Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Tap gegn FH í Kaplakrikanum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2013-14

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    FH - Akureyri  23-17 (9-6)
Olís deild karla
Kaplakriki
Fim 7. nóvember 2013 klukkan: 18:00
Dómarar: Magnús Jónsson og Ómar Ingi Sverrisson. Eftirlit Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Vladi var með fimm mörk í dag

7. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tap gegn FH í Kaplakrikanum

Akureyri sótti ekki gull í greipar FH-inga í kvöld þegar liðin mættust í Kaplakrikanum. FH byrjaði miklu betur og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og hélt góðu forskoti allt upp í stöðuna 7-3 þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum. Þá kom góður kippur hjá Akureyri sem skoraði þrjú mörk í röð og munurinn kominn niður í eitt mark, 7-6.
Það voru hins vegar FH-ingar sem skoruðu tvö síðustu mörk hálfleiksins og höfðu því þriggja marka forystu 9-6 í hálfleik.

Sóknarleikur beggja liða var afspyrnu dapur í fyrri hálfleik eins og tölurnar bera með sér. En FH-ingar gerðu í raun út um leikinn á upphafsmínútum seinni hálfleiks en þeir skoruðu þá fimm mörk í röð og þessa átta marka forystu náði Akureyri aldrei að vinna niður neitt að gagni.
Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum kom smá sóknarkippur og munurinn fór niður í fimm mörk, 19-14 en FH lét ekkert slá sig út af laginu og landaði þægilegum sex marka sigri 23-17.

Varnarleikurinn var lengst af alveg þokkalegur en sóknarleikur liðsins var afspyrnuslakur, fjöldi tapaðra bolta sem FH nýtti til hins ítrasta með fjölda marka úr hraðaupphlaupum. Það var trúlega stærsti munurinn á liðunum í dag.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 6 (3 úr vítum), ), Vladimir Zejak 5, Sigþór Heimisson 3, Kristján Orri Jóhannsson,Valþór Guðrúnarson og Þrándur Gíslason með 1 mark hver.
Í markinu vörðu Jovan Kukobat og Tomas Olavson 7 skot hvor.

Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson og Magnús Óli Magnússon 6 mörk hvor, Ásbjörn Friðriksson 4 (3 úr vítum), Atli Rúnar Steinþórsson, Benendikt Reynir Kristinsson og Valdimar Fannar Þórsson 2 mörk hver og Andri Berg Haraldsson 1 mark.
Í markinu varði Daníel Freyr Andrésson 16 skot.


Bjarni Fritzson var markahæstur í dag. Mynd: visir.is


Sigþór Árni Heimisson átti góða spretti. Mynd: visir.is


Vladimir sýndi að hann getur bombað á markið. Mynd: visir.is

Nú þarf liðið einfaldlega að girða sig í brók fyrir næsta leik sem er einnig útileikur, gegn Fram fimmtudaginn 14. nóvember.

Tengdar fréttir

Bjarni þekkir vel til í Kaplakrikanum

7. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: FH – Akureyri




Það er óhætt að segja að erfitt verkefni bíði Akureyrarliðsins í kvöld. Mótherjinn er FH liðið sem er eitt það sterkasta í deildinni þó það hafi reyndar átt misjafna leiki í vetur. FH er fyrir leikinn þrem stigum á undan Akureyri en leikir liðanna hafa undanfarin ár boðið upp á mikla spennu og dramatík. Engin ástæða er til að ætla annað en það sama verði uppi í dag.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Kaplakrika og vonumst við til að fólk geti fylgst með gangi leiksins hér á síðunni þegar hann hefst. Nánari upplýsingar koma hér þegar nær dregur.


Akureyri og FH hafa marga hildi háð á undanförnum árum

5. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn FH á fimmtudaginn

Eftir smáhlé tekur alvaran við í Olís-deild karla á fimmtudaginn þegar Akureyri mætir Fimleikafélagi Hafnarfjarðar í Kaplakrikanum. FH liðið er klárlega eitt best mannaða lið deildarinnar í ár og voru litlar breytingar á mannskapnum á milli ára.
Þeir kræktu í Valdimar Fannar Þórsson fyrir tímabilið en Valdimar hefur leikið með Val undanfarin ár en á góðum degi er Valdimar einn flinkasti spilari deildarinnar. Einnig endurheimtu þeir hornamanninn Benedikt Reynir Kristinsson sem hefur verið með Aftureldingu og Gróttu síðustu árin.

FH-ingar hafa verið í toppbaráttunni undanfarin tímabil, urðu Íslandsmeistarar 2011 eftir magnað einvígi við Akureyri. Segja má að það sé valinn maður í hverri stöðu hjá FH, sóknarleiknum stýrir Ásbjörn Friðriksson af stakri snilld og skytturnar Ragnar Jóhannsson og Magnús Óli Magnússon hafa farið á kostum í vetur. Í hægra horninu er oftast markamaskínan Einar Rafn Eiðsson á milli þess sem hann tekur skyttustöðuna og í vinstra horninu hefur Benedikt Reynir Kristinsson verið drjúgur. Sigurður Ágústsson er einnig erfiður viðureignar á línunni.
Þegar litið er á helstu markaskorara FH liðsins þá eru efstir á blaði Magnús Óli Magnússon með 25 mörk, Einar Rafn Eiðsson með 24, Ásbjörn Friðriksson, Benedikt Reynir Kristinsson og Ragnar Jóhannsson allir með 17 mörk og Sigurður Ágústsson með 13 mörk.

Enn er þó ótalinn markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson sem hefur heilt yfir verið besti maður liðsins í vetur og sömuleiðis á síðasta tímabili. Daníel ver sjaldan færri en 20 skot í leik og hefur verið ótrúlega stöðugur í sínum leik.

Akureyrarliðið endurheimtir Valþór Guðrúnarson í hópinn en Valþór tók út leikbann í síðustu umferð. Einnig má búast við því að Heimir Örn Árnason reimi á sig skóna á ný og verði til taks að bregða sér inná.


Heimi leiddist ekki að spila gegn FH í bikarnum í fyrravetur

Leikurinn hefst klukkan 18:00 á fimmtudaginn í Kaplakrika og ástæða til að óska eftir að allir stuðningsmenn á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu mæti og styðji við bakið á strákunum í þessum leik.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson