Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Valsmenn innbyrtu sigur á Akureyri - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2012-13

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Valur  20-22 (8-10)
N1 deild karla
Íþróttahöllin
Fim 14. mars 2013 klukkan: 19:00
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Eftirlitsmaður Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Guðmundur fór fyrir sóknarleiknum í dag

14. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Valsmenn innbyrtu sigur á Akureyri

Það var hart barist eins og við mátti búast á fjölum Íþróttahallarinnar í kvöld þar sem Akureyri og Valur mættust í afar mikilvægum leik fyrir bæði liðin. Valsmenn fóru betur af stað og komust í 0 – 3 áður en heimamenn komust á blað. Varnir beggja liða og markvarsla var með ágætum enda var ekki mikið skorað í fyrri hálfleiknum.

Akureyri jafnaði í 7 -7 en Valsmenn héldu áfram frumkvæðinu og leiddu 8 – 10 í hálfleik. Guðmundur Hólmar Helgason fór fyrir sóknarleik Akureyrar og skoraði fimm af þessum átta mörkum í hálfleiknum.


Það var hart tekist á í varnarleiknum

Valsmenn juku forskotið í 8 – 12 með fyrstu tveim mörkum seinni hálfleiks en Akureyri klóraði í bakkann og fylgdi Valsmönnum ávalt eftir.

Í stöðunni 14 – 15 komu fjögur Valsmörk í röð og útlitið orðið ískyggilegt enda einungis níu mínútur eftir og sóknarleikurinn ekki að ná neinum árangri. Eftir leikhlé rættist þó úr málum og með gríðarlegri baráttu saxaði liðið forskotið niður í tvö mörk, 19 – 21.

Dómarar leiksins þeir Jónas og Ingvar höfðu ekki vakið mikla lukku í leiknum en á þessum tímapunkti keyrði þó um þverbak. Fyrst skoraði Bjarni fullkomlega löglegt mark og í næstu sókn skoraði Geir sömuleiðis fínt mark en í báðum tilfellum dæmdu dómararnir ruðning á þá. Þetta sáu allir í húsinu, og jafnvel þjálfarar Valsliðsins höfðu orð á þessu eftir leikinn.


Bjarni var ekki sáttur með frammistöðu dómaranna í kvöld

Í næstu sókn Valsmanna lokuðu dómararnir augunum fyrir augljósum skrefum á leikmann Vals sem fengu í kjölfarið vítakast þegar 20 sekúndur voru til leiksloka, sem gulltryggði sigur þeirra.
Bjarni Fritzson skoraði síðasta mark leiksins sem lyktaði með tveggja marka sigri Vals 20 – 22.


Hvernig er hægt að dæma ruðning á Geir í þessu tilfelli?

Leikurinn var fjörugur og æsispennandi og synd að dómaraparið skyldi ekki höndla spennuna, þó svo að þeir eigi að teljast eitt reyndasta parið í dómarastéttinni í dag.

Í leikslok voru Guðmundur Hólmar Helgason og Hlynur Morthens útnefndir bestu leikmenn sinna liða og fengu að launum glæsilega matarkörfu frá Norðlenska.

Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 7, Bjarni Fritzson 5 (1 úr víti), Heimir Örn Árnason 3 (2 úr vítum), Geir Guðmundsson 2, Valþór Guðrúnarson 2 og Hreinn Þór Hauksson 1 mark.
Í markinu varði Jovan Kukobat 13 skot þar af 2 vítaköst.

Mörk Vals: Valdimar Fannar Þórsson 4, Atli Már Báruson 3, Finnur Ingi Stefánsson 3, Orri Freyr Gíslason 3, Sveinn Aron Sveinsson 3, Nikola Dokic 2, Vignir Stefánsson 2, Fannar Þorbjörnsson 1 og Þorgrímur Smári Ólafsson 1.
Í markinu varði Hlynur Mortens 14 skot þar af 2 vítaköst.

Þessi úrslit þýða að Akureyr á ekki möguleika á að komast í úrslitakeppnina og má ekki misstíga sig í þeim tveim leikjum sem eftir eru til þess hreinlega að forðast fall úr deildinni.

Tengdar fréttir

Spurning hvort Bergvin verður með í dag

14. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Valur - útsendingar

Við kynntum lið Valsmanna þegar þeir komu hingað norður þann 8. nóvember í vetur þar sem þeir fóru heim með bæði stigin. Síðan hefur mikið gengið á og Valsliðið tekið töluverðum breytingum, bæði leikmannahópurinn og ekki síst þjálfarateymið. Við höfum áður minnst á að Valsmenn sögðu Patreki Jóhannessyni þjálfara upp, einmitt eftir jafnteflisleik Vals og Akureyrar fyrir rúmum mánuði síðan. Í hans stað tók aðstoðarþjálfarinn, Heimir Ríkarðsson við og honum til aðstoðar er enginn annar en Þorbjörn Jensson, fyrrum landsliðsþjálfari.

Þess má geta að Þorbjörn lék á sínum fyrstu meistaraflokksárum hér á Akureyri með Þór, síðast tímabilið 1974-75 en þá gekk hann einmitt til liðs við Val.

Valsmenn fengu nýja og öfluga leikmenn til liðs við sig í janúar, þar má nefna serbnesku skyttuna Nikola Dokic, línumaðurinn sterki, Orri Freyr Gíslason sneri heim frá Danmörku og sonur Þorbjörns þjálfara, Fannar Örn Þorbjörnsson gekk til liðs við Valsmenn.


Hreinn og Guðmundur búnir að stöðva Nikola Dokic

Þegar skoðaðir eru fimm síðustu leikir Valsmanna er Finnur Ingi Stefánsson markahæstur með 24 mörk, þar af 7 í jafnteflisleiknum gegn Akureyri, Nikola Dokic er með 18, einnig 7 gegn Akureyri. Orri Freyr Gíslason 17, (hann fékk reyndar rautt spjald á upphafsmínútum síðasta leiks), Valdimar Fannar Þórsson 15 og síðan eru þeir Sveinn Aron Sveinsson og Þorgrímur Smári Ólafsson jafnir með 13 mörk hvor.

Lukkan hefur ekki verið með Valsmönnum í undanförnum leikjum sem hafa verið ótrúlega spennandi. Af síðustu sex leikjum Valsmanna lauk 2 með jafntefli, þrír töpuðust með 1 marki og einum leik töpuðu þeir með 2 mörkum.

Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, fyrri leikinn vann Valur og sá seinni endaði með jafntefli þannig að Akureyri þarf að taka á öllu sínu til að rétta sinn hlut í leiknum í kvöld.

Við verðum að vanda með beina textalýsingu hér á síðunni frá leiknum, smelltu hér til að fylgjast með textalýsingunni.

Leikurinn er einnig sýndur beint á SportTV.is og hefst útsending þeirra rétt fyrir klukkan 19:00.

Smelltu hér til að fylgjast með útsendingu SportTV.is


Það verður allt gefið í þennan leik!

13. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Barátta upp á líf og dauða á fimmtudaginn

Lífið heldur áfram í handboltanum og næsta verkefni Akureyrarliðsins er að kljást við Valsmenn í Íþróttahöllinni á fimmtudaginn klukkan 19:00.

Þetta er að öllum líkindum næstsíðasti heimaleikur Akureyrarliðsins á þessu tímabili þannig að það er um að gera að drífa sig í Höllina og vera með í baráttunni.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur báðum liðum, nú þegar þrjár umferðir eru eftir getur Akureyri ennþá fallið en með sigri slítur Akureyri sig endanlega frá fallsæti en Valsmenn sem eru neðstir í deildinni þurfa sigur til að eiga möguleika á að halda sæti sínu. Það er því ljóst að bæði lið munu berjast til síðasta manns fyrir stigunum í leiknum.

Valsmenn gerðu góða ferð hingað fyrr í vetur og unnu þá fjögurra marka sigur á Akureyri en liðin gerðu síðan jafntefli í Vodafone höllinni. Valsmenn hafa því betur í innbyrðis leikjum liðanna í vetur.


Bjarni Fritzson og Valdimar Þórsson í leik liðanna fyrr í vetur

Valsmenn sögðu Patreki Jóhannessyni upp sem þjálfara liðsins en Heimir Ríkarðsson, fyrrum aðstoðarþjálfari tók við og honum til aðstoðar er komin Þorbjörn Jensson, fyrrum þjálfari landsliðsins og raunar Vals liðsins einnig.

Við hvetjum fólk til að fjölmenna á völlinn og tryggja Akureyri áframhaldandi veru í efstu deild.


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson