Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Dramatískt tap gegn Haukum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2011-12

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Haukar - Akureyri  23-22 (14-13)
N1 deild karla
Ásvellir
Fim 13. október 2011 klukkan: 18:30
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur Pétursson
Umfjöllun

Bjarni Fritzson var markahæstur í kvöld

13. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Dramatískt tap gegn Haukum

Það munaði grátlega litlu að Akureyri tæki stig á Ásvöllum í kvöld gegn Haukum. Birkir Ívar varði síðasta skot leiksins og kom þannig í veg fyrir jafntefli. Auk þess fóru fimm vítaköst Akureyrarliðsins forgörðum í leiknum og það kostaði sitt.

Haukar byrjuðu betur og náðu mest fjögurra marka forskoti 9-5 og síðan aftur 13-9 en Akureyri gafst aldrei upp og minnkuðu muninn niður í 13-12 og hálfleikstölur voru 14-13.

Aftur byrjuðu Haukarnir betur í seinni hálfleik og komust í 18-14 en þrjú norðanmörk í röð minnkuðu muninn í 18-17. Þegar níu mínútur voru eftir af leiknum jafnaði Bjarni Fritzson í 20-20 og lokamínúturnar urðu æsispennandi.

Haukarnir urðu alltaf fyrri til að skora en eins og kemur fram í upphafi þá varði Birkir Ívar síðasta skot leiksins og tryggði Haukum þar með sigurinn.

Akureyrarliðið lék á köflum mjög vel í dag og skapaði sér góð færi en afleit nýting á vítalínunni fór með sigurmöguleikana, einungis nýttust tvö víti af sjö sem liðið fékk.

Sveinbjörn Pétursson sýndi magnaðan leik í markinu og Hreinn Þór Hauksson kom sterkur inn í vörnina, beint úr flugi frá Svíþjóð.


Hreinn var magnaður í vörninni í kvöld. Mynd: Snorri Sturluson Sport.is

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 8 (1 víti), Oddur Gretarsson 5 (1 víti), Geir Guðmundsson 4, Bergvin Gíslason 2, Guðmundur Hólmar Helgason 2 og Halldór Örn Tryggvason 1.
Sveinbjörn Pétursson varði 14 skot og var valinn maður leiksins hjá Akureyri.

Mörk Hauka: Heimir Óli Heimisson 7, Tjörvi Þorgeirsson 4, Stefán Rafn Sigurmannsson 4, Nemanja Malovic 3, Freyr Brynjarsson 2 , Þórður Rafn Guðmundsson 2, Gylfi Gylfason 1.
Birkir Ívar Guðmundsson varði 21 skot og þar á meðal 4 vítaköst.

Næsti leikur Akureyrar er næstkomandi fimmtudag, heimaleikur gegn Val og eru allar horfur á því að Hreinn Þór Hauksson leiki þá einnig á fjölum Íþróttahallarinnar.


Bjarni og Oddur voru markahæstir Akureyringa. Mynd: Snorri Sturluson Sport.is

Sjá fleiri myndir Snorra Sturlusonar frá leiknum.


Tengdar fréttir

Hvaða tromp verða Atli og Sævar með í bakhöndinni í kvöld?

13. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Haukar – Akureyri í beinni textalýsingu

Enn á ný er runninn upp leikdagur, að þessu sinni sækjum við Hauka heim að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og ef að líkum lætur munu bæði lið leggja allt í sölurnar til að landa sigri í dag.

Sjónvarpsstöðvarnar ætla ekki að vera með leikinn í beinni útsendingu en við höfum gert ráðstafanir til að vera með beina textalýsingu frá leiknum hér á síðunni.

Það þarf ekki að taka það fram að stuðningsmenn Akureyrarliðsins á Höfuðborgarsvæðinu hafa sýnt það á liðinum árum að þeir eru betri en enginn og hvetjum við þá til að fjölmenna á leikinn og taka virkan þátt í baráttunni.

Eins og vanalega þá er einfalt að fylgjast með textalýsingunni, hún opnast á sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 15 sekúndna fresti.

Smelltu hér til að fylgjast með textalýsingunni.


Það er ekki amalegt að eiga Hrein í bakhöndinni

11. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hreinn Hauksson leggur Akureyri lið á ný

Akureyri Handboltafélag á mikilvægan leik á fimmtudaginn þegar liðið mætir Haukum á Ásvöllum. Eins og alþjóð veit þá eru lykilmenn í Akureyrarliðinu að glíma við meiðsli og verða frá í nokkrar vikur, þannig eru Heimir Örn Árnason og Hörður Fannar Sigþórsson báðir úr leik og nú síðast bættist Heiðar Þór Aðalsteinsson í hópinn, ristarbrotinn. Fyrir voru á meiðslalistanum þeir Daníel Einarsson og Ásgeir Jónsson.

Það var því ljóst að eitthvað varð til bragðs að taka og var brugðið á það ráð að heyra hljóðið í jaxlinum Hreini Haukssyni sem hefur staðið vaktina undanfarin ár með miklum sóma. Hreinn, sem fluttist til Svíþjóðar í sumar þar sem hann stundar, nám hefur haldið sér í góðu formi og brást vel við og kvaðst til í að leggja sín lóð á vogarskálarnar. Hreinn mun því koma til liðs við sína gömlu félaga á fimmtudaginn og klæðast Akureyrarbúningnum á nýjan leik og ekki spurning að hann mun ekki láta sitt eftir liggja í varnarleiknum frekar en endranær.


Hreinn í leik gegn FH síðastliðið vor



Leikir Hauka og Akureyrar hafa alltaf verið baráttuleikir

11. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn Haukum á fimmtudag

Andstæðingar Akureyrar á fimmtudaginn eru engir aðrir en stórveldið Haukar úr Hafnarfirði. Ekkert félag hefur oftar orðið Íslandsmeistari í karlaflokki frá aldamótum en Haukar. Félagið hampaði m.a. Íslandsmeistarabikarnum þrjú ár í röð 2008, 2009 og 2010 undir stjórn Arons Kristjánssonar.

Aron þjálfaði í Þýskalandi síðastliðið tímabil og en er nú kominn aftur í heimahagana og ætlar sér klárlega að gera betur með liðið en því gekk í fyrra. Haukarnir höfnuðu þá í fimmta sæti deildarinnar og í fyrsta sinn í háa herrans tíð komust þeir ekki í úrslitakeppnina.

Haukunum hefur gengið býsna vel það sem af er, bæði á undirbúningstímabilinu og í upphafi N1 deildarinnar en þeir töpuðu reyndar á heimavelli fyrir Fram í annarri umferðinni.

Nokkrar mannabreytingar hafa orðið hjá Haukum frá síðasta tímabili, skyttan Björgvin Hólmgeirsson og hornamaðurinn Guðmundur Árni Ólafsson eru farnir erlendis og þá lagði reynsluboltinn Einar Örn Jónsson skóna á hilluna.

En Haukarnir hafa líka fengið liðsstyrk, t.d. gekk hornamaðurinn Gylfi Gylfason til liðs við þá eftir 11 ára veru í Þýskalandi. Þá fengu Haukar unga skyttu frá Svartfjallalandi, Nemanja Malovic sem hefur sýnt að hann kann ýmislegt fyrir sér, skoraði t.d. 12 mörk þegar Haukar unnu HK í fyrstu umferðinni.

Eftir þrjár umferðir er Malovic markahæstur þeirra Haukamanna með 15 mörk og Skyttan Stefán Rafn Sigurmannsson næstur með 14 mörk. Stefán var einmitt valinn besti sóknarmaðurinn á Opna Norðlenska mótinu í haust.

Haukarnir eru með öflugan mannskap og verða örugglega erfiðir heim að sækja og því rétt að hvetja Akureyringa sem tök eiga á að drífa sig á Ásvelli á fimmtudaginn, leikurinn hefst klukkan 18:30.

SportTV.is ætlar ekki að sýna leikinn en við vonumst til að geta boðið upp á beina textalýsingu frá leiknum hér á síðunni, nánar um það síðar.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson