsyni:
Bjarni Fritzson: Vörnin rosalega léleg
„Við áttum að klára þennan leik en sóknarleikurinn riðlaðist hjá okkur í seinni hálfleik og hugarfarið var ekki nógu gott hjá okkur,“ sagði Bjarni Fritzson, sem skoraði tólf mörk fyrir Akureyri í 31-31 jafnteflinu á Selfossi í kvöld.
„Vörnin var rosalega léleg hjá okkur en sóknarleikurinn þokkalegur. Það vantaði samt að fleiri hefðu tekið af skarið í sókninni. En kannski verður þetta stig bara geðveikt mikilvægt í lokin og þá getum við verið ánægðir,“ sagði Bjarni í samtali við mbl.is eftir leik.
„Við misstum Gumma [Guðmund Hólmar] meiddan út snemma í seinni hálfleik og við það riðlast sóknarleikurinn. Þetta var vandræðalegt á köflum en við náðum engum hraðaupphlaupum í seinni hálfleik og vorum latir að hlaupa til baka,“ sagði Bjarni ennfremur.
Bjarni átti stórleik í kvöld
Guðmundur Egill Gunnarsson, blaðamaður sport.is ræddi við þjálfara liðanna:
Atli Hilmarsson: Megum þakka fyrir stig í lokin
Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyringa, var að vonum ekki ánægður með að liðið sitt skyldi missa niður fimm marka forystu á útivelli gegn Selfyssingum í kvöld.
„Við köstum þessu frá okkur en megum þakka fyrir að fá stig í lokin. Við fórum að spila mjög illa, klikkuðum úr dauðafærum og varnarleikurinn gekk ekki upp eins og í fyrri hálfleik og því fór sem fór.“
Akureyringar eru þrátt fyrir tapið í kvöld enn í toppsæti deildarinnar og í bílstjórasætinu í baráttunni um deildarmeistaratitilinn.
„Við þurfum að vinna tvo leiki og reyna að taka deildarmeistaratitilinn. Síðan er það bara úrslitakeppni og spilin verða stokkuð upp á nýtt. Það er hinsvegar mjög mikilvægt fyrir okkur að fá heimaleikjaréttinn og til þess þurfum við að vinna tvo leiki í viðbót og auðvitað er stefnan sett á það.“
Gríðarlega góð stemning myndaðist í íþróttahúsinu á Selfossi í kvöld en umdeilt atvik átti sér stað á lokaandartökum leiksins þegar Selfyssingar skoruðu í autt mark Akureyringa en dómarar leiksins dæmdu markið ekki gilt því ekki var búið að flauta miðju.
„Það var mjög góð stemning hér í kvöld og Selfoss-liðið gafst aldrei upp og voru einfaldlega að berjast fyrir lífinu sínu og uppskáru eftir því. Dómarinn vill meina að hann hafi ekki verið búinn að flauta og það verður bara að taka því. Hann var ekki búinn að flauta miðjuna á og það var skýringin sem ég fékk frá dómurunum og það verður bara að taka henni.“
Sebastian Alexandersson: Við höfum hjartað
Sebastian Alexandersson var ánægður með að Selfoss hafi náð í stig úr leiknum í dag en fannst sínir menn reknir útaf fyrir litlar sakir í fyrri hálfleik. „Mér fannst við ekkert svo skelfilegir í byrjunar. Við vorum einfaldlega týndir útaf fyrir brot sem áttu sér stað allan leikinn. Línan hjá dómurunum breyttist hinsvegar eftir því sem leið á leikinn.“
Selfyssingar hafa verið á mikilli siglingu undanfarið og ætla að selja sig mjög dýrt til að halda sæti sínu í deildinni. Sebastian segir liðið sitt hafa það sem til þarf til að halda sér í deildinni.
„Við erum búnir að vera að gera þetta í allan vetur. Við höfum alltaf komið til baka alveg sama við hvern við höfum spilað og það hafa öll lið í deildinni sýnt okkur þá virðingu að vanmeta okkur ekki. Ég er ánægður með mitt lið, við höfum karakter og við höfum hjartað. Sumir segja að þetta hafi ekki fallið með okkur en ég er ósammála. Við erum ekki búnir að tapa í síðustu þremur leikjum, höfum tekið fjögur stig af sex mögulegum sem mér finnst við hefðum átt að taka en svona er sportið.
Í fyrri parti mótsins vorum við ekki í þeirri stöðu að eiga séns á að vinna leiki en um leið og við eigum séns þá tökum við stigin. Eitt stig í dag var betra en ekkert en við áttum að vinna í dag en svo geta Akureyringar líka sagt að þeir hafi verið fimm mörkum yfir og tíu mínútur eftir þannig en ég er ósammála. Leikurinn þróaðist þannig að við gátum unnið hann en það gerðist ekki, jafnteflið gegn Haukum var mikið sárara en þetta.“
Mjög umdeilt atvik átti sér stað í lok leiksins þegar Akureyringar höfðu skipt markmanni sínum útaf til að vera með fleiri menn í sókninni. Oddur Gretarsson jafnaði leikinn og Selfyssingar fóru í hraða miðju og skoruðu í autt markið en dómarar leiksins vildu meina að miðjan hefði ekki verið tekin rétt við mikla óánægju áhorfenda á Selfossi.
„Dómarinn hefur sína samvisku og hann er harður á því að hann hafi ekki stigið á línuna. Ég held að það hafi munað svona feti, ég veit að þetta skiptir máli og reglur eru reglur en hversu margar hraðar miður hafa verið teknar í vetur án þess að menn hafi stigið akkúrat á línuna. Það hefði þurft gríðarlegt hugrekki til að flauta þetta mark og dómarinn er sannfærður um að hann hafi gert rétt og ég verð bara að treysta honum.“
Guðmundur Karl, blaðamaður mbl.is talaði einnig við þjálfarana eftir leikinn:
Atli Hilmarsson: Hentum sigrinum frá okkur
„Við vorum komnir með unninn leik en á einhvern óskiljanlegan hátt slökuðum við á í lokin. Við klúðruðum þessu sjálfir og ekkert annað. Selfyssingar höfðu alltaf trú á að þeir gætu fengið eitthvað út úr leiknum og þeir verðskulduðu stigið. Í heildina spiluðum við ágætlega en misnotuðum góð færi í lokin og fengum mörg hraðaupphlaup á okkur í kjölfarið,“ sagði Atli.
Sebastian Alexandersson: Virkilega stoltur af mínu liði
„Við lentum í miklu mótlæti í fyrri hálfleik og náum að lifa af sex marka mun á móti besta liði landsins. Við unnum seinni hálfleikinn með fjórum mörkum og vorum í dauðafæri að klára leikinn. Þetta var bara „deja vu“ frá síðasta heimaleik á móti Haukum,“ sagði Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfoss, í samtali við Morgunblaðið eftir leik.
„Nú erum við búnir að henda frá okkur tveimur stigum fyrst á móti Íslandsmeisturunum og núna á móti verðandi deildarmeisturum. Við erum bara mættir og ég vona að það sé ekki of seint en ég er virkilega stoltur af mínu liði í kvöld,“ sagði Sebastian einnig.
Atli fer með sína menn austur fyrir fjall
17. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Selfoss – Akureyri – útvarpslýsing
Þá byrjar ballið aftur og Akureyrarliðið heldur á Selfoss í dag. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og skömmu áður hefst útvarpslýsing Adda Gunn og verður hægt að fylgjast með henni hér á síðunni.
Við vitum ekki annað en að allir leikmenn séu klárir í slaginn nema hvað Geir Guðmundsson og Hreinn Hauksson hafa verið úr leik og engin breyting á því í dag.
Ef útsendingin hljómar ekki nú þegar í tölvunni skaltu að sjálfsögðu passa að hafa kveikt á hátölurunum, ef það er ekki nóg skalt prófa að smella á linkinn í glugganum hér að ofan.
Ef spilarinn opnast ekki beint þarf hugsanlega að samþykkja að keyra viðbótarforrit sem boðið er upp á.
Einnig er hægt að fara á heimasíðu þeirra sem er http://963.is/ og smella síðan á myndina efst á síðunni til að hlusta.
Útvarp Suðurland og Addi Gunn klikka ekki frekar en fyrri daginn
16. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Selfoss - Akureyri á fimmtudaginn, bein útvarpslýsing
Á morgun, fimmtudag rúllar N1 deild karla af stað á ný eftir landsleikjahlé. Akureyri sækir Selfyssinga heim og þarf ekki að hafa mörg orð um mikilvægi leiksins fyrir bæði liðin. Þó staða Akureyrar sé vænleg á toppi deildarinnar þá mega menn ekkert misstíga sig og munu leikmenn að sjálfsögðu mæta af fullum krafti til leiks og ætla sér ekkert annað en sigur í leiknum.
Þó að Selfyssingar sitji í neðsta sæti deildarinnar þá halda þeir enn í vonina um áframhaldandi veru í N1-deild karla á næsta tímabili eftir góða ferð í Kópavoginn í síðustu umferð þar sem þeir unnu sannfærandi sigur á HK, 24-27 eftir að hafa haft fjögurra marka forustu í hálfleik.
Í næstu umferð þar á undan áttu þeir heimaleik gegn Haukum sem tókst með herkjum að krækja í jafntefli á lokasekúndum leiksins. Að sögn fjölmiðla var það reyndar með aðstoð frá dómurum leiksins sem færðu Haukum boltann á silfurfati á lokaandartökunum.
Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfoss stóð í markinu hjá þeim gegn HK og varði eins og berserkur eða 19 skot en í sóknarleiknum var það Guðjón Drengsson sem fór fyrir sínum mönnum með 10 mörk. Annar af nýju útlendingunum þeirra, Milan Ivancev gerði sjö mörk og stórskyttan Ragnar Jóhannsson markahæsti maður deildarinnar gerði 6 mörk.
Það er því alveg ljóst að Selfyssingar eru á fljúgandi siglingu þessa dagana og Akureyri þarf að ná toppleik til að knýja fram hagstæð úrslit úr leiknum.
Líkt og þegar liðin mættust þann 10. febrúar síðastliðinn þá verður útvarp Suðurlands FM96.3 með beina útvarpslýsingu frá leiknum og þar er það enginn annar en Arnar Gunnarsson, Addi Maze sem verður við hljóðnemann. Eins og þeir vita sem fylgdust með lýsingunni síðast þá er Addi engum líkur og kryddar lýsinguna með kjarnyrtum lýsingarorðum. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og útsendingin væntanlega rétt áður.
Ef útsendingin hljómar ekki nú þegar í tölvunni skaltu að sjálfsögðu passa að hafa kveikt á hátölurunum, ef það er ekki nóg skalt prófa að smella á linkinn í glugganum hér að ofan.
Ef spilarinn opnast ekki beint þarf hugsanlega að samþykkja að keyra viðbótarforrit sem boðið er upp á.
Einnig er hægt að fara á heimasíðu þeirra sem er http://963.is/ og smella síðan á myndina efst á síðunni til að hlusta.
Arnar, Addi Gunn eða Addi Maze eins og við könnumst best við hann er að sjálfsögðu Akureyringum að góðu kunnur en hann lék hér bæði með Þór og raunar einnig með KA á árum áður en hefur undanfarin ár leikið með Selfyssingum og þjálfað með góðum árangri.
Hér eru tvær myndir sem við fundum af Adda. Á þeirri eldri sem er frá 1999 er Arnar með viðurkenningu sem hann hlaut sem handknattleiksmaður Þórs árið 1999. Hin myndin sýnir þá félaga Arnar (í Akureyrarbúning) og Hafþór Einarsson í góðu yfirlæti í Laugardalshöllinni að fylgjast með bikarúrslitaleik Akureyrar og Vals. Það er nokkuð ljóst með hvoru liðinu þeir standa.