Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyringar fóru stigalausir frá Eyjum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2013-14

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Tölfræði leiksins 
    ÍBV - Akureyri  27-22 (10-8)
Olís deild karla
Vestmannaeyjar
Lau 22. febrúar 2014 klukkan: 13:30
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Umfjöllun

Sissi og Bjarni voru drjúgir í Eyjum



24. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyringar fóru stigalausir frá Eyjum

ÍBV endurtók leikinn frá síðustu helgi með því að vinna Akureyri í Eyjum, að þessu sinni með fimm mörkum, 27-22. Leikurinn þróaðist með svipuðum hætti og fyrir viku, Akureyri yfir strax í byrjun með góðum sóknarleik og ennþá betri varnarleik sem virtist illviðráðanlegur fyrir Eyjamenn. Eftir að Akureyri hafði komist í 4-6 misstu þeir tvo menn útaf og tveimur fleiri gengu heimamenn á lagið og skoruðu næstu fimm mörk leiksins.

Í hálfleik var tveggja marka munur. 10-8 fyrir heimamenn en Akureyrarliði kom sterkt til baka og jafnaði leikinn í 16-16 með góðum leikkafla. Í kjölfarið missti liðið menn af velli og Vestmanneyingar refsuðu grimmt og náðu í kjölfarið mest sex marka forskoti 24-18 sem þér létu ekki af hendi.

Bergvin Gíslason minnkaði muninn í fimm mörk með sirkusmarki á lokasekúndunum, lokastaðan 27-22.

Heimir Örn Árnason var ekki í leikmannahópnum í dag vegna eymsla nára en Hreinn Þór Hauksson kom inn í hópinn, þrátt fyri nefbrot í seinni FH leiknum og sömuleiðis kom Bergvin Þór Gíslason inn en eins og menn muna þá meiddist Bergvin á öxl í leiknum gegn Val.

Það var margt jákvætt í leiknum í dag, Sigþór Árni Heimisson átti skínandi leik í sókninni, sennilega einn sinn besta með liðinu og Bjarni Fritzson var góður líka. Það sem helst skildi á milli liðanna var markvarslan en markverðir Akureyrar náðu sér ekki á strik, með 8 varða bolta á móti 18 hjá markverði Eyjamanna.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 7 (2 úr vítum), Þrándur Gíslason 4, Sigþór Heimisson 3, Gunnar Þórsson 2, Kristján Orri Jóhannsson 2, , Bergvin Þór Gíslason 1, Halldór Logi Árnason 1, Hreinn Þór Hauksson 1 og Valþór Guðrúnarson 1.
Í markinu varði Jovan 7 skot og Tomas 1.

Mörk ÍBV: Róbert Aron Hostert 9,Guðni Ingvarsson 5, Grétar Þór Eyþórsson 4, Agnar Smári Jónsson 3, Theodór Sigurbjörnsson 3 (1 úr víti), Magnús Stefánsson 2 og Andri Heimir Friðriksson 1.
Í markinu varði Kolbeinn Aron Ingibjargarson 18 skot.

Næsti leikur Akureyrar er á heimavelli gegn ÍR, fimmtudaginn 6. mars og þarf ekki að hafa mörg orð um mikilvægi þess leiks.

Tengdar fréttir

Það er ekki amalegt að koma til Vestmannaeyja

20. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri mætir ÍBV aftur á laugardaginn, í Eyjum




Þriðji hluti Olís-deildar karla hefst í dag með þremur leikjum, Akureyri hefur þennan hluta með útileik gegn ÍBV en sá leikur verður á laugardaginn og hefst klukkan 13:30. Liðin mættust í Eyjum síðasta sunnudag í hörkuleik þannig að búast má við að sama barátta verði uppi á laugardaginn.

Í þessum lokahluta deildarinnar fær Akureyri þrjá heimaleiki en fjóra útileiki og er leikjaplanið í umferðinni sem hér segir:

LeikurDagurKlukkanKeppnisstaður
ÍBV - AkureyriLau 22. febrúar 201413:30Vestmannaeyjar
Akureyri - ÍRFim 6. mars 201419:00Íþróttahöllin
Fram - AkureyriFim 13. mars 201418:00Framhús
Akureyri - ValurFim 20. mars 201419:00Íþróttahöllin
FH - AkureyriFim 27. mars 201418:00Kaplakriki
Haukar - AkureyriFim 10. apríl 201419:30Schenkerhöllin
Akureyri - HKMán 14. apríl 201419:30Íþróttahöllin

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson