Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Góður átta marka sigur Akureyringa á Aftureldingu - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2011-12

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Myndband frá leiknum      Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Afturelding  34-26 (17-13)
N1 deild karla
Íþróttahöllin
Fim 17. nóvember 2011 klukkan: 19:00
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Eftirlitsmaður Valgeir Ómarsson
Umfjöllun

Bjarni, Oddur og Sveinbjörn áttu góðan leik í kvöld





17. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Góður átta marka sigur Akureyringa á Aftureldingu

Akureyri vann í kvöld sinn annan leik í röð í N1-deild karla í handknattleik er liðið hafði betur gegn Aftureldingu, 34-26, í Höllinni á Akureyri í kvöld. Norðanmenn höfðu undirtökin nánast allan leikinn og náðu mest ellefu marka forystu í seinni hálfleik. Afturelding sýndi hins vegar mikinn karakter með að koma til baka og minnka muninn í fjögur mörk en komust ekki nær og Akureyringar fögnuðu mikilvægum tveimur stigum.

Við vitnum hér í umfjöllun Þrastar Ernis Viðarssonar, blaðamanns Vikudags.

Akureyri byrjaði leikinn vel og komst í 4-0. Afturelding komst ekki á blað fyrr en tæplega átta mínútur voru liðnar af leiknum. Sóknarleikur Mosfellinga var slakur og skotin rötuðu oft ekki á rammann. Afturelding tók hins vegar við sér þegar leið á og skoraði næstu þrjú mörk og minnkaði muninn í 4-3 og náði að jafna í 5-5. Jafnt var á tölum næstu mínútur en Akureyringar náðu þriggja marka forystu á ný, 12-9, þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum. Norðanmenn bættu við forystuna fyrir leikhlé og leiddu með fjórum mörkum, 17-13, í hálfleik.

Oddur Gretarsson var allt í öllu í sóknarleik Akureyrar í fyrri hálfleik, skoraði 8 mörk í öllum regnbogans litum. Sveinbjörn Pétursson sýndi takta á kölfum í markinu og varði 8 skot. Hjá Aftureldingu dreifðist markaskorið mikið og markvörðurinn Hafþór Einarsson hefur oft fundið sig sig betur gegn sínum gömlu félögum með 6 skot varin.


Bergvin Gíslason skorar hjá Hafþóri í leiknum

Heimamenn skoruðu fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik og náðu sex marka forystu, 19-13. Akureyri hélt áfram að auka við forystuna og þegar sjö mínutur voru liðnar af seinni hálfleik var staðan 22-14 og ljóst að róðurinn yrði þungur fyrir gestina. Áfram hélt vandræðagangur Aftureldingar í sókninni og heimamenn gengu á lagið með hraðaupphlaupum og juku muninn í níu mörk, 23-14. Reynir Þór Reynisson þjálfari Aftureldingar fékk þá nóg og tók leiklé, þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik.

Akureyringar héldu hins vegar áfram að bæta í forystuna sem var orðinn 11 mörk, 25-14, og fátt virtist koma í veg fyrir stóran norðlenskan sigur. Mosfellingar eru hins vegar ekki þekktir fyrir að gefast upp. Davíð Svansson kom í markið og varði fjögur skot á stuttum tíma og Afturelding minnkaði muninn í kjölfarið niður í sjö mörk, 25-18.


Davíð kemur engum vörnum við þegar Heimir Örn skorar í skrefinu

Davíð hélt áfram að verja og Mosfellingar söxuðu jafnt og þétt á forskotið sem var komið niður í sex mörk, 28-22, þegar tíu mínútur lifðu leiks. Munurinn var minnst niður í fjögur mörk, 30-26, og ennþá þrjár mínútur eftir. Akureyringar hleyptu þeim hins vegar ekki nær. Mosfellingar flýttu sér of mikið í sóknarleiknum og norðanmenn tóku góða rispu í restina og fögnuðu að lokum átta marka sigri, 34-26. Sanngjarn sigur og Akureyringar fara upp í sjö stig en Afturelding hefur áfram fjögur stig.

Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 11, Bjarni Fritzson 11 (3 úr vítum), Guðmundur Hólmar Helgason 4, Bergvin Gíslason 3, Geir Guðmundsson 2, Heimir Örn Árnason 2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 1
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 22.

Mörk Aftureldingar: Sverrir Hermannsson 6, Þorlákur Sigurjónsson 5, Jóhann Jóhannsson 4 (1 úr víti), Þrándur Gíslason 4, Böðvar Páll Ásgeirsson 2, Chris Mcdermont 1, Daníel Jónsson 1, Mark Hawkins 1, Hrannar Guðmundsson 1.
Varin skot: Hafþór Einarsson 5 og Davíð Svansson 8..

Í leikslok var tilkynnt um val á bestu leikmönnum liðanna, hjá Aftureldingu var Jóhann Jóhannsson valinn bestur og Bjarni Fritzson hjá Akureyri. Báðir fengu að launum matarkörfu frá Norðlenska.


Atli og Sævar messa yfir leikmönnum í leikhléi

Hér er hægt að skoða fleiri myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum.

Tengdar fréttir

Gulli ætlar að hirða stig af fleiri liðum á næstunni

19. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir Aftureldingar leikinn?

Við ljúkum umfjölluninni um leik Akureyrar og Aftureldingar með því að kíkja á viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna. Byrjum á viðtölum Andra Yrkils Valssonar á mbl.is:

Oddur Gretarsson: Tímabilið bara rétt að byrja

„Okkur langaði að koma mjög grimmir til leiks eftir þennan skandal í bikarnum. Okkur tókst það vel enda börðumst við af krafti allan tímann þrátt fyrir að leikurinn hafi verið frekar kaflaskiptur, en við vorum þó ávallt skrefinu á undan. Við vorum með gott forskot í hálfleik og vildum halda sama krafti í síðari hálfleik, það tókst og við vorum komnir með mjög þægilegt forskot. Þá slökuðum við hins vegar of mikið á, misstum þá allt of nálægt okkur þegar skammt var eftir, það á alls ekki að gerast og ég er svekktastur með það. En sigur er sigur og ég er mjög ánægður með að hafa fengið öll stigin.“


Oddur átti magnaðan leik með 11 mörk

Spurður út í andann í liðinu segir Oddur hann góðan og Íslandsmótið í raun bara rétt að byrja: „Við spiluðum auðvitað mjög vel í fyrra en þetta hefur verið aðeins erfiðara fyrir okkur í ár. Andinn hefur hins vegar ávallt verið góður og ekkert vesen komið upp. Það er nú bara ein umferð búin og það þýðir ekkert annað en að spýta í lófana og halda áfram, tímabilið er enn bara rétt að byrja í okkar augum og við höfum engar áhyggjur af þessu,“ segir Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar.

Atli Hilmarsson: Ánægður með baráttuna í leiknum

Akureyri fékk slæma útreið í vikunni þegar liðið féll úr leik í bikarkeppninni og segir Atli að skiljanlega hafi liðið verið svekkt eftir þau úrslit. „Þetta eru náttúrulega menn með mikinn metnað og við erum hundsvekktir að hafa dottið úr leik í keppni þar sem við fórum alla leið í fyrra. En það eina sem við getum gert er að snúa bökum saman og reyna að komast í úrslitakeppnina.


Atli var ánægður með sína menn í leinum

Eina leiðin er að svara inni á vellinum enda eiga þessir frábæru áhorfendur það inni hjá okkur. Þeir studdu vel við bakið á okkur í kvöld þrátt fyrir áfallið í bikarnum og vonandi getum við haldið áfram þessum góðu úrslitum í deildinni. Ég er ánægður með baráttuna í þessum leik, þrátt fyrir að við höfum verið að spila við lið sem er fyrir neðan okkur í deildinni erum við fullvissir um að við getum náð í stig af liðunum á toppnum og blandað okkur í baráttuna,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar við Andra Yrkil.

Hafþór Einarsson: Ég er hrikalega fúll

Hafþór Einarsson, markvörður Aftureldingar var ekki ánægður með leik sinna manna í kvöld þegar lið hans mætti Akureyri. „Heilt yfir er ég bara hrikalega fúll,“ sagði Hafþór Einarsson, markvörður Aftureldingar, eftir að hafa þurft að sætta sig við ósigur gegn sínum gömlu félögum í Akureyri, 34:26 í N1-deild karla í handknattleik.

„Okkar leikur var alls ekki nægilega góður. Við byrjuðum rólega en unnum okkur svo inn í leikinn aftur, en í síðari hálfleik misstum við þetta alveg frá okkur. Við lentum í algjörum eltingaleik við þá, við náðum hins vegar að bíta frá okkur þegar leið á og áttum möguleika á að minnka muninn niður í þrjú mörk þegar skammt var eftir, en það virtist fara alveg með okkur og við gátum ekki ógnað þeim neitt meira en það.


Hafþór kemur engum vörnum við gegn Bergvin Gíslasyni

Það litla jákvæða sem við getum tekið úr þessum leik er að hafa náð að vinna upp þetta stóra forskot sem þeir náðu í síðari hálfleik, en að glata því svo aftur niður er náttúrulega alveg óásættanlegt,“ sagði Hafþór Einarsson í viðtali við Andra Yrkil.

Hjalti Þór Hreinsson, blaðamaður visir.is ræddi Guðlaug Arnarsson og fleiri:

GuðlaugurArnarsson: Við viljum meira

„Þetta var baráttusigur á góðu liði,“ segir Húsavíkurtröllið Guðlaugur Arnarsson.
„Við vorum kærulausir undir lokin, vorum að skjóta og snemma og sóknirnar voru ekki nógu góðar. Við misstum þetta aðeins niður, ég vildi klára þetta með stæl.
En sigurinn var góður en nú er það bara einn leikur í einu. Við þurftum þennan sigur til að koma okkur í gang.
Það eru að sjálfsögðu vonbrigði að vera neðarlega í töflunni, næsta verkefni er að vinna liðin fyrir ofan okkur. Við vorum lengi að tjasla saman okkar sterkasta liði og margir ungir leikmenn spreyttu sig. En við viljum meira,“ sagði Guðlaugur, jafnan kallaður Öxlin.

Oddur Gretarsson: Sigur er sigur

„Ég er ekki alveg sáttur,“ segir Oddur.
„En sigur er sigur. Við vorum góðir í korter eða tuttugu mínútur í seinni hálfleik en það situr í mér að hafa slakað svona mikið á.
Það var ekkert að gerast og við fórum niður á lágt plan. Sama plan og gegn FH.
Eftir það tap ákváðum við að mæta brjálaðir til leiks og þetta var skemmtilegur leikur. Smá slagsmál og svona sem menn hlæja að eftir leikinn. Þannig á þetta að vera.
Nú er bara að hala inn fleiri stig, næst er það FH og við ætlum okkur sigur þar,“ segir Oddur í viðtali við Hjalta Þór.

Þrándur Gíslason: Rjúpan að fara með okkur

Þrándur Gíslason, leikmaður Aftureldingar, segir að menn verði að fara að hvíla sig um helgar í staðinn fyrir að fara á rjúpu helgi eftir helgi. Þrátt fyrir gamansaman tón var Þrándur ekki sáttur með leikinn.

„Við vorum lengi að taka við okkur. Við byrjuðum illa en vöknum svo en við vorum of staðir, hreyfðum okkur ekki nóg án bolta. Það má ekki gegn liði eins og Akureyri.
Þeir gerðu þetta vel en við erum ekki alveg sáttir. Við unnum Fram og áttum góðan fyrri hálfleik gegn Gróttu, ég hafði trú á að við myndum rífa okkur upp.
Það gekk ekki alveg eftir. Það var þó gaman að sjá gamla selinn Hrannar koma aftur inn en við verðum að fara aðeins betur yfir okkar leik.
Það vantar ekki ýkja mikið upp á. Menn eru þreyttir, sérstaklega eftir að rjúpnaveiðitímabilið byrjaði“ sagði Þrándur. í viðtali við Hjalta Þór.

Þröstur Ernir Viðarsson blaðamaður Vikudags ræddi við Sveinbjörn Pétursson og Reyni Þór þjálfara Aftureldingar:

Sveinbjörn Pétursson: Sýndum okkar rétta andlit

Sveinbjörn Pétursson átti góðan leik í marki Akureyrar í kvöld í 34-26 sigri norðanmanna á heimavelli gegn Aftureldingu í N1-deild karla. „Þetta var góður sigur og við vorum staðráðnir í að hysja upp um okkur buxurnar eftir skellinn í bikarnum. Við sýndum okkar rétta andlit í kvöld. Við slökuðum kannski fullmikið á í restina en þetta var aldrei í hættu hjá okkur,“ sagði Sveinbjörn eftir leik.


Sveinbjörn átti stórfínan leik

Akureyri sækir FH heim í Kaplakrika og þar eiga norðanmenn slæmar minningar frá leiknum í bikarnum á sunnudaginn var. Sveinbjörn segist hins vegar varla geta beðið eftir þeim leik. „Ég hefði nú helst viljað mæta þeim aftur daginn eftir til að leiðrétta þetta. Ég get allavega lofað því að við erum ekki að fara að bjóða upp á einhvern sirkus þar aftur eins og í bikarnum og ætlum sannarlega að bæta upp fyrir það í næsta leik,“ sagði Sveinbjörn.

Reynir Þór: Við getum staðið í þessum bestu liðum

Reynir Þór Reynisson, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með karakterinn í sínu liðið en Mosfellingar gáfust ekki upp þrátt fyrir að lenda ellefu mörkum undir. „Við náðum að koma vel til baka og það er það jákvæða sem ég tek út úr þessum leik. Mér finnst eins og síðustu tveir leikir sitja enn í okkur. Sérstaklega sigurleikurinn gegn Fram en það fór mikið púður í þann leik og við virðumst ennþá vera að ná okkur eftir það. Við höfum hins vegar sýnt að við getum staðið í þessum bestu liðum og munum bara spýta í lófana,“ sagði Reynir Þór við Þröst Erni eftir leikinn.

Loks bendum við á videóviðtöl sem Þröstur Ernir tók við þá Sveinbjörn og Reyni Þór Reynisson og birtust á sport.is, smelltu á myndirnar til að skoða viðtölin.



Góður sigur og fín tvö stig komu í hús

19. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Myndband frá leik Akureyrar og Aftureldingar

Hákon Ingi Þórisson er búinn að setja saman myndband frá sigurleik Akureyrar á Aftureldingu síðastliðinn fimmtudag. Þeir sem ekki mættu í Íþróttahöllina fá hér smánasasjón af stemmingunni sem var mögnuð.

Við þökkum Hákoni Inga og Þóri Tryggvasyni þetta frábæra framtak.



Smelltu á myndina til að spila myndbandið.

Ljósmyndir Þóris frá leiknum eru einnig komnar hér á síðuna.


Atli og Sævar þurfa að ná upp baráttuandanum hjá sínum mönnum í kvöld

17. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri – Afturelding í textalýsingu

Þá er runninn upp heimaleiksdagur þar sem Mosfellingar í Aftureldingu koma í heimsókn. Það er ekkert nema tilhlökkun í gangi, leikmenn Akureyrar ætla svo sannarlega að sýna hvað í þeim býr eftir slaka frammistöðu í bikarleiknum gegn FH á sunnudaginn. Að sama skapi eru Aftureldingarmenn ekki heldur sáttir með að hafa dottið út úr bikarkeppninni gegn Gróttu á dögunum.

Það er því klárt mál að það verður barist af fullum krafti í Íþróttahöllinni í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:00.

Einn leikmaður Aftureldingar, Einar Héðinsson, verður í leikbanni í kvöld en hann fékk beint rautt spjald og útilokun með skýrslu í bikarleiknum gegn Gróttu og aganefnd HSÍ er búin að dæma hann í eins leiks bann sem tekur gildi í dag.

Leikurinn verður eins og vanalega í beinni textalýsingu hér á heimasíðunni, smelltu hér til að opna lýsinguna.


Oddur fann sig vel gegn Aftureldingu í fyrstu umferðinn og skoraði þá 10 mörk

15. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Heimaleikur gegn Aftureldingu á fimmtudaginn

Eftir ömurlegan leik gegn FH á sunnudaginn er ekkert annað í boði hjá okkar mönnum en að mæta af fullum krafti í heimaleikinn gegn Aftureldingu á fimmtudaginn. Nú þurfa menn að rísa upp á ný og sýna sömu baráttu og sjálfstraust og skein af liðinu gegn Gróttu í síðustu viku.

Það dugar ekkert hálfkák á móti liði eins og Aftureldingu sem sýndi það svo sannarlega í síðustu viku að þeir kunna að spila handbolta þegar þeir sigruðu topplið Fram á heimavelli þeirra í Safamýrinni. Afturelding missti síðan unninn bikarleik gegn Gróttu úr greipum sér á mánudaginn og eru eflaust jafnsvekktir með eigin frammistöðu og Akureyri er eftir viðureignina gegn FH. Það verða því særð lið sem mætast í Íþróttahöllinni á fimmtudaginn og þar munu bæði lið örugglega gera allt til að koma sér í gírinn á ný.

Þjálfaraskipti urðu hjá Aftureldingu fyrir nokkru þegar Reynir Þór Reynisson tók við liðinu af Gunnari Andréssyni og ljóst að Reynir er að gera góða hluti með liðið sem hefur leikið vel í síðustu leikjum. Eins og fram kom hér að framan þá vann Afturelding Fram í síðasta deildarleik sem Einar Jónsson, þjálfari Fram kallaði þó hnefaleika frekar en handbolta og gaf í skyn að leikmenn Aftureldingar spili harðan bolta og rétt að menn séu viðbúnir því að vel verði tekist á í leiknum.

Hjá Aftureldingu eru Jóhann Jóhannsson og Hilmar Stefánsson markahæstir með 24 mörk hvor í N1 deildinni. Skammt á eftir þeim koma skytturnar Sverrir Hermannsson og Böðvar Páll Ásgeirsson með 22 og 20 mörk og þar næst línumaðurinn Þrándur Gíslason með 16 mörk.


Bergvin Gíslason tekur vel á línujaxlinum Þrándi Gíslasyni í fyrsta leik deildarinnar í vetur

Að undanförnu hefur þó markvörðurinn geðþekki, Hafþór Einarsson verið Akureyrarliðinu erfiðastur og yfirleitt dottið í sinn mesta ham einmitt þegar hann mætir sínum gömlu félögum. Davíð Svansson markvörður hefur einnig mætt öflugur til leiks og gerði þannig Frömurum lífið sérstaklega leitt í margnefndum sigurleik Aftureldingar.

Það stefnir því allt í hörkuviðureign í Íþróttahöllinni á fimmtudaginn þar sem bæði lið ætla sér að komast á sigurbraut á ný eftir vonbrigðin í Eimskipsbikarnum.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson