Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri yfirgaf botnbaráttuna með sigri á Nesinu - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2015-16

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Myndband frá leiknum      Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Grótta - Akureyri  28-29 (14-14)
Olís deild karla
Hertz höllin
Lau. 12. des. 2015 klukkan: 16:00
Dómarar: Bjarni Viggósson og Jón Karl Björnsson. Eftirlitsdómari Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Beggi fór á kostum og gerði 13 mörk



12. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri yfirgaf botnbaráttuna með sigri á Nesinu

Grótta tók á móti Akureyri í næst síðustu umferðinni fyrir jóla og EM frí í Olís deildinni. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í 6.-7. sæti og ljóst að liðið sem myndi fara með sigur af hólmi myndi taka stórt skref frá botnbaráttunni og stimpla sig inn í baráttuna fyrir miðri deildinni.

Smelltu hér til að sjá myndbrot úr leiknum.

Leikurinn fór mjög rólega af stað og var greinilegt að bæði lið mættu af varkárni í leikinn. Varnarleikurinn var í fyrirrúmi og eftir tæpar tíu mínútur var staðan 1-3 fyrir Akureyri. Þetta tveggja marka forskot hélst að mestu út fyrri hálfleikinn en undir lokin náðu heimamenn að refsa vel fyrir þau mistök sem okkar menn gerðu sóknarlega og sáu til þess að staðan var jöfn 14-14 þegar flautað var til hlés.

Gróttumenn byrjuðu síðari hálfleikinn betur og leiddu hann að mestu með tveimur mörkum. Grótta var að mestu að skora úr hröðum upphlaupum og seinni bylgju, uppsett vörn Akureyrar lokaði mjög vel mestallan leikinn fyrir utan undirhandarskot Viggós sem enduðu flest í netinu.

Þegar 10 mínútur lifðu leiks náðu strákarnir góðum kafla og komust yfir 23-24. Gróttumenn svöruðu hinsvegar með tveimur mörkum áður en Sigþór jafnaði metin í 25-25 og sex mínútur eftir. Hörður skoraði svo gott mark og útlitið gott þegar rétt tæpar fjórar mínútur voru eftir.

En þá kom harður dómur þegar Halldór Logi fékk brottvísun eftir að Daði Laxdal hafði farið í gegn og jafnað. Manni færri sýndu strákarnir hinsvegar frábæran leik, Ingimundur stal boltanum og Kristján Orri brunaði fram og skoraði. Hörður fiskaði svo ruðning áður en Bergvin kom Akureyri tveimur mörkum yfir og enn manni færri.

Heimamenn skoruðu fljótt en Bergvin kom Akureyri aftur í tveggja marka forskot og rétt rúm mínúta eftir. Kristján Orri stal svo boltanum og útlitið ansi gott, en tapaður bolti kostaði mark í bakið. Þrátt fyrir að strákarnir hafi misst boltann stuttu síðar þá náðist að landa sigrinum, 28-29, og strákarnir gjörsamlega trylltust af fögnuði á gólfinu.


Eðlilega var fagnað í leikslok. Mynd: mbl.is/​Eva Björk

Bergvin var algjörlega magnaður í leiknum en hann skoraði 13 mörk í dag og átti þar að auki nokkrar stoðsendingar, Beggi án nokkurs vafa besti maður vallarins. Sigþór átti líka mjög fínan leik en hann og Beggi báru sóknarleikinn á herðum sínum. Kristján Orri nýtti færin sín vel og setti 4 mörk.


Bergvin hafði svo sannarlega ástæðu til að brosa í leikslok. Mynd: mbl.is/​Eva Björk

Ingimundur var frábær í vörninni í dag, snerpan og ákveðnin í honum sá til þess að vörnin opnaðist lítið í leiknum og í hávörninni varði hann álíka mörg skot og Hreiðar og Tomas tóku hvorir í markinu, þá náði hann einnig að lauma inn marki. Við hlið Ingimundar var Róbert og var hann einnig mjög góður í miðri vörninni sem sést vel á því að línuspil Gróttumanna var varla til staðar.

Gríðarlega mikilvæg 2 stig í hús og nú er aðeins einn leikur eftir fyrir hlé og er það heimaleikur gegn ÍBV. Náist sigur í leiknum endar Akureyri í 5. sæti þegar tveir þriðju eru búnir af deildinni sem myndi þýða að liðið fengi 5 heimaleiki og 4 útileiki í síðasta þriðjungnum. Það er því annar gríðarlega mikilvægur leikur hjá liðinu upp á framhaldið núna á fimmtudaginn.

Tengdar fréttir

Bergvin fór á kostum

13. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir sigurleikinn gegn Gróttu

Það var aðeins einn leikur í Olís deildinni í gær og því athygli fjölmiðlanna á Seltjarnarnesinu í gærkvöldi. Hér á eftir eru viðtöl sem birtust á RÚV, mbl.is og visir.is. Byrjum á umfjöllun Einar Arnar Jónssonar á RÚV.



Á mbl.is ræddi Ívar Benediktsson við þjálfarana Sverre og Gunnar Andrésson.

Sverre: Allir sigrar eru sætir

„Allir sigrar eru sætir en þeir eru enn sætari í svona jöfnum leik,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar, eftir nauman sigur á Gróttu, 29:28, í Olís-deild karla í handknattleik í Hertz-höllinni á Setljarnarnesi í dag.
„Þetta var 50/50 leikur enda voru liðin jöfn að stigum áður en flautað var til leiks. Við áttum von á jöfnum leik og auðvitað er alltaf von um sigur,“ sagði Sverre ennfremur en með sigrinum færðist Akureyrarliðið upp í sjötta sæti deildarinnar, hefur nú 16 stig. Grótta féll niður í sjöunda sætið og er tveimur stigum á eftir.
„Leikmenn liðsins hafa tekið miklum framförum á ýmsum sviðum á síðustu vikum. Þeir hafa eflst við hverja raun."


Gunnar: Vonbrigði að fá ekki annað stigið

Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, var eðlilega vonsvikinn eftir að hafa tapað fyrir Akureyri með eins marks mun, 29:28, á heimavelli í dag í Olís-deild karla í handknattleik. „Eftir jafnan leik eru það vonbrigði að fá ekki annað stigið en því miður þá er þetta ekki í fyrsta skipti í vetur sem við töpum svo naumlega í jöfnum leikjum,“ sagði Gunnar en Grótta féll niður um eitt sæti við tapið.
Upphafskafli leiksins var slakur af hálfu Gróttu og um skeið voru Akureyringar með þriggja marka forskot. „Sóknarleikurinn var bara lélegur hjá okkur fyrsti 12 til 15 mínútur leiksins. Menn tóku margar rangar ákvarðanir en síðan unnum við okkur inn í leikinn og náðu að jafna metin fyrir hálfleik,“ sagði Gunnar.
„Við sýndum ekki nógu mikinn aga á lokakaflanum þegar við vorum manni fleiri og misstum boltann nokkrum sinnum það er dýrt.
En þegar litið er yfir síðari hálfleikinn í heild þá vantaði okkur alveg markvörslu. Ég held að markmenn okkar hafi varið tvö skot. Auk þess þá fannst mér margt í dómgæslunni orka tvímælis og ekki falla með okkur,“ sagði Gunnar.
„Við eigum erfiðan útileik í næstu viku gegn ÍR. Þá eigum við tækifæri til þess að bæta upp fyrir vonbrigðin að þessu sinni,“ sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu.


Gunnar var ekki eins brosmildur í gær og þegar liðin mættust á Akureyri

Á visir.is ræddi Kristinn Páll Steinsson við mann leiksins, Bergvin Þór Gíslason og þjálfarana Sverre og Gunnar.

Bergvin: Alltof tæpt hérna undir lokin

„Þetta var mjög sætt verð ég að segja, þetta var allt of tæpt hérna undir lokin,“ sagði Bergvin Þór Gíslason, sáttur að leikslokum.
„Við vorum með tveggja marka forskot þegar mínúta var eftir og vorum að henda frá okkur boltanum. Við vorum stálheppnir að missa þetta ekki niður í jafntefli. Það var þrautseigja sem skilaði þessu.“

Í stað þess að missa hausinn þegar fjórar mínútur voru eftir og Akureyri missti mann af velli stigu leikmenn liðsins upp.
„Við sýndum mikinn karakter á þeim kafla og sýndum þroskamerki. Við töpuðum á móti þessu liði á heimavelli með sex mörkum og vorum algjörlega glórulausir í þeim leik. Ég myndi segja að það væri stígandi í leik okkar þessa stundina.“

Bergvin fór sjálfur á kostum í leiknum en hann skoraði 13 mörk úr aðeins 16 skotum.
„Ég er auðvitað bara ánægður. Ég var búinn að lofa félaga mínum að fara yfir tíu stiga múrinn og það tókst í dag svo ég er sáttur.“


Bergvin hafði svo sannarlega ástæðu til að brosa í leikslok. Mynd: mbl.is/​Eva Björk

Sverre: Strákarnir eiga skilið risastórt hrós

„Að mínu mati var allur leikurinn spennandi. Þessi lið voru jöfn að stigum fyrir leikinn og hafa verið að spila mun betur undanfarnar vikur,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar, aðspurður hvernig lokamínúturnar hefðu verið á hliðarlínunni í dag.
„Þetta er erfiður völlur heim að sækja og ég tek stigunum tveimur fagnandi. Gróttumenn hafa verið að spila mjög vel undanfarnar vikur.“

Sverre sá bæði jákvæða og neikvæða punkta í leiknum.
„Þetta var mjög flottur leikur að mörgu leyti en það er margt sem þarf að skoða betur. Þetta var þannig leikur, það var mikið í húfi og tvö jöfn lið að mætast. Það kom mér ekki á óvart að þetta vannst á aðeins einu marki,“ sagði Sverre og bætti við:
„Ég get ekki kvartað undan því að skora 29 mörk í leik, það er kannski helst varnarleikurinn sem hægt er að setja út á. Ég get hinsvegar ekki kvartað undan strákunum, þeir eiga risastórt hrós skilið eftir þetta.“

Hann var ánægður með viðbrögð liðsins þegar þeir léku manni færri undir lok leiksins.
„Maður hélt að þetta yrði kannski vendipuktur fyrir þá en þetta varð þess í stað vendipunktur fyrir okkur og tryggði okkur sigurinn. Við þiggjum þetta með bros á vor,“ sagði Sverre léttur að lokum.


Sævar Árnsson fagnar með Sverre í leikslok. Mynd: mbl.is/​Eva Björk

Gunnar: Nokkrir dómar hérna undir lokin alveg út úr kortinu

„Við erum helvíti fúlir, það tekur tíma að melta þetta tap,“ sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, hundsvekktur að leikslokum.
„Mér fannst sóknarlega fyrsta korterið við vera lélegir en þegar upp er staðið erum við með tvö varin skot í seinni hálfleik og það er erfitt að vinna leiki með.“

Leikurinn var kaflaskiptur en í fyrri hálfleik leiddi Akureyri lengst af en í seinni hálfleik voru Seltirningar yfirleitt með forystuna án þess að ná að hrista gestina frá sér.
„Varnarlega vorum við allt í lagi en það vantaði alltaf herslumuninn og þeir náðu alltaf að svara. Það á oftast að duga að skora 27 mörk til þess að vinna leiki en við fengum allt of fá auðveld mörk í leiknum í dag og það telur mikið.“

Gunnar var fámæltur þegar kom að dómgæslunni undir lok leiksins en hann virtist vera ósáttur.
„Mér fannst nokkrir dómar hérna undir lokin alveg út úr kortinu en ég ætla ekki að tjá mig meira um það,“ sagði Gunnar sem sagði það jákvætt að hafa verið jafn nálægt því að stela sigrinum þrátt fyrir að hafa ekkert leikið neitt frábærlega í dag.
„Fyrsta upplifun eftir leikinn er að við höfum aldrei náð að spila okkar besta leik. Við getum tekið það jákvætt úr þessu að þrátt fyrir hafa spilað svona vorum við inn í þessu allan tímann.“


Andri Snær var besti leikmaður Akureyrar í tapinu árið 2010

11. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Andri Snær með 8 mörk gegn Gróttu árið 2010

Akureyri mætir Gróttu á Seltjarnarnesi á morgun í mikilvægum leik en liðin eru jöfn að stigum og er þetta næstsíðasti leikur liðanna fyrir jóla og EM frí.

Liðin mættust einnig á Seltjarnarnesi þann 21. mars 2010 og fóru Gróttumenn þá með 29-26 sigur af hólmi. Andri Snær Stefánsson var besti maður Akureyrar í leiknum og skoraði 8 mörk úr 8 skotum og var ákaflega öruggur á vítalínunni þar sem hann skoraði 6 mörk.



Gróttumenn eru erfiðir heim að sækja

11. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn Gróttu á laugardaginn

Akureyri mætir á Seltjarnarnesið og leikur gegn Gróttu í síðasta útileiknum fyrir jólafrí. Liðin eru jöfn að stigum og því eru stigin tvö gríðarlega mikilvæg í þessari jöfnu deild.

Byrjun Gróttumanna í deildinni var erfið en upp á síðkastið hafa þeir reynst mörgum liðum erfiðir og má segja að sigur þeirra hér á Akureyri í október hafi verið upphafið á viðsnúningi þeirra. Þeim leik lauk með sex marka sigri Gróttu og óhætt að segja að Akureyringar gráti þau töpuðu stig í dag.

En það verður ekki af Gróttu tekið að þeir eru með hörkulið. Heimavöllurinn hefur reynst þeim drjúgur, þeir unnu Fram í síðustu umferð, 28:24 sömuleiðis hafa þeir unnið Víkinga, Aftureldingu og ÍR í deildinni og FH í bikarnum. Þá gerðu þeir góða ferð til Vestmannaeyja og unnu ÍBV sannfærandi á útivelli 26:31. Allt þetta eftir sigurinn á Akureyri í október.

Akureyrarliðið hefur verið á býsna góðu róli undanfarið og það er því sannarlega verðugt verkefni fyrir Akureyri að mæta á Seltjarnarnesið á laugardaginn og kvitta fyrir tapið fyrr í vetur.

Því miður þá verður leikurinn ekki í útsendingu hjá RÚV en við hvetjum að sjálfsögðu alla sem eiga kost á til að mæta á Nesið á laugardaginn og styðja Akureyri til sigurs enda mikilvægt að sækja sem flest stig fyrir jóla og EM fríið.

Við verðum svo að sjálfsögðu með textalýsingu frá leiknum hér á heimasíðunni.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson