Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri áfram í bikarnum eftir maraþonleik gegn Víkingum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Tölfræði leiksins 
    Víkingur - Akureyri  34-35 (15-15)
Símabikar karla
Víkin
Mán 12. nóvember 2012 klukkan: 18:30
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson
Umfjöllun

Gaman að sjá Guðlaug mættan til leiks á ný

12. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri áfram í bikarnum eftir maraþonleik gegn Víkingum

Það er óhætt að leikmenn Akureyrar og Víkings hafi boðið áhorfendum upp á taugatrekkjandi leik í kvöld þegar liðin mættust á heimavelli Víkinga í bikarkeppninni. Það vakti verulega athygli að Guðlaugur Arnarson var mættur til leiks á nýjan leik og var í byrjunarliðinu. Gulli hljóp í skarðið fyrir Hrein Hauksson sem meiddist á æfingu í gær og í upphituninni fyrir leikinn kom í ljós að hann myndi ekki spila þennan leik. Fyrirfram hafa áreiðanlega margir talið að Akureyrarliðið myndi fara með tiltölulega þægilegan sigur af hólmi og einhvernveginn fannst manni eins og að leikmenn Akureyrar hafi verið með það í undirmeðvitundinni að það þyrfti ekki að spila á fullum krafti í leiknum. Það var hins vegar ljóst að Víkingar komu til leiks af fullum krafti og sýndu að þeir eru feikilega sterkir og duglegir.

Jafnt var á flestum tölum í upphafi en Akureyri þó með frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn án þess þó að munurinn yrði lengi vel aldrei meiri en tvö mörk. Eftir 24 mínútna leik náðist loks þriggja marka forskot, 14-11 og aftur 15-12 en Víkingar gáfust ekki upp og jöfnuðu í 15-15 með þrem síðustu mörkum hálfleiksins.

Stefán Guðnason byrjaði í markinu en fann sig ekki þannig að Jovan kom í markið í stöðunni 8-8 og tók nokkra góða bolta, þar á meðal vítakast.


Guðmundur Hólmar átti góðan leik í dag. Mynd: Daníel Rúnarsson visir.is

Sami barningurinn hélt áfram í seinni hálfleik, Akureyri missti mann útaf vegna rangrar skiptingar og hóf því seinni hálfleikinn tveimur færri. Það nýttu Víkingar sér og komust yfir í fyrsta sinn í leiknum með fyrsta marki hálfleiksins. Þessu var svarað með næstu þremur mörkum en segja má að seinni hálfleikur hafi spilast alveg eins og sá fyrri. Akureyri ávallt á undan, aldrei þó meira en þremur mörkum yfir. Það voru síðan Víkingar sem jöfnuðu leikinn með síðasta marki leiksins 28 – 28 og því kom til framlengingar.


Bjarni var öruggur á vítalínunni í dag. Mynd: Daníel Rúnarsson visir.is

Víkingar hófu hana með látum og skoruðu fyrstu tvö mörkin en Akureyri náði að komast yfir í 32 – 31 en Víkingar jöfnuðu enn og aftur í 32 -32 og því var framlengt í annað sinn.

Áfram hélt strögglið, jafnt á öllum tölum en að lokum var það Guðmundur Hólmar sem tryggði Akureyri sigurinn með lokamarki leiksins sem endaði 34 -35.

Þetta var rosalega erfiður leikur gegn baráttugöðum og harðduglegum Víkingum og vissulega má segja að takmarkið hafi náðst, þ.e.a.s. að sigra og komast áfram í bikarnum en það var enginn stórmeistarabragur á spilamennskunni í dag.

„Nýliðinn“ Guðlaugur Arnarsson átti fína endurkomu og ljóst að það er engin ástæða fyrir hann að láta skóna rykfalla mikið á hillunni góðu.


Gulli og Andri Snær stóðu fyrir sínu. Mynd: Daníel Rúnarsson visir.is

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 11 (8 úr vítum), Guðmundur Hólmar Helgason 8, Andri Snær Stefánsson 4, Bergvin Gíslason 4, Geir Guðmundsson 4, Friðrik Svavarsson 2 og Heimir Örn Árnason 2.

Jovan varði 14 skot, nokkur þeirra úr dauðafærum og þar á meðal eitt vítakast.

Hjá Víkingum var Arnar Freyr Theódórsson markahæstur með 7 mörk og Hlynur Elmar Matthíasson reyndist sínum gömlu félögum verulega erfiður og skoraði 6 mörk.

Það var ekki bara Akureyri sem lenti í ströggli gegn liði úr 1. deild í kvöld því að úrvalsdeildarlið Fram tapaði fyrir Stjörnunni og er þar með úr leik í bikarnum.


Bergvin var með fjögur góð mörk í leiknum. Mynd: Daníel Rúnarsson visir.is


Geir skoraði einnig fjögur mörk í dag. Mynd: Daníel Rúnarsson visir.is

Öll úrslit kvöldsins í bikarnum
Stjarnan 23-22 Fram
Víkingur 34-35 Akureyri
Stjarnan-2 18-35 Afturelding
Valur-2 19-26 Valur
Afturelding-2 27-40 Selfoss
Fylkir-2 28-27 Fylkir

Tengdar fréttir

Það er jú bara eitt takmark í bikarleik - að vinna leikinn

13. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl við Bjarna Fritzsson og Róbert Sighvatsson

Það er ekki hægt að segja að það sé gríðarleg umfjöllun um bikarleiki gærkvöldsins í fjölmiðlum landsins. Akureyrarliðið hélt reyndar rakleiðis út á flugvöll eftir leikinn þannig að blaðamenn fengu fyrir vikið ekki mörg tækifæri til að ræða við leikmenn eða þjálfara liðsins.

Á sport.is eru þó eftirfarandi viðtöl við þá Bjarna Fritzsson og Róbert Sighvatsson þjálfara liðanna:





Víkingar munu klárlega leggja allt í sölurnar

10. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bikarleikur gegn Víkingum á mánudaginn

Þátttaka Akureyrar Handboltafélags í bikarkeppni HSÍ hefst að þessu sinni með útileik gegn Víkingum á mánudaginn. Víkingar eru í toppbaráttu 1. deildar og enginn skyldi halda að þeir verði auðveldir viðfangs á sínum heimavelli.

Þjálfari Víkinga er reynsluboltinn Róbert Sighvatsson og hefur hann verið með liðið nokkur undanfarin ár. Víkingar hafa 9 stig í 1. deildinni eftir sex leiki og eru einu stigi á eftir toppliðum Stjörnunnar og Selfoss.

Með Víkingum leikur góðkunningi okkar, Hlynur Elmar Matthíasson, einn Íslandsmeistara Akureyrar í 2. flokki síðasta vor. Hlynur hefur farið á kostum með Víkingum í haust og er einn markahæsti leikmaður liðsins.

Þá var tilkynnt í síðustu viku að Víkingar hefðu fengið nýjan leikmann sem er enginn annar en knattspyrnumaðurinn Atli Sveinn Þórarinsson en Atli Sveinn lék með yngri flokkum KA hér á árum áður.

Af öðrum reynsluboltum Víkinga má nefna markvörðinn Sebastían Alexandersson og fyrrum leikmann Gróttu, Arnar Frey Theódórsson.


Róbert, Hlynur, Atli Sveinn, Arnar Freyr og Sebastian

Leikur Víkings og Akureyrar hefst klukkan 18:30 í Víkinni og hvetjum við stuðningsmenn okkar á höfuðborgarsvæðinu til að leggja leið sína í Víkina og taka þátt í baráttunni.

Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á leikinn þá ætlar SportTV.is að sýna hann beint og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson