Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Tap gegn Fram í Safamýrinni í dag - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Tölfræði leiksins 
    Fram - Akureyri  30-23 (13-12)
N1 deild karla
Framhús
Sun 17. febrúar 2013 klukkan: 17:00
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Ó Pétursson. Eftirlit Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Guðmundur Hólmar fann sig vel í Safamýrinni í dag

17. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tap gegn Fram í Safamýrinni í dag

Akureyri tókst ekki að fylgja eftir sigrinum á FH frá miðvikudeginum þegar liðið mætti Fram í N1-deildinni. Fram byrjaði betur og náði fjögurra marka forskoti 7 – 4 en með góðum kafla jafnaði Akureyri í 8 -8 þegar 20 mínútur voru liðnar af leiknum. Akureyri missti tvo menn útaf um tíma og Fram seig framúr aftur en í leikhléi var forysta Fram eitt mark, 13-12.

Guðmundur Hólmar var gríðarlega öflugur í sóknarleiknum og skoraði 6 mörk í hálfleiknum, Geir 4 og Bergvin 2.


Guðmundur Hólmar átti frábæran leik

Seinni hálfleikur hófst með svipuðum hætti og sá fyrri, lítið gekk í sóknarleik Akureyrar og Fram náði fimm marka forystu, 18 – 13. Sá munur hélst lengi vel en Akureyri hleypti spennu í leikinn og minnkaði muninn í tvö mörk, 24 – 22 þegar sex mínútur voru eftir. Það dugði þó ekki, Heimir Örn fór meiddur af velli og Bergvin sína þriðju brottvísun og Fram vann lokakafla leiksins með sex mörkum gegn einu og leikinn þar með 30 – 23.


Geir stöðvar Ólaf Magnússon í hraðaupphlaupi

Fram liðið var öflugt í dag og ekki bætti úr skák að tölfræði dómgæslunnar var Akureyrarliðinu ekki beinlínis hagstæð. Þannig fékk Akureyri sjö brottvísanir en Fram liðið eina auk þess sem Fram fékk 6 vítaköst en Akureyrarliðið ekki eitt einasta.


Heimir Örn meiddist á ökkla og þurfti að yfirgefa völlinn
Myndirnar tók Valgarður Gíslason, ljósmyndari visir.is

Guðmundur Hólmar Helgason var yfirburðamaður hjá liðinu í dag með 10 mörk úr 11 skotum þá átti Jovan Kukobat prýðisgóðan leik í markinu.

Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 10, Geir Guðmundsson 6, Bergvin Þór Gíslason 5, Friðrik Svavarsson 1 og Valþór Guðrúnarson 1.

Í markinu varði Jovan Kukobat 18 skot og Stefán Guðnason reyndi við tvö vítaköst og varði annað þeirra með stæl.

Það er óhætt að segja að það sé ströggl framundan því næsti leikur er gegn Haukum í Hafnarfirði fimmtudaginn 21. febrúar.

Tengdar fréttir

Það er alltaf von á hörkuleikjum í Framhúsinu

16. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fram – Akureyri í dag í beinni á SportTV.is klukkan 17:00

Nú tekur alvaran í N1 deildinni við og Akureyri mætir í Fram húsið í dag, sunnudag. Fram situr þessa stundina í 3. sæti N1-deildarinnar eftir gott gengi í undanförnum umferðum. Akureyri þarf að ná upp sama krafti í leik sínum og skilaði þeim sigri á FH í bikarnum á miðvikudaginn til að ná sér aftur á strik í deildinni. Það er því mikilvægt að fjölmargir stuðningsmenn liðsins á Höfuðborgarsvæðinu flykkist í Framheimilið og taki þátt í baráttunni.

Þeim sem eiga þess ekki kost að mæta á leikinn bendum við á útsendingu SportTV.is frá leiknum en leikurinn hefst klukkan 17:00.

Smelltu hér til að fá stærri mynd af útsendingu SportTV.is


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson