Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Andlaust tap fyrir Aftureldingu í kvöld - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Afturelding  23-28 (14-14)
N1 deild karla
Íþróttahöllin
Fim 18. október 2012 klukkan: 19:00
Dómarar: Jón Karl Björnsson og Þorleifur Á. Björnsson
Umfjöllun

Guðmundur og Geir komust einna best frá leiknum í dagi



18. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Andlaust tap fyrir Aftureldingu í kvöld

Það var ekki burðugur leikur sem Akureyri bauð uppá í kvöld þegar liðið mætti botnliði Aftureldingar. Bjarni Fritzson kom aftur inn í liðið eftir að hafa misst af síðasta leik vegna meiðsla og Heimir Örn var sömuleiðis í byrjunarliðinu á ný. Leikurinn fór fjörlega af stað og jafnt á öllum tölum upp í 5-5 en þar með slökknaði hreinlega á heimamönnum.

Afturelding skoraði næstu þrjú mörk og bætti um betur og náði fimm marka forskoti 6-11. Þeir héldu þessum mun upp í 8-13 þegar 20 mínútur voru liðnar af leiknum. Leikur Akureyrarliðsins á þessum tíma var afleitur, algjört andleysi í mannskapnum á meðan gleðin og sjálfstraustið geislaði af Mosfellingum.

En þá loksins mættu heimamenn til leiks, Stefán Guðnason var kominn í markið og skellti í lás. Guðmundur Hólmar og Bergvin Gíslason voru grimmir í sóknarleiknum og með fimm mörkum í röð var orðið jafnt á nýjan leik. Bæði lið bættu síðan við marki fyrir hálfleik þannig að hálfleikstölur voru 14-14.


Stefán Guðnason kom í markið og stóð fyrir sínu

Fyrri hálfleikur var sem sé afar kaflaskiptur. Bergvin var markahæstur Akureyringa með 4 mörk og bærilegan leik. Andri Snær fór meiddur af leikvelli um miðjan hálfleikinn og kom ekki meira við sögu í leiknum.

Menn áttu von á því að þessum góða kafla yrði haldið áfram í seinni hálfleik en sú varð aldeilis ekki raunin á. Afturelding skoraði fyrstu fjögur mörkin og stemmingin öll þeirra megin. Geir Guðmundsson og Oddur kveiktu smá von með því að skora þrjú næstu mörk, staðan 17-18. Gestirnir bættu þá í aftur og héldu þriggja marka forskoti upp í stöðuna 20-23. Þá juku þeir forskotið enn á ný og varð það mest sex mörk, 20-26 og heimamenn hreinlega ráðþrota í leik sínum.

Leiknum lauk síðan með öruggum og sanngjörnum sigri Aftureldingar 23-28. Það er erfitt að skýra hvað gerðist eiginlega, spurning hvort menn féllu í þá gryfju að vanmeta andstæðinginn? Allavega var ljóst að liðið kom ekki til leiks tilbúið til að berjast til sigurs. Síðustu tíu mínútur fyrri hálfleiks lék liðið eins og maður kannast við það og þar með var það bara því miður búið aftur.

Stóri munurinn á liðunum var greinilega að gestirnir voru komnir til að berjast fyrir lífi sínu, allir sem einn, varnarleikur þeirra var kröftugur og fyrir aftan vörnina var Davíð Svansson klárlega maður leiksins og varði 22 skot á meðan markverðir heimamanna vörðu einungis 13 skot.

Það var fátt um fína drætti hjá heimamönnum, Geir Guðmundsson var þó öflugur, sérstaklega í seinni hálfleik, Bergvin Gíslason var góður í fyrri hálfleik en sást lítið í seinni hálfleiknum. Guðmundur Hómar átti fínar rispur í báðum hálfleikjum en hefði mátt spila meira í seinni hálfleiknum.

Mörk Akureyrar: Geir Guðmundsson 7, Guðmundur Hólmar Helgason 5, Bergvin Gíslason 4, Bjarni Fritzson 4 (2 úr vítum), Oddur Gretarsson 2 (1 út víti) og Andri Snær Stefánsson 1 mark.
Í markinu varði Stefán Guðnason 8 skot og Jovan Kukobat 5.

Mörk Aftureldingar: Jóhann Jóhannsson 6 (3 úr vítum), Hilmar Stefánsson 6, Sverrir Hermannsson 5, Örn Ingi Bjarkason 4, Fannar Helgi Rúnarsson 3, Þrándur Gíslason 3, Böðvar Páll Ásgeirsson 1.
Í markinu var Davíð Svansson frábær, sérstaklega í seinni hálfleik en hann varði alls 22 skot.

Vonandi draga menn lærdóm af þessari frammistöðu og láta þetta ekki henda aftur. Það gefst tækifæri til að svara fyrir sig í næsta leik þegar andstæðingarnir verða Haukar, í Hafnarfirði.


Geir fer inn úr horninu og skorar


Guðmundur Hólmar skorar eitt af fimm mörkum sínum


Tengdar fréttir

Heimir ætlar að svara fyrir sig í næsta leik

19. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvernig var hljóðið í mönnum eftir leikinn í gær?

Þá er komið að yfirferð á umfjöllun fjölmiðla um leik Akureyrar og Aftureldingar frá því í gær. Það er Einar Sigtryggsson blaðamaður mbl.is sem á fyrstu viðtölin sem eru við leikmennina Odd Gretarsson og Hilmar Stefánsson.

Oddur: Verðum komnir í stand fyrir Haukaleikinn

Oddur Gretarsson var langt frá sínu besta í kvöld þegar Akureyri brotlenti gegn sprækum Mosfellingum, líkt og flestir liðsfélagar hans. Hann var spurður hvort Akureyringar hafi vanmetið lið Aftureldingar sem hafði tapað öllum sínum leikjum á mótinu fram til þessa.
„Við töluðum allavega um það í aðdraganda leiksins að við hefðum enga ástæðu til að vanmeta þá. Þeir eru með flott lið og höfðu verið óheppnir að ná engum stigum. Samt vorum við bara á hælunum og mættum ekki tilbúnir í leikinn,“ sagði Oddur.

„Það gekk fátt upp hjá okkur í fyrri hálfleik en Stebbi í markinu gaf okkur smá neista svo við náðum að jafna fyrir hlé. Svo átti bara að halda áfram á sömu siglingu í seinni hálfleik en við vorum komnir fjórum mörkum undir áður en við vissum af. Við vorum bara slakir, sérstaklega þegar kom að skotunum. Við sköpuðum alveg færi en fórum bara illa með þau. Við vorum endalaust að skjóta í markmanninn þeirra. Svo voru hraðaupphlaupin að koma í andlitið á okkur á meðan við fengum engin slík.

Þetta þarf að skoða sérstaklega því yfirleitt eru hraðaupphlaupin eitt af okkar aðal vopnum. Það er ekki hægt að kenna ungu liði eða reynsluleysi um því við sem erum að spila hvað mest höfum verið í liðinu í nokkur ár. Við bara hentum þessu frá okkur og mættum aldrei almennilega til leiks. Við fáum núna nokkra daga til að jafna okkur en þó nokkrir í liðinu eru í basli með meiðsli. Við verðum komnir í stand fyrir Haukaleikinn“ sagði Oddur, ansi dapur í bragði enda ekki von til annars eftir þessa frammistöðu liðsins.


Oddur felldur í leiknum í gær

Hilmar: Þetta var bara snilld

Hilmar Stefánsson, hinn reyndi hornamaður Aftureldingar, lék vil hvern sinn fingur á fjölunum í Höllinni á Akureyri þegar lið hans fór illa með heimamenn í kvöld. Skoraði hann mörk í öllum regnbogans litum og var hinn hressasti í viðtali eftir leik.

„Þetta var bara snilld. Ég held að ég hafi aldrei unnið með Aftureldingu hérna á Akureyri. Við höfðum alveg trú á verkefninu og vissum alveg að við ættum fyrir sigri. Þetta er búið að vera erfitt í N1 deildinni en við vorum að spila vel á undirbúningstímabilinu. Það þurfti bara að kalla þetta fram. Kannski er einhver gamall draugur að elta okkur. Við erum búnir að skrapa botninn svo lengi,“ sagði Hilmar.

Fyrir mót vorum við að styrkja okkur og við teljum okkur vera komna með alvöru lið. En sem fyrr segir þá hefur lítið gengið og við náðum botninum gegn Val. Eftir þann leik settumst við niður og náðum að stappa í okkur stálinu. Við vissum að Akureyringar myndu ekki gefa neitt en ég held bara að við höfum haft meira hungur. Vörnin var virkilega góð og við fengum ódýr mörk. Það skildi liðin að í dag. Í þessari deild geta allir unnið alla og við ætlum að fara að taka þátt í þessu móti, ekki vera á botninum endalaust,“ sagði Hilmar en greinilegt var á honum að þungu fargi var af honum létt.


Hilmar Stefánsson reyndist illviðráðanlegur í leiknum

Næst kíkjum við í viðtöl Birgis H. Stefánssonar sem birtust á vísir.is en Birgir ræddi við Heimi Örn Árnason og kampakáta Aftureldingarmenn Davíð og Reyni þjálfara:

Heimir Örn: Ætlum að svara fyrir þetta eins fljótt og við getum

„Við vorum að reyna að undirbúa okkur í takt við það að þetta væri deild þar sem allir gætu unnið alla,“ sagði Heimir Örn þungur á brún eftir leik.
„Svo falla menn bara í þá frægu gryfju að halda að þeir séu betri en þeir eru í raun og veru, allir sem einn.

Akureyringar í raun náðu sér aldrei á strik í þessum leik fyrir utan um átta mínútur undir lok fyrri hálfleiks.
„Þetta var í raun bara ömurlegt frá A til Ö. Sókn, vörn og þá sérstaklega hlaup til baka sem var bara eiginlega skammarlegt hjá öllum. Vandræðaleg frammistaða fyrir framan fullt af fólki.
Þetta var bara hræðilegt, eftir langan feril þá var þetta ein lélegasta frammistaðan á heimavelli í mörg ár. Þetta var nánast ófyrirgefanlegt en við ætlum að vona að fólk fyrirgefi okkur og við ætlum að reyna að bæta upp fyrir þetta eins fljótt og við getum.“


Heimir í baráttu við Örn Inga leikmann Aftureldingar

Davíð Svansson: Losnaði við um fimm hundruð kíló

„Þvílík veisla,“ sagði Davíð Svansson markmaður Aftureldingar kátur eftir leik með haldapoka af góðgæti sem hann fékk fyrir það að vera valinn maður leiksins en hann varði vel yfir tuttugu bolta.
„Ég held að ég hafi losað svona um fimm hundruð kíló af öxlunum á mér, alveg allavega. Við þurftum svo á þessu að halda, hefðu mekki viljað fara í gegnum fyrstu umferðina án stiga, það er ekki gott. Að klára þetta hér fyrir norðan gerir þetta auðvitað ennþá sætara.“

Leikmenn Aftureldingar mættu heldur betur tilbúnir til leiks í seinni hálfleikinn og náðu strax forskoti sem þeir svo héldu út leikinn.
„Já, ég vil segja svona erum við bara en við höfum ekki verið að sýna það ennþá en vonandi er þetta bara byrjunin. Liðsheildin hér í dag og baráttugleðin var bara alveg til fyrirmyndar. Okkur finnst gaman að vera saman og það er góður mórall í hópnum. Það komu fyrstu stigin hér í dag og vonandi verða þau mun fleiri.“


Davíð Svansson tekur við viðurkenningunni sem leikmaður Aftureldingar

Reynir Þór Reynisson: Sigurinn hefði getað verið stærri

„Frábær leikur hér í kvöld og loksins sýnum við hvað í okkur býr,“ sagði Reynir Þór Reynisson mjög brosmildur strax eftir leik.

„Þetta er svo gott fyrir hópinn og strákana sem eru búnir að leggja svo mikið á sig. Að ná loksins þessum sigri og það ekki á lakari útivelli en hérna á Akureyri, gríðarlega sterkur útivöllur þannig að ég bara get ekki verið sáttari.
Við hefðum getað fengið eitthvað út úr þessum tveimur fyrstu leikjum hjá okkur þó að við höfum líklegast átt lítið skilið úr þessum tveim síðustu. Það er svolítið eins og það séu hlekkir farnir af okkur núna og þá náum við því loksins að njóta þess að vera til og spila handbolta, þá erum við nokkuð góðir.

Þetta var bara sigur liðsheildarinnar í kvöld, það eru allir sem spila vel. Varnarleikurinn var frábær, sóknarleikurinn mjög góður og þegar mest á reyndi þá bara stigum við upp og bættum í. Sigurinn hefði getað verið stærri ef eitthvað er. Við sýndum okkar rétt andlit í kvöld og stefnan er sett á að halda því áfram.“


Reynir fagnar með sínum mönnum í leikslok

Vídeóviðtöl

Það er Hákon Ingi Þórisson sem ræddi við þjálfarana Bjarna Fritzson og Reyni Þór en viðtölin birtust á handbolti.org.

Bjarni: Erum ekki með stjörnulið


Reynir Þór: Erfitt upphaf hjá okkur



Það verður örugglega hart barist í Höllinni í dag

18. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri – Afturelding í beinni textalýsingu

Þá er komið að þriðja heimaleiknum okkar á leiktíðinni þegar við tökum á móti Aftureldingu úr Mosfellsbænum. Við kynntum lið þeirra hér á heimasíðunni fyrir nokkru og vísum á kynninguna hér.

Leikurinn hefst að vanda klukkan 19:00 í Íþróttahöllinni og nú reynir á okkar menn og stuðningsmenn að sýna sínar bestu hliðar til að ná fram hagstæðum úrslitum.

Heimasíðan verður að venju með beina textalýsingu frá leiknum bæði er hægt að fylgjast með lýsingunni í sjálfstæðum glugga með ítarlegum upplýsingum um allan gang leiksins auk þess sem staðan og það allra nýjasta uppfærist á forsíðunni einnig og sama gildir um nýja farsímavefinn okkar, þar uppfærist staðan einnig.
Smelltu hér til að opna lýsingarsíðuna.

Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 19:00 en fyrir leikinn er handhöfum Gullkorta boðið upp á heitan mat. Líkt og síðast verður maturinn framreiddur í nýstækkaðri aðstöðu félagsins sem er við anddyri Hallarinnar (á vinstri hönd þegar gengið er inn). Maturinn verður framreiddur upp úr klukkan 18:00.
Þeir sem enn eiga eftir að verða sér úti um stuðningsmannaskírteini geta gert það í anddyri Hallarinnar og drifið sig síðan í matinn.

Gaman fyrir börnin
Á síðasta heimaleik var opnað sérstakt leiksvæði fyrir börn, í gamla stuðningsmannaherberginu voru sett upp tvö mörk og margir mjúkboltar þar sem krakkarnir léku sér af hjartans list. Að sjálfsögðu var gæsla í herberginu og mæltist þetta ákaflega vel fyrir. Við endurtökum að sjálfsögðu leikinn í dagi.


Afturelding fór illa með okkur í mars 2011

16. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Heimaleikur gegn Aftureldingu á fimmtudag

Leikur fimmtudagsins er gegn Aftureldingu úr Mosfellsbænum. Þetta er þriðja tímabil Aftureldingar í N1-deildinni en tvö síðastliðin ár hefur liðið haldið sæti sínu með því að vinna umspil gegn liðum úr 1. deild. Í vetur ætla Mosfellingar sér annað hlutskipti og hafa styrkt liðið verulega frá síðustu leiktíð og eru með hörku mannskap.

Þjálfari liðsins er fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Reynir Þór Reynisson en hann hafði áður þjálfað karlalið Fram og Víkings. Fyrir þá sem muna þá lék Reynir um tíma í markinu hjá KA.

Fyrir núverandi tímabil fékk Afturelding mikinn liðsstyrk þegar Örn Ingi Bjarkason skipti úr FH en einnig fengu þeir Benedikt Reynir Kristinsson frá Gróttu og Andra Hrafn Hallsson frá Selfossi. Fyrir í liðinu eru mikilvægir póstar eins og fyrirliðinn Hilmar Stefánsson og skyttan Sverrir Hermannsson. Þá ber að nefna eina af efnilegustu skyttum deildarinnar, Böðvar Pál Ásgeirsson og Jóhann Jóhannsson. Jóhann, Hilmar, Örn Ingi, Böðvar og Sverrir eru einmitt helstu markamaskínur liðsins.


Reynir Þór Reynisson, Örn Ingi Bjarkason og Hilmar Stefánsson


Jóhann Jóhannsson, Böðvar Páll Ásgeirsson og Sverrir Hermannsson

Aðalmarkvörður Aftureldingar er Davíð Hlíðdal Svansson en hann tók við af okkar manni, Hafþóri Einarssyni sem er hættur. Davíð er gríðarlega sterkur markvörður og tvímælalaust einn mikilvægasti maður liðsins.

Aftureldingarliðið er til alls líklegt, þeim gekk vel á undirbúningstímabilinu. Voru grátlega nærri því að vinna HK í annarri umferðinni í hörkuleik sem segir allt sem segja þarf um getu liðsins. Enginn skildi vanmeta Aftureldingu eða ganga með þær grillur að einhverjir leikir verði auðveldir i N1-deildinni.

Akureyri hefur gengið flest í haginn það sem af er tímabilsins en það má ekkert slaka á ef menn ætla að vera í toppbaráttunni áfram. Það þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að rifja upp að Afturelding getur bitið frá sér. Í mars 2011 tapaði Akureyri einmitt fyrir Aftureldingu hér í Íþróttahöllinni 21-24. Með sigrinum bjargaði Afturelding sér frá falli en Akureyri tók við deildarmeistarabikarnum eftir leikinn. Þannig að staða liðanna í deildinni hefur ekki mikið að segja um úrslit leikja.

Það er því mikilvægt að stuðningsmenn fjölmenni í Höllina á fimmtudaginn og skapi þá stemmingu sem þeir eru þekktir fyrir og leggi þannig sitt af mörkum til að vera í toppslagnum áfram, þar viljum við að sjálfsögðu vera.


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson