Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Akureyri tapaði fyrir Fram í hörkuleik - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur Pétursson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Það er viðbúið að margir norðanmenn fylgist með útsendingu SportTV í dag
5. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Fram - Akureyri í beinni á SportTV.is
Það er komið að mikilvægum leik í dag þegar Akureyri heldur í Framhúsið og mætir þar heimamönnum sem hafa farið vel af stað í N1 deildinni og sótt fjögur stig í Hafnarfjörðinn þar sem þeir sigruðu bæði FH og Hauka. Það er ljóst að Akureyrarliðið þarf að taka á öllu sínu og því köllum við eftir stuðningi okkar manna á höfuðborgarsvæðinu, ekki veitir ef eftir þau skakkaföll sem leikmannahópurinn hefur þurft að mæta.
Framarar ætla að bjóða upp á grillaða Fabrikkuborgara og drykki fyrir leikinn og segjast kveikja upp í grillinu klukkan 17:30.
Fyrir þá sem heima sitja þá verður leikurinn sýndur beint á vef SportTV.is og hefst útsendingin væntanlega rétt fyrir klukkan 18:30 líkt og leikurinn sjálfur.
3. umferð N1 deildar karla hefst miðvikudaginn 5. október með leik Fram og Akureyrar. Leikið verður í Framhúsinu í Safamýrinni og hefst leikurinn klukkan 18:30. Framliðið hefur byrjað með miklum glæsibrag og er með fullt hús stiga eftir umferðirnar tvær, útisigrar gegn FH og Haukum þannig að það er eðlilega mikil hamingja í þeirra herbúðum.
Framliðið er töluvert breytt frá síðasta tímabili, nýir leikmenn eru t.d. Ingimundur Ingimundarson, Sigurður Eggertsson, Ægir Hrafn Jónsson svo og markvörðurinn Sebastian Alexandersson. Frá Fram fóru t.d. bræðurnir Magnús og Hákon Stefánssynir (kenndir við Fagraskóg), Magnús fór til ÍBV og Hákon til Stjörnunnar. Einnig fór línumaðurinn Haraldur Þorvarðarson til Stjörnunnar, skyttan Andri Berg Haraldsson fór til FH svo einhverjir séu nefndir. Þá urðu þjálfaraskipti, Reynir Þór Reynisson lét af störfum og við tók Einar Jónsson sem hefur stýrt kvennaliði Fram undanfarin ár og gerir enn.
Það er alveg á hreinu að þetta verður erfiður leikur og mikilvægt að stuðningsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu fjölmenni og styðji við sína menn sem hafa fengið að kenna illilega á meiðslum upp á síðkastið og leikmannahópurinn þunnskipaður fyrir vikið.
Samkvæmt heimildum okkar þá mun SportTV sýna leikinn í beinni útsendingu á vefnum og munum við setja inn link á útsendinguna.