Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Haukarnir reyndust erfiðir í kvöld - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2015-16

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Haukar  17-28 (9-14)
Olís deild karla
KA heimilið
Fim. 24. sept. 2015 klukkan: 19:00
Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson.
Umfjöllun

Róbert Sigurðarson og Hreiðar Levý áttu flotta spretti í kvöld



24. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Haukarnir reyndust erfiðir í kvöld

Það var greinilegt að Haukar voru staðráðnir í að bæta fyrir tapleikinn í síðustu umferð og mættu af gríðarlegum krafti til leiks. Þeir komust í 1-4 og eftir fimmtán mínútna leik var forysta þeirra 5-8. Þá kom fínn sprettur hjá heimamönnum sem jöfnuðu í 8-8 og mikil stemming jafnt innan sem utan vallar.

Akureyri fékk tækifæri til að komast yfir en Giedrius markvörður þeirra varði þá hraðaupphlaup og skömmu síðar missti Akureyri tvo menn af velli og voru um tíma einungis fjórir útileikmenn gegn fullskipuðu liði Hauka.
Þetta nýttu Haukar til hins ítrasta og sigldu fram úr á ný, á meðan ekkert gekk hjá Akureyrarliðinu fengu Haukar ódýr mörk á silfurfati, og á skömmum tíma var forskotið orðið fimm mörk, 9-14 sem var einmitt hálfleiksstaðan.

Munurinn á liðunum í fyrri hálfleik var fyrst og fremst markvarslan, Giedrius átti stórleik í Haukamarkinum, varði 11 skot á meðan Hreiðar Levy og Tomas náðu sér ekki strik og voru með samtals fjögur varin skot.

Seinni hálfleikurinn hófst á sama hátt og sá fyrri endaði, Haukar fengu ódýr mörk, úr hraðaupphlaupum eftir sendingarfeila og skyndilega var munurinn orðinn tíu mörk, 10-20 og greinilegt að heimamenn misstu trúna á verkefnið.

Mestur varð munurinn tólf mörk, 11-23 en þá kom Hreiðar Levý í markið á ný og sýndi allar sínar bestu hliðar, og átti nokkrar stórbrotnar vörslur. En því miður gekk erfiðlega að skora á hinum enda vallarins. Róbert Sigurðarson sem hafði einkum staðið fyrir sínu í varnarleiknum sýndi að hann kann sitthvað fyrir sér í sókninni einnig, skoraði tvö glæsimörk og sótti vítakast. En vítin gáfu ekki heldur mikið af sér í dag, einungis eitt af fjórum gaf mark og munar um minna.

Úrslitin voru svosem ráðin og einungis spurning hve stór sigur Hauka yrði og að lokum varð hann 11 mörk, 17-28.

Mörk Akureyrar: Brynjar Hólm Grétarsson og Kristján Orri Jóhannsson skoruðu 3 mörk hvor, Bergvin Þór Gíslason, Halldór Logi Árnason, Hörður Másson og Róbert Sigurðarson 2 mörk hver, Andri Snær Stefánsson, Friðrik Svavarsson og Heiðar Þór Aðalsteinsson voru með 1 mark hver.
Í markinu varði Hreiðar Levý 7 skot og Tomas 2, þar af 1 vítakast.

Mörk Hauka: Elías Már Halldórsson 6 mörk, Egill Eiríksson, Einar Pétur Pétursson og Tjörvi Þorgeirsson 4 mörk hver, Brynjólfur Snær Brynjólfsson og Janus Daði Smárason 3 hvor, Jón Þorbjörn Jóhannsson 2 mörk, Heimir Óli Heimisson og Þröstur Þráinsson 1 mark hvor.
Giedrius Morkunas varði samtals 16 skot og Grétar Ari Guðjónsson 3 skot.
Það voru síðan markverðirnir Hreiðar Levý og Giedrius sem voru valdir bestu menn sinna liða og fengu að vanda glæsilega körfu með afurðum frá Norðlenska.

Strákarnir fá ekki langan tíma til að sleikja sárin því stax á sunnudaginn halda þeir í Hafnarfjörðinn þar sem þeir mæta lærisveinum Halldórs Sigfússonar í FH og nú er bara að vona að þeir feti í fótspor Haukanna og bæti snarlega fyrir vonbrigðin í kvöld.

Tengdar fréttir

Kristján Orri leggur allt í leikinn

24. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Kristján Orri: Verðum hrikalega flottir í kvöld!

Kristján Orri Jóhannsson, hinn magnaði hornamaður Akureyrar liðsins, er í stuttu viðtalið við Þorstein Hauk Harðarson á sport.is í dag í tilefni af leiknum gegn Haukum í kvöld. Um gengi liðsins það sem af er mótinu segir Kristján:

„Sóknarlega höfum við kannski ekki alveg verið nógu áræðnir, því fylgir að við höfum verið að fá á okkur of mikið af einföldum hraðaupphlaupum. Ásamt því þurfum við að halda betur út og vera einbeittir allan leikinn þar sem nokkrar mínútur á hælunum geta skipt sköpum í handboltaleik," segir Kristján Orri og bætir við.

„Vörn og markvarsla hefur verið mjög góð en eins og ég segi þá hefur okkur vantað örlitla áræðni í sóknarleikinn. Við höfum verið að vinna vel í því í vikunni og verðum hrikalega flottir í kvöld!"


Kristján Orri var valinn maður Akureyrar eftir síðasta heimaleik

Hvernig er mórallinn í hópnum eftir byrjunina? „Mórallinn er áfram mjög góður. Menn eru virkilega hungraðir í sigur."

Akureyri spilar heimaleiki sína í KA-heimilinu í stað þess að spila í Höllinni eins og undanfarin ár. „Persónulega þá lýst mér vel á það. Mér finnst gott að spila á dúknum og svo myndast líka gríðarlega góð stemning í húsinu."

Að lokum eiga, Akureyringar séns gegn Haukum í kvöld?
„Já ekki spurning. Undirbúningurinn fyrir leikinn hefur verið góður, menn eru búnir að vera einbeittir á æfingum og höfum verið að vinna í þeim hlutum sem við þurfum að bæta. Við erum með ákveðin markmið fyrir hvern og einn leik sem við vinnum eftir."


Haukarnir mæta norður í dag

24. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri – Haukar

Það styttist í stórleikinn gegn Íslandsmeisturum Hauka, hann hefst klukkan 19:00 og strákarnir þurfa allan þann stuðning sem völ er á í baráttunni. Áhorfendur eru okkar áttundi maður á vellinum og gefa leikmönnum svakalegan aukakraft! Þannig að nú treystum við á að handboltaáhugamenn Norðurlands flykkist á leikinn og leggi sitt lóð á vogarskálarnar!

Einn af lykilmönnum Haukaliðsins í dag er Elías Már Halldórsson sem lék með Akureyri fyrri part síðasta tímabils. Við bjóðum Elías Má að sjálfsögðu velkominn norður.


Elías Már í leik með Akureyri gegn Haukum í fyrra

Fyrir þá stuðningsmenn sem ekki eiga heimangengt verðum við með beina textalýsingu sem birtist hér á heimasíðunni vel fyrir leik. Eins og áður segir þá hefst leikurinn klukkan 19:00 í KA heimilinu í kvöld, ekki láta þig vanta!


Haukar eru ríkjandi Íslandsmeistarar

22. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stórleikur gegn Haukum á fimmtudaginn

Það er leikið þétt þessa dagana í Olís-deilda karla og það eru engir aðrir en Íslandsmeistarar Hauka sem mæta norður yfir heiðar á fimmtudaginn. Bæði liðin léku um síðustu helgi, Akureyri tapaði fyrir Aftureldingu á laugardaginn í leik sem var svekkjandi að fá ekki að minnsta kosti stig úr. Haukar léku á sunnudaginn frestaðan leik gegn ÍBV. Sá leikur var ákaflega sveiflukenndur, Haukar voru mjög ósannfærandi í fyrri hálfleik, 5-11 undir en tókst af alkunnri seiglu að komast yfir í seinni hálfleik, það dugði þó ekki til og ÍBV vann að lokum tveggja marka sigur.

Haukaliðið er ekki mikið breytt frá síðustu leiktíð, hægri skyttan Árni Steinn Steinþórsson fór erlendis og einnig urðu þjálfaraskipti hjá liðinu. Patrekur Jóhannesson lét af störfum og einbeitir sér nú að austurríska landsliðinu en við tók reynsluboltinn Gunnar Magnússon sem hafði þjálfað ÍBV tvö ár þar á undan og gert Eyjamenn að Íslandsmeisturum 2014 og bikarmeisturum 2015. Þannig að það er reynslubolti þar á ferðinni.

Liðin mættust þrisvar á síðasta tímabili, Haukar unnu fyrsta leikinn 24-23 í Hafnarfirði en Akureyri vann öruggan sigur 28-21 í öðrum leiknum þegar liðin mættust hér fyrir norðan og aftur góðan útisigur 20-25 í síðasta leiknum sem var í Hafnarfirði. Þannig að það má reikna með fjörugum leik hér á fimmtudaginn.

Sigurinn í öðrum leiknum í fyrra varð þó Akureyrarliðinu dýrkeyptur. Þrír lykilleikmenn meiddust illa, Heimir Örn Árnason sneri sig illa á ökkla strax í fyrstu sókn og skyttan Brynjar Hólm Grétarsson, sem leysti Heimi af hólmi handarbrotnaði í næstu sókn. Ekki var allt búið því Ingimundur Ingimundarson fékk mikið högg á höndina og fingurbrotnaði.
Þessi skakkaföll virtust þó bara þjappa liðinu saman og liðið valtaði yfir Haukana. Munurinn varð mestur níu mörk, 13-4 áður en Haukar náðu að skora sitt fimmta mark sem kom eftir rúmlega tuttugu mínútna leik. Það segir allt sem segja þarf um vörn og markvörslu Akureyrarliðsins. Liðið hélt Haukunum í skefjum allan leikinn og þrátt fyrir að Haukarnir hafi skorað síðustu þrjú mörk leiksins lauk honum með sjö marka sigri Akureyrar.


Mönnum var heitt í hamsi þegar liðin léku á Akureyri í fyrravetur

Um síðustu helgi var varnarleikur og markvarsla Akureyrarliðsins sömuleiðis hreint út sagt frábær. Nú þarf bara að byggja ofan á þann grunn og ef við bætist magnaður stuðningur af áhorfendabekkjunum má svo sannarlega lofa fjörugum handboltaleik á fimmtudaginn.

Leikurinn hefst klukkan 19:00, við minnum þá sem enn eiga eftir að ná sér í stuðningsmannakort, Gullkort eða Silfurkort á að fjárfesta í þeim fyrir leikinn og fá þannig sem mest fyrir aurinn.
Leikmenn meistaraflokks og 2. flokks Akureyrar eru þessa dagana með kortin til sölu og er hægt að snúa sér til þeirra með viðskiptin. Einnig er hægt að panta kortin hér á heimasíðunni (smella á kortamyndirnar vinstra megin á síðunni) og að sjálfsögðu verða þau seld í miðasölunni fyrir Haukaleikinn á fimmtudaginn.

Líkt og mörg undanfarin ár er handhöfum Gullkorta boðið í heitan mat fyrir leikinn og síðan kaffiveitingar í hálfleik.

Sjáumst í KA heimilinu á fimmtudaginn
Leikmenn og stjórn Akureyrar Handboltafélags


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson