Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Stórbrotinn sigur Akureyrar á Haukum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2015-16

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Myndband frá leiknum      Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Akureyri - Haukar  25-21 (13-13)
8-liða úrslit karla
KA heimilið
Lau. 16. apríl 2016 klukkan: 16:00
Dómarar: Bóas Börkur Bóasson og Hörður Aðalsteinsson. Eftirlit Kristján Halldórsson
Umfjöllun

Hreiðar Levý, Ingimundur, Kristján Orri og Brynjar fóru fyrir sínum mönnum í gær







17. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stórbrotinn sigur Akureyrar á Haukum

Það voru án efa býsna margir sem töldu það nánast formsatriði fyrir Hauka að gera út um einvígi liðanna eftir öruggan sigur þeirra á heimavelli á fimmtudaginn. Stór hópur stuðningsmanna Hauka fylgdi þeim norður til að taka þátt í gleðinni.


Hluti af fylgdarliði Hauka í stúkunni

Það var þó ljóst strax í byrjun að Akureyrarliðið ætlaði ekki að sýna neina minnimáttarkennd gagnvart deildarmeisturunum. Bergvin Þór Gíslason kom Akureyri yfir með fyrsta markinu og leikurinn strax í járnum og jafnt á öllum tölum upp í 4-4. Næstu átta mínúturnar virtust Haukarnir ætla að stinga af því næstu fjögur mörk voru þeirra, staðan orðin 4-8 og mikil gleði meðal fjölmargra stuðningsmanna Hauka í stúkunni.

En þá hófst viðsnúningurinn, Hreiðar Levý var kominn í markið og varnarleikurinn small betur. Í kjölfarið komu tvö hraðaupphlaupsmörk og forysta Hauka komin niður í eitt mark, 8-9. Haukarnir spyrntu þó frá sér og juku muninn í þrjú mörk, 9-12 og 10-13 þegar enn voru tæpar fjórar mínútur til hálfleiks.

Þessar mínútur reyndust heldur betur fjörugar, Hörður Másson og Bergvin Þór Gíslason minnkuðu muninn í eitt mark með flottum mörkum utan af velli. Hreiðar Levý varði síðasta skot Hauka þegar 15 sekúndur voru eftir og kom boltanum fram. Boltinn barst til Friðriks Svavarssonar á línunni og af gríðarlegu harðfylgi sótti hann aukakast og varnarmann Hauka útaf þegar tvær sekúndur voru eftir. Stillt var upp í aukakastið og Brynjar Hólm Grétarsson klíndi boltanum, óverjandi upp í samskeytin og jafnaði leikinn við gríðarlegan fögnuð heimamanna í húsinu.


Friðrik Svavarsson svo sannarlega með krafta í kögglum vinnur mikilvægt aukakast

Bergvin Þór og Kristján Orri voru komnir með 4 mörk hvor, Hörður 2, Brynjar Hólm Róbert og Sigþór með 1 mark hver.

Haukar byrjuðu með boltann í seinni hálfleik en það var ljóst strax í upphafi að vörn Akureyrar var komin í ofurham. Ingimundur Ingimundarson fór hamförum og dreif alla með sér. Hreiðar Levý varði síðan flest sem komst í gegnum varnarmúrinn. Eftir þrettán mínútna leik í seinni hálfleik náði Akureyri forystunni 16-15 og áfram var haldið með þrem mörkum í viðbót og staðan orðin 19-15 fyrir heimamenn.


Ingimundur átti sannkallaðan stórleik í vörninni

Haukar virtust ekki trúa sínum eigin augum en Akureyrarliðið barðist áfram af fullum krafti og það segir nokkuð um vörn og markvörslu að það var ekki fyrr en eftir 22 mínútna leik í seinni hálfleik sem þeir skora sitt fjórða mark.

Lokahluti leiksins var æsilegur, Haukar reyndu hvað þeir gátu til að riðla sóknarleik Akureyrar, tóku eiginlega þrjá sóknarmenn úr umferð og með tveim mörkum frá Tjörva Þorgeirssyni tókst þeim að minnka forystu Akureyrar í tvö mörk. Þegar rétt rúm mínúta var eftir fiskaði Janus Daði víti fyrir Hauka en Hreiðar Levý kórónaði frábæra frammistöðu sína með því að verja vítakastið frá Hákoni Daða.


Hreiðar Levý ver vítakastið á lokamínútunni

Kristján Orri og Hreiðar Þór skiluðu síðan tveim Akureyrskum mörkum á lokamínútunni og Hreiðar Levý bætti um betur með því að verja tvö skot til viðbótar þannig að Akureyri fagnaði hreint stórkostlegum fjögurra marka sigri, 25-21.

Það verður að segjast eins og er að þetta var einhver albesti leikur sem Akureyrarliðið hefur sýnt á tíu ára sögu liðsins. Sérstaklega var seinni hálfleikurinn hreint frábær. Varnarleikur liðsins var hreint ævintýralegur, Ingimundur var sem kóngur í ríki sínu og smitaði heldur betur út frá sér. Sóknin gekk líka vel og ef ekki hefðu komið til nokkrir tapaðir boltar hefði sigurinn hæglega getað orðið stærri því þegar upp er staðið þá blasir við sú ótrúlega staðreynd að markverðir Hauka náðu ekki að verja eitt einasta skot í seinni hálfleik.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 9 (2 úr vítum), Bergvin Þór Gíslason 4, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Heiðar Þór Aðalsteinsson 3, Hörður Másson 2, Sigþór Árni Heimisson 2 og Róbert Sigurðarson 1 mark.
Hreiðar Levý Guðmundsson varði 18 skot þar af 1 vítakast og Tomas Olason varði 1 skot.

Mörk Hauka: Tjörvi Þorgeirsson 7, Adam Haukur Baumruk 4, Hákon Daði Styrmisson 4 (2 úr vítum), Janus Daði Smárason 3, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2 og Elías Már Halldórsson 1 mark.
Í markinu varði Giedrius Morkunas 8 skot, þar af 1 vítakast. Grétar Ari Guðjónsson kom í markið um tíma í seinni hálfleik en náði ekki að verja skot.

Við völdum Hreiðar Levý mann leiksins en ekki er hægt annað en hrósa öllu liðinu fyrir frábæra frammistöðu, Ingimundur, Kristján Orri og þið allir, takk fyrir okkur.


Ósvikin fagnaðarlæti í leikslok

Slagurinn heldur svo áfram á þriðjudagskvöldið með oddaleik á Ásvöllum, það er ekkert gefið í þeim leik.

Tengdar fréttir

Kristján Orri var atkvæðamikill í gær

17. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir leik Akureyrar og Hauka

Einar Sigtryggsson blaðamaður mbl stóð fréttamannavaktina í gærkvöldi þegar Akureyri og Haukar mættust í öðrum leik sínum í átta liða úrslitum karla. Einar náði tali af Kristjáni Orra Jóhannssyni markahæsta leikmanni Akureyrarliðsins og Gunnari Magnússyni þjálfara Hauka.

Kristján Orri: Tókum vel á þeim

Kristján Orri Jóhannsson, leikmaður handboltaliðs Akureyrar, var í miklu stuði í dag þegar lið hans lagði Hauka í úrslitakeppninni, 25:21.
Akureyri jafnaði metin í einvígi liðanna og verður því oddaleikur á Ásvöllum á þriðjudagskvöld. Liðin voru að mætast í 5. skipti í vetur og höfðu Haukarnir farið illa með norðanmenn fram að þessu.

En hver var lykillinn að sigrinum að mati hornamannsins knáa?
„Við skoðuðum mjög vel það sem mátti bæta eftir síðasta leik og ég tel að við höfum náð að laga það sem þurfti að laga. Við kláruðum sóknirnar betur og náðum einnig að keyra hratt aftur í vörnina til að koma í veg fyrir hraðaupphlaupsmörk frá Haukunum,“ sagði Kristján en hann skoraði níu mörk fyrir Akureyri.

„Þeir eru mjög öflugir í að refsa með hraðaupphlaupum og fengu úr litlu að moða í þessum leik. Uppstillta vörnin hjá okkur var samt það sem gerði gæfumuninn. Við spiluðum fast, tókum vel á þeim og vorum alltaf mættir í hjálparvörn. Svo verður markvörðurinn að fá smá hrós, það verður víst alltaf að gefa þeim kredit. Við ætlum að mæta svona gíraðir á þriðjudaginn. Þá er bara úrslitaleikur og við mætum fullir sjálfstrausts. Við ætlum að ná upp sömu geðveikinni njóta þess að spila þann leik“ sagði Kristján Orri að skilnaði.


Kristján Orri lét sitt ekki eftir liggja í varnarleiknum, hér býst hann til að stöða hraðaupphlaup Hauka

Gunnar: Þessi leikur var ákveðin upplifun

Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, var ótrúlega yfirvegaður þegar blaðamaður mbl.is spjallaði við hann í dag.Var þá leik Akureyrar og Hauka nýlokið þar sem norðanpiltar lögðu sjálfa Íslandsmeistarana nokkuð óvænt.
Leikurinn var jafn og spennandi en heimamenn í Akureyri unnu að lokum 25:21.

„Það er hundfúlt að tapa en þetta var brekka í dag. Ég get þó ekki verið annað en ánægður með mína menn. Þeir lögðu allt í leikinn og gáfust ekki upp hvað sem á gekk. Akureyringar voru bara klárir. Þeir eru með gott lið og hlutirnir gengu ekki hjá okkur að þessu sinni. Við vorum ekki að spila nógu vel og þegar við vorum manni færri þá vorum við ekki að spila rétt úr stöðunni og misstum aðeins hausinn. Svona leikir eru til að læra af og mínir menn koma til baka. Þetta var ákveðin reynsla sem á eftir að lifa með okkur lengi. Það má segja að þessi leikur hafi verið ákveðin upplifun,“ sagði Gunnar sposkur og var þá vafalaust að vísa í hluti sem við vildum ekki ræða neitt frekar.

Og oddaleikurinn á þriðjudag? „Maður hefur alveg áhyggjur. Akureyrarliðið er gott og leikurinn verður eflaust hörkuleikur. Þetta er hreinn úrslitaleikur og sigurliðið fer áfram en hitt er úr leik. Við verðum klárir,“ sagði Gunnar.


Gunnar Magnússon hugsi yfir því sem er að gerast inni á vellinum


Í umfjöllun RÚV um leikinn er einnig rætt við Sverre Andreas Jakobsson þjálfara Akureyrar svo og Gunnar Magnússon. Umfjöllunina og viðtölin má sjá með því að smella hér.


Sverre gat leyft sér að brosa að leik loknum eftir magnaðan sigur

17. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Frétt RÚV frá mögnuðum sigri Akureyrar á Haukum

Akureyri knúði fram oddaleik í rimmu sinni við Hauka í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar með 25-21 sigri í KA-Heimilinu í gær. Liðið sýndi gríðarlegan karakter frá skellinum í fyrsta leiknum og kom mörgum á óvart með afar sannfærandi sigri. RÚV mætti á svæðið og hér má sjá umfjöllun þeirra frá leiknum þar sem þjálfarar liðanna eru svo teknir tali.



Tómas átti góðan seinni hálfleik gegn Haukum á fimmtudaginn

15. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Annar leikur Akureyrar og Hauka á laugardaginn

Akureyrarliðið fékk vissulega skell í fyrri hálfleiknum gegn Haukum í gærkvöldi en sýndu klærnar í seinni hálfleiknum. Á þeirri frammistöðu þurfum við að byggja á laugardaginn þegar liðin mætast öðru sinni, að þessu sinni hér fyrir norðan.

Það er ekki spurning að strákarnir munu mæta dýrvitlausir í þann leik og með sameiginlegu átaki allra stuðningsmanna handboltans er ljóst að nú þarf að leggjast á eitt með að tryggja oddaleik í þessu einvígi. Allavega leggja menn ekki niður skottið baráttulaust.

Við minnum stuðningsmenn á þá nýbreytni sem var kynnt í haust að Gullkortið 2015-2016 gildir einnig á heimaleiki Akureyrar í úrslitakeppninni og þar með á leikinn á laugardaginn.

Það þarf ekki að hafa mörg frekari orð um leikinn eða kynna liðin heldur mæta til leiksins og standa dyggilega með okkar mönnum. Það er allt undir og slíkir leikir eru einmitt alskemmtilegastir. Mætum og skemmtum okkur, leikurinn hefst klukkan 16:00 á laugardaginn!


Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson