Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Æsileikur í Hafnarfirði - eins marks tap í framlengdum leik - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Eftirlitsmaður: Kjartan Steinbach
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Atli þarf að kynda upp í mönnum fyrir föstudaginn
18. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik FH og Akureyrar
Þá er fyrsta leik Akureyrar og FH lokið og vægast sagt varð þetta einn af mögnuðustu leikjum tímabilsins. Óhætt er að segja að Akureyrarliðið eigi töluvert mikið inni fyrir næsta leik því að margir leikmanna liðsins náðu ekki að sýna sinn besta leik og nú þarf einfaldlega að ná öllum á flug fyrir næsta leik. Sá leikur verður í Íþróttahöllinni á Akureyri næstkomandi föstudag og hefst klukkan 20:00.
En lítum hér á nokkur viðtöl sem hafa birst í fjölmiðlum nú strax eftir leik. Byrjum á mbl.is þar sem Ívar Benediktsson ræddi við þjálfarana Atla Hilmarsson og Einar Andra Einarsson:
Atli Hilmarsson: Svona verður þetta
Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, sagði að eitt og annað mætti bæta í leik liðsins fyrir næstu viðureign við FH í undanúrslitum N1-deildar karla í handknattleik, en Akureyri tapaði, 26:25, í framlengdum leik í Kaplakrika í kvöld í fyrstu viðureign liðanna.
Atli sagði jákvætt að sínir menn hafi rifið sig upp og jafnað leikinn fyrir hálfleik eftir að hafa lent fimm mörk undir, 11:6, eftir 20 mínútur. Hann sagði kannski helst vonbrigði hvað illa hafi gengið að nýta stöðuna þegar Akureyri var manni yfir í upphafi framlengingar.
Leikurinn hafi hinsvegar verið jafn og spennandi eins og vænta hafi mátt. Spurður hvort áhorfendur á leiknum í kvöld hafi fundið reykinn af réttunum, leikurinn hafi verið eins vænta megi af þeim næstu þá sagðist Atli reikna með því.
Einar Andri: Erfitt að spila gegn Akureyri
Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, sagði mikilvægt að halda frumkvæði á heimavelli í úrslitarimmunni við Akureyri og því hafi naumur sigur liðsins verið mikilvægur í kvöld, 26:25, í Kaplakrika. Einar sagði Akureyrarliðið aldrei gefast upp og því væri afar erfitt að spila gegn því. FH-liðið byrjaði leikinn betur í kvöld og komst í 11:6, eftir 20 mínútur en tapaði forskotinu niður fyrir hálfleik. Einar Andri sagði að Akureyringar hafi breytt vörn sinn þegar það var komið fimm mörkum undir. Þá hafi FH-liðið hörfað til baka og þá hafi forskotið verið fljótt að fara. Einar sagðist ánægður með vörn og markvörslu FH-liðsins en eitt og annað hafi betur mátt fara í sóknarleiknum.
Á vísi.is ræddi Stefán Árni Pálsson sömuleiðis við þjálfarana svo og Örn Inga Bjarkason leikmann FH.
Atli: Áttum fínan möguleika í framlengingunni
„Ég er bara hundsvekktur,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir tapið í kvöld.
„Þetta var bara jafn leikur og verður án efa frábært einvígi. Við lendum fimm mörkum undir í fyrri hálfleiknum og ég var rosalega ánægður með hvað strákarnir komu snöggt til baka.
Við áttum fínan séns í framlengingunni þegar við vorum einum fleiri en náðum að klúðra því. Ég er ánægður með karakterinn í liðinu en við gáfumst aldrei upp í kvöld.“
Einar Andri: Frábær auglýsing fyrir handboltann
„Þetta var frábær handboltaleikur eins og alltaf þegar þessi lið mætast og góð auglýsing fyrir íþróttina,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfari FH, eftir sigurinn í kvöld.
„Ég er mjög ánægður með sigurinn, einnig er ég gríðarlega ánægður með stemmninguna í húsinu. Leikurinn var sveiflukenndur en við komust oft yfir en þeir komu alltaf til baka, þetta var bara stál í stál á tímabili.
Bæði lið þurftu að hafa mikið fyrir öllum sínum aðgerðum og menn börðust gríðarlega. Þetta er samt rétt að byrja og langt frá því að vera komið hjá okkur. Við ætlum okkur líka að vinna næst leik og komast í lykilstöðu.“
Örn Ingi: Þetta eru skemmtilegustu sigrarnir
„Þetta var gífurlega gaman,“ sagði Örn Ingi Bjarkason, leikmaður FH, eftir sigurinn.
„Það gefur manni mikið sjálfstraust að vinna svona leik eftir framlengingu og gott veganesti í næsta leik. Við byrjuðum gífurlega vel og vorum í hörkustuði lengst framan af en síðan komast þeir einhvernvegin á sporið og ná að saxa á okkur með hraðaupphlaupum. Við hleyptum þeim aldrei framúr okkur og héldum bara í okkar leik, að lokum uppskárum við sigur.
Þetta er bara rétt að byrja en það væri frábært að komast í 2-0 í einvíginu eftir næsta leik og það er það sem við ætlum að gera.“
Örn Ingi sækir að Heimi Erni í leiknum. Mynd: Óskar Andri/visir.is
Það verður gríðarleg barátta í Kaplakrikanum í kvöld
17. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: FH - Akureyri í beinni á SportTV.is
Það er runninn upp leikdagur og það enginn venjulegur leikdagur. Fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Akureyrar og FH hefst klukkan 19:00 í kvöld, næsti leikur verður síðan hér í Íþróttahöllinni á föstudaginn klukkan 20:00.
Í Vikudegi í dag er stutt viðtal við Heimi Örn Árnason um einvígið: Þetta verður gríðarlega barátta. Ég á marga góða félaga í FH og veit jafnvel og þeir að þetta verður 50-50 rimma, segir Heimir Örn. Ég ætla að vona að þetta verði jafn skemmtilegt í Kaplakrika og í fyrra. Það var frábær umgjörð en þessi tvö lið eiga langbestu umgjörðina á heimavelli þegar þau taka sig til, segir hann. FH og Akureyri mættust í úrslitum í fyrra og þar hafði FH betur, 3-1. Við eigum harma að hefna og ætlum okkur áfram. Ég tel að það séu helmingslíkur á að það takist.
Í sama streng tekur Bjarni Fritzson: Ég er gríðarlega spenntur og reikna með frábæru einvígi, segir Bjarni. Þetta eru hnífjöfn lið og ég held að þetta fari í fimmta leik og að það muni einu marki á liðunum í þeim leik. Svo jafnt verður þetta. Auðvitað hefði maður viljað hafa heimaleikjaréttinn. Við eigum frábæra stuðningsmenn en við verðum að taka einn leik á útivelli og það er bara verkefni fyrir okkur að vinna, sagði Bjarni Fritzson.
SportTV.is sýnir leikinn beint Samkvæmt upplýsingum á vef SportTV ætla þeir að sýna leikinn beint á vefnum, og munum við gera okkar besta til að láta útsendingu þeirra birtast hér á síðunni.Einnig er hægt að smella hér til að fara á síðu SportTV.is.
Það verður hart barist í viðureigninni
17. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl við Bjarna og Ólaf Gústafsson um viðureignina
Í dag er fyrsti leikur Akureyrar og FH í undanúrslitakeppninni og er leikið í Hafnarfirði. Morgunblaðið ræddi við leikmennina Bjarna Fritzson og Ólaf Gústafsson um einvígi liðanna og birtum við þau hér að neðan.
Bjarni: Verður æðislegt einvígi
Bjarni Fritzson leikmaður Akureyrar - handboltafélags hlakkar til rimmunnar við FH í undanúrslitum Íslandsmótsins sem hefst í Kaplakrika í kvöld.
„Þetta verður æðislegt einvígi,“ sagði hann við Fréttavef Morgunblaðsins á Akureyri í morgun. Bjarni segir liðin mjög jöfn að getu og bardaginn geti því endað með sigri hvors liðsins sem er. Akureyringar séu hins vegar staðráðnir í að hefna ófaranna frá því í fyrra, þegar þeir töpuðu fyrir FH-ingum í úrslitum Íslandsmótsins.
Hér er hægt að sjá viðtalið við Bjarna:
Ólafur Gústafsson: Gefum allt til að komast í úrslit
Ólafur Gústafsson, rétthenta skyttan í liði FH, á von á hörkuleikjum gegn Akureyringum í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik en fyrsta viðureign liðanna fer fram í Kaplakrika í kvöld og hefst klukkan 19.
FH og Akureyri léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og Ólafur sagði við mbl.is að úrslit í leikjum liðanna undanfarið hefðu alltaf ráðist á síðustu fimm mínútunum, nema þegar þeir fengu skell á Akureyri núna undir lok Íslandsmótsins.
Ólafur sagði að heimavallarrétturinn skipti miklu máli að sínu mati. „Við erum sterkir á heimavelli og ef um oddaleik verður að ræða, verður gott að hafa hann í Kaplakrika.“
Um andstæðingana frá Akureyri sagði Ólafur að Akureyringar væru með góðan markvörð og skæðir í hraðaupphlaupum, og þeir spiluðu mikið útfrá því.
Hann sagði að FH hefði nýtt vel það hlé sem var að Íslandsmótinu loknu, liðið hefði spilað fína æfingaleiki og þeir sem hefðu verið meiddir fengu tíma til að ná sér. Enda væru allir heilir þegar kæmi að svona mikilvægum leikjum og þeir FH-ingar væru tilbúnir að gefa allt til þess að komast í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.