Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri áfram í bikarnum eftir sigur á HK - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2013-14

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - HK  21-17 (8-7)
Coca Cola bikar karla
Íþróttahöllin
Sun 8. desember 2013 klukkan: 16:00
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson. Eftirlitsmaður Helga Magnúsdóttir
Umfjöllun

Jovan var öflugur í markinu í dag

8. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri áfram í bikarnum eftir sigur á HK

Akureyri og HK mættust öðru sinni á fjórum dögum í Höllinni, að þessu sinni í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Vitað mál var að þessi leikur yrði erfiður þar sem HK myndi leggja allt í sölurnar til að hefna fyrir tapið í deildinni á fimmtudaginn.

Sú varð líka raunin, Akureyrarliðið saknaði nokkurra leikmanna, Bjarni Fritzson tók sér stöðu á þjálfarabekknum, Andri Snær Stefánsson var erlendis, Arnór Þorri Þorsteinsson meiddist í leik með 2. flokki fyrr í dag og Hreinn Þór Hauksson var fjarri góðu gamni. Gunnar Þórsson er meiddur á skothöndinni en lét sig hafa það að leika með reifaða höndina.

Inn í hópinn komu Heiðar Þór Aðalsteinsson frá Hömrunum ásamt þeim Patreki Stefánssyni og Kristjáni Má Sigurbjörnssyni sem leika með 2. flokki.

Akureyri byrjaði af krafti og komst í 3-0 áður en kviknaði á gestunum. Þeir unnu sig reyndar inn í leikinn og náðu að komast yfir í stöðunni 5-6. Akureyri var þó fljótt að endurheimta forystuna og leiddi í hálfleik 8-7. Óvenju lítið skorað en markverðir liðanna vörðu reyndar mjög vel, sérstaklega Jovan Kukobat sem var frábær í leiknum.


Jovan Kukobat hafði oft ástæðu til að brosa í leiknum enda með frábæran leik

Fyrsta mark seinni hálfleiks kom frá HK sem jafnaði þar með leikinn en þar með hrökk Akureyrarliðið í gang á ný og skoraði þrjú næstu mörk og náði í kjölfarið fjögurra marka forskoti, 13-9 og 14-10. HK sýndi mikinn karakter og janfaði leikinn í 14-14.

Leikurinn var nokkuð í járnum næstu mínútur, Akureyri endurheimti tveggja marka forskot og Jovan Kukobat varði sem berserkur. HK fékk vítakast en Tomas Olason kom inná og varði það með tilþrifum. Í næstu sókn fékk HK aftur vítakast, Tomas skokkaði aftur í markið og þetta víti small í þverslánni.


Tomas Olason ver vítakast með tilþrifum

Þrátt fyrir þessi misnotuðu vítaköst náði HK ítrekað að minnka muninn niður í eitt mark, síðast í 18-17. En lengra komust þeir ekki og Akureyri gulltryggði sigurinn með þrem síðustu mörkum leiksins.

Það má segja að hafi verið nokkur taugatitringur í mönnum en þetta hafðist að lokum. Sigþór Árni Heimisson tók af skarið á lokamínútunum og skoraði þá þrjú glæsileg mörk. Valþór átti góðar rispur og sömuleiðis Kristján Orri og Heimi Örn Árnason sem lék óvenjumikið í sókninni í dag. Maður liðsins var þó tvímælalaust Jovan Kukobat sem átt enn einn stórleikinn í markinu.

Hjá HK var Helgi Hlynsson markvörður sömuleiðis frábær og varði fjölmörg dauðafæri.

Mörk Akureyrar: Valþór Guðrúnarson 6 (1 úr víti), Kristján Orri Jóhannsson 5 (1 úr víti), Sigþór Árni Heimisson 4, Heimir Örn Árnason 2, Þrándur Gíslason 2, Gunnar Þórsson 1 og Halldól Logi Árnason 1 mark.
Jovan Kukobat varði 18 skot og Tomas Olason varði 1 vítakast.

Mörk HK: Leó Snær Pétursson 4 (2 úr vítum), Andri Þór Helgason 3, Garðar Svansson 3 (1 úr víti), Eyþór Már Magnússon 2, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 2, Ólafur Víðir Ólafsson 2, og Atli Karl Bachmann 1.
Helgi Hlynsson varði 10 skot í leiknum.

Þetta var síðasti leikur liðanna á árinu, Akureyri á ekki leik fyrr en 25. janúar þegar leikinn verður frestaður leikur í Vestmannaeyjum.

Tengdar fréttir

Heimir fer sáttur í jólafríið

9. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir bikarleik Akureyrar og HK

Blaðamenn Morgunblaðsins og visir.is voru mættir á bikarleik Akureyrar og HK í gær og tóku viðtöl við þjálfarana Heimi Örn Árnason og Samúel Ívar Árnason í leikslok. Skoðum fyrst viðtöl Einars Sigtryggssonar frá Morgunblaðinu.

Heimir Örn: Neyðarúrræði að setja mig í sóknina

Heimir Örn Árnason var hættur að spila með Akureyri en dró fram skóna til að styrkja vörnina en í bikarsigrinum á HK sá hann um að stjórna sóknarleiknum í seinni hálfleik. Sá gamli var að vonum ánægður með sigurinn og eflaust dauðþreyttur.

„Sigur er það eina sem skiptir máli. Við vorum í vandræðum og margir menn fjarverandi. Bjarni Fritz var ekki með og svo vantaði Hreinsa í vörnina. Þrándur er búinn að vera tæpur og svo meiddist unga skyttan okkar, hann Arnór, skömmu fyrir leik. Það var því algjört neyðarúrræði að ég tók að mér að fara í sóknina. Ég lét slag standa því ég vissi að það eru fimmtíu dagar í næsta leik,“ sagði Heimir Örn Árnason, annar af þjálfurum Akureyringa en hann stjórnaði sóknarleik sinna manna í seinni hálfleik.

„Ég er mjög sáttur við að hafa landað þessu enda átti ég von á hörkuleik þar sem allt yrði í járnum.
Mér fannst við vera með þá og mér leið vel í hálfleik þrátt fyrir smábasl á okkur. Við tökum nú góða skorpu til að bæta okkur fyrir næstu leiki en bakverðirnir okkar voru að missa aðeins af mönnum svo það má laga. Við erum búnir að vera á góðu róli í síðustu leikjum og það er góður andi í liðinu. Svo verður bara að sjá hvernig jólasteikin fer í mann hvort ég haldi þessu eitthvað áfram eftir áramót.“


Heimir veldur usla í HK vörninni

Samúel Ívar: Upphafsmínúturnar skildu liðin að

Samúel Ívar Árnason, þjálfari HK, þurfti að sjá sitt lið tapa í annað skipti á fjórum dögum á Akureyri þegar HK-ingar voru slegnir út úr Coca-Cola-bikarnum. Í þetta sinn var leikurinn hnífjafn en Akureyringar átti betri endasprett sem skilaði þeim fjögurra marka sigri.

„Þetta var mjög jafn leikur og hefði getað fallið okkar megin. Það sem skildi að voru upphafsmínúturnar í hvorum hálfleik. Þar fá Akureyringar sjö mörk í plús en við náðum þeim alltaf aftur.
Við jöfnuðum í 14:14 og fengum svo vítaköst til að komast yfir en þau klikkuðu og þar hefðum við getað komist í bílstjórasætið. Það tókst því miður ekki og því fór sem fór.
Ég hef lítið út á mína menn að setja. Baráttan var fyrir hendi og við sköpuðum færi. Nýtingin skilaði sér því miður ekki og þetta féll bara þeirra megin í dag, því miður,“ sagði Akureyringurinn Samúel Ívar að lokum.


Samúel Ívar fer yfir málin með sínum mönnum

Sömu aðilar spjölluðu við Birgi H. Stefánsson blaðamann visir.is eins og lesa má hér að neðan:

Heimir Örn: Förum glaðir á jólahlaðborðið um næstu helgi

„Það var alveg bókað að þetta væri að fara að verða erfiðara,“ sagði Heimir Örn Árnason þegar hann var spurður að því hvort að þetta hafi verið erfiðari en leikurinn þremur dögum áður. „þeir voru bara miklu ferskari og við vissum það. Þeir voru í einhverjum vandræðum og prófastandi á fimmtudaginn. Óli t.d. var ferskari núna og mjög erfiður viðureignar. Vörnin var líka góð og þetta var bara helvíti gott, manni er eiginlega sama hvernig maður vinnur í bikarnum.“

Jovan Kukobat var heldur betur betri en ekki neinn í þessum leik
„Já, hann er búinn að vera frábær í vetur og mjög stöðugur sem er svolítið annað en í fyrra. Hann er bara búinn að æfa mikið betur og orðinn þessi markmaður sem við þurftum, er alveg hrikalega ánægður með hann.“

Ungir strákar eru að stíga upp hjá ykkur, Valþór verið áberandi og núna er Sigþór Heimisson að stimpla sig inn virðist vera.
„Hann er svolítil Vranjes týpa,“ sagði Heimir brosandi. „Hann var að setja glæsileg mörk hér undir lokin í skrefinu og allt. Hann er frábær og Valþór líka, eru að stíga upp og svo vonandi kemur bara Beggi með þeim og þá höfum við bara mikla trú á þessu eftir áramót.“


Heimir var ánægður með þá Jovan og Sissa

Menn fara þá líklegast bara nokkuð brosandi inn í jólafríið?
„Já, við förum nokkuð glaðir á jólahlaðborðið um næstu helgi. Það hefði verið fljótt að breytast ef við hefðum tapað þessum leik, þá hefði verið þungt yfir okkur. Við erum samt bara þokkalega sáttir með átta stig og eina umferð inni, það hefur samt verið smá drasl í okkur. Svo er bara að vona að það verði fríar pulsur og hleðsla eins og í KA-heimilinu þá mæta 500 mans.“

Samúel Ívar Árnason: Allt önnur tilfinning en eftir síðasta leik

„Ég er bara mjög svekktur,“ sagði Samúel Ívar Árnason þjálfari HK strax eftir leik. „Það sem verður okkur að falli hér í dag eru líklegast fyrstu mínúturnar bæði í fyrri og seinni hálfleik, þar eru þeir sjö mörk í plús á þeim kafla. Það var alveg fyrirmyndar barátta hjá mínum strákunum finnst mér og þeir ætluðu að borga fyrir sig,“ sagði Samúel Ívar.

„Þetta var allt annar leikur en síðasta fimmtudag, við töpum þessum leik en þetta gat enda hvoru megin sem var. Við eigum tvo sénsa á að komast yfir, fáum færi niður í horni og klúðrum víti. Hvort sem það hefði skipt einhverju máli þá hefði það samt verið ákveðið búst fyrir strákana að komast yfir.“

Er það skotnýtingin sem skilur liðin að hér í dag?
„Helgi varði vel en Kukobat var að verja aðeins betur hinumegin. Við erum að klúðra fullt af góðum færum en það má líka segja um Akureyringa þar sem Helgi varði nokkra góða bolta. Jú, maður er svekktur með að hafa tapað og vera út úr bikarnum. Það er samt allt önnur tilfinning en eftir síðasta leik, nú vorum við með allan leikin og sýndum vilja en þetta einfaldlega féll ekki með okkur.


Helgi markvörður HK var tvímælalaust maður liðsins


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson