Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Einvígi Akureyrar og FH á enda þetta árið - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2011-12

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - FH  25-28 (12-14)
Undanúrslit karla
Íþróttahöllin
Mið 25. apríl 2012 klukkan: 19:00
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, eftirlitsdómari Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Hörður Fannar stóð fyrir sínu í leiknum

25. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Einvígi Akureyrar og FH á enda þetta árið

Íslandsmeistarar FH reyndust seigari á lokasprettinum og tryggðu sér keppnisréttinn um titilinn með sigri í 4. leiknum í kvöld. Leikurinn var sveiflukenndur, Akureyri byrjaði leikinn vel og hafði frumkvæðið í leiknum til að byrja með, höfðu yfir 4-2 og 5-3. FH var þó aldrei langt undan og náði að jafna í 5-5 og í kjölfarið var jafnt á öllum tölum upp í stöðuna 8-8. Þá kom slakur kafli, Akureyringar voru reknir útaf, voru um tíma tveimur færri og það nýttu FH ingar sér til hins ítrasta og náðu fimm marka forskoti 8-13.

Með góðum lokaspretti tókst þó að vinna muninn niður í tvö mörk þannig að hálfleiksstaðan var 12-14 fyrir FH.


Geir Guðmundsson stóð vel fyrir sínu

FH skoraði fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik og hélst munurinn 3 til 4 mörk allt þar til að FH náði mest fimm marka mun í stöðunni 18-23 en þá loksins náðu heimamenn að bíta frá sér. Vörnin og Sveinbjörn hrukku í gang og með fjórum mörkum í röð tókst að minnka muninn í eitt mark 22-23 og spennustigið í Höllinni orðið býsna hátt.

Akureyri fékk fjölmörg tækifæri til að jafna leikinn í kjölfarið en klaufagangur í sókninni, misnotað vítakast o.fl. kom í veg fyrir að það tækist. Markataflan sýndi 23-24, 24-25 og loks 25-26. FH kláraði síðan leikinn með tveim síðustu mörkum leiksins sem endaði 25-28 fyrir Hafnfirðinga.

Það verður að segjast að FH liðið virkaði sterkara í þessum leik, sérstaklega átti vörn Akureyrar í gríðarlegu basli með skytturnar Ólaf Gústafsson og Ragnar Jóhannsson sem skoruð átta mörk hvor í leiknum.


Ragnar Jóhannsson skorar eitt af átta mörkum sínum

Slaki kaflinn í fyrri hálfleik þegar FH skoraði fimm mörk í röð fór eiginlega alveg með Akureyrarliðið. Þann mun tókst aldrei að brúa alveg og því fór sem fór.

Enn einu sinni átti Hörður Fannar Sigþórsson stórleik og skoraði sjö mörk í leiknum en Hörður hefur að öðrum ólöstuðum verið besti maður liðsins í úrslitakeppninni. Geir Guðmundsson átti einnig fínan leik með fimm glæsimörk.


Hörður Fannar skoraði sjö mörk í dag

Í lok leiksins var sem skorti áræði og að taka af skarið í sókninni, allt snerist um að koma boltanum inn á línuna sem FH vörnin stóðst þokkalega vel.

Það féll sem sé ekkert með liðinu í dag, áhorfendur voru ekki alls kostar sáttir með dómgæsluna hjá þeim Hlyni og Antoni og fannst halla töluvert á heimamenn. Þrátt fyrir það verður að viðurkenna að sigur FH verður að teljast sanngjarn þegar upp er staðið.

Mörk Akureyrar: Hörður Fannar Sigþórsson, 7, Bjarni Fritzson 5 (1 úr víti), Geir Guðmundsson 5, Heimir Örn Árnason 4 og Oddur Gretarsson 4.
Sveinbjörn Pétursson byrjaði leikinn með látum og varði vítakast. Sveinbjörn átti síðan góðan sprett í seinni hálfleiknum og endaði með 13 varin skot. Stefán Guðnason kom inná um tíma í fyrri hálfleik og varði 1 skot.

Þar með er leiktíðinni lokið að þessu sinni hjá meistaraflokki en nú setja menn allt traust á strákana í 2. flokki sem eiga góðan möguleika á Íslandsmeistaratitlinum.

Tengdar fréttir

Hörður Fannar barðist allt til loka

26. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Myndir frá lokaleik Akureyrar og FH

Það var Hákon Ingi Þórisson sem handlék myndavélina í Höllinni í gær og sendi okkur þessar myndir frá viðureigninni.


Heimir Örn skorar fyrsta mark leiksins


Oddur Gretarsson skorar undir lok leiksins


Hamagangur í stúkunni

Smelltu hér til að sjá allar myndirnar.


Það reynir á lykilmenn eins og Heimi og Bjarna í kvöld

25. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Heimir reiknar með fullu húsi í kvöld

Það er allt undir í Höllinni í kvöld, Akureyri þarf sigur til að knýja fram oddaleik á föstudaginn á meðan FH gerir út um einvígið með sigri. Vikudagur ræddi við Heimi Örn Árnason, fyrirliða Akureyrar og Einar Andra Einarsson þjálfara FH um leikinn:

Heimir Örn segir Akureyringa hafa farið vel yfir sín mál eftir tapleikinn í Kaplakrika í síðasta leik og mæta hvergi bangnir til leiks í kvöld.
„Ég og aðrir lykilmenn liðsins vorum einfaldlega á rassgatinu í síðasta leik og það kemur ekki fyrir aftur. Við ætlum okkur að vinna þennan leik í kvöld, líkt og við gerðum í síðasta heimaleik og stela þessu svo í oddaleiknum á föstudaginn. Ég reikna með fullu húsi í kvöld og brjálaðri stemmingu í Höllinni og við erum bara spenntir,“ sagði Heimir.

„Við erum fullir tilhlökkunar,“ segir Einar Andri. „Við förum í alla leiki til þess að vinna og ætlum að klára þetta einvígi í kvöld. Við förum fullir sjálfstrausts í leikinn eftir sigurinn í síðasta leik en við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að það verður við ramman reip að draga. Það er alltaf erfitt að spila í Höllinni fyrir norðan en við erum einbeittir á verkefnið í kvöld. Við erum í dauðafæri í að komast í úrslit og ætlum okkur að nýta það,“ sagði Einar.


Það má búast við hasar í kvöld, Heimir á spjalli við FH-bekkinn í leik 2



Heimir fer fyrir sínum mönnum á miðvikudaginn

24. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

4. leikur Akureyrar og FH á miðvikudaginn



Það er allt undir í leik Akureyrar og FH í Íþróttahöllinni á miðvikudaginn þegar liðin mætast í 4. leik undanúrslitanna. FH er komið í þægilega stöðu í einvíginu en Akureyri má ekkert misstíga sig í leiknum, sigur er það eina sem er í boði, annars er tímabilinu einfaldlega lokið.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson