Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Dýrmætt stig gegn Fram og Akureyri í úrslitakeppnina - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2011-12

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Tölfræði leiksins 
    Fram - Akureyri  29-29 (13-14)
N1 deild karla
Framhús
Fös 23. mars 2012 klukkan: 19:30
Dómarar: Jón Karl Björnsson og Júlíus Sigurjónsson
Umfjöllun

Sveinbjörn var betri en enginn á lokasekúndu leiksins

23. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Dýrmætt stig gegn Fram og Akureyri í úrslitakeppnina

Það var vægast sagt háspenna og dramatík sem leikmenn Akureyrar og Fram buðu uppá í Safamýrinni í kvöld enda mikilvægi leiksins mikið fyrir bæði lið. Fram byrjaði með fyrstu tveim mörkum leiksins en Akureyri jafnaði í 3 – 3 og aftur í 4 – 4. Guðmundur Hólmar byrjaði með látum og skoraði þrjú af þessum fjórum mörkum.

Í kjölfarið tók Akureyri frumkvæðið í leiknum og náði nokkrum sinnum tveggja marka forskoti en Fram seiglaðist og náði að jafna nokkrum sinnum, en Akureyri leiddi í hálfleik 13 – 14.
Bjarni Fritzson átti frábæran fyrri hálfleik, skoraði 6 mörk sömuleiðis voru Guðmundur Hólmar og Heimir góðir.


Guðmundur Hólmar stöðvar Jóhann Gunnar Einarsson. Mynd: mbl.is/Árni Sæberg

Akureyri byrjaði seinni hálfleikinn betur og virtist vera að ná góðum tökum á leiknum. Forysta Akureyrar varð þrjú mörk, 14 – 17 og útlitið gott. Fram var þó ekkert á því að gefast upp og jöfnuðu í 15 – 15 þegar seinni hálfleikur var hálfnaður.
Þeir voru ekki hættir en komust yfir og í kjölfarið náði Fram þriggja marka forystu 25 – 22 þegar átta mínútur voru til leiksloka. Akureyrarvörnin náði sér engan vegin á strik og þeir Jóhann Gunnar Einarsson og Róbert Aron Hostert röðuðu inn mörkum nokkuð óáreittir.

Útlitið var dökkt því að Fram hélt þriggja marka forystu upp í stöðuna 29 – 26 og einungis þrjár mínútur til leiksloka. En þessar lokamínútur reyndust heldur betur magnaðar, Guðmundur Hólmar skoraði og Oddur minnkaði muninn í eitt mark úr hraðaupphlaupi. Oddur vann síðan boltann í vörninni og Geir jafnaði leikinn með góðu skoti þegar um 15 sekúndur voru eftir og Fram tók leikhlé.

Herbragðið sem Fram lagði upp fyrir lokasóknina gekk upp þannig að hornamaðurinn Stefán Baldvin Stefánsson fékk galopið færi í vinstra horninu en þar var líka mættur Sveinbjörn nokkur Pétursson og varði skotið með tilþrifum og 29 -29 jafntefli þar með staðreynd.

Í heildina séð lék Akureyrarliðið býsna vel í leiknum ef frá er talinn slakur kafli um miðjan seinni hálfleikinn en á þeim tíma skoraði Fram sjö mörk gegn tveimur. Varnarleikurinn hefur oft verið betri og markvarslan sömuleiðis þó svo að Sveinbjörn hafi svo sannarlega verið hetja liðsins með þessari síðustu vörslu.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 9 (3 úr vítum), Guðmundur Hólmar Helgason 6, Geir Guðmundsson 5, Heimir Örn Árnason 5, Hörður Fannar Sigþórsson 2 og Oddur Gretarsson 2.
Sveinbjörn varði 14 skot, þar af eitt vítakast og Stefán Guðnason spreytti sig í einu vítakasti og mátti ekki miklu muna að hann tæki það.

Hjá Fram var Jóhann Gunnar Einarsson markahæstur með 10 mörk (5 úr vítum), Róbert Aron Hostert 8, Einar Rafn Eiðsson, Sigurður Eggertsson og Ægir Hrafn Jónsson 3 mörk hver, Sigfús Páll Sigfússon og Stefán Baldvin Stefánsson 1 mark hvor.

Aðrir leikir kvöldsins fóru þannig að Haukar unnu Aftureldingu 21-19, Valur vann Gróttu 32-27 og FH og HK gerðu jafntefli 24-24.

Fyrir vikið breyttist staða liðanna ekkert innbyrðis en það er hinsvegar ljóst að FH og Akureyri eru örugg í úrslitakeppnina en leikur HK og Fram verður úrslitaleikur um hvort liðið kemst áfram.

Staðan fyrir lokaumferðina
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Haukar201415485 : 4325329:11
2. FH201145535 : 4963926:14
3. Akureyri201136546 : 5004625:15
4. HK201127543 : 5133024:16
5. Fram201127514 : 509524:16
6. Valur20947534 : 5092522:18
7. Afturelding203116455 : 536-817:33
8. Grótta201118456 : 573-1173:37

Eins og sést á stöðunni í deildinni þá á Akureyri eitt stig á bæði HK og Fram þannig að ef svo færi að Akureyri tapar síðasta leiknum gegn Val þá fer sigurvegarinn í leik HK og Fram uppfyrir Akureyri og þar með áfram en tapliðið situr eftir.
Ef Akureyri tapar og HK og Fram gera jafntefli þá verða öll þrjú jöfn með 25 stig og þá þarf að skoða innbyrðis leiki þessara þriggja liða. Það myndi þýða að HK væri með 9 stig, Akureyri 5 en Fram 4 og myndi því ekki komast áfram.

En hins vegar er engin ástæða til annars en að kveðja deildina með stæl næstkomandi föstudag og vinna Val til að taka af öll tvímæli um stöðu liðsins.

Tengdar fréttir

Heimir hakkar til lokaleiksins gegn Val

24. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir Fram leikinn?

Það voru mikil læti og stemming í Framhúsinu á föstudagskvöldið þegar Fram og Akureyri áttust við í slagnum um sæti í úrslitakeppninni. Við höfum safnað saman nokkrum viðtölum við leikmenn og þjálfara sem öll eru tekin strax eftir leikinn. Byrjum á viðtölum Sindra Sverrissonar á Morgunblaðinu, fyrst er það hetja Akureyringa, Sveinbjörn Pétursson.

Sveinbjörn Pétursson: bardagi til síðasta blóðdropa

Það mátti heyra saumnál detta á lokasekúndunum þegar Stefán Baldvin Stefánsson sveif inn úr vinstra horninu, og hann var nánast fyrir miðju marki þegar skotið reið af. Sigur Fram í sjónmáli, en þá kom Sveinbjörn Pétursson til bjargar með góðri markvörslu sem tryggði Akureyri endanlega sæti í fjögurra liða úrslitakeppni N1-deildar karla í ár.
„Fyrst við vorum búnir að ná að jafna metin þá kom ekkert annað til greina en að ná að landa þessu stigi. Það mun reynast mikilvægt. Hægri vængurinn hjá okkur var svolítið opinn og hann komst í gott færi en ég varði,“ sagði Sveinbjörn eftir leik.
„Það vantaði upp á að slíta þá alveg frá okkur, munurinn varð aldrei meiri en þrjú mörk, en svo náðu þeir góðum spretti og komust í 25:22, og þetta var farið að líta ansi illa út. Þetta var bara bardagi til síðasta blóðdropa og það skilaði þessu stigi í dag,“ sagði Sveinbjörn sem var ánægður með áhorfendur í gær.
„Það var frábært að sjá menn búna að ferðast frá Akureyri til að styðja okkur í þessum leik og þeir voru frábærir alveg eins og stuðningsmenn Fram. Það er langt síðan maður hefur komið í svona stemningu hérna í Safamýrinni,“ og eru það orð að sönnu.

Heimir Örn Árnason: Héldum rónni síðustu fimm

Heimir Örn Árnason fyrirliði Akureyrar var ánægður með eitt stig í Safamýrinni í kvöld í ljósi þess að liðið var þremur mörkum undir þegar skammt var eftir.
Hann kvaðst hlakka til að mæta Óskari Bjarna Óskarssyni og félögum í Val í lokaumferðinni en hér fer á eftir vídeóviðtal mbl.is við Heimi.



Einar Jónsson: Beið eftir sjúkrabílnum

„Þetta var boxbardagi þar sem annað liðið lá í valnum en hitt liðið spilaði eins og dómararnir leyfðu. Maður beið bara eftir því að einhver færi héðan með sjúkrabíl. Við reyndum svo að svara með sama hætti í seinni hálfleik og fengum þá fyrstu brottvísun leiksins. En ég var ánægður með mitt lið í dag og við vorum klaufar að klára ekki dæmið. Ég hefði átt að taka leikhléið fyrr, þegar við vorum þremur yfir, en ef við hefðum skorað úr dauðafærinu í lokin hefði náttúrlega verið frábært að taka leikhléið þá,“ sagði Einar Jónsson þjálfari Fram.

Jóhann Gunnar Einarsson: Kaos í leikhléinu í lokin

Jóhann Gunnar Einarsson, tíu marka maður í jafntefli Fram og Akureyrar í kvöld, segir að mikið hafi gengið á í leikhléi Framara fyrir lokasóknina í kvöld en þá voru 15 sekúndur til leiksloka. Jóhann var í viðtali við mbl.is.



Stefán Hirst Friðriksson tíðindamaður vísir.is ræddi við Heimi Örn fyrirliða Akureyrar og þjálfarana Atla Hilmarsson og Einar Jónsson. Atli sendir Einari einmitt smáskot en Einar virðist vera fastur í því að kenna dómurum leikja um þegar lið hans fara ekki með sigur af hólmi.

Heimir: Frábært stig í lokin

„Mér finnst við rosalega snöggir að klúðra þessari þriggja marka forystu í seinni hálfleiknum en þetta var frábært stig í lokin. Við áttum í erfiðleikum að hemja Fram-strákana í sókninni á þessum tímapunkti en það var allt inni hjá þeim,“ sagði Heimir.

„Við þurfum að vinna okkar síðasta leik held ég og við ætlum bara að klára hann. Þessi úrslitakeppni verður frábær þar sem fjögur mjög jöfn lið eru að mætast. Öll liðin eru mjög öflug en þó að Haukarnir hafi verið sterkastir í deildarkeppninni þá finnst mér þetta bara 50-50 hjá öllum liðum,“ sagði Heimir Örn Árnason, leikmaður Akureyri í leikslok

Einar: Dómgæslan gjörsamlega útúr kortinu

„Við áttum að vinna þennan leik. Við vorum komnir þremur mörkum yfir hérna en erum klaufar að klára þetta ekki. Dómgæslan var náttúrulega skelfileg hérna og ég ætla að fullyrða það að hún var 80/20 þeim í hag í þessum leik. Að við höfum ekki verið meira undir hérna á köflum sökum dómgæslunnar er náttúrulega alveg ótrúlegt,“ sagði Einar.

„Við sýndum hrikalegan karakter og er ég mjög stoltur af mínu liði. Við erum samt auðvitað að gera mikið af mistökum sjálfir og þurfum við að hugsa fyrst og fremst um það. En ég er ánægður með karakterinn hérna. Við vorum miklu fastari fyrir hérna í seinni hálfleik en það er lýsandi fyrir dómgæsluna að við fáum fyrstu tvær mínúturnar í þessum leik þrátt fyrir að hafa verið lamdir niður hérna í þrjátíu mínútur.
„Ég er stoltur af liðinu. Við erum ennþá inní þessu og það er frábært,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram að lokum.

Atli: Sáttir með jafnteflið úr því sem komið var

„Úr því sem komið var erum við mjög sáttir með jafnteflið. Við vorum samt komnir í fína forystu þarna um miðjan hálfleikinn og vorum með boltann en fórum ekki nægilega vel með þann séns. Varnarleikurinn í seinni hálfleikur var alls ekki nógu góður. Við vorum að fá alltof mörg mörk á okkur. Þetta var samt flottur leikur þar sem tvö virkilega góð lið voru að mætast,“ sagði Atli.

„Ég vísa þessum ummælum Einars um dómgæsluna til föðurhúsanna. Þeir hefðu oft átt að fá dæmt á sig tvær mínútur þegar hangið var aftan í okkar mönnum ásamt vítaköstum sem þeir fengu en við fengum ekki. Mér finnst þessi túlkun Einars frekar gróf,“ bætti Atli við.

„Við ætlum okkur að fara alla leið í ár. Við fórum í úrslitaleikinn í fyrra og töpuðum þar þannig að það er ekkert minna sem við ætlum að gera í ár. Ég veit samt ekki alveg hvort að við séum öruggir inn í úrslitakeppnina en við ætlum bara að klára okkar,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyri í leikslok.

Vídeóviðtöl af Sport.is

Að endingu eru einnig viðtöl við þjálfarana Atla og Einar sem birtust á sport.is.







Það er býsna mikið undir í þessum leik

23. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Fram – Akureyri í beinni á SportTV.is

Í dag fer fram næstsíðasta umferð N1 deildar karla og ekki laust við að það séu mikilvægir leikir á dagskrá. Spennan felst sem sé í því hvaða þrjú lið fylgja Haukum í úrslitakeppnina. Akureyri, FH, HK, Fram og Valur eiga öll möguleika á að komast þangað og því má búast við að liðin leggi allt í leiki dagsins.
Vikudagur ræddi í gær við þá Guðlaug Arnarsson og Atla Hilmarsson um leikinn og fara svör þeirra hér á eftir:

„Við verðum að halda áfram þar sem frá var horfið í síðasta leik og ná upp sömu stemmingu,“ segir Guðlaugur um leikinn gegn Fram. „Við þurfum að vinna þessa leiki ef við ætlum okkur áfram. Við sýndum hvað í okkur bjó gegn FH og verðum að halda því áfram í Safamýrinni,“ segir Gulli.

Atli Hilmarsson tekur í sama streng. „Það er mikill hugur í okkur að fara í úrslitakeppnina og með sömu frammistöðu og gegn FH þá förum við langt í þessari keppni. Við getum hins vegar farið á ansi lágt plan og við verðum að mæta Fram í sama ham og í síðasta leik. Þetta verður enn einn úrslitaleikurinn, Fram er eitt af þeim liðum sem við erum að berjast við,“ sagði Atli.


Gulli og Atli með spurnarsvip

Leikurinn verður í beinni útsendingu á SportTV.is og hefst útsendingin rétt fyrir klukkan 19:30 en allir leikir tveggja síðustu umferða N1 deildarinnar eru leiknir samtímis. Hér að neðan ætti útsending SportTV.is að birtast.

Einnig er hægt að smella hér til að fara á síðu SportTV.is.


Það verður örugglega barist til síðasta blóðdropa gegn Fram

22. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fram - Akureyri í beinni á SportTV.is

Eftir frábæran leik gegn FH síðastliðinn mánudag heldur baráttan áfram á föstudaginn. Það eru tvær umferðir eftir af sjálfri deildarkeppninni og óhætt að segja að sannkölluð úrslitastemming ríki í öllum leikjunum, slík er spennan um að komast í úrslitakeppnina.

Akureyri sækir Fram heim á föstudaginn og verður leikið í Safamýrinni klukkan 19:30 en allir leikir umferðarinnar fara fram á sama tíma. Með sigri í leiknum tryggir Akureyri sér sæti í úrslitakeppninni og því er ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að leggja leið sína í Fram húsið og skapa sömu stemmingu og strákarnir eru vanir hér á heimavelli.

SportTV.is mun sýna leikinn í beinni á vefnum og munum við setja upp tengingu við útsendinguna hér á heimasíðunni.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson